Tíminn - 22.05.1971, Blaðsíða 1
ALLT FYRIR
BOLTAÍÞRÓTTIR
SportvSruverzlun
INGÖLFS ÓSKARSSONAR
Klapparstíg 44 • Sími 11783.
_____________________«J
55. árg.
113. tbl.
— Laugardagur 22. maí 1971 —
kæH-
skápar
T/r^,,
Mwirwi^iinwiwi^w^iawiMÍiW-' '
Hættu 600
metra frá
tindínum
EJ—Reykjavík, föstudag.
Bretarnir Don Whillans og
Dougal Haston, sem áttu aðeins
eftir um 600 metra upp á tind
Everest, hafa orðið að hætta
við að komast á toppinn og
hefur alþjóðlegi Everest-leið-
angurinn því mistekizt. Þreyta,
matvæla- og súrefnisskortur
olli því, að Bretarnir urðu að
liætta við sfðasta spölinn.
Eins og Tíminn hefur skýrt
frá áður, tókst brezku fjall-
göngumönnunum tveimur fyrir
nokkru að komast í rúmlega
27.000 feta hæð, þar sem þeir
settu upp tjöld. Þaðan ætluðu
þeir síðan að klífa upp síðasta
spölinn. Þeir voru hins vegar
orðnir mjög þreyttir auk þess
sem matvæla- og súrefnisbirgð
ir þeirra voru af mjög skorn
um skammti, og urðu þeir því
að snúa til baka.
Everestleiðangur þessi hefur
lent í miklum erfiðleikum, eink
um vegna mjög slæms veðurs.
Einn leiðangursmanna lét líf
ið, þekktur indverskur fjall-
göngugarpur, fjórir hættu þátt
töku og nokkrir veiktust.
Kampavinsfaskan brotnar á nefi nýju þotpnnar og var henni gefiS nafnið Sólfaxi A pallinum fyrir framan vélina eru Örn Johnsen, forstjóri Fl,
Birgir Kjaran, stjórnarformaður og frú Sveinbjörg Kjaran, sem gaf þotunni nafn. (Tímamynd GE)
Sólfaxi byrjar áætlu narflug um heigina
OÓ—Reykjavík, föstudag.
Fjöldi manns var samankominn
á Reykjavíkurflugvelli í gær þeg
ar nýja Boeing 727 þota Flug-
félags fslands lenti á Reykjavíkur
flugvelli. Kl. 2,15 blandaðist saman
á vellinum lúðrablástur og þotu
gnýr og mannfjöldinn þusti út
að flugbrautinni til að fylgjast
með er flugvélin lenti. Var liún
dregin til hálfs inn í flugskýli þar
sem stutt athöfn fór fram og þot
unni var gefið nafn. Frú Svein-
björg Kjaran árnaði farkostinum
allra heilla og nefndi þotuna Sól
faxa, og viðstaddir tóku undir
lieillaóskirnar með lófaklappi.
Þegar flugvélin stöðvaðist við
flugskýlið sté áhöfnin út og voru
flugmönnunum færð blóm, en
þeir eru Anton Axelsson, flug-
stjóri, Ilalldór Hafliðason, flugmað
ur og Einar Sigurvinsson, flug
vélstjóri. Við mótttökuathöfnina
fluttu ávörp þeir Örn Johnson,
forstjóri FÍ, Birgir Kjaran, stjórn
arformaður og Ingólfur Jónsson,
flugmálaráðherra. Sagði hinn síð
astnefndi, að allt benti til að
Flugfélag íslends myndi eignast
þriðju þotuna innan tveggja ára.
Sólfaxi er af sömu gerð og
Gullfaxi, tekur 119 farþega og
flýgur á 960 km hraða í 10 km
hæð. Sólfaxi var afgreiddur frá
Framhald á bls. 14.
Hafa gengið frá 10
millj. kr. tryggingu
KJ—Reykjavík, föstudag.
Bænc'ur og landeigendur
við Laxá og Mývatn, hafa nú
gengið frá skuldbindingum
vegna 10 milljón króna trygg-
ingar, í samræmi við nýfall-
inn Hæstréttardóm, vegna
lögbanns við breytingum á
rennsli Laxár.
Hermóður Guðmundsson for-
maður Landeigendafélagsins sagöi
Tímanum í dag, að ekki hefði
staðið á uppáskriftum þeirra 110
sem ganga í sjálfskuldarábyrgð
fyrir þessum 10 milljónum. Lands
banki íslands hefur svo tekið að
sér að ganga frá tryggingunni og
leggja hana fram, eftir að land
eigendur höfðu ábyrgzt upphæð-
ina. Ábyrgjast landeigendur þessa
upphæð allir fyrir einn og einn
fyrir alla.
Næsta leik í þessu lögbanns-
máli á svo Lavárvirkjun, en virkj
unin getur látið halda áfram fram-
kvæmdum á landi sínu við Laxá,
þar sem lögbannið náði aðeins til
breytinga á rennsli árinnar.
Laxárvirkjun hafði krafizt 145
milljóna króna tryggingar af
hendi landeigenda, en Hæstirétt
ur kvað upp þann úrskurð að
tryggingin skyldi verða 10 milljón
ir, sem landeigendur hafa nú
gengið frá eins og áður segir.
YFIRVINNUBANN
VR HEFST í DAG
EJ—Reykjavík, föstudag.
Á morgun, laugardag, kemur til
framkvæmda yfirvinnubann Verzl
unarmannafélags Reykjavíkur. Það
þýðir, að almennum verzlunum
verður lokað kl. 12 á liádcgi á
morgun, laugardag. Framvegis
verða verzlanir aðeins opnar til kl.
18 mánudaga til fimmtudaga, til
kl. 19 á föstudögum og til kl. 12
á laugardögum á meðan yfirvinnu
bannið er í gildi.
Yfirvinnubann þetta er sett á
vegna þess, að VR telur vinnu-
tlrfia verzlunarmanna víða óhóf-
legan og mun lengri en um er
samið í kjarasamningum. Kemur
þetta til af því, að ýmsar verzl
anir hafa opið fram eftir kvöld
um.
Sú reglugerð, sem nú er í gildi
um lokunartíma sölubúða, er
meira og minna brotin af ýmr.um
verzlunareigendum. Hefur þetta
mál oft komið fyrir í borgarstjórn
Reykjavíkur, og ýmsar tillögur
komið fram.
Nú munu liggja fyrir tillögur
frá Verzlunarmannafélagi Reýkja
víkur og Kaupmannasamtökum ís
lands um breytingar á reglugerð
inni þannig, að verzlanir hafi opið
Fx-amhald á bls. 14.
Aðalfundur Eimskipafélags íslands:
GreiSa 12% arS
Hagnaður var um 20 milljónir
FB—Reykjavík, föstudag.
Aðalfundur Eimskipafélags íslands var haldinn í dag. Þar kom
fram, að hagnaður af rekstri félagsins á síðasta ári var 19% millj.
króna, þegar afskrifað hafði verið af eigum félagsins 77,3 millj.
Launagreiðslur félagsins, sem grciddar voru af skrifstofunni í
Reykjavík, námu á árinu um 282 milljónum króna. Samþykkt var
á fundinum að greiða hluthöfum 12% arð af hlutabréfum þeirra.
Hagnaður af rekstri félags-
ins var um 19.5 milljónir að
afskriftum loknum, eins og
fyrr segir. Hagnaður af rekstri
eigin skipa, 13 talsins, var á
ái-inu 1970 191.6 milljónir og
brúttóhagnaður af rekstri
vöruafgreiðslu nam 4 milljón-
um, en þá eru fyrningar ekki
reiknaðar. Tap aJ rekstri leigu
skipa nam 4.3 milljónum kr.
Á síðasta ári voru 53 skip í
förum á vegum félagsins og
fóru þau samtals 223 ferðir
milli íslands og útlanda. Hin
13 skip félagsins fóru 146 ferð
ir milli landa og er það 10
ferðum fleira en árið áður, en
leiguskip, 40 að tölu, fó.ru 77
ferðir og er það 19 ferðum
fleii’a en árið áður. Árið 1970
voru vöruflutningar með skip-
um félagsins og leiguskipum
samtals 1430 þúsund tonn, en
árið á ' undan voru . þessir
flutningr r 883 þúsund tonn.
Farþcgum með skipum fé-
iagsins fækkaði um 1163 á ár-
inu, og voi-u þeir sámtals 7394.
Með Gullfossi ferðuðust 6908
farþegar, og er það 1199 far-
þegum færra en árið 1969. í
ársskýrslum félagsins segir, að
fækkunin stafi af þeirri trufl-
un, sem varð á ferðum skips-
ins vegna verkfalla í maí og
júní á sl. ári. Farþegar með
öðrum skipum félagsins voru
486 árið 1970, og er það 36
farþegum fleira en árið áður.
Milli hafna innanlands flutti
Gullfoss 555 fai’þega.
Samkvæmt efnahagsreikn-
ingi námu cignir félagsins
tæpum 1097 milljónum, ' en
skuldir að meðtöldu hlutafé
jru 955 milljónir.
Úr stjórn E.í. áttu að ganga
Pétur Sigurðsson, Ingvar Vil-
hjálmsson og Halldór H. Jóns-
son, en voru endurkosnir.
Sigurður Hjalti Eggertsson
átti að ganga úr stjórninni,
sem fulltrúi Vestur-fslendinga,
en hann var einnig endurkjör-
inn. í stjórn félagsins eru auk
áðurnefndra manna Einar
Framhald á 14 síð*u