Tíminn - 24.09.1970, Blaðsíða 13
FMMTUDAGUR 24. september 1970.
TIMINN
wmsm
13
Hver veröur knattspyrnumaður ársins?
Kosning um knattspyrnumann ársins hefst í blaðinu í dag og stendur yfir til 20. október
Alf-Reykjavík, miðvikudag.
í dag hefst á íþróttasíðu
Tímans skoðanakönnun með-
al lesenda blaðsins um „Knatt
spyrnumann ársins 1970", en
þetta er í þriðja sinn, sem
Tíminn efnir til slíkrar skoð-
anakönnunar. í fyrsta skipti,
sem hún fór fram, 1968, var
Hermann Gunnarsson kjörinn
knattspyrnuamður ársins, en
í fyrra hlaut Ellert B. Schram
þenann eftirsótta titii.
Skoðanakönnunin nú verður
með sama hætti og fyrr. Öllum
er heimil þátttaka, en enginn má
þó senda fleiri en einn atkvæða
seðil til blaðsins. Nafn og heim
ilisfang sendanda, svo og sima
númer, verður að fylgja með.
Skoðanakönnun íþróttasíðu
Tímans um knatspyrnumann árs
ins hefur notið mikilla vinsælda
eins og bezt hefur sézt á hinni
almennu þátttöku í henni. Tóku
á annað þúsund manns þátt í
henni í hvort skipti 1968 og
1969 og eflaust verður þátttak
an ekki minni nú. Sérstaka at-
hygli hefur vakið, hve þátttakan
utan af landi hefur verið mikil
og hefur fólk úr öliuim sýslum
1-andsins tekið þátt í skoðana-
könnuninni.
Frestur til að skila atkvœða-
seðlum er til 20. október n. k.
Fyrsti atkvæða seðillinn fylgir í
dag. og utanáskriftin er: ..Knatt-
spyrnumaður ársins“. Tíminn,
PO 370.
Þar með er skoðanakönnunin
hafin, og dragið nú ekki að
senda atkvæðaseðilinn til okkar.
Knattspyrnumaður árslns
Ég kýs ..........................
sem „Knattspymumann ársins 1970“.
Ifefn sendanda ...................
Seiiráisfang ..—..................
S&nanúmer _______— --...
Dregið í bikar-
keppni KSf
Alf — Reykjavík. — Alls munu I og 4 lið önnur. Af þessum 4
12 lið taka þátt í aðalkeppni bik liðum hefur aðeins eitt tryggt
arkeppni KSÍ, 1. deildar liðin 8 | sér sæti í aðalkeppninni, en það
er Hörður frá ísafirði.
FORSALA
Forsala aðgöngumiða á leik
ÍBK og Everton í Evrópukeppn
inni, sem fram fer á Laugar
dalsvellinum á miðvikudaginn
í næstu viku, hófst í gær í
Keflavík og Reykjavík, og var
góð sala þegar á þessum fyrsta
degi.
Er sýnilegt að mikill áhugi
er fyrir leiknum meðal al-
mennings, enda ekki á hverj
um degi, sem íslendingum
gefst tækifæri á að sjá jafn
fræga leikmenn eins og Ever
ton-leikmennirnir eru.
Eftir hví sem íþróttasíðan
hefur fregnað munu nokkrir
vinnustaðir og verzlanir þegar
hafa ákveðið að loka tíman-
lega til að gefa starfsfólki
sínu tækifæri á að sjá leik
inn. en hann hefst kl. 17,30.
Þegar Valur og Benfica
léku hér fyrir tveim árum,
var gefið frí á mörgum vinnu
stöðum og sáu fæstir eftir því,
enda mun sá leikur vera sá
eftirminnilegasti, sem hér hef
ur farið fram.
— klp.
Armann. Haukar, Breiðablik
og Selfoss eiga eftir að keppa
um 2. sæti í Suðurlands-riðli og
KS (Siglufirði) Völsungar Húsa-
vík og Þróttur, Neskaupstað, um
1 sæti, sem lið af Norðurlandi og
Austurlandi fá.
Á blaðamannafundi, sem móta
nefnd KSÍ efndi til í gær, var
dregið um það. hvaða lið mæt
ast í 1. umferð aðalkeppninnar.
Fór drátturinn þannig:
IBV gegn IBA
KS/Völsungar —
gegn Val.
Breiðablik/Selfoss
Ármann
Víkingur — Fram.
Þróttur, Nk.
— Haukar/
I þessari umferð sitja KR,
Keflavík, Akranes og Hörður yf-
ir, en í 2. umferð leika þessi lið
saman:
víkingur/Fram — Hörður
ÍBV/ÍBA — ÍA
Breiðablik/Selfoss — Haukar/
Ármann gegn KR
ÍBK — gegn sigurvegara úr leik
gegn KS/Völsungum eða Þrótti.
Nesk.
Það skal tekið fram, að liðin,
sem nefnd eru á undan, eiga rétt
á heimaleikjum.
Ellert B. Schram, knattspyrnumaður ársins 1969.
Hermann Gunnarsson knattspyrnum. ársins 1968.
icoií\ Tindaherfi
Nýjasta jarSyrkjuverkfærið, sem heldur innreiS sína á íslenzkan markað,
er Vicon tindaherfið.
Kalmann Stefánsson í Kalmannstungu hefur þetta að segja um herfið:
„Vorið 1970 keyptu 8 bændur í framanverðri Hvítársíðu 2ja tindaraða
Vicon tindaherfi, 3ja m. breitt, frá GLOBUS H.F. Á þessu vori hafa 6 þess-
ara bænda notað tækið og mun það álit þeirra allra, að hér sé um mjög
góðan grip að ræða. Herfið er mjög afkastamikið vegna sinnar miklu
breiddar. í auðunnu landi, sléttlendu, getur ein umferð dugað til að vinna
land undir grænfóður. í erfiðara landi þarf fleiri umferðir með tækinu og
mýrlendi verður að frumvinna með plógherfi eða plóg. Herfið er tengt
á þrítengi traktorsins og er því afar handhægt við garðrækt og til að
lagfæra litla bletti og þar sem erfitt er að komast að til vinnu. Tækið virðist
mjög traustlega byggt og fremur lítil hætta á tindaröðunum, en tindana
þarf að herða afar vél, svo þeir losni ekki úr og þyrfti að fylgja hverju
tæki Ivkill til þess.
Herfi þetta er sem fyrr segir mjög afkastamikið og hentar því vel sem
féiagseign. Það er persónuleg skoðun mín, að merkilegra jarðyrkjutæki
hafi ég ekki séð, og éð herfi þessu megi hvað jarðyrkju áhrærir, jafna til
þess, er hjóimúgavéldr og fiöltætlur komu til sögu við heyskapinn".
Kalmannstungu 17.7. 1970.
Kalmann Stefánsson.
Nokkur herfi fyrirliggjandi.
G/obus?
LÁGMÚLI 5, SlMI 815 55