Tíminn - 30.10.1970, Blaðsíða 1

Tíminn - 30.10.1970, Blaðsíða 1
 TT-rr _ FRYSTIKISTUR " FRYSTISKÁPAR tnm 246. tbl. — Föstudagur 30. okt. 1970. — 54. árg. _ THAótía/u^kt't. A/ RAFTÆKJADEILD, HAFKARSTRÆTl 23, SlMl 18398 íslenzk stúlka handtekin með hass fyrir mill- | jónir króna - 2 15% Kækkun á áfengi og tóbaki lækkar mjólkina ■ Myndin var^tekin neSan vlS nýju brúna, sem er mikiS marm- vlrki, og sér undir hana í olíu- tank viS toppstöSina viS ElliSaár, en ekiS er nú undir brúna þegar fariS er þangaS. (Tm. Gunnar) Opna fjóröu Elliöaár- brýrnar brátt Fyrstu brýrnar munu hafa kostað milli 6 og 7 þúsund krónur, en nýja brúin tugi milljóna. KJ—Reykjavík, fimmtudag. Senn líSur að því að nýja Elliðaárbrúin verði opnuð til umferðar, en þetta mun vera fjórða brúin sem byggð er yf- ir Eilliaárnar, sú fyrsta var tekin í notkun árið 1883. í dag má sjá sýnishorn af brúarsmíði þriggja tímabila yfir Eilliaðárnar. Neðan við nýju brúna eru brýr sem byggðar voru á stríðsárunum, en þær brýr leystu af hólmi brýrnar sem eru ofar, en þær munu byggðar í kring um 1930, og standa enn og eru notaðar. Haustið 1883'' voru teknar í notkun fyrstu brýrnar yfir ElTiðaárnar. Voru þetta boga- brýr, og hér á eftir fer sam- tímalýsing á þeim brúm tekin úr ísafold: „Nú eru brýr komnar á Ell- iðaárnar, loksins, tvær sín yf- ir hvora ána, 20 álna löng önnur, hin 17 álna, breiddin 4 álnir, rimlar til beggja hliða, ein og hálf alin á hæð, grjót- kampar múraðir beggja vegna, Framhald á bls. 11 Slæmar heimtur hjá bændum fyrir austan: Á EINUM BÆ HAFA BÆNDUR MISST 100 LÖMB í SUMAR FB—Reykjavík, JK—Egilsstöðum, fimmtudag. Heimtur hjá bændum eru mjög slæmar í haust, sagði fréttarit. ári blaðsins á Egilsstöðum, Jón Kristjánsson, í viðtali við blaðið í dag. Kcnna bændur um mjög slæmum veðrum \ sumar, og er talið að misfarizt hafi í meira lagi af dilkum af þessum sökum. Vitað er að á einum bæ á Jökul- dal, Eiríksstöðum, en þai’ er tví- býli, hafa bændurnir misst um 100 lömb í sumar eða haust. Er þetta geysimikið tjón, og ekki undir 200 þúsund krónum í pen ingum, ef miðað er við meðal- fallþunga. Jóhann Guðmundsson, bóndi á Eiríksstöðum, sagði í dag, að á tveimur búum á Eiríksstöðum vantaði að minnsta kosti um 100 lömb, auk einhvers fullorðins fjár. — Fyrst og fremst kennum við tófunni um þetta, en síðan veðr- inu. Mjög slæmt veður var um mánaðamótin ágúst-september, snjókoma og illviðri. Þó er dá- lítið athyglisvert, að maður finn- ur ekkert af lömbunum. Við urð- u-m varir við tófur í haust, og þar var auðvitað aðburður. Óvenju mitið er orðið hér um tófur, og er al’lt að fyllast síðan hætt var að eitra fyrir hana. Teljum við, að ekki mundi skaða, að gefa henni svolitla inntöku hér, þar sem ekki þárf að hugsa um að vernda ernina. Jóhann sagði, að heimtur hefðu verið svipað slæmar hjá ýmsum öðrum bændum á efra Jökuldaln- um, þótt ástandið hefði sennilega verið hvað verst á Eiríksstöðum. Sauðfjárslátrun er nú að mestu lokið hér á Fljótsdalshéraði sagði Jón Kristjánsson, en endanlegar sláturfjártölur liggja þó ekki fyr- ir. Ljóst er þó, að slátra verður hér heldur fleira fé en í fyrra. Heimtur hjá bændum eru mjög slæmar í haust, og kenna bænd- ur um mjög slæmum veðrum í sumar. Er talið, að misfarizt hgfi í meira lagi af diTkum, af þess- um sökum. Nautgripslátrun er hafin, og verður slátrað nautgripum fram eftir nóvembermánuði. Auk þess var slátrað um 100 nautgripum í ágúst hér á Egrlsstöðum. 10 ára stúlka fékk höfuð- högg í skóla - lézt í gær OÓ—Reykjavík, fimmtudag. 10 ára stútka, Ágúsla Á. Pétursdóttir, lézt í morgun af völdum meiðsla er hún htaut s.l. föstudag. Var stúlkan Vogaskóla og var að leik í frímínútum er hún rakst á eitt skólasyslkina sinna og féll> Hlaut hún höfuðhögg og fór hjúkrunarkona skólans með Ágústu á slysavarðstofuna. Lítið sást á stúlkunni og að lokinni athugun var hún send heim. Fór Ágústa heim í stræt. isvagni Um kvöldið varð luin fárveik og næsta dag var hún flutt á Borgarspítalann. Var hún þá búin að missa meðvit- und. Komst. Ágústa ekki til með- vitundar aftur og lézt í morg- un KJ-Reykjavík, fimmtudag. Fjármálaráðherra hefur ákveðið sem næst 15% hækk- un á útsöluverði alls áfengis og tóbaks frá og með morgun deginum, föstudeginum, og kostar brennivínsflaskan eftir hækkunina um 470 krónur og Camel-pakkinn 54 krónur. Er hækkun þessi gerð til að hægt sé að lækka verð á mjólk og rjóma. í fréttatilkynningu frá Fjár- málaráðuneytinu segir: Hækkun á verði áfengis var síðast gerð £ desember 1988, en verði tóbaks í júní 1069.“ Þá segir ennfremur í tilkynn- iugu ráðuneytisins að hæktoin þeissi sé ákveðin til þess að auðið sé að lækka verð á nauðsynjum og hefur í því sambandi verið ájcvoðin aukin niðurgreiðsla á neyzlumjólk og rjóma. Flaskan af brennivíni mun eftir hækkunina kosta um 470 krónur en kostaði 410 kr. áður. Johnny Walker visky kostaði 600 kr., ea mun kosta um 690 kr. Hulstkamp genever kostaði 620 kr„ en mun kosta um 716 fcr., og pólskt vodka sem koistaði 515 kr. mun kosta um 590 krónur. Camel-pakkinn kostar í dag 47 kr., en á morgun mun hann kosta 54 krónur. Tíminn hafði tal af Sveini Tryggvasyni framkvæmdastjóra Framleiðsluráðs landbúnaðarins, og sagði hann að ekki væri búið að ganga frá auknum uiðurgreiðsl- um á mjólk, en það væri margt Framhald á bls. 11 Þingsályktunartiliaga framsóknarmanna: Heildaráætlun um skólaþörf landsmanna næstu 10-15 ár — sjá Á víðavangi, bls. 3 Lengdur frestur til samningagerðar opin- berra starfsmanna Sjá þirtgfréttir bls. 6 Kennarar í Hafnar- firði mótmæla - 20

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.