Tíminn - 01.09.1970, Blaðsíða 14

Tíminn - 01.09.1970, Blaðsíða 14
14 TIMtNN ÞRIÐJUDAGUR 1. septcmber 1970. Stéttarsamband Framhakl af bls. 1 enda minnlcaði smjörsala um rúm 10%. Kjötmagn var nokkru minna en árið áður en meira flutt út af kjöli en nokkru sinni fyrr. Bænd- ur fengu grundvallarverð fyrir mjólk. Þá .ræddi formaður verð- lagsmál' og undirbúning að nýjum verðlagsgrundvelli og fór loks nokkrum orðum um framtíðarhorf- ur. Vérður ræða formannsins, rak- in ítarlegar hér í blaðinu síðar, enda er í henni geysimikill fróð- leikur um afkomu ,’andbúnaðarins. Að Íokinni ræðu formanns flutti Árni Jónsson erindpeki skýrslu um hclztu störf sín og ræddi m.a. at- hugun sína á skattframtölum bænda og efnahag. Sæmundur Friðriksson, framkvæmdastjóri, las reikninga sambandsins. Eignir þess eru nú 51,8 millj. kr. þar af 42 í Bændahöllinni. Að loknum þessum skýrslum, flutti Ingólfur Jónsson, landbúnað arráðherra, ávarp ,og ræddi um búnaðarmál og lífskjör bænda. Hann rakti fjárstuðning við bændur í harðæri síðustu ára. — Hann sagði, að verja þyrfti stórfé til kalrannsókna og fá þolnari grastegundir, eins o-g bændur í Kanada hafa fengið. Hann sagði, að framleiðslumagn búvöru hefði haldizt ótrúlega vel. Síðan ræddi hann dýrtíðar- og verðbólgumál og sagði að nú yrði að stöðva vísitöluskrúfuna og reyna að tryggja kaupmátt launa, og um það ræddi ríkisstjórnin nú við launþega. Að loknu ávarpi landbúnaðar- ráðherra, kvaddi Stefán Valgeirs- son. alþirigismaður sér hljóðs og kvaðst vilja leggja eftirfarandi þrjár spurnin-gar fyrir ráðherrann: 1. Fá bændur gefin eftir Bjarg- ráðasjóðslán, eða þeir sem verst eru staddir? 2. Má ekki vænta forgöngu ríkis- stjórnarínnar um svonefnda hey miðlun? 3. Mega þeir. sem þurfa að skera niður, ekki eiga von á upp- eldisstyrk? Ráðherrann taldi e-kki ástæðu til að bíða, unz Stefán hafði lok- ið ræðu sinni, hvað þá svara spurn ingunum. Síðan urðu allmiklar umræður fram eftir kvbldi og tóku margir til máls. Verður nánar greint frá þeim síðar. Á sunnudag störfuðu nefndir fram eftir degi, en síðdegis hófst fundur og skiluðu nefndir tillög- um, sem ræddar voru og afgreidd ar. Stóðu umræður og afgreiðsla mála fram að miðnætti. Á síðd-egisfundiuum á sunnu- daginn flutti Þorsteinn Sigurðs- son, formaður Búnaaðrfélags ís- lands, athyglisverða ræðu, þar sem hann ræddi starf félagssamtaka bændanna og lauk miklu loftorði á störf Stóttarsambands bænda frá fyrstu tíð og samstarf við Bún- ÞAKKARÁVÖRP Hjartans þakkir til allra vina og vandamanna, nær og fjær, sem glöddu mig með heimsóknum, gjöfum og kveðjum á níræðisafmæli mínu. Guð blessi ykkur öll. r- Ingibjörg Finrisdóttir. Sonur minn og bróSir okkar, Gunnar Friðgeir Þorsteinsson frá Akureyri lézt i Borgarspítalanum 20. ágúst. Útförin hefur farið fram. Jakobína Björnsdóttir og systkini hins látna. aa—a—————B»a»^mB3MWHmiwiiis Öilum, sem sýndu okkur samúð og vinsemd við fráfall Björns Ármannssonar, Hraunkoti, þökkum vlð af hjarta. Kristin Kjartansdóttir, börn, tengdabörn og barnabörn. nnilegar þakkir fyrlr auösýnda samúð og vinarhug við andlát og arðarför eiginkonu minnar, Önnu Mýrdal Helgadóttur, Suðurgötu 94, Akranesi. Björgvin Ólafsson og aðstandendur. Litia dóttir okkar og systir, Kristín Helga andaðist 22. ágúst. Jarðarförin hefur farið fram. Þökkum hjartan- lega auðsýnda samúð. Guðlaug Jónsdóttir, Guðgeir Ólason, börn og vandamenn. Þökkum hjartanlega auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og útför eiginmanns míns, föður, tengdaföður, fósturföður og afa, Elíasar Kristinssonar, Árvegi 4, Selfossi. Bjarndís Jóhanna Nikuiásdótfir, Ólafur N. Elíasson, Jóhanna Eyþórsdóttir, Jóhanna og Þórdís Þórðardætur og barnabörn. aðarfélag íslands. Hann kvað það rétta stefnu, að sauitök þessi væru aðskiliu en ynnu þó mikið saman Og hlið við hlið. Færði hann Stéttarsambandinu ámaðar- óskir Búnaðarfélags ísiands. í morgun hófst fundur klukkan hálf tíu og héldu umræður og afgreiðsla mála áfram. en fundar- slit fóru fram um kl. 3 síðdegis, og fulltrúar héldu heimleiði.i. Búvísindamenn Fratnhald af bls. 2 þó margt sameiginlegt og sam- vinna væri líkleg til að gefa já- kvæðan árangur. Áherzla var Ægð á, að hvað vélvæðingu og vélanotk- un snerti, og varnir gegn slysum og heilsuvernd viðví-kjandi véla- vinn-u, væri vandamálin hin sömu og mikilvægt væri a(ð þjóðirnar miðluðu hver annarri af sinni reynslu. Erlendu fuL'trúarnir sögðust hafa trú á því að ylrækt ætti sér mikla framtíð hér á landi. Að vísu hamlaði skammdegið dálítið en þar í móti kæmi, að hér væri að fá ódýrt rafmagn að næturíagi, sem væri dýrt á öðrum Norður- löndum. Þá vöktu erlendu gestirnir at- hygli á framtíðarmöguleikum hér á 'andi fyrir fiskirækt og loðdýra- eldi. Ennfremur töldu þeir vert að íhuga, hvort ekki væri rétt að flytja inn stórgripasæði til íslands frá öðrum Norðurlöndum. En svo sem kunnugt er þarf lagabreytingu til þess að svo verði. Þá kváðu þeir íslendinga g-eta fengi® hag- kvæma þekkingu frá þjóðum sin- -um hyggðu þeir á mórækt í fram- tiðinni. Erlendu ful.trúarnir voru mjög ánægðir með dvölina hér og þann góða anda, sem ríkt hefði á ráð- stefnunni, og þeir töldu mikils virði. Það vakti athygli þeirra, hva® landið hefur grænkað undan- farinn hálfan annan áratug. Þeir báru lof á íslenzkar landbúnaðar- afurðir og þá einkum kindakjötið, sem þeir tö.’du í sérflokki. Upp- blásturinn virtist þeim alvarleg- asta vandamál ísl. landbúnaðar. Er eian blaaðmanna sagði við þá, að ýmsir teldu rétt að leggja niður landbúna® hér á landi, þar sem hann væri rekinn með ha.ta, svaraði einn erlendu landbúnaðar- vísindamannanna — Landbúnaður borg-ar sig hvergi, en samt er ekki hægt að leggja hann niður. (þróttir Framhald af bls. 12 ★ FH — iBÍ 1:1 -A Völsungur — Breiðablik 0:3 Breiðablik 11 9 2 0 29:4 20 Ármann 10 7 1 2 20:13 15 Haukar 13 6 1 6 20:23 13 Selfoss 10 4 3 3 18:18 11 Þróttur 12 4 3 5 32:18 11 ÍBÍ 11 2 6 3 13:11 10 FH 10 2 1 7 9:28 5 Völsung-ur 11 1 1 9 12:38 3 Markhæstu menn: Guðmundur Þórðarson, Breiðab. 11 Kjartan Kjartansson, Þrótti 11 Þorkel Hjörleifsson, Ármanni 9 Haukur Þorvaldsson, Þrótti 7 Helgi Þorva-ldsson, Þrótti 6 Jóhann Larsen Haukum 6 Borgarfulltrúar Framhald áf bls. 16. áherzla er lögð á að brenna og eyða sorpi. Stjórn Helsinki kváðu fulltrú- arnir með svipuðum hætti og Reykjaví'kurborgar. Borgarfulltrú- arinr eru 77 að tölu frá átta stjórn málasamtökum, 25 þeirra era kon ur. Auk þessara fulltrúa skipa 16 menn og tvær konur borgarráð. Til samanburðar má geta þess að 45 af 200 þingmönnum Finna eru konur, og eru þær tiltölulega miklu fjölmennari, bæði á þingi og í borgarstjórn en gerist hér á landi. Konurnar láta hverskyns mál til sín taka, en virðast hafa meiri áhuga á þjóðfélagslegum umbót- um en karlmennirnir í borgar- stjóra, sögðu finnsku gestirnir. Á blaðamannafundinum kom einnig fram að litlu dagblöðin í Finnlandi eiga í fjárhagserfiðleik um og er mi'kið rætt um opinbera styrki til þeirra. Eitt ríkisdagblað Frá Tónlistarskólanum í Reykjavík Tónlistarskólinn í Reykjavík tekur til starfa 1. okt. Umsóknarfrestur er til 15. september og eru um- sóknareyðublöS afhent í Hljóðfæraverzlun Poul Bernburg, Vitastíg 10. Nýr flokkur í söngkennaradeild byrjar í haust og er námstími þrír vetur. Nánari upplýsingar um námið og inntökuskilyrði verða veittar næstu daga á skrifstofu skólans miili kl. 11—12. Inntökupróf verða sem hér segir: í söngkennara- deiid, mánudaginn 21. sept. kl. 4 síðdegis. í aðrar deildir skólans, þriðjudaginn 22. sept. kl. 4 síðdegis. Skólastjóri. fÚTBOЮ Tilboð óskast 1 skurðgröft og lagningu götuljósa- strengs við Vesturlandsveg frá Elliðaám að Höfða- bakka. Útboðsgögn eru afhent á skrifstofu vorri gegn 2.000,00 króna skilatryggingu- Tilboðin verða opnuð á sama stað, miðvikudaginn 9. september kl. 11,00. INNKAUPASTOFNUN REYKJAVÍKURBORGAR , < • Fríkirkjuvegi 3 — Sími 25800 er í Helsinki, Huvudstadsbladet. Finnar eru nú að koma á nýju skólakerfi og verður því lokið eft- ir 10 ár. Samkvæmt því hefst meðal annars kennsla erlendra mála mun fyrr en nú gerist. Ruggystólar Framhald af bls. 3. Gluggar verzlunarinnar era stórir og miklir á tvo vegn og sést inn Um þá yfir alla verzl- unina, ef einhver forvitinn veg- farandi skyldi koma að lok- uðum dyrum. Að lokum sagði Gunnar, að í ráði væri á næstunni að stofna hlutafélag um verzlun- ina og þegar það væri komið á, yrði væntaniega farið að athuga möguleika á að flytja inn gömul húsgögn frá antik- verzlunum erlendis. að líkind- um enskum. Verðlag á antik fer nú mjög hækkandi í ná- grannalöndnm. Hornbjargsviti Framhald af bls. 16. komið ævistarf, sagði Jóhao n I étursson, — og er nú orðin ærið nógu löng. Hvað ég ætlá að gera næsta árið? Ég' er að átta mig á málunum. Ég hef aldrei á ævinni verið eins óráð- inn og nú. Að fara á svona stað er eitt af þessum ævintýrum, sem maður st'ekkur fudskapað- ur út í. —-Veðrið á Hombjargi er ósköp svipa-ð og var á Akur-eyri, sagði Erla, — hálfger® súld og engin vetrarm-erki ennþá. Og við hjónin erum vel undir vet- urinn búin, brugðum okkur í 18 daga ferðalag um Spán og Norður-Afríku áður en við héld- um hingað. Pólutíksk morð Framhald af bls. 9 i® að sér forstöðu Framfara- stofnunar 1-andbúnaðarins, en hún hefur ekki veitt nema 7000 bændum land til ræktunar á átta árum. Er taUð, að hann hafi gert þetta til að sýna, að hann sé reiðubúinn til að snú- ast gegn andstöðu þeirra, sem yfir miklum landflæmnm ráða. MEGINVANDINN, sem við er að glíma í Dominikanska lýð- veldin-u, er að láta fjérðung vinnufærra manna, sem nú er atvinn-ulaus, njóta efnahags- og féla-gslegra framfara. Mann- fjölgunin er um 3% á ári og þessi hópur stækkar því stöð- ugt. Þarn-a er að finna upp- sprettu meginhluta þeirrar ókyrrðar, sem hér ríkir. Sífellt fer í vöxt, að m-enn taki sér ból- festu í óleyfi á annarra landi. EfnahagsHf Do-minikanska lýðvei’disms er miklu öflugra en það var árið 1966, þegar B-andaríkjam-enn veittu lán til að greiða opinberum starfs- mönnum laun í efnahagsöng- þveitinu í lok borgarastyrjald- arinnar. Balaguer hefur nú tök á að framkvæma framfaraáætl- anir, sem var með öllu ómögu- legt að ráðast í fyrir fáeinum árum. Ekki er sennL’egt, að stjórn- málaofbeldi verði með öliu kveðið niður í Dominikanska lýðveldinu þó að aukin áherzla verði lögð á endurbætur í land- búnaði og menntamálum og auknar byggingar íbúðarhúsa. Taki Balag-uer tií greina sína eigin aðvörun um byltingarflóð ið, sem þessu valta þjóðfélagi stafar ógn af, ætti hann að geta aflað sér stuðnings annarra en íhaldsmanna, meðal annars hinna hófsamari stjórnarand- stæðinga.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.