Tíminn - 27.05.1970, Blaðsíða 1

Tíminn - 27.05.1970, Blaðsíða 1
íiííiSi íísSí-'xSSíí::: :■: ;■• ,: ;• iSiv^;;1:;.;;:;;, (Tímamynd.GE) TAFARLAUSA SAMNINGA - SJÁ LEIÐARA BLS. 7 IGNIS HEII11IUSTIEKI 115. tbl. — Miðvikudagur 27. maí 1970. — M. arg. ~ " .. .iii , i ■ ■■ - ■ , i.i''.. . . ii . in Frá kappræðufundi FUF og Heimdallar - bls. 14-15 HOFU VERKFALL A MIDNÆTTI Bfiaeigendur hömstruðu benzín í alian gærdag fram að miSnæfti. SKAÐABÖTAKRÖF UR 80 BÆNDA A LAXÁRSVÆÐINU NEMA TUGMILLJ. KJ—Reykjaivík, þriðjudag. Að því er segir í bréfi frá Fé- lagi landeigenda á Laxársvæðinu^ til stjórnar Laxárvirkjunar á Akur eyri, er hafin gagnasöfnun meðal bæn.da um þaið tjón, sem þeir hafa beðið af völdum Laxárvirkj- unar, eða orðróms um frekari virkjanir. Munu nálægt 80 bænd- ur hafa orðið fyrir meira eða minna tjóni, og má búast við, að skaðabótakröfur þcirra ... :ni nema tugum milljóna króna. í upphafi þessa bréfs, sem dag- sett er 24. maí, og undirritað af Sigurði Gizurarsyni héraðsdóms- lögmanni, segir, að ýmsir aðilar hafi fullyrt að Oljúfurversvirkj- un verði reist samkvæmt hönnun Orkustofnunarinnar um 54.6 mega watta virkjun, en heimild ráðu- neytisins hljóðar aðeins upp á átta þúsund kílówatta raforkuver. Þá segir í upphafi bréfsins. að stjórn Laxárvirkjunar hafi sent Hermóði Guðmundssyni í Árnesi bréf. sem svar við símskeyti hans f. h. Fé- lags landeigenda við Laxá. og seg- ir Laxárvirkjunarstjórn þar. að virkjunarframkvæmdirnar séu honum og samtökunum óviðkom- andi. í bréfi landeigenda til Laxár- / virkjunarstjórnar segir, að Gljúf- versvirkjun muni hafa í för með sér stórkostlegt og óbætanleg spjöll á náttúruverðmætum sem eigi sér fátt líkt, þótt leitað sé um viða veröld. Muni virkjunin því valda eigendum þessara nátt- úruverðmæta hörmulegu tjóni, sem bó yrði enn meira tjón fyrir ís- lenzku þjóðina alla. Þá segir að af þessu leiði að landeigendur við Laxá, eigi skýlausan rétt til að krefja stjórn Laxárvirkjunar sagna um, hvort hún ætli sér að hefja framkvæmdir eftir hönnun hinnar ólöglegu Gljúfurversvirkjunar. Óvissan um hvers konar virkj- unarframkvæmdir séu fyrirhugað- ar, hafi valdið bændum og land- eigendum við ána gífurlegu fjár- hagstjóni og miska. því þeir hafa um langt skeið.átt yfir höfði sér, án þess að vita fulta vissu, að jarðir þeirra yrðu lagðar undir vatn, eða stórskemmdar, auk þess tjóns sem þegar hefur af hlotizt. Fraenhald á 11. síðu Nýjasta stjarna íhaldsins sendir kaldar kveðjur til íþróttafólks: ■ Kallar réttmætar kröfur þeirra „betl og sníkjur“ EJ—Reykjavík, þriðjudag. • Á kappræðufundi FUF og Heimdallar sýndi Alfreð Þor- steinsson, 4. maður á lista Fram sóknarmannai, fram á bað, hve illa er búið að íþróUafélögun- um í borginni. en framlag Reykiavíkurborgar til féiaga’nna nægir ckki einu sinni til að greiða íþróttatíma, sem þau kaupa arf Reykjavíkurborg. ..Smáræðið, sem Reykjavíl’ur- borg leggur félögunum til, stingur hún í vinstri vasa þeirra, og ;ekur aftur úr þeim hægri.“ sagði Alfreð. • Einn af ungu frambjóð- endum Sjáif tæðisflokksins, Mairkús Örn Antonsson, var til svara. og kallaði hann rétt- mætar kröfur íþróttafélaganna „betl og sníkjur“. • Þótti fundairmönnum þetta að vonum kaldar kve~iur til reykvíska íj, ttafóiks. EJ-Reykjavík, þriðjudag. • Á miðnætti hófu sex verka lýðsfélög í Reykjavík, Hafnarfirði, Grindavík og Akureyri, verkfall, þar sem samkomulag náðist ekki um nýja kjarasamninga. Fjöldi félaga hefur verkfall næstu daga, ef ekki semst. • Sáttafundur stóð í dag frá klukkan 16,00 með fulltrúum verkalýðsfélaga og vinnuveitenda, og rétt fyrir kvöldmatinn lögðu atvinnurekendur fram nýtt tilboð. Felur það í sér, að tilboðið um 8% kauphækkun nú, hækkar í 10%, en er óbreytt að öðru leyti og felur því áfram í sér tveggja ára samning og 4% kauphækkun fyrir síðara samningsárið. • Fulltrúar verkalýðsfélag- amia ræddu tilboð þetta í kvöld. Sáttafundur stóð enn er blaðið fór í prentun og hafði þá ekkert nýtt frétzt af fundinum. Verkfallið hefur strax veruleg áhrif. Þannig stöðvast afgreiðsla á benzíni á verikfallssvæðinu, en mjólk verður afgreidd áfram fyrst um sinn. Einnig stöðvast allt inn- anlandsflug, en ekki utanlands- flutg, og afgreiðsla við hafnir stö®v ast einnig. Þá stöðvast öll sú vinna, sem félagstnenn í verkalýðsfélögunum á svæðinu vinna við. • Á miðnætti í nótt hófu þessi félög verkfall: Verkamanna félagið Dagsbrún, Reykjavík, — Verkamannafélagið Hlíf, Hafnar- firði, Verkalýðsfélag Grindavíkur, Verkalýðsfélagið Eining, Akur- eyri, Bílstjórafélag Akureyrar og Verkalýðsfélagið Vaka, Siglufirði. Skráðir félagsmenn í þessum félögum munu vera um 7000 Önnur verkföll hefjast sem hér segir, ef ek'ki semst: • Á miðnætti fimmtudagéins bætast tvö verkalýðsfélög í hóp- inn: Verkakvennafélagið Fram- sókn í Reykjavík og Framtíðin í Hafnarfirði. í þess-um félögum eru á þriðja þúsund verkakonur. • Á miðnætti aðfaranótt föstudagsins hefjast síðan verk- föll hjá verkalýðsfélögunum í Ár- nessýslu. • Aðfaranótt langardagsina Framhald á 11. síðu HVER A AÐ VERÐA B0RGARSTJÓRI? Sjá Víðavang, bls. 3

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.