Fréttablaðið - 14.09.2002, Blaðsíða 16

Fréttablaðið - 14.09.2002, Blaðsíða 16
16 14. september 2002 LAUGARDAGURHVAÐA BÓK ERTU AÐ LESA? LEIKSÝNINGAR 14.00 Jón Oddur og Jón Bjarni eftir Guðrúnu Helgadóttur eru sýndir á Stóra sviði Þjóðleikhússins. 15.00 Borgarleikhúsið kynnir haustdag- skrá. Leikur, söngur og dans. Brot úr verkefnum vetrarins verða sýnd. Allir eru velkomnir. 20.00 Með vífið í lúkunum eftir Ray Cooney er sýnt á Stóra sviði Borg- arleikhússins. TÓNLEIKAR 20.00 Japonijazz er nafn á hljómsveit sem sett var saman af mörgum jazztónlistarmönnum frá Japan. Þeir koma hingað til lands til að halda tónleika í Salnum í Kópavogi. MYNDLIST Björn Lúðvíksson heldur yfirlitssýningu á Sjúkrahúsinu og Heilsugæslustöðinni á Akranesi í tilefni 50 ára afmælis stofn- unarinnar. Ólöf Björg myndlistarmaður sýnir í Gall- eríi Sævars Karls, málverk, hluti, hljóð og lykt. Sýning á verkum Eero Lintusaari skart- gripahönnuðar og Harri Syrjanen gull- smiðs og leðursmiðs sýnir í Listhúsi Ófeigs við Skólavörðustíg. Sýningin verð- ur opin mánudaga til föstudaga frá 10 til 18 og laugardaga frá 11 til 16. Sýning- unni lýkur 25. september. Ásdís Spano sýnir olíuverk á Kaffi Sól- on. Sýningin stendur til 27. september. Sumarlok nefnist gluggasýning í Samlag- inu/Listhúsi, Gilinu á Akureyri. Þar sýnir Halldóra Helgadóttir málverk unnin á þessu ári. Sýningin stendur til 15. sept- ember. Í Rauða Húsinu á Eyrarbakka sýnir Hafliði Magnússon, rithöfundur og teiknari, sýningu á lituðum teikningum með götumyndum frá Eyrarbakka, Stokkseyri og Selfossi. Harpa Rún Ólafsdóttir sýnir í Gallerí Tukt í Hinu húsinu. Í Listasafni ASÍ, Freyjugötu 41 sýnir Guð- rún Hrönn Ragnarsdóttir ljósmyndir og skúlptúr. Í Gryfjunni sýnir Kristveig Halldórsdóttir , myndverk gerð úr rabb- arara sem hún hefur búið til papyrus úr. Einnig sýnir hún ljósmyndir. Listasafn SUNNUDAGURINN 15. SEPTEMBER ÍListasafni Reykjavíkur á Kjar-valsstöðum opnar í dag sýning á verkum Arne Jacobsen . Meðal þekktra verka Arnes eru stólarn- ir Maurinn frá árinu 1951, Eggið frá árinu 1957 og Svanurinn frá árinu 1957. Eyjólfur Pálsson, verslunar- maður í Epal, hefur verið með verk Arnes til sölu í verslun sinni um 27 ára bil. „Nú standa yfir sýningar á verkum Arnes um allan heim,“ segir Eyjólfur, „en það sem er sérstakt á þessari sýningu eru þrjár sérstakar tengingar við Ísland.“ Eyjólfur vill ekki gefa frekari upplýsing- ar um þetta og segir að sjón sé sögu ríkari. Aðspurður hvernig hönnun Arnes hafi hentað Íslend- ingum gegnum tíðina, segir Eyjólfur, að Íslendingar hafi alltaf haft smekk fyrir þessum húsgögnum. „Í upphafi áttu auð- vitað margir svona eldhúshús- gögn og fannst þau bara eldhús- leg. Svo breyttist þetta hægt og sígandi og nú er yngri kynslóðin mjög hrifin af þessari hönnun og kaupir þetta sem borðstofuhús- gögn. Einn veit ég um sem á stól hannaðan af Arne og hann segir stólinn vera það sem erfingjarn- ir bíði eftir í ofvæni.“ Eyjólfur segir suma af gömlum munun- um, eins og t. d. gamalt Egg og Svan, seljast á sama verði og um nýja stóla væri að ræða. „Hönn- un Arne lifir vegna þess að hún er smart og þægileg. Þar samein- ast fegurðin notagildinu.“ Arne Jacobsen er ekki bara frægur fyrir byggingarlist og húsgagnahönnunin. „Hann hann- aði líka áklæði og gluggatjöld,“ segir Eyjólfur, að ógleymdum búsáhöldum, en fræg er Cylinda- línan, sem er úr ryðfríu stáli og hefur unnið til fjölda verðlauna.“ Sýning Listasafnsins er sú yf- irgripsmesta sem haldin hefur verið á munum eftir Arne á Ís- landi og Carsten Thau, prófessor við konunglegu dönsku listaaka- demíuna heldur fyrirlestur um Arne Jacobsen. Eyjólfur segir að lokum að gestum á sýningunni verði boðið upp á að taka þátt í spurningaleik þar sem vegleg verðlaun verða í boði - að sjálfsögðu munir eftir Arne. „Það gerir líka sýninguna skemmtilegri fyrir gestina, þeir þurfa þá að staldra við og skoða í staðinn fyrir að strunsa í gegn.“ edda@frettabladid.is Erfingjarnir bíða í ofvæni eftir stólnum Flott hönnun er nátengd nafni Arne Jacobsen. Í tilefni af aldarafmæli hans býðst gestum Listasafns Reykjavíkur að skoða verk hans á yfirgripsmikilli sýningu. SÍGILD HÖNNUN Eyjólfur Pálsson, verslunarmaður í Epal, segir hönnun Arne sameina fegurð og notagildi. Guðný Kjartansdóttir Aldrei án dóttur minnar. 1 METSÖLULISTI 2 3 4 5 6 7 8 9 10 VINSÆLUSTU ERLENDU BÆKURNER HJÁ PENNANUM-EYMUNDSSON Sandra Brown ENVY Patricia Cornwell ISLE OF DOGS James Patterson VIOLETS ARE BLUE Brad Meltzer THE MILLIONAIRES Clive Cussler VALHALLA RISING Gerald Seymor THE UNTOUCHABLE Robert B. Parker WIDOW’S WALK Stephen King - Peter Straub BLACK HOUSE Jonathan Kellerman FLESH AND BLOOD David Baldacci LAST MAN STANDING HÁTÍÐ „Markmiðið er auðvitað að þjappa íbúunum saman og gera þeim grein fyrir því í leiðinni að Grafarvogurinn á sér merkilega sögu. Grafarvogur og Gufunes hafa komið við sögu margra sögu- frægra manna, eins og t. d. Einars Ben. og landnámsmannsins Ketils gufu,“ segir Ása Briem, sem er verkefnisstjóri Grafarvogsdags- ins, en dagurinn er haldinn hátíð- legur í fimmta sinn í dag. Ása seg- ir daginn hafa fest sig í sessi með- al íbúanna og engin spurning að svona hátíð auki samheldni íbúa hverfisins. „Það er látlaus gleði allan daginn, ofboðslega skemmti- leg dagskrá. Vert er að geta Graf- arvogsskáldanna, þeirra Einars Más Guðmundssonar og Gyrðis Elíassonar sem lesa ljóð, þar er nú aldeilis ekki í kot vísað,“ segir Ása. „Þá verður boðið upp á sögu- göngu og helgistund, Stefán Jón Hafstein mun afhenda hvatning- arverðlaun þeim íbúum sem skar- að hafa framúr og opið hús verður í Borgarholtsskóla milli klukkan 11 og 15, en þar munu listamenn, félög og fyrirtæki í Grafarvogi kynna sig. Stuðganga hefst við Spöngina klukkan 15 og ekki má gleyma að minnast á húllumhæið við Gufunesbæ þar sem verður klifrað upp súrheysturninn með Harald Örn Ólafsson, fjallagarp, í broddi fylkingar. Þar verður líka grillað, sungið og dansað, en sýru- polkasveitin Hringir leikur fyrir dansi. Hátíðarhöldunum lýkur svo með hinni ómissandi flugeldasýn- ingu.“  KLIFRAÐ VIÐ GUFUNESBÆ Það verður margt um að vera á Grafarvogsdeginum í dag. Árlegur Grafarvogsdagur í dag: Menningarviðburðir og stanslaust fjör ASÍ er opið alla daga nema mánudaga frá kl. 14 til 18. Aðgangur er ókeypis. Sýningunum lýkur 22. september. Afmælissýning Myndhöggvarafélag Ís- lands stendur yfir í Listasafni Reykja- víkur, Hafnarhúsi. Fjórtán myndhöggv- arar sýna. Félagið fagnar nú 30 ára af- mæli sínu. Sýningin stendur til 6. októ- ber. Helgi Þorgils Friðjónsson og Kristinn G. Harðarson sýna í i8, Klapparstíg 33. Kristinn sýnir vatnslitaverk og útsaumað- ar myndir og Helgi leirskúlptúra. Að auki sýna þeir myndbandsverk sem þeir unnu í sameiningu ásamt Sverri Guð- jónssyni . Sýningin stendur til 12. októ- ber. i8 er opið þriðjudaga til laugardaga frá kl. 13 til 17. Listin meðal fólksins er yfirskrift sýn- ingar Listasafns Reykjavíkur í Ásmund- arsafni. Á sýningunni eru verk Ásmund- ar Sveinssonar myndhöggvara skoðuð út frá þeirri hugsjón hans að myndlistin ætti að vera hluti af daglegu umhverfi fólks en ekki lokuð inni á söfnum. Sýn- ingin stendur til ársloka. Í Þjóðmenningarhúsinu standa þrjár sýningar. Sýndar eru ljósmyndir úr Fox- leiðangrinum sem eru með elstu mynd- um sem teknar voru á Íslandi, Græn- landi og í Færeyjum, sýning er á vegum Landsbókasafns á bókmenntum Vestur- Íslendinga og loks er Landafundasýning- in sem opnuð var árið 2000 og hefur nú verið framlengd. Upplýsingar & tímapantanir alla daga í síma 561 8585 Kátir krakkar Barna- og unglingastarf Gauja litla Aukum sjálfstraust og lífsgleði Kátir krakkar 13 til 16 ára Aðhaldsnámskeið þrisvar í viku fyrir unglinga á aldrinum 13 til 16 ára, í World Class. Innifalið: Spinningtíma, taiboo, hipp hopp dans, stöðvaþjálfun, leikræna tjáning, styrking sjálfsmyndar o.m.f. l i i í i f i li l i til , í l l . I if li : i i tí r, t i , i , t j lf , l i tj i , t i j lf . .f. Kátir krakkar 7 til 12 ára Barnanámskeiðin eru aldursskipt, 7-9 ára og 10-12 ára. Unnið er náið með börnunum og foreldrum þeirra sem fá fræðslu frá næringarráðgjafa. i i l i t, - - . i i f l i f f l f i j f . Athugið að þátttakendafjöldi er takmarkaður

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.