Tíminn - 31.07.1970, Blaðsíða 16

Tíminn - 31.07.1970, Blaðsíða 16
Föstudagur 31. |úlf 1970 ,,0kkar vor kemur í febrúaru fe - I Fré blaðamannafundinum í gær. GuSmundur Sæmundsson, blaðamaður, Ottó Björnsson, tölfræðingur, Þorvaldur Búason, eðlisfræðingur, Þorsteinn Vísmdamenn mótmæla framkvæmd stöðuveitinga innan Háskólans Sjö stöður auglýstar með aðeins 12 daga umsóknarfresti SJ—Reykjavík, fimmtudag. í gær, 29. júlí voru auglýst- ar tvær prófessorsstöður og fimm dósentsstöður við Há- skóla íslands oieð umsóknar- fresti til 10. ágúst. „Félag vis indalega menntaðra starfsm. við Raunvísindastofnun Háskól- ans“ samþykkti á félagsfundi að mótmæla þeim hætti, sem hafður er á við að ráða menn í þessar stöður, og efndi í dag til blaðamannafundar til að kynna afstöðu 'sína. Umræddar sjö stöður eru tvö prófessorsembætti við Verkfræði- og raunvísinda- deild Háskólans, annað í al- mennri líffræði en hitt í véla- verkfræði, og fimm dósents- ecnbætti; í eðlisfræði, stærð- fræði, lífefnafræði, landa- fræði og dýrafræði. Vísindamennirnir telja stöð- urnar auglýstar allt of seint og umsóknarfrestinn of stutt- an, þar sem • vísindamenn, sem starfa erlendis og raunar einnig hér heima, verði að ráða sig áfram með verulegum fyrirvara, og eigi þess því tæp ast kost. að sækja um áður- nefndar stöður. Þá skal fylgja umsóknunum ítarleg greinar- gerð um, fyrri störf og hafa menn, eins og augljóst er, allt of skamman tíma til að ganga frá slíkri skýrslu. Telja þeir, að þegar sé ákveðið hverjir hljóta skuli stöðurnar sjö. — Við eigum hæfa menn erlendis til að gegna þessum stöðum, — sagði Ottó Björns- son, tölfræðingur á blaða- mannafundinum í dag. — Menn sem hafa lagt á sig margra ára kostnaðarsamt sérnám. Og það er lágmarkskrafa að beir standi jafnfætis starfsbræðr- um sínum hér heima hvað emb ættaveitingar snertir. Auk þess sem þessi málsmeðferð tryggir alls ekki að hæfuktu mennirn ir hljóti stöðurnar, og það get- ur orðið þjóðfélaginu d.vrt.“ „Félag vísindalega mennt- aðra starfsm. Raunvísindast. H. í“ hefur áður sent yfirvöldum Háskólans og Menntamálaráðu- neytinu bréf, þar sem fram kvæmd stöðuveitinga innan Há skólans almennt, hefur verið gagnrýnd, en engin svör hlotið. Vísindamcnnirnir telja að lengri aðdraganda eigi að hafa að stöðuveitingum, en gert hef ur verið, og í stöðurnar s.iö eigi ekki að skipa fyrr en eftir næstu áramót, úr því sem kom ið er. „Félag vísindalega mennt- aðra starfsmanna við Raunvís- indastofnun Háskólans var stofnað fyrir tveimur árucn. í lögum félagsins segir, að mark fnið þess sé að efla vísindaiðk- un og kennslu við Háskóla ís- lands, fylgjast með og hafa áhrif á stjóm og starfsemi Raunvísindastofnunar Háskól- ans og Reiknistofnunar Háskól ans, og gæta hagsmuna félags- manna. Þetta e.r fyrsti blaða- Framhald á bls. 14. Vilhjálmsson, eðlisfræðingur, Halldór Elíasson, eðlisfræðtngur og Haildór Guðjónsson, sfærðfræðingur. 7,6 millj. tíl rannsókna á vegi yfír Skeiðarársand inu þannig að ekki er hægt að aka | ast i fjögur meginvötn, Skeiðará umhverfis landið. Er þetta ekki i Súlu, Núpsvötn og Sandeyjakvísl. nema rúmlega 30. kni, leið. Á; Fyrir utan kort sem gerð vegaáætlun eru veittar 7,6 millj-1 hafa verið af svæðinu, voru á s.l. króna til athugana á hvort hægt! ári byggðir tveir varnargarðar, sé, tæknilega og fjárhagslega að ] einn km. á lengd til að sjá hvort brúa árnar. Er búið að gera miklar; þeir muni standast Skeiðarárhlaup undirbúningsrannsóknir. OÓ—Reykjavík, fmimtudag. Vötnin á Skeiðarársandi hafa löneum verið ferðamönnum erfið- ur farartálmi og er svo enn. En Skeiðarársandur Iokar vegakerf- Austur-Skafta- fellssýsla Aðalfundur Framsóknar- félags Austur- Skaftfellinga verður haldinn í Sindrabæ, Höfn, 6. ágúst n.k. og hefst kl. 21. Venjuleg aðalfundar- störf. Páll Þorsteinsson, alþingis- maður, mætir á fundinum. Stjórnin. í rauninni er ekkert vandamál að leggja veg yfir sandinn og brúa árnar, þegar venju’egt vatnsmagn er í þeim, en þegar hlaup verða í Skeiðará vandast málið, þvi þá mundu allar brýr og vegir sópast burtu, en Skeiðarárhlaup verða á fjögurra eða fimm ára fresti. Jöklarannsóknarfélagið hefur undanfarin ár fylgzt með vatns- magninu í Grimsvötnum og eítir öllum só’armerkjum að “æma verð ur Skeiðarárhlaup i haust og verð ur þá fylgzt nákvæmlega með hvernig hlaupið hagar sér mcð til- liti til varnargarða og brúagerðar Þegar hlaupin kama, fara þau oft og verja heimreiðina að Skafta- felli. Þegar séð verður hvernig þessir garðar standast verður auð- veldara að sjá hvort mögulegt verð ur að byggja varnargarða yfir sand inn og brýr sem mundu standast Skeiðarárhlaup, en vatnsmagnið í hlaupunum er um 20 sinnum meira en vatnsmagn Þjórsár þegar hún er í vexti. Ef unnt reynist að brúa vötnin á Skeiðarársandi mun það stytta .’eiðina frá Reykjavík til sunnan- verðra Austfjarða að mun og einn- ig fylgir sá kostur að þessi leið er miklu =:njólóttari. á vetrum en þeg- ar fara þarf norður fyrir eins og nú er gert. Umferðarútvafp hefst í kvöld KJ—Reykjavík, fimmtudag. Á morgun, föstudag, má búast við að margir leggi af stað í ferða lög, og að venju hafa umferðar- yfirvöld gert miklar ráðstafanir, svo umferðin megi ganga sem bezt fyrir sig. Umferðaráð og lögreglan munu starfrækja upplýsingamiðstöð í nýju lögreglustöðinni, og mun þangað verða safnað upplýsingum um ástand vega, veður, fólks- fjölda á útisamkomum o. fl. Þess- um uppl. og umferðarábend- ingum til vegfarenda verður síð- an útvarpað yfir helgina. Verða beinar útsendingar frá nýju 16g- regiustöðinni, og hefjast þær klukkan fimm á morgun, og verða síðan með stuttu millibili yfir alla helgina. Alls er gert ráð fyrir um 25 beinum útsendingum. Fimmtán vegaeftirlitsbifreiðir -,erða á þjóðvegum landsins, veg- farendum til leiðbeiningar, auk venjulegrar löggæzlu á hinum ýmsu stöðuw á landinu Þá mun þyrlan KIR verðp notuð við lög- ?æzlustörf eftir því sem ástæða þykir til. Yngsti bæjar- stjórinn er á ísafirði GS—-ísafirði, fimmtudag. Á fundi bæjarstjórnar ísafjarð ar í gærkvöldi var kjörinn nýr bæjarstjóri. Heitir hann Jón Guðlaugur Magnússon, fæddur 20. aprfl 1947. Er hann því 23 ára gamall og yngsti bæjarstjóri á landinu. Foreldrar hans eru Magn ús Guðlaugsson, úrsmiður í Hafn arfirði og Lára Jónsdóttir. Jón er kvæntur Bergljótu Böðvars- dóttur, sem er héðan frá ísafirði og eiga þau eitt barn. Jón hefur verið fulltrúi bæjar stjórans á ísafirði s. 1. ár. Hann útskrifaðist úr Samvinnuskólan- um árið 1968. Aðalfundur Framsóknarfélags Borgarfjarðarsýslu Aðalfundur Framsóknarfé- lags Borgarfjaið- arsýslu verðar haldinn að Brúu í Bæjarsveitj föstudaginn 7. ágúst kl. 21. Auk venju- legra aðaifunda- starfa mun Halldór E. Sigurðsson alþingismaður, mæta á fundinum og flytja ræðu. Þá verður einnig á sama stað og tíma haldinn sam- eigiiilegur fundur hjá félögum eldri og yngri manna í sýsfttnni og kosnir fjórir til fimm menn á kjör- lista til skoðanakönnunar vegna framboðs við næstu alþingiskosn- ingar. Ennfremur fer fram kosn- ing eins manns í uppstillingamefnd og kjör fulltrúa á kjördæmisþing. FYRSTA LEIKFÖRIN Á STRANDIR SJ—Reykjavík, fimmtudag. í byrjun þessa mánaðar fór flokkur áhugaleikara úr Dalasýslu í leikför norður á Strandir með sjónleikinn „Ævintýri á gönguför". Ekkert leikhús eða ,’eikflokkur hef ur áður efnt til leikferðar á þessar slóðir og var þetta því sögulegur viðburður. Aðsókn var mjög góð, hátt á annað hundrað manns kom á leiksýninguna, sem var í sam- komuhúsinu í Árnesi á laugardags- kvöldi, en síðan var slegið upp dansleik, sem stóð fram undir morgun. A’lir sem vsttlíngi gátu F’-amhald á bls 14 Auglýsingaskrifstofa Tímans verður lokuð á morgun laugardag inn 1. ágúst. Eru auglýsendur beðnir að athuga. að nauðsynlegt er af skila auglýsingum, sem birt ast- eiga ’ sunnudagsblaðinu fyrir lokun í kvöld. föstudag. kl. 5.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.