Tíminn - 23.06.1971, Blaðsíða 16

Tíminn - 23.06.1971, Blaðsíða 16
 ÁRÁSAR- ÚFUNDINN OÓ-Reykjavík, þriðjudag. Blaðburðarstúlkan, sem barin var með flösku í höfuðið s. 1. sunnudagsmorgun er nú á bata- vegi. Leitin að manninum, sem réðist á hana hefur ekki borið árangur enn sem komið er, en haldið verður áfram að reyna að hafa upp á honum. Stúlkan tglúr sig örugglega þekkja manninn ef hún sér hann. Hefur hún farið yfir hluta af mannamyndum, sem eru í skrá rannsóknarlögreglunnar, en ekki fundið árásarmanninn ennþá. Lög reglan handtók mann í morgun, s"m jafnvel lék grunur á að væri árásarmaðurinn. Var honum stillt upp í hópi nokkurra annarra manna og prófað hvort stúlkan þekkti þrjótinn meðal þeirra. En tUrsu-’n var neikvæð og var þeim grunaða þá strax sleppt, en leit- in að hinum seka er enn í fullum gangi. ^ J i VeriJS er a8 smíða nýja brú yfir Korpu, en þar endar fyrsti áfangi Vesturlandsvegar, og byrjað er á öðrum áfanga, sem nær frá nýju brúnni upp í Kollafjörð. (Tímamynd GE) STEYPTUR VEGUR AÐ KORPU VERDUR TILBÚINN I HAUST Byrjað á hraðbraut í Kollafjörð. MÁLIÐ í SAKADÓMARA RANNSÓKN Svo sem kunnugt er kærði Steingrímur Hermanrv.-s^n, fram- kvæmdastjóri Rannsóknarráðs rík isins, hinn 9. þ.m. yfii grein dr. Þorstein Sæmundsson f Morgun- blaðinu hinn 8. þ.m., þar setn á sig væri borið misferli í störfum sem framkvæmdastjóri ráðsins. Eítir athugun máls þessa og öfl un greinargerðar ríkisendurskoð- unarinnar um bókhald og reiknings skil ráðsins, hefir saksóknaremb- ættið nú vísað máli þessu til yfir- sakadómarans í Reykjavík til rann sóknar. Frá saksóknara ríkisins. OÓ-Reykjavík, þriðjudag. Ákveðið hefur verið að fyrsti áfangi Vesturlandsvegar, frá Höfðabakka að Korpu verði stein- steyptur, en ekki malbikaður eins og áður var búið að ákveða. Snæ- björn Jónsson, yfirverkfræðingur Vegagerðar ríkisins, sagði í dag. að samizt hefði um hagstætt verð á sementi og þá hafi ákvörðun verið tekin um að steypa vegar- kaflann. Er unnið af miklum krafti við vegagerðina, en mikið þarf að undirbyggja veginn, sérstaklega við Grafarholt, þar sem fyllt er upp í dalslægð, og nokkru austar er sprengt mikið utan úr felli, til að vegurinn verði sem beinastur og hæðarmunur sem minnstur. Afköstin við fyrsta áfanga vegar- ins voru ekki eins góð í vetur og reiknað var með og tímaáætlunin raskaðist nokkuð, en um var sam ið að vegarspottanum yrði lokið í haust. En í vor var gerð ný verkáætlun ,og miðaðist hún við að áfanganum yrði lokið í haust. Samkvæmt nýju verkáætluninni hafa afköstin staðizt fullkomlega og engin ástæða er til að ætla ann að en að fyrsti áfanginn verði tilbúinn á umsömdum tíma. í vor var boðinn út annar áfangi Vesturlandsvegar, frá Korpu í Kollafjörð. Var þá verk- takafyrirtækinu Þórisósi falið að annast verkið. Er nú verið að vinna við þá vegagerð í pörtum allt frá rótum Úlfarsfells upp í Kollafjörð. Aðallega er unnið við að gera bráðabirgðavegi, þar sem umferð verður beint frá þeim stöð um sem nýi vegurinn liggur yfir núverandi veg. Þessi áfangi Vest- urlandsvegar á að vera tilbúinn haustið 1972. Þá er ístak byrjað á vegagerð við Rauðavatn á Suðurlandsvegi og eins á hluta af veginum yfir Hellisheiði. Á sá vegur að vera tilbúinn haustið 1972. Stofnun Veiði- Fiskirækt ákveðin í stórum stíl ÞÓ-Reykjavík, þriðjudag. Nú um hclgina var haldinn undirbúningsfundur að Veiðifélagi Héraðsvatna. Hugmyndin að stofn un þessa félags er að Héraðsvötn verði ræktuð upp með laxi og silungi, en það hefur ekki verið gert í ríkum mæli fyrr. Þar sem ekki nógu margir af eigendum vatnasvæðisins voru á fundinum, en þeir eru um 200, voru ekki gerðar neinar samþykkt ir, heldur aðeins kosin bráða- birgðastjórn, og hana skipa: Jó- hann L. Jóhannsson, Silfrastöð- um, Jóhann Lúðvíksson, Kúkerti, Frímann Þorsteinsson, Syðri- Brekkum, Konráð Vilhjálmsson, Ytri-Brekkum, Vésteinn Vésteins- son, Ormsstaðaseli, Þórarinn Jón- asson, Hróarsstað, og Einar Krist insson, Hamri. Áætlað er að annar fundur verði haldinn mjög bráðlega, og þá gengið frá stofnskrá félagsins. Mikill og góbar snjór í Kerlingarfjöllum Fyrsta ferðin næstkomandi föstudagskvöld. ÞÓ-Reykjavík, þriðjudag. Tíminn náði tali í dag af Valdi mar Örnólfssyni, þar sem hann Sumarferð Framsóknar- félaganna í Reykjavík 1971 Sunnudaginn 11. júlí — farið verður af stað kl. 8 árdegis frá Hringbraut 30 — Fararstjóri verður Guðmundur G. Þórarinsson, borgarfull- trúi — Ekið verður um Hellisheiði — Stanzað á Kambabrún, ef veður er gott, annars í Hvera- gerði. — Þaðan verður ekið um Selfoss, austur yfir Þjórsá — austur Holt um Rangárvelli og Landeyjar, sem leið liggur að Gljúfrabúa og Seljalandsfossi, þar sem áð verður. — Síðan verður ekið að Skógum og byggðasafnið og fleira markvert skoðað, og gengið að Skógarfossi. — Á heim- leið verður ekið um Fljótshlíð og numið staðar á sögustöðum. Ekið verður um Rangárvelli — að Keldum — og þaðan um Gunnarsholt og stanzað á markverðum stöðum á leiðinni til Reykjavíkur, ef veður verður gott. Nánar auglýst síðar. var staddur upp í Kerlingarfjöll- um. Sagði Valdimar að þeir félag ar væru nú að k.oma sér fyrir, og liti allt mjög vel út í sambandi við sumarstarfið. Snjór hefur sjaldan eða aldrei verið meiri í Kerlingarfjöllum á þessum árs- tíma, t.d. hefði snjóað aðeins í morgun, en nú væri komið ágætis veður og silkifæri í brckkunum. í dag voru þeir félagar að koma fyrir skíðalyftunni í nýrri og mjög góðri brekku. Fyrsta ferðin í Kerlingarfjöll verður nú á föstudagskvöldið, og1 verður það helg .-ferð, en þann 3. júlí byrja svo námskeiðin fyrir alvöru, og má bæta því við, að í þá ferð eru nokkur sæti laus. Aðspurður sagði Valdimar, að hann vissi ekki nákvæmlega um ástand vegar upp að Kerlingar- fjöllum, cn samt hélt hann að veg urinn væri aðeins fær jeppum. er. hann ætti þó fljótlega að vera fær venjulegum fólksbílum. HLAUT SILFURLAMPANN SB-Reykjavík, þriðjudag. inn formaður Félags íslenzkra Silfurlampinn — viðurkenn- leikdómenda, afhenti Sigríði ing Félags íslenzkra leikdóm- Hagalín silfurlampann. Síðan ara — var afhentur í dag á tók hann til máls og sagði m.a.: Hótel Sögu og hlaut hann að að Sigríður Hagalín væri ein þessu sinni Sigríður Hagalín, af okkar ágætustu leikkonum fyrir túlkun sína á hlutverki og hún skipaði yfirleitt hlut- Nell Palmer í ,,Hitabylgju“. — verki sínu fremst, en sinni eig- Sex leikdómarar greiddu at- in persónu fyrir aftan. Þatta kvæði um hver skyldi hljóta væri vel gert af leikkonu, því lampann, og fengu alls tíu leik margar hefðu þær tilhneigingu arar stig. til hins. Sigríður Hagalín væri | hæversk í list sinni og hún J Atkvæðagreiðslunni er þann- hefði kjark til þess að vera i ig háttað ,að hver greiðir þrem ekki alltaf falleg á sviðinu. [ ur leikurum stig, 100, 75 og 50. Að lokum þakkaði Sigríður J Þeir sem stig fengu eru: Briet Hagalín og sagði m.a.: — Á I Héðinsdóttir 50, Helga Bach- þessari stundu er mér efst í j mann og Þorsteinn Gunnarsson huga þakklæti. Til leikdóm- 50 stig, Gunnar Eyjólfson 75 enda, en ekki síður til leik- stig, Þóra Friðriksdóttir, Sigríð stjóra og meðleikara minna í ur Þorvaldsdóttir og Borgar Hitabylgju. Að mér var veittur Garðarsson 100 stig, Gísli Hall- Silfurlampinn fyrir hlutverk dórsson 150 stig, Guðrún Ás- Nell Palmer, tek ég sem viður mundsdóttir 275 stig og Sigríð- kenningu til okkar allra, því ur Hagalín 400 stig. ég held, að Nell Palmar hefði Þorvarður Helgason, nýkjör aldrei lifnað í dauðu húsi. SigriSur Hagalin og eiginmaSur hennar, Guðmundur Pálsson, fram- kvæmdastjóri Leikféiags Reykjavíkur, virða fyrir sér silfurlampann, eftir afliendinguna (Tímamynd GE)

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.