Tíminn - 14.07.1971, Blaðsíða 1
7?
>
X2>JzjxÆtct/M^ejLoUt^ h..f
KAFTÆKJAOBtD, KAFWARSIRÍETri?^ísmi8335
ALLT FYRIR
BOLTAÍÞRÓTTIR
Sporfvöruverzlun
INGÓLFS ÓSKARSSONAR
Klapparstig 44 Simi 11783.
155. tbL
Miðvikudagur 14. júlí 1971
55. árg.
Hið nýja ráðuneyti Ólafs
tekur við voldum í dag
TK-Reykjavík, þriðjudag.
Ráðuneyti Ólafs Jóhannessonar mun formlega taka við
völdum á morgun, miðvikudag, á ríkisráðsfundi á Bessa-
stöðum, er hefst kl. 3,30. Áður hefur forseti íslands á ríkis-
ráðsfundi veitt ráðuneyti Jóhanns Hafsteins lausn frá störf-
um. Sá fundur hefst á hádegi á morgun.
í morgun kl. 11 gekk Ólafur Jóhannesson á fund forseta
íslands á skrifstofu hans í Alþingishúsinu og lagði fram ráð-
herralista sinn. Er verkaskipting og ráðherrar eins og Tíminn
greindi frá í dag.
Málefnasamningur hinnar nýju ríkisstjórnar verður ekki
afhentur fjölmiðlum til birtingar fyrr en að loknum ríkisráðs-
fundinum síðdegis á morgun, er ráðuneyti Ólafs Jóhannes-
sonar hefur formlega tekið við stjórnartaumunum í landinu.
Lentu á Shannon
og á Akureyri
vegna dimmviðris í Reykjavík og Keflavík
OÓ-Reykjavík, þriðjudag.
Talsverðar truflanir hafa verið
á flugsamgöngum hér á landi í
gær og í dag, vegna erfiðra lend-
ingarskilyrða. Þoka hefur verið
í Reykjavík og Keflavík og ekki
lendandi á flugvöllunum, en nú,
seinni part dagsins er að létta
til og er vonað að áætlunarflug
komizt aftur í samt horf. Þessi
vandræði náði bæði til innanlands
fliigs og millilandaflugs. Urðu t.d.
nokkrar af flugvélum Loftleiða
að yfirfljúga og lenda á Shannon
flugvelli í írlandi í stað Keflavík.
Engin flugvél frá Flugfélagi fs-
lands komst til Vestmannaeyja í
gær eða í dag. Fyrir hádegi í dag
lá innanlandsflugið niðri, en eftir
hádegi var flogið til Akureyrar
Og Hafnar í Homafirði. Önnur
þota FÍ kom frá Osló í morgun
og lenti hún á Akureyrarflugvelli
skömmu fyrir hádegi, en um kl. 3
opnaðist Keflavíkurflugvöllur og
lenti þá vélin þar.
Þá urðu nokkrar Loftleiðaflug-
vélar að fljúga yfir ísland, bæði
á austur og vesturleið. f gær,
mánudag, lenti engin vél frá Loft
leiðum á 'Keflavíkurflugvelli.
Framhald á bls. 14
Ólafur Jóhannesson gengur á fund forseta íslands, dr. Kristjáns Eldjárns,
í gærmorgun. (Tímamynd GE)
f
Kartöflusprettan:
Góðar
horfur
SB—Reykjavík, þriðjudag.
Vel horfir um kartöfhrapp-
skeruna víðast hvar, ef haustið
verður eins gott og vorið.
Nokkuð meira mun hafa verið
' sett niður af kartöflum í vor,
en undanfarið. Blaðið hafði í
dag samband við menn á helztu
kartöfiuræktarsvæðunum. i
Þykkvabæ, á Svalbarðsströnd \
og Hornafirði og voru þeir
sammála um, að kartöflubænd
ur væru bjartsýnir.
Sigurbjartur Guðjónsson
Hávarðarkoti i Þykkvabæ,
sagði, að lítið væri af kartöfl
unum að frétta núna, þær bara
yndu sér vel í moldinni. — Hér ;
hefur skipzt á rigning og sól-
skin og allt sprettur, sem
sprottið getur. Hér var sett nið
ur mun meira af kartöflum en
endranær, þetta er alltaf að
aukast. Útlitið er ágætt og svo
er bara að vona, að ekki frysti
snemma í haust. Sigurbjartur
sagði að aðallega væru ræktað
ar Ólafsrauður í Þykkvabæn-
um, en eitthvað líka af Helgu
og Gullauga. Helga er nokkuð I
nýtilkomin tegupd, sem er af-
kvæmi Gullauga og rauðra og
þykir Helga fljótsprottin og
gefa meiri uppskeru.
Aðalsteinn Aðalsteinsson á
Höfn í Hornafirði sagði, að þar
hefði verið sett niður svipað
magn og í fyrra og mjög þurrt
hefði verið framan af. — Þetta
er mjög misjafnt í görðunum,
en menn vona bara það bezta
Framhald á bls. 14
Mjög slæmt neyzluvatn á
sextán þéttbýlisstöðum
EJ—Reykjavík, þriðjudag.
f könnun, sem gerð var á síð
asta vetri, á vatnsmálum 58 þétt
býlisstaða á landinu. kom í ljós,
að nijö^ slæmt ástand væri í
vatnsmálum á 16 þéttbýlisstöðum
og fremur slæmt á 9 stöðum.
Þetta kemur fram í grein í ný-
útkomnu eintaki af Sveitarstjórn
armálum. Þar er skýrt frá fundi,
sem fulltrúar Heilbrigðiseftirlits
ríkisins, Rannsóknarstofnunar fisk
iðnaðarins, Sölumiðstöðvar Hrað-
frystihúsanna og Orkustofnunar
sátu í vetur, þar sem kannaðar
voru skoðanir þessara aðila á nauð
syn skipulegrar neyzluvatnsleitar,
auk þess sem reynt var að meta
þarfir einstakra staða fyrir aukið
og/eða betra vatn.
A' ’ ' j •‘>v s , ,w....w.ww> V • 1 /W v.y.
Önnur þota Flugfélagsins lenti í Reykjavík í gær, vegna dimmviðris í Keflavík.
(Tímamynd Gunnar)
Niðurstöður fundarins voru að
> ví segir í gíeininni:
„Að víða væri skortur á góðu
vatni, og nauðsyn á átaki til úr-
bóta. Einkum væri brýn þörf á
meira og betra vatni til fiskiðn-
aðar.
Að nauðsyn bæri til þess að sam
ræma starfsemi þeirra aðila, sem
annast rannsóknir á köldu vatni,
einkum þó að bæta upplýsinga-
streymi
Að ástæða væri til þess, að ríkis
valdið hefði frumkvæði á eftirfar
andi sviðumi:
1. Að safna saman á einn stað
niðurstöðum rannsókna, sem til
eru um öflun kalds vatns, magn
þess og gæði.
2. Að safna viðbótarupplýsing-
um, þar sem markmiðið væri að
geta bent á leiðir til vatnsöflun-
ar„
Á fundinum var reynt a gera
7ér grein fyrir vatnsmálum 58
þéttbvlisstaða.
Niðurstaða þeirrar athugunar
var sú, að gott ástand í vatns-
málum væri á 33 þessara staða,
mjög slæmt ástand væri á 16 stöð
um, en á 9 þeirra væri ástandið
heldur betra. Brýn þörf var talin á
rannsóknum á möguleikum til öfl
unar neyzluvatns á þeim 16 stöð
um, þar sem ástandið var talið
verst, en einnig þyrfti að fara fram
athugun á vatnsmálum hinna sið-
ast nefndu 9 staða. Mat þetta var
byggt á upplýsingum, sem Orku-
stofnun hefur m.a. aflað sér með
fyrirspurnum til hlutaðeiganni
sveitarstjórna.
Bent var á, að engin opinber
stofnun eigi lögum samkvæmt að
annast rannsóknir og^þjónustu til
öflunar neyzluvatns. Orkustofnun
hefur þó að beiðni sveitarstjórna,
frystihúsa og annarra aðila annazt
slíkar rannsóknir. Talið var nauð-
synlegt, að ríkisvaldið feli opinber-
um rannsóknaraðila frumkvæði á
þessu sviði, svo samræmi fengist
Framhald á bls 14