Tíminn - 24.10.1970, Blaðsíða 1
241. tbl. — Laugardagur 24. október 1970. — 54. árg.
- »TT777r ^ FRYSTIKISTUR *
Ik. —- ff ~ • O iI-r rDVCTlWÍBAD #
*
*
*
*
*
*
*
*
*
*
*
*
*
* JO/itíífnStA^éjLa/i* A/
y. RAFTÆKJADEILD, HAFNARSTRÆTI 23, SlMl 1SS0S
25 ára
afmælis
minnzt
Standa háskólamenn að
hópuppsögnum á næstunni
fái þeir ekki tafarlaust
SB—Reykjavík, föstudag.
Á morgun, laugardag, verður 25
ára afmæli Sameinuðu þjóðanna
haldið hátfðlegt um allan hehn.
Edward Hambro núverandi forseti
allsherjarþingsins og U Thant, að-
alritari Samcinuðn þjóðanna flytja
allsherjarþinginu afmælisboðskap
sinn á morgun, en auk þess verð-
ur send út yfirlýsing til að leggja
áherzlu á aðalatriði sáttmála SÞ,
Hérlendis verður afmælis sam-
takanna minnzt með hátíðarsam-
komu í Hátíðarsal Háskólans, sem
Félag Sameinuðu þjóðanna á ís-
landi gengst fyrir. Hefst samkom
an kl. 17 á morgun, laugardag. Á
samkomunni vedður minnzt stefnu
og starfs samtakanna. Stutt ávörp
flytja forseti fslands, Emil Jóns
son, utanríkisráðherra og Gunnar
G. Schram, formaður félags Sam
einuðu þjóðanna.
Yfirlýsing sú, sem send verður
út frá fundi Sameinuð þjóðanna
í aðalstöðvunum í New York á
morgun, er í 12 liðum. Allmiklar
deilur urðu um orðalag hennar
og neituðu fulltrúar einstöku aðild
arlanda að skrifa undir yfirlýs-
inguna.
16 skíöa-
lyftur
keyptar fyrir forgöngu
Skíðasambandsins
klp-Reykjavík, föstudag.
Á undanförnum mánuðum hef
ur Skíðasamband íslands unnið
ötullega að því að fá til landsins
ódýrar og hentugar skíðalyftur,
sem koma mætti fyrir með litl
um tilkostnaði víða um land.
Fyrir ári rákust forráða-
menn Skíðasambandsins á mynd
í svissnesku blaði af skíðalyftum,
sem heita „Borer-Star“ og hófu
þegar að grennslast fyrir um þær.
Kom í l.iós að þær voru bæði
ódýrar og hentugar og er nú búið
að gera samning við fyrirtækið,
sem framleiðir þær, um kaup á
16 lyftum. Verða þær settar_ upp
víðsvegar um land, 7 þeirra í ná-
grenni Reykjavíkur, 2 fara til Siglu
fjarðar og 1 til Neskaupstaðar,
Seyðisfjarðair, Húsavíkur, Bol
ungarvikur, Ólafsfjarðar, Egils-
staða og í Mývatnssveit.
Lyftur þessar eru rennilyftur,
þ.e.a.s. maður grípur í handfang
og rennur síðan upp á skíðunum.
Þær eru færanlegar og er hægt
a@ flytja þær úr stað á einum
degi án mikillar vinnu Er það
hentugt við okkar aðstæður, því
stundum vill koma fyrir á þeim
stöðum, sem lyftur eru, að eng
inn snjór sé á þeim bletti, en
Framhald á bls. 14.
Myndln er af höfuðstöðvum Samelnuðu þjóðanna i New York.
EB—Reykjavík, föstudag.
Verði ekki tafarlaust fallizt á
kröfur Bandalags háskólamanna,
þess efnis, að bandalagið fáj full-
an samningsrétt um kaup og kjör
bandalagsmanna, kann svo að fara
að þeir háskólamcnntaðir menn
sem eru í ríkisþjónustu segi upp
störfum sínum.
Háskólamenn vilja ekki að B.
S.R.B. fari með samningsrétt sinn,
og krefjast jafnréttisaðstöðu við
B.S.R.B., en sem kunnugt er
standa nú yfir samningar um kjör
starfsmanna ríkisins.
Eru háskólamenntaðir ríkis-
starfsmenn mjög óánægðir með
kjör sín og segja að miðað við
útreikninga sem gerðir eru á
grundvelli starfsmats og launa-
kjara á frjálsum markaði nú,
hafi þeir nú allt að 10% minni
Iaun en þeim ber.
1600—1700 háskólamenn erfx i
BHM og er um helmingur þeirra
í ríkisþjónustu. Fari svo að þeir
segi upp störfum sínum hjá ríkinu,
segjast þeir ætla að koma á fót
vin imiðlun fyrir aðildarmenn
samtakanna sem annist þá ráðn
ingu þeirra jafnt hér heima og
erlendis.
Bandalag háskólamanna efndi
lil fundar í dag með fréttamönn
um þar sem þessar upplýsingar
komu fram. Háskólamenn eiga
enga aðild að B.S.R.B., heldur
hafa þeir stofnað með sér sín
eigin samtök. Vegna þess að sam-
tök þeirra hafa ekki samningsrétt
um kaup og kjör,; telja háskóla-
menn sig ekki njóta mannréttinda
á við aðra þjóðfélagsþegna. Segja
þeir fulltrúa sína hafa, fyrir ná'ð
ríkisvaldsins, fengið að fylgjast
með undirbúningi nýrra samn-
inga, þ. á.m. starfsmati. Sú sam-
vinna mun yfirleitt hafa gengið
vel, þar til nú fyrir skömmu, að
fram komu drög að samningum
eftir starfsmenn Kjararáðs og
samninganefndar ríkisins.
Segja háskólamenn þessi drög
hafa komið eins og þrumu úr
heiðskíra lofti yfir fulltrúa sína.
Framhald á 14. síðu.
Liggur milli heims og
helju eftir hnífsstungu
Eldri maður úrskurSaður í 40 daga gæzluvarðhald eftir atburðinn
OÓ—Reykjavík, föstudag.
Ungur maður liggur þungt hald
inn á Borgarspitalanum eftir hnífs
stungu, sem hann hlaut í gær-
kvöldi. Síðar um kvöhlið var hand-
tekinu fullorðinn maður, sem við-
urkenndi að hafa stungið piltinn,
sem er 18 ára að aldri, en hann
segist hafa veitt honum áverkann
í nauðvöni, og að pilturinn hafi ot-
að að sér hnífi að fyrra bragði. Var
maðurinn úrskurðaður . 40 daga
gæzluvarðhald. Enn er ekki hægt
að yfirheyra piltinn. Hann er ekki
úr Iífshættu.
Rétt fyrir kl. 6 í gærkvöldi
skjögraði pilturinn upp planið
framan við útsölu Áfengisverzlun
arinnar við Lindargötu. Áður en
hann komst að dyrunum féll hann
niður. Viðstaddir sáu strax að
maðurinn var illa særður á kviði.
Var lögreglu og sjúkraliði þegar
gert viðvart. Var pilturinn fluttur
á slysavarðstofuna og baðan beint
á skurðarborð í Borgarsjúkrahús-
inu. en hann var mikið skorinn á
kviðnum.
Þegar pilturinn kom að útsöl
unni blæddi honum mikið og var
orðinn svo aðframkomin„, að hann
gat ekki staðið lengur á fótun
um, enda var hann særður hol-
sári. Hné hann niður við vestari
dyr verzlunarinnar.
í fyrstu var ekkert vitað hvernig
pilturinn fékk áverkann, en rann
sóknarlögreglan komst fljótlega
Framhald á bls. 14.