Morgunblaðið - 10.11.2005, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 10.11.2005, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. NÓVEMBER 2005 21 MENNING Árið 2001 boðuðu rithöfundarí Bandaríkjunum verkfall.Sjónvarps- og kvikmynda- iðnaðurinn komst við það í upp- nám og fór að huga að leiðum til þess að halda framleiðslunni gang- andi án þess að þurfa að leita til handritshöfunda. Þó svo að hið boðaða verkfall hafi aldrei skollið á, urðu margar af hugmyndunum sem urðu til í handritsleysinu að veruleika og segir sagan að veru- leikasjónvarpið alræmda hafi hlot- ið byr undir báða vængi þegar sú hugmyndavinna fór af stað. En það komu líka aðrir og betri hlutir út úr óvissuskeiðinu sem yfirvofandi verkfall skapaði. Það sendi t.d. handritshöfundinn Angelu Shelton af stað að búa til heimildarmynd, sem byggðist ekki á handriti, held- ur óljósum áætlunum um að taka lífreynsluviðtöl við konur víðs- vegar um Bandaríkin sem báru sama nafn og hún sjálf. Áður en yfir lauk var Angela Shelton búin að gera heimildarmynd sem fjallaði um það hvernig hún horfð- ist í augu við kynferðislega mis- notkun sem hún varð fyrir sem barn, eftir að hún komst að því að 24 af þeim 40 Angelum Shelton sem hún hafði uppá höfðu orðið fyrir ofbeldi eða misnotkun á æv- inni.    Þetta er ekki bara mynd, þettaer hreyfing,“ segir kvik- myndagerðarkonan og rithöfund- urinn Angela Shelton jafnan um heimildarmyndina sína, Leitin að Angelu Shelton og þá vitund- arvakningu sem hún hefur átt þátt í að skapa. Hún er stödd hér á landi í tengslum við sýningu mynd- arinnar á Októberbíófest og er þetta í annað sinn sem Shelton kemur til landsins. Í mars í fyrra lagði Shelton baráttu V-dags- samtakanna lið og sýndi ófullgerða útgáfu af myndinni sinni í fyrsta sinn. Síðan þá hefur mikið vatn runnið til sjávar, en myndin hefur ferðast kvikmyndahátíða á milli í Bandaríkjunum og vakið svo mikil viðbrögð að Shelton hefur verið í fullu starfi við að fylgja henni eftir í gegnum samtök sem kennd eru við vefsíðuna searchingfor- angelashelton.com. „Ég hef unnið með margs konar samtökum sem berjast gegn kynferðislegu ofbeldi og helga sig barnavernd og hjálp- að til við fjáröflun, m.a. með því að láta 50% söluágóðans af myndinni renna til þeirra,“ segir Shelton sem látið hefur til sín taka á bandaríska þinginu þar sem hún hefur lagt fram þær 10 þúsund undirskriftir sem safnast hafa á vefsíðu samtaka hennar. Í Íslands- heimsókninni hyggst Shelton leggja lóð á vogarskálar forvarn- arverkefnisins Blátt áfram. Í því sambandi verður efnt til umræðna um myndina í samvinnu við nem- endur í félagsráðgjöf við Háskóla Íslands í dag kl. 13. Um er að ræða fund sem er öllum opinn og er haldinn í sal 3 í Háskólabíói. Í há- deginu á föstudaginn mun Shelton ræða við gesti í miðstöð Stígamóta.    Heimildarmyndin Leitin aðAngelu Shelton er dæmi um hvernig hægt er að fjalla um svo óhugnanlegt viðfangsefni sem kyn- ferðislegt ofbeldi gegn börnum er á máta sem hreyfir við fólki og fyllir það um leið von um að hægt sé að breyta hlutum til batnaðar. „Þær Angelur Shelton sem ég kynntist í tengslum við myndina voru komnar misjafnlega langt á veg við að vinna úr áfallinu sem þær höfðu orðið fyrir og byggja sig upp aftur. Viðfangsefnið er vissulega óhugnanlegt, en í mynd- inni er leitast við að finna nýja leið til þess að takast á við það, m.a. með því að leggja áherslu á húmor og bjartsýni og fjalla um það hvernig hægt er að lækna sárin. En að sama skapi er ákaflega mik- ilvægt að vekja fólk til meðvit- undar um hversu útbreiddir kyn- ferðisglæpir gegn börnum eru og græða þau sár sem þegar hafa ver- ið búin til. Með því móti rjúfum við vítahringinn sem annars vegar skapast af þögninni sem ríkir í kringum glæpina og hins vegar af þeirri sjálfsskemmandi hegðun sem fórnarlömb ofbeldisins hafa svo oft lokast inni í,“ segir Angela Shelton að lokum. Að rjúfa vítahringinn ’Viðfangsefnið er vissulega óhugnanlegt, en í myndinni er leitast við að finna nýjar leiðir til þess að takast á við það.‘ AF LISTUM Heiða Jóhannsdóttir Morgunblaðið/Golli Heimildarmynd Angelu Shelton er sýnd þessa dagana á Októberbíófest. heida@mbl.is www.searchingforangelashel- ton.com www.blattafram.is ÓPERAN Grettir eftir Þorkel Sig- urbjörnsson verður sett upp í Tor- onto í Kanada í byrjun næsta árs. Í óperunni eru fimm einsöngs- hlutverk, og sex manna kamm- ersveit leikur. Leikstjóri verður Sveinn Einarsson en hljómsveit- arstjóri er Guðmundur Emilsson. Þorkell kveðst afar ánægður með þetta fyrirhugaða ferðalag Grettis. „Óperan var frumsýnd í Bayreuth í Þýskalandi í fyrra og gekk mjög vel. Þá þegar sýndu Kanadamenn henni áhuga og spurðu hvort þeir gætu ekki fengið sýninguna til sín. Það voru auðvitað engir vankantar á því aðrir en peningaleysi. Síðan þá hefur ýmislegt vatn runnið til sjávar og við höfum fengið styrk upp í ferðakostnaðinn, en erum en gangandi um með betlistafinn,“ segir Þorkell. „Þetta er heilmikið fyrirtæki.“ Sagan er byggð á Spesar-þætti og greinir frá samskiptum Dró- mundar hálfbróður Grettis við hefðarfrúna Spes, en Drómundur situr í Dýflissu í Miklagarði eftir að hafa hefnt bróður síns. Drómundur segir henni sögu Grettis. „Sýningarnar verða tvær, í leik- húsi Kanadíska listdansskólans, sem er lítið huggulegt leikhús.“ Með hlutverkin fara sömu söngv- arar og frumfluttu verkið að því undanskildu að Lára Bryndís Egg- ertsdóttir sem söng hlutverk Spes- ar fer ekki, en í hennar stað syng- ur Regína Ólafsdóttir. Bragi Bergþórsson er í hlutverki Dró- mundar, Dóra Steinunn Ármanns- dóttir syngur þjónustustúlku Spes- ar, Hugi Jónsson er afbrýðisamur eiginmaður hennar og Davíð Ingi Ragnarsson er samfangi Drómund- ar. Elín Edda Árnadóttir sér um leikmynd og búninga. „Ég vonast til að hægt verði að hafa opna aðalæfingu hér heima áður en við förum út,“ segir Þor- kell. Lára Bryndís Eggertsdóttir, Dóra Steinunn Ármannsdóttir og Bragi Berg- þórsson í Gretti eftir Þorkel Sigurbjörnsson í Bayreuth í Þýskalandi. Spes frá Mikla- garði til Kanada Eftir Bergþóru Jónsdóttur begga@mbl.is Öll tónlist á dögum Boccherinisá átjándu öld var sköpuð tilað gleðja fólk. „Æ, elsku Boccherini, komdu nú í te á morgun, ég ætla að biðja þig að semja nokkur tríó fyrir mig fyrir sunnudaginn,“ – svona töluðu fyrirmennin við tón- skáldin, eins og Boccherini, Haydn og fleiri. Þessi tónskáld höfðu engin tök á því að semja eitthvað sjálfs- prottið úr djúpum sálarlífsins, þau voru í vinnu hjá greifum og prinsum við það að semja eitthvað til að gleðja andann“ segir David Geringas, einn af frægustu sellistum heimsins, sem kominn er hingað til lands til að stjórna Sinfóníuhljómsveit Íslands á tónleikum í Háskólabíói í kvöld, og leika einleik með hljómsveitinni í Sellókonsert í B-dúr eftir Boccherini. Þótt tónlistin sé vissulega eftir Boccherini, var það annað tónskáld, Friedrich Grützmacher að nafni, sem bjó konsertinn til, með því að púsla saman efni úr nokkrum verkum Boccherinis. „Grützmacher var mjög mikill og virtur tónlistarmaður. Hann var uppi á nítjándu öld, í miðri rómantíkinni, og hann vildi smíða rómantískan konsert úr öðrum verk- um Boccherinis. Grützmacher hlýtur að hafa þekkt verk Boccherinis vel – í það minnsta tókst honum vel upp við þessa endursmíð. Hann notar efni úr fjórum sellókonsertum hans – ef ekki fimm, og valdi það sem honum fannst fallegast og best.“ Geringas talar af mikilli alúð og hlýju um Grautargerðarmanninn eins og hann kallar Grützmacher – enda er það bein þýðing á nafninu á þessum lítt þekkta músíkant, sem í raun og veru kom nafni Boccherinis aftur á blað, með þessari sérstöku nýsköpun. „Veistu … Þjóðverjar og Danir eiga til yndislegan eftirrétt sem er rauðgrautur, búinn til úr rauðum berjum og er borðaður með vanillusósu. Grützmacher er sá sem býr til svona graut. Ég er ekki að gera lítið úr Grützmacher með því að segja þetta um nafnið hans, en það sem hann sauð upp úr verkum Boccherinis var hreint afbragð. Ég er hræddur um að Boccherini væri gleymdur í dag ef ekki hefði verið fyrir Grützmacher. Konsertinn er svo fallegur og verðskuldar allar þær vinsældir sem hann hefur notið.“ Boccherini samdi ellefu sellókons- erta og var sjálfur mikill virtúós í sellóleik. Samdi sama verkið 152 sinnum Geringas segir að jafnvel í píanó- konsertum Mozarts, finnist honum hægt að spila hvern í beinu framhaldi af öðrum – þeir séu svo keimlíkir, þótt hver hafi auðvitað sín sérkenni. „En jafnvel Mozart notaði stundum sama efnivið í fleiri en einn konserta sinna. Stravinskíj sagði nú svo um Vivaldi að hann hefði samið eitt verk 152 sinnum. Ég hef lagt mig sér- staklega fram um það í sellókons- ertum Boccherinis að finna karakter hvers og eins. Mér fannst það í raun- inni ekki erfitt, því Boccherini var mjög frjór í hugsun og skapandi. Hann var samt kornungur þegar hann samdi sín bestu verk, bara rétt um tvítugt. Ég hef ekki þá tilfinningu fyrir sellókonsertum hans, eins og ég hef fyrir píanókonsertum Mozarts, að þeir séu einhvers konar framhald hver af öðrum. Þeir eru ólíkir. Og þessi tólfti, Grützmacherkonsertinn er svo alveg sérstakur, fyrir það hvernig hann varð til. Yves Gérard, tónlistarfræðingurinn franski sem skráði öll verk Boccherinis og er hon- um það sama og Köchel er verkum Mozarts, sagði nú reyndar að þessi konsert væri ekkert merkilegur og ekkert frumlegur vegna þess hvern- ig hann er búinn til. En við sellóleik- arar erum auðvitað hæstánægðir með að Grautargerðarmaðurinn skuli hafa lagt okkur til svona frá- bært verk, tólfta sellókonsert Bocch- erinis.“ Geringas segir að þótt hann hafi sagt að tónlist Boccherinis hafi verið samin til að gleðja þýði það ekki að í henni búi engin dýpt. „Ójú, það er mikil dýpt í gleðinni. Þarna eru dans- ar, yndislegar laglínur, rytmi og mik- il hreyfing og mikil fegurð. Ef ég ætti að lýsa þessari tónlist í fáum orðum, þá væri það cantabile. Boccherini syngur. Ef maður spilar þessa músík án þess að þekkja Boccherini, – fer nákvæmlega eftir bókstafnum um það hvernig sagt er að túlkun á verk- um þessa tíma á að hafa verið, útfær- ir rytma og flúr og dýnamík ná- kvæmlega eftir uppskriftinni, þá verður hún flöt. Það má aldrei gleyma því að Boccherini á að syngja.“ Önnur verk á efnisskránni í kvöld eru Ítalskt capriccio eftir Tsjaík- ovskíj og Sinfónía nr. 8 eftir Dvorák. Tónleikarnir hefjast að vanda kl. 19.30. Tónlist | David Geringas stjórnar Sinfóníunni og leikur jafnframt einleik í Sellókonsert Boccherinis Snilldaruppskrift Grautargerðarmannsins Morgunblaðið/Kristinn David Geringas: „Ég er hræddur um að Boccherini væri gleymdur í dag ef ekki hefði verið fyrir Grützmacher. “ Eftir Bergþóru Jónsdóttur begga@mbl.is

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.