Tíminn - 16.05.1971, Blaðsíða 1

Tíminn - 16.05.1971, Blaðsíða 1
ALLT FYRIR BOLTAÍÞRÓTTIR Sportvðruverzlun INGÓLFS ÓSKARSSONAR Klapparstíg 44 • Sími 11783. T09. fbL — Sunnudagur 16. maí 1971 55. árg. * * Myndin er frá „baSsfröndinni" í Bjarnarfiagi í KísiliSjuna, en NámaskarS í baksýn. í Mývatnssveit, þar sem Mývetningar synda nú dag hvern. T. h. er gufuleiöslan úr holunum og niður (Xímamynd J. U Mývetningar hafa eignazt „baðströnd“ í Bjarnarflagi KJ—Reykjavík, laugardag. — Enn bætist við dásemdir Mývatnssveitár, því fyrir um það bil viku uppgötvuðu Mývetningar, að í Bjarnarflagi í Mývatnssveit eru þrjár sundlaugar með misjöfnu hitastigi, eða allt frá 18 gráðum og upp í 45 gráðu heitar. Það sem meira er; þarna virðast allar aðstæður til að gera allt upp í hundrað metra langa laug, sem þá væri kannski réttara að kalla „baðströnd“. Frá því þessar „sundlaugar" voru uppgötvaðar hefur verið synt í þeim meira og minna á hverjum degi, og virðist því augljóst, að vinda þarf bráðan bug að því að koma einhverri búningsaðstöðu upp til bráðabirgða við laugarnar, svo full not fáist af þeim strax. Etnu-gos ógnar 3 þorpum EJ—Reykjavík, laugardag. Eidgosið í Etnu á Sikiley ógnar nú þremur þorpum eftir að gos hófst á nýjum stað í fjallinu. Hraunjaðarinn hefur þannig náð útjaðri 1000 manna þorps, og eru íbúarnir enn í þorpinu. Eldgosið í Etnu er að þessu sinni hið mesta í tvo áratugi, þótt það hafi ekki enn valdið mann- tjóni eins og svo oft hefur gerzt áður. Þannig v»rð t. d. gífurlegt gos í Etnu árið 1169, og gróf það heila borg, Cataníu, í ösku og hrauni og létu 15000 lifið. Árið 1928 varð einnig verulegt mann- tjón í Etnu-gosi. Gosið hófst að þessu sinni 5. apríl síðastliðinn og er enn í fullum gangi. Hefur það dregið að gífurlega mikið af ferðamönn- um. GOÐUR AFLI EJ—Reykjavík, laugardag. Togararnir hafa aflað vel und- anfarið. Síðustu viku hafa togar- ar BÚR landað 13—14 hundruð lestum í Reykjavík. Nú síðast kom Jón Þorláksson með 250 tonn. Ýmsir aðrir togarar hafa einnig aflað vel. Þannig kom Hólmatind- ur með 150 tonn til Eskifjarðar eftir aðeins viku útivist. Thailendingar leita til Kína NTB—Bankok, laugardag. Thailand vinnur nú að því að taka upp nánara samband við Kínverska alþýðulýðveldið, og hlutdeild landsins í Víetnam er ráðamönnum á móti skapi. Thai- land hefur náð sambandi við kín- verska ráðamenn með aðstoð þriðja ríkis, og það hefur borið árangur, að sögn utanríkisráð- herra Thailands, en hann hélt Framhald á bls. 10. Er ekki komið nóg af gengis- fettingum? - 6 f Bjarnarflagi í Mývatnssveit hefur svo sem kunnugt er verið borað eftir heitu vatni á undan- förnum árum, og eru nú þarna virkjaðar gufuholur, sem sjá Kísiliðjunni fyrir gufu og knýja gufuaflsstöð * Laxárvirkjunar. Þarna fellur til mikið af heitu vatni, og hefur það safnazt f tjarnir, en það var ekki fyrr en fyrir viku, að mönnum datt í hug að hægt væri að nota tjarn irnar til að synda í. Sundlaugarbygging hefur verið á dagskrá í Reykjahlíð í Mývatns sveit að undanförnu, og nú má búast við að enn meiri skriður komist á að koma þarna upp varanlegri laug — ef Bjarnar- flagslaugarnar verða þá ekki not- aðar. Að því er Jón Illugason úti- bússtjóri Kaupfélags Þingeyinga í Reykjahlíð í Mývatnssveit sagði blaðamanni Tímans, þá eru laug arnar norðan við þjóðveginn yfir Námaskarð. Ein laugin er 18 gráðu heit, önnur 31—34 gráðu heit, og er það sú laug sem mest er not uð. Þessi laug er 1.40 m. á dýpt, þar sem hún er dýpst, og einir 60—70 metrar á lengd. Þá er það þriðja laugin, og er hún 45—46 stiga heit, eða aðems heitaxi en Grjótagjá. Jón Illugason sagði að vatnið í laugunum væri tært, og mikið rennslj væri þarsa í gegn, þannág að þær hremsuðu sig vei. Leir er í botninum, og gruggast vatn ið aðeins, ef gengið er í leirnum. Jón sagði að vatnið væri dáiíöð einkennilegt viðkomu fyrst í stað, eða hált, ef hægt waeri að nota það orð um vatn. Rétt hjá tjömunum ent borhoi urnar hvæsandi, en ætlunin mnn vera að dempa hávaðann í holun um í sumar, svo friðsarfla ætti að vera á „baðströndinni". Héldu mann vera um borð KJ—Reykjavík, laugardag. Snemma í morgun varð vart við að eldur var laps í káetu vélbátsins Þverfells KE 11, þar sem hann lá í Njarðvíkur- höfn. Var óttazt að maður væri í káetunni, og var slökkvilið- á Keflav.flugv. sérstaklega gert aðvart um það, um leið og kom ið var á staðinn. Sem betur fór, reyndist grunur manna ekki réttur, og gekk greiðlega að ráða niðurlögum eldsins. Nokkrar skemmdir urðu af eld inum um borð í bátnum. Enn á strandstaðnum: Tveir Bretar koma vegna Cesars GS, ísafirði, SJ, Reykjavík, laugardag. Allt er nú aðgerðalaust hvað áhrærir björgun brezka togarans Cesars og liggja bæði björgunar skipin AkkiIIes og Parat, í ísafjarð arhöfn, en varðskipið Óðinn, sem aðstoðaði við björgunarstarfið í gær er farið af strandstaðnum. Nú eru rúmar þrjár vikur síðan togarinn strandaði síðasta vctrar- dag. í dag voru menn frá vá- tryggingafélagi og útgerð togar- ans í Englandi væntanlegir til fsa fjarðar, og munu þeir væntanlega taka ákvarðanir um frekari bjiirg unaraðgerðir. f gær, föstudag, var tvívegis reynt að koma skipinu á flot. í gærkvöldi slitnaði vírinn, sem hélt tveim fremri flothylkjunum und- ir togaranum, með þeim afleiðing um að þau flutu upp og hefur þeim ekki verið komið undir hann aftur. Það var ranghermi í sjón varpsfréttum, að togarinn hefði hreyfzt nokkra metra, það hefur aldrei tekizt að losa neitt um hann. Cesar situr fastur á kletti í sjónum, eða öllu heldur vegur salt á honum því alltaf er örlítil hreyfing á sjónum, og er ómögu legt að segja hvenær hann fcr á hliðina. Tvö flothylki eru nú undir skipinu. Segja má að alla tíð frá því að togarinn strandaði, hafi verið sléttur_ sjór og er það einstök heppni. í gær var útlit fyrir brælu en ekkert varð úr henni, þó er of mikil kvika á sjónuin nú t.þ.a. hægt sé að vinna að björgun að sögn Daníels Sig mundssonar, fulltrúa Hjálmars R. Bárðarssonar skipaskoðunarstjóra á ísafirði. Aðstaða til björgunar er erfið vegna hallans á skipinu. Bezta veður er á ísafirði í dag. OLÍURÁKIR Á SJÓNUM Sífellt lekur dálítið af olíu úr skipinu. Fjörurnar við Arnar- fjörð eru orðnar mjög ljótar, en svartolían sem lak úr Cesari á dögunum er komin á land. Olían sem fór í höfnina á ísafirði er komin út á Sundin og sést greini- lega hvernig fjörðurinn er rönd óttur af olíu. Fugladauði hefur verið gífurlegur eins og áður hef- ur verið sagt frá og eru ekki öll kurl komin til grafar enn hvað það snertir. Finnur Guðmundsson fuglafræðingur er nú kominn til Reykjavíkur, en hann var á fsa- firði um daginn og fór með strönd um á smábáti og skaut um 30— 40 fugla.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.