Tíminn - 01.10.1970, Blaðsíða 1

Tíminn - 01.10.1970, Blaðsíða 1
FRYSTIKISTUR FRYSTiSKÁPAR * ft-£ 4e ■MTW’wmn WBMasroffiH a. bIm vam Myndin er af sviðnu reyniviðarlaufi og birkilaufi ú.r görðum í Hafnarfirði. INGÓLFUR DAVÍÐSSON, GRASAFRÆÐINGUR: Skemmdir á gróðrí vegna fluor-mengunar frá ál- bræðslunni í Straumsvík OÓ-Reykjavík, miðvikudag. Ingólfur Davíðsson, grasafræðingur, hefur gert athugun á gróðri í Hafnarfirði og við Straumsvík, og benda niður- stöðurnar til, að um talsverða flourmengun sé að ræða í gróðrinum. Telur Ingólfur fullvíst að mengunin stafi frá álverksmiðjunni í Straumsvík og að nauðsyn beri til að setja upp hreinsitæki í verksmiðjunni, til að forða frá frekari meng unarhættu. Pétur Sigurjónsson, forstjóri Rannsóknarstofnun- ar iðnaðarins, segir að mengunin frá verksmiðjunni sé svo lítil, að hún komi tæpast að sök. Ingálfur sendi Tímanum eftir-| flúormenguninni: farandi um athuganir sínar á I Síðari hluta ágúst fór undir- ritaður nokkrar ferðir til Hafnar- fjarðar að skoða garða. Trjágróð- urinn var óvenju vesæll að sjá, einkum reyniviðartegundir, en einnig birki. víðir, heggur, hlyn- ur og jafnvel ribsrunnar. Laufið var víða með þornaða, sérkenni- lega rauðbrúna jaðra. Ungir hregg sprotar voru sumsstaðar vanskap- aðir, dökkir og kringvafðir í end- ann. Hlynblöð hvítrákótt. Börkur á nokkrum reynitrjám skorpinn og óvenju dökkur. Toppar víða þurrir og visnir, einkum á stór- um reynitrjám og sömuleiðis grein ar ofantil á trjánum. Trén laufguð Framhald á 14. sfðu. Járntöku á Mýr- dalssandi lokið Náðu um 700 tonnum upp í sumar EBReykjavík, miðvikudag. Þá er járnið á Mýrdalssandi að mestu til þurrðar gengið. Eru þeir félagar í Dynskógum h.f. búnir að ná í sumar um 700 tonnum af járninu, og komu þeir að austan í gær. — Bergur Lárusson, sem stjórn- að hefur járntökunni þar eystra, sagði Tímanum í dag, að nú væri ekki eftir af jám- inu nema smáræðismagn 7—8 m. niðri í sandinum, sem hann álcit, að ekki borgaði sig að grafa upp. — Þeir félagar í Dynskógum h.f. hófu járntök- una á Mýrdalssandi í fyrrasum Framhald á bls. 14. BANASLYS Á HÉRAÐI EB-Reykjavík, miðvikudag. Banaslys varð á Fljótsdalshér- aði síðdegis á þriðjudaginn. — Þar lézt ökumaður jeppabifreiðar, sem valt út af veginum, skammt frá bænum Blöndugerði í Hróars- tungu. Ekki var vila'ð um slysið fyrr en kl. 7 á miðvikudagsmorguninn. Var þá ökumaðurinn, Gunnar Ragnarsson. bóiidi á Fossvöllum, sem var einn í bifreiðinni. fluttur meðvitundarlaus í sjúkrahúsið á Egilsstöðum, þar sem hann lézt Dreifingarmiöstöð neyzlufisks í borginni er knýjandi nauösyn Tillaga Framsóknarmanna í borgarstjórn AK—Reykjavík, miðvikudag. Á fundi borgarstjórnar Reykja- víkur á niorgun, fimmtudag. verða fisksölumál borgarinnar til um- ræðu í tilefni af tillögu frá borgar- fulltrúuin Framsóknarflokksins, sem er svoliljóðandi: „Borgarstjórn samþykkir að at- hugað verði í samráði við þá, sem annast fisksölu í borginni, hvort ekki er nauðsynlegt að koma upp sameiginlegri dreifingarstöð fyrir fisk. Meðal annars verði athugað, hvort Sænska frystihúsið hentar í þessu skyni, og hvaða möguleik- Frá leik Everton og Keflavikur á Laugardalsvellinum i gaer. ar eru á að fá það til umræddrar starfsemi. Fefur borgarstjórn borg arstjóra að hafa forgöngu í þessu máli.“ Fisksölumálin eru meðal mestu hagsmunamála neytendanna í borg inni, en þar ríkir mikil ringulreið, einkum í dreifingu fisks til smá- sala. Er oft engan veginn tryggt, að góður neyzlufiskur sé á boð- stói'um almennt í fiskverzlunum, jafnvel þótt til sé, og þegar afla þarf fisksins úr öðrum verstöðv- um, er um engar sameiginlegar að gerðir að ræða. Þetta og margt fleira í fisksölumálunum er full ástæða til að borgarstjórn athugi og ,'eiti að úrbótum, og tillagan ætti að stuðla að þeim. Nýja strandferðaskipirtu HLEYPT AF STOKKUNUM Á LAUGARDAGINN SB—Reykjavík, miðvikudag. Síðara strandferðaskip Skipa- útgerðar ríkisins verður hleypt af stokkunum hjá Slippstöðinni á Akureyri á laugardagsmorguninn kl. 11.30. skömmu síðar. Gunnar Ragnarsson var þrítug- ur að aldri. Hann var ókvæntur og barnlaus. EVERTON VANN KEFLAVÍK 3 : 0 Sjá nánar á íþróttasíðum, bls. 12 og 13 Smíði skipsins hefur tafizt nokkuð vegna verkfalla, en búizt er við að það verði afhent snemma á næsta ári.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.