Tíminn - 26.03.1971, Blaðsíða 8

Tíminn - 26.03.1971, Blaðsíða 8
Stór bænda- ferð um Norðurlönd nó í sumar EJ—Reykjavík, finuntudag. Búna'ðarfélag íslands efnir til kynnisferðar til Noregs og Danmerkur í sumar og geta þátttakendur verið allt að 84, en kostnaður við ferðina verð ur eitthvað innan við 20 þús und krónur. Eru þeir. sem hug hafa á a'ð taka þátt í þessari bændaferð, hvattir til að hafa samband við Búnaðarfélagið sem fyrst. i Búnaðarfélagið hefur á und •anförnum. árum efnt til bænda ferða til annarra landa, en síðasta stóra bændaferðin til Norðurlanda var farin 1967. í ár er fyrirhugað að fara kynnisferð til Noregs og Dan merkur. Áætlað er að fljúga til Þrándheims 18. júní. Farið verður um Þrændalög. Þar verða bændur heimsóttir, fyrir tæki bændanna skoðuð og farið á sögustaði. Gist verður á bændaskóla í nágrenni Þránd heims í 4 nætur, en daglega verður farið í kynnisferðir. Ek > síðan suf/ r Guðbrandsdal, og gist eina nótt í Lillehamm er. Þar verður byggðasafnið skoðað og ýmislegt annað. Það an verður ekið til Osló, en að kvöldi 23. júní verður farið i með skipi til Kaupmannahafn ar, qg gist þc.. næstu 4 nætur. Tvær ferðir eru fyrirhugaðar ; frá Kaupmannahöfn, önnur suður á Fjón en hin til Norð ur-Sjálands. Farið verður með leiguflugvél báðar leiðir kom ið verður heim 28. júní. Þátt takendur geta orðið allt að 84. Ennþá er ekki nákvæmlega vitað, hver kostnaður verður, en gert er ráð fyrir. að ferðin kqgti eitthvað innan við kr. 20 þús. Er þá miðað við, að gisting, ferðir og flestar mál j tíðir séu innifaldar í þátttöku! gjaldinu. Fararstjóri verður í Agnar Guðnason. Þeir, sem j óska eftir að taka þátt í þess j ari bændaferð Búnaðarfélags j íslands ættu sem allra fyrst 1 að gefa sig fram, við skrifstofu j félagsins í Bændahöllinni. 5 slasast ilia í árekstri OÓ—Reykjavík, fimmtudag. Fimm 'manns slösuðust meira og minna í gífurlega hörðum bílaárekstri á Miklubraut kl. 5 i dag. Ekki er enn hægt að skýra frá hve mikil meiðslin á fólkinu eru. en enginn mun lífsliættulega meiddur, eftir því sem næst verð- ur komizt. Var allt fólkið, en með al þess eru tvö börn, flutt á slysa- deild Borgarspítalans. Áreksturinn varð með þeim hætti, að amerískur stádionbíll var á leið austur Miklubraut og eftir því sem ökumaðurinn segir á móti grænu ljósi. En Skodabíll, sem ekið var í vésturátt á vinstri akreininni beygði til vinstri áleið- is suður Grensásveg og þvert í veg fyrir fyrrnefnda bílinn. Full- orðinn maður og barn, sem voru í Skodabílnum köstuðust út úr og á götuna. Kona, sem ók þeim bíl fékk slæmt höfuðhögg og meidd- ist eitthvað meira. Barnið, sem kastaðist út, er þriggja, ára, en einnig var fimm ára gamalt barn í bílnum og fullorðin kona og meiddust þau einnig. Þegar rann- sóknarlögreglan hafði síðast spurn ir af slasaða fólkinu í kvöld var ekki búið að kanna meiðsli fólks- ins til hlítar. Ökumaður ameríska bílsins kvartaði yfir þrautum í fæti og var einnig farið með hann á slysa- varðstofuna, en hann er ekki al- varlega meiddur. Skodabíllinn, sem er nýlegur, er mjög illa farinn eftir áreksturinn 0g nánast ónýtur. Framhald á bls lb Frá ráSstefnu Félags háskólamenntaSra kennara um helgina á Hótel Loftleiðum. (Tímamynd GE) RáSstefna háskólamenntaðra kennara um Kennaraháskólafrumvarpið Vilja frestun og algera endurskoðun frumvarpsins EJ—Reykjavík, fimmtudag. ★ Félag háskólamenntaðra kenn ara gekkst fyrir ráðstefnu um grunnskólafrumvarpið og frum- varpið um Kennaraháskóla um síðustu helgi, og voru samþykkt ar ítarlegar ályktanir um bæði frumvörpin. ■ ★ Um Kennaraháskólafrumvarp ið ályktaði ráðstefnan m.a., að margt þyrfti þar athugunar við og væri því mikið fljótræði að amþykkja frumvarpið á því al- þingi sem nú situr, án þess . að endurskoðun á því fari fram. Ger ir ráðstefnan síðan tillögur um hreytingar á einstökum greinum frumvarpsins, en þær miða eink- um að því „að styrkja tengsl kennaraháskólans við Háskóla ís iands og tryggja að um raunveru legan háskóla verði að ræða.“ •Ar Varðandi gn.!nnskólafrumvarp ið var samþykkt ítarleg ályktun um breytingar á því, og er þar einkum lögð áherzla á breytingar í þá átt að auka lýðræði í stjórn un skólamála, en fullyrt að frum varpið auki enn miðstjórnarvald í skólamálum. Ráðstefnan var haldin 20. og 21. marz í Hótel Loftleiðum með þátttöku stúdenta í heimspeki- deild. Ingólfur A. Þorkelsson, for maður FHK, setti ráðstefnuna, en síðan voru fluttar tvær framsögu ræður: Dr. Bragi Jósefsson hafði framsögu um grunriskólafrumvarp ið en Þorsteinn Vilhjálmsson eðl isfræðingur um Kennaraháskóla frumvarpið. Síðan voru almennar umræður. en á sunnudag störfuðu umræðuhópar að ályktunum, sem samþykktar voru að lokum ein- róma á ráðstefnunni. Ályktanir ráðstefnunnar um frumvörpin eru mjög viðamikilar, og verða sendar alþingism. til athugunar við afgreiðslu málanna — en talið er sennilegt, að Kenn araháskólafrumvarpið verði af- greitt á þessu þingi en grunnskóla frumvarpinu frestað til næsta þings. í ályktúnirini um Kennarahá- skólafrumvarpið segir, að ráðstefn an fagni meginhugsun frumvarps ins um að auka þurfi menntun kennarastéttarinnar, en telji ýmis framkvæmdaatriði þess orka tvi mælis og þurfi að kanna mörg atriði nánar. Telur ráðstefnan hagkvæmara, að Kennarahásk. __ verði deild eða stofnun innan HÍ, e.t.v. með sér- stakan fjárhag og sérstaka stjórn, en með slíku fyrirkomulagi feng- ist betri nýting fjármuna og starfs krafta. Fallist alþingi hins vegar ekki á frestun og endurskoðun máls ins, léggur ráðstefnan sérstaka áherzla á að tengsl háskólans við lögur við frumvarpið verði sam- þykktar. Er þar lögð megin áherzla á að tengsl háskólans við kennaraháskólann verði sem mest til að koma í veg fyrir tvö Framhald á 1' 18. OÓ—Reykjavík, fimmtudag. Valgarður Frímann viður* kenndi í dag fyrir Erlendi Björnssyni, bæjarfógeta á Seyðisfirði, að hafa myrt Ronu sina, Kolbrúnu Ásgeirs- dóttur, með hnífi. Frlendur sagði Tímanum, að frásögn hans af atvikum héfði verið mjög ruglingsleg og fjarstæðu kennd, og virtist bera vott um geðtruflun á háu stit,i. — Það liggur í augum uppi, sagði Erlendur, að Valgarður er þungt haldinn af geðveiki og þarf að fá lækningu sem fyrst. V^rður hann væntanlega fluttur frá Seyðis- firði með fyrstu tiltækri ferð. Valgarður hefur verið uiidarleg ur og eins og utan við sig upp á síðkastið. Sérstaklega bar á þess um einkennum daginn áður en v -uaðurinn var framinn. Þeir, sem umgengust hann þá, bera að þá hafi eins og slegið út í fyrir honum og að hann hafi ekki ver- ið m v n”urn rnjalla, en ekki ver- ið æstur og einskis ofstopa hafi gætt í fari hans. Rannsóknalögreglumennirnir Niörður Snæhólm og Ragnar Vignir komu til Seyðisfjarðar í dag. Hófu þeir þegar rannsókn á vettvangi. Eins og sagt var frá í Tíman- um í gæ~ áttu þau þau Kolbrún or Valgarður sjö börn. Sex þeirra voru í skóla á Seyðisfirði. í kvöld áttu þau að fara áleiðis til Akur- -vrar, ef flugveður leyfði. Þar fara þau til ckyldfólks Elzta dótt- irin er á Akureyri og stundar þar nám í Menntaskólanuiú. FÓRNAR- VIKA f NÆTSU VIKU SB—Reykjavík, fimmtudag. Fórnarvika kirkjunnar verður 28. marz til 4. apríl. Fórnarvik an er einn af tekjust. Hjálp- arstofnunar kirkjunnar, sem stofnuð var í janúar 1970 í þeim tilgangi að hafa yfirum sjón með öllu hjálpar- og líkn- arstarfi íslenzku kirkjunnar. bæði utan lands og innan. Á fundi með fréttamönnum í dag, sagði biskup íslands, Sig urbjöm Einarsson, að tilgang ur fórnarvikunnar væri að minna fólk á hinn eiginlega til gang föstunnar, þ. e. að leggja eitthvað á sig fyrir trú sina. og það þyrfti ekiki alltaf stórt átak til. Andvirði eins vindl ingapakka gæti gert nokkurt1 gagn og með því að sleppa hluta af máltíð nokkrum sinn um og gefa andvirði hennar til hjálparstarfsins, væri hægt að gefa hungniðu bami mat. Andvirði einnar bíóferðar gæti lika gert sitt. Tekið er á móti framlögum til h jálparstofnunar Mrkjunnar ; hjá só&nanwestram og á biskups ! stofu. 1----------------------i LENTI í SPILINU OG LÉZT OÓ—Reykjavík, fimmtudag. Skipverji á Sjöstjörnmmi, VE- 92, beið bana er hann lent i í spill bátsins í morgun. Hét maðurinn Kristinn Þorbjörnsson, 19 ára, Framhald á bls. 18. Valgarður Frimann Kolbrún Ásgelrsdóttir

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.