Tíminn - 11.05.1971, Blaðsíða 5

Tíminn - 11.05.1971, Blaðsíða 5
MHBTODAGUR 11. maí 1971 TIMINN MEÐ MORGUN KAFFINU _£j Lbfjl I£J ■ Já, ég er nývaknaður. Hvers vegna spyrjið þér? Það var jólahátíS hjá stóru fyrirtæki, og starfsfólkið var að skemmta sér við leik, sem var í því fólginn, að allir áttu að skrifa sína eigin grafskrift. Ung skrifstofustúlka, sem var bráðhugguleg og karlagull hið mesta, sat við hlið auglýsinga- stjórans og hvíslaði að honum: — Ég hef ekki hugmynd um, hvað ég á að skrifa. — Það er nú ekki vandasamt, svaraði auglýsingastjórinn, — ég skal skrifa það fyrir þig. Þar með tók hann blaðið henn ar og skrifaði á það nokkur orð. Þegar grafskriftin var lesin upp yfir alla viðstadda, kom í ljós, að hún var þannig: — Loksins sefur hún alein! 1 raunhmí er það dátlítið ein- kennöegt, en fóík, sem kann að Kta sSr Bða vel, hefur aldrei pcnrnga — en fóik, sem hefur peninga, kann ekki að láta sér liSa veJL — M hverýn veknr þú mig svo snemma, bam? — Mamma sagði, að við mætt om ekki lcika okkur meðan þú Evæfir. Palli pipulagningarmaður datt ofan af þriggja hæða húsi, og lá á götunni. Fjöldi fólks kom þegar á vettvang. Lögreglumann bar þar að ög spurði, hvað um væri að vera. I því stóð Palli upp og sagði, um leið og hann burstaði rykið af fötum sínum: — Það veit ég svei mér ekki, ég er nýkominn hingað. Ransóknardómarinn varð að áminna hinn ákærða, því að honum hætti við að hafa of miklar þagnir í framburði sín- um. Dómarinn ítrekaði áminn- ingu sína harðlega, þegar á- kærður sagði: — Herra dóm- ari, ég er ekki nærri því eins mikill þrjótur og ákærandinn (löng þögn) — álítur mig vera. Einnig byrjandi getur náð sér í stúlku. — En það þarf reynd- an mann til að losna við hana aftur. — Hjónabandinu má líkja við höfn, þar sem tvö skip mætast. — Já, en það fór nlí svo, að ég rakst á herskip. ISPEGLI TrtHSfflÆklM DENNI Allir segja: — Góðan daginn, .... * , , r— . en ckki cr bæKt að siá á ykkur, DÆMALALl 51 ■# w ™ rétt. Nýlega hittust tvær frægar konur, þær Grace furstafrú af Monaco og Ingrid Bergman, og þetta var í fyrsta sinn, sem þær hittust, þótt undarlegt megi telj ast, því báðar hafa þær verið um langt bil frægar kvikmynda- stjörnur, þótt furstafrúin hafi lagt það starf á hilluna. Fund- um þeirra Ingrid og Grace bar saman í Englandi, en þangað var Grace komin með 14 ára gamla dóttur sína, Caroline, og var að Enn einu sinni eru Englend- ingar farnir að tala um Önnu prinsessu. Ekki er það vegúa ástarævintýris, heldur vegna vút- lits hennar. Anna prinsessa hef ur hlaðið utan á sig spiki frá því hún kom heim frá Kenya í febrúar sl., og landar hennar eru heldur óánægðir með útlit hennar. Elizabeth drottning hef- ur skipað dóttur sinni að fara í megrunarkúr, og Anna hefur látið hafa það eftir sér, að mað- ur verði víst að fórna sér úr því hún sé fædd prinsessa, enda þótt hún elski mat. ★ - ★ - Borðtennis er ein umtalaðasta iþróttagreinin þessa dagana, enda orðin stórpólitísk, síðan bandaríska liðinu var boðið til keppni í Kína fyrir nokkrum vikum. Að vísu muna fæstir hvernig leikar fóru, en það skiptir minnstu máli. Nú eru menn farnir að velta því fyrir sér, hvaðan þessi íþrótt -er runn in og hver eigi heiðurinn af því að hafa fundið hana upp. Nú hafa þrjár sonardætur Samú els nokkurs Jones upplýst, í blaðinu Observer, að afi þeirra og kunningi hans hafi fundið upp íþróttagreinina. Sanna þær mál sitt með því að staðhsefa að borðtennis hafi fyrst verið leikinn á jólunum 1895, í húsi, sem kallað var Quarries í Sur- rey. Þegar þeir James Gibb og fvrrnefndur Jones voru búnir að éta jóiamatinn og tæma kampa- vínsflöskurnar brugðu þeir á leik. Þeir stöfluðu bókaröð þvert yfir matborðið og slógu kampavínstappana á milli sín yfir bækurnar. Sem spaða not- uðu þeir tóma vindlakassa. Karlarnir höfðu svo gaman af þessu, að þeir fcngu sér síðar létta bolta frá Frakkiandi og bjuggu til spaða, ekki ósvipaða þeim, sem enn eru notaðir. Það voru þessir glöðu íþróttamenn leita að hentugum skóla handa henni- Kvöld eitt fóru mæðgurn ar í leikhús til þess að sjá Ingrid Bergman í Ieikritinu Captain Brassbounds Conversi- on. Að sýningunni lokinni hittu mæðgurnar stjörnuna Ingrid Bergman að tjaldabaki, og hér eru Grace og Ingrid að bera saman bækur sínar um vini og kunningja frá Hollywood-tím- um þeirra beggja. — ★ — ★ — sjálfir, sem gáfu borðtennis nafnið Ping-Pong, eins og það ' er viðast kallað. Málfræðingar eru ekki í vandræðum með að sjá að nafn þetta er hreinn hljóðgervingur, eða hljóðið, sem heyrist, þegar boltinn er sleginn með spaðanum og hljóð- ið þégar hann skellur á borðinu. — ★ - ★ - Framleitt hefur verið tæki, sem kalla mætti „grát-kannara“. Tækið segir til um, hvað er að smábarni, eftir því, hvernig það grætur. Tækið var íramleitt af sænskum og finnskum vísinda- mönnum, og er sagt bylting á því sviði, að skcra úr um sjúk- dóma, sér í lagi alvarlega sjúk- dóma í taugakerfi barna á fyrstu tveimur vikunum eftir fæðing- una. Tækið greinir grátinn í þrennt. — Eðlilegan grát —- of- urlítið óeðlilegan — og mikið óeðlilegan, en þá mun vera mik- il hætta á ferðum. Sagt er, að tækið, sem nú er í notkun á Karolinska sjúkrahúsinu í Stokk hólmi, sé mjög dýrt, en komi innan tíðar á markaðinn. — ★ - ★ - Fjölskylduvandamálin eru far in að verða Sophiu Loren þung í skauti. Mesta vandamálið er nú móðir hennar, Romilda Vill- ani, scm er 61 árs og hefur tek- ið upp á því, að fara að lifa og lcika sér, eins og hana langar til, á næturklúbbi í Róm. Það fellur Sophiu Loren síður en svo vel í geð, og finnst ekki við hæfi móður sinnar. En það er ekki bara hið villta líf mó'ður- innar, sem varpar skugga á líf Sophiu sjálfrar. Yngri systir hennar, Anna Maria, sem hún hefur alltaf hafí mikið- dálæti á, hefur fengið skilnað frá manni sínum, Romano Mussolini (syni einræðisherrans). Sophia hafði í lengstu lög vonað, að ekki kæmi til skilnaðar systur henn- ar og Mussolinis. — ★ - ★ — Þótt svo eigi að heita, að kom- ið sé sumar hér hjá okkur, fannst okkur allt í lagi, að birta þessa mynd, aí þeim Margréti Danaprinsessu og Henry prins í skiðafötunum. Þau brugðu sér á skiði í fjalllendinu suður i Frakklandi seinni partinn i vet- ur, og nutu útivistarinnar vel. Prinsessan mun ekki vera neinn viðvaningur á skíðum, þótt hún sé upprunnin í Danmörku, þar sem ekki er mikið um skíða- J brekkur, og ekki mikið tæki- * færi fyrir fólk að æfa sig í J öðru en skíðagöngu.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.