Fréttablaðið - 12.10.2002, Blaðsíða 4
ISLAMABAD, AP Enginn flokkur fékk
meirihluta í þingkosningunum í
Pakistan á fimmtudaginn. Banda-
lag íslamskra flokka vann hins
vegar mikinn kosningasigur og
náði meirihluta í Norðvesturhér-
aðinu, sem liggur að landamærum
Afganistans. Einnig leit út fyrir að
bandalagið kæmist í samsteypu-
stjórn í héraðinu Balúkistan, sem
einnig á landamæri að Afganistan.
Í þessum héruðum hafa talibanar
og Osama bin Laden átt hvað
mestu fylgi að fagna.
„Við ætlum að koma á ís-
lamskri byltingu í Pakistan,“ sagði
Qazi Hussain Ahmed, leiðtogi
bandalags íslamskra flokka.
„Markmið okkar er að koma á ís-
lömsku kerfi í öllu landinu.“
Þetta voru fyrstu kosningarnar
í landinu frá því Pervez Mus-
harraf forseti steypti þáverandi
forseta, Nawaz Sharif, af stóli árið
1999. Hvorki Sharif né Benazir
Bhutto, fyrrverandi forseti, fengu
að bjóða sig fram í þessum kosn-
ingum.
Musharraf lofaði því, þegar
hann bylti Nawaz Sharif af stóli,
að koma á lýðræði í landinu og
efna til kosninga hið fyrsta. Mus-
harraf situr hins vegar sjálfur á
forsetastóli næstu fimm árin.
Hann hefur völd til þess að leysa
upp þing.
4 12. október 2002 LAUGARDAGUR
INNLENT
Ríkisútvarpið:
Fréttamenn
loks ráðnir
FJÖLMIÐLAR Fjórir fréttamenn Rík-
issjónvarpsins, sem lengi hafa
svifið í lausu lofti sem lausráðnir
frá mánuði til mánaðar, hafa loks
fengið fastráðningu. Ráðningin
gildir þó aðeins til tveggja ára.
Fréttamennirnir sem hér um ræð-
ir eru þau Margrét Marteinsdóttir,
Borgþór Arngrímsson, Finnur
Beck og Rakel Þorbergsdóttir.
Ráðning fjórmenninganna er
bundin við tvö ár vegna þess að
föstum stöðugildum er ekki til að
dreifa hjá Ríkissjónvarpinu.
Fréttamenn, sem horfið hafa til
annarra starfa, hafa samkvæmt
lögum rétt til að halda stöðum sínu
í ákveðinn tíma þó svo að þeir
gegni þeim ekki. Meðal þeirra sem
nýta sér þennan rétt um þessar
mundir eru Kastljósmaðurinn
Kristján Kristjánsson og væntan-
legur spjallþáttastjórnandi, Gísli
Marteinn Baldursson.
MARGRÉT FRÍMANNSDÓTTIR
Hentar ríkisstjórninni vel að hafa loðnar
leikreglur.
Margrét Frímannsdóttir:
Löngu
tímabært að
setja skýrar
reglur
EINKAVÆÐING „Við fyrstu sýn virð-
ist mér að í skýrslu Ríkisendur-
skoðunar sé að finna sama áfellsi-
dóminn og þessi ríkisstjórn hefur
fengið frá upphafi einkavæðingar-
ferlis síns og sölu ríkisfyrirtækja.
Enn og aftur er sett fram krafa um
fastmótaðar leikreglur. Hefðu þær
verið til staðar, þá hefði þessi at-
burðarrás kringum bankasöluna
aldrei átt sér stað,“ segir Margrét
Frímannsdóttir varaformaður
Samfylkingarinnar.
Hún segir annað búa að baki
einkavæðingu ríkisstjórnarinnar
en það eitt að færa ríkisrekstur
yfir í einkarekstur.
„Þeir vilja líka stýra því hver
fær hvað. Það hentar því ríkis-
stjórninni býsna vel að hafa leik-
reglurnar lausbeislaðar, svo ekki
sé meira sagt. Ef til færu fastmót-
aðar reglur sem væru öllum ljósar,
þá væri erfiðara fyrir ríkisstjórn-
ina að stýra einkavæðingunni á
rétta aðila,“ segir Margrét Frí-
mannsdóttir og bætir við að það sé
löngu tímabært að setja fastmótað-
ar leikreglur.
49 BÖRN FÆDD Á ÍSAFIRÐI Það
sem af er þessu ári hafa 49 börn
fæðst á Fjórðungssjúkrahúsinu á
Ísafirði. Ef reiknað er með jöfnu
flæði yfir árið má gera ráð fyrir
því að í árslok verði nýfædd börn
orðin 62, eða sami fjöldi og í
fyrra þegar 26 strákar og 36
stelpur litu dagsins ljós. bb.is
FRAMBOÐSMÁL Í NORÐVESTUR-
KJÖRDÆMI Elín R. Líndal, bóndi
á Lækjamóti í Húnaþingi vestra,
hefur ákveðið að gefa kost á sér í
þriðja sæti á lista Framsóknar-
flokksins í Norðvesturkjördæmi.
bb.is.
STEINGRÍMUR J. SIGFÚSSON
Þetta er þungur áfellisdómur en það er al-
veg sama hvaða kjaftshögg ríkisstjórnin
fær, það kemur ekkert vitinu fyrir hana.
Steingrímur J. Sigfússon:
Mjög
þungur
áfellisdómur
EINKAVÆÐING „Ég tel að vinnu-
brögðin og framkvæmdin við
þennan kafla einkavæðingarsorg-
arsögunnar fái þarna mjög þung-
an áfellisdóm,“ sagði Steingrímur
J. Sigfússon, formaður Vinstri
hreyfingarinnar græns framboðs
um skýrslu Ríkisendurskoðunar.
Hann segir að í skýrslunni
komi fram mjög alvarleg, efnis-
lega rökstudd gagnrýni frá mörg-
um aðilum. „Frá Steingrími Ara
Arasyni, fjárfestunum sjálfum,
erlendum bankamanni og fleirum.
En Ríkisendurskoðun segir með
mjög vinsamlegri túlkun að þetta
sleppi fyrir horn hvað það varðar
að reglur hafi ekki með beinum
hætti verið brotnar. Það er hins
vegar fjölmargt að og það er mjög
alvarlegur hlutur,“ sagði Stein-
grímur J. og bætir við að það sé
fjarri öllu lagi að einkavæðingar-
nefnd og hennar vinnubrögð fái
þar með einhvern gæðastimpil.
„Þetta eru bara enn frekari rök
fyrir því að setja þetta ferli allt
saman í heild sinni í rannsókn eins
og reyndar er meiningin. Næst
mun Ríkisendurskoðun snúa sér
að beiðni okar um heildarúttekt á
þessu ferli öllu saman,“ sagði
Steingrímur J.
Ég stend við öll
stóru orðin
Skýrslan segir aðeins hluta sögunnar, segir Steingrímur Ari Arason.
Vekur upp margar spurningar sem aðrir verða að svara. Skiptir
sköpum fyrir einkavæðinguna að unnið sé eftir skýrum reglum
og með hlutlægum og gegnsæjum hætti
EINKAVÆÐING „Skýrslan er innlegg í
málið en segir ekki nema hluta sög-
unnar. Heldur vekur upp margar
spurningar. Það er annarra að
spyrja þeirra og meta hvort ástæða
er til að leita svara og þá hvenær,“
segir Steingrímur Ari Arason um
skýrslu Ríkisendurskoðunar um
söluna á Landsbankanum.
Hann sagði sig úr einkavæðing-
arnefnd fyrir réttum mánuði og rit-
aði forsætisráð-
herra harðort bréf
þar sem meðal ann-
ars sagði að vinnu-
brögð sem viðhöfð
voru í aðdraganda
ákvörðunar um söl-
una á Landsbank-
anum hefðu leitt til
þess að aðrir
áhugasamir kaup-
endur hefðu verið sniðgengnir,
þrátt fyrir hagstæðari tilboð fyrir
ríkissjóð á alla hefðbundna mæli-
kvarða.
„Ég hef setið sem fulltrúi fjár-
málaráðherra í framkvæmda-
nefnd um einkavæðingu frá árinu
1991 og aldrei kynnst öðrum eins
vinnubrögðum,“ sagði í úrsagnar-
bréfinu og Steingrímur Ari hvikar
hvergi í gagnrýni sinni nú.
„Ég held að það sé alveg ljóst
að skýrslan staðfestir ekki þau
stóru orð sem ég viðhafði. Ég
stend hins vegar við þau,“ segir
Steingrímur Ari og bætir við að
skýrslan komi á viðkvæmum tíma,
í ljósi þess að menn eigi í viðræð-
um við ákveðinn aðila um sölu á
stórum hlut í Landsbankanum.
„Ég vil undirstrika það sem að
vísu kemur fram í skýrslunni, að
ég er að þessu vegna þess að ég tel
það mjög mikilvægt, einkavæð-
ingarinnar vegna, að leikreglur
séu skýrar,“ segir Steingrímur
Ari.
Hann segir að þeir sem vilji að
öll sagan sé sögð, séu andstæðing-
ar einkavæðingarinnar. Þeir sem
séu hlynntir henni hafi sagt aðal-
atriðið að koma bönkunum úr eigu
ríkisins.
„Þeir hinir sömu hafa sagt að
einhver formsatriði megi ekki
koma í veg fyrir söluna. Ég segi
hins vegar að þessi formsatriði,
það að vinna eftir skýrum reglum
og með hlutlægum og gegnsæjum
hætti, skiptir bara sköpum fyrir
einkavæðinguna nú og til lengri
tíma litið. Ég er að leggja áherslu
á þetta einkavæðingarinnar
vegna, hún gengur út á það að búa
rekstri og stofnunum almennar
reglur,“ segir Steingrímur Ari.
the@frettabladid.is
Enginn náði meirihluta í kosningunum í Pakistan:
Múslimar boða byltingu
Garðar Sverrisson um úrskurð málskotsnefndar LÍN:
Mikilvægur sigur og
fordæmisgildið ótvírætt
LÍN „Hér hefur unnist mjög mikil-
vægur sigur í réttindabaráttu ör-
yrkja. Sigurinn er fyrst og fremst
Jóhannesar Davíðssonar og sýnir
hve miklum árangri okkar fólk
getur náð ef það lætur ekki for-
stokkaða innheimtumenn vaða
yfir sig,“ segir Garðar Sverrisson,
formaður Öryrkjabandalags Ís-
lands.
Hann segir að ömurlegt hafi
verið að fylgjast með framgöngu
forsvarsmanna Lánasjóðs Ís-
lenskra námsmanna, í aðför þeir-
ra að ábyrgðarmönnum Jóhannes-
ar, sérstaklega í ljósi þess að þar
fari fulltrúar þeirra afla sem
lengst hafi gengið í því að skil-
greina nám sem fjárfestingu í
framtíðartekjum.
„En svo vaða þeir bara áfram
eins og flóðhestar. Með formann
sinn í broddi fylkingar, sem mér
virðist vera álíka illa að sér um
taugasjúkdóma og mannlífið yfir-
leitt, leyfa þeir sér að sjúkdóms-
greina viðskiptavini sína í blaða-
viðtölum. Eftir að hafa fylgst með
aðförinni að Jóhannesi hef ég
mikla ástæðu til að óttast að sam-
bærileg mál eigi sér hliðstæðu.
Það er mikilvægt að þeir sem þan-
nig er ástatt um hafi samband við
okkur strax, því niðurstaða mál-
skotsnefndar hefur ótvírætt for-
dæmisgildi. Með henni hafa
Gunnar I. Birgisson og félagar
verið skikkaðir til að leggja box-
hanskana á hilluna.“
ÆTLAR SÉR STÓRA HLUTI
Qazi Hussain Ahmed, leiðtogi bandalags múslimaflokka, fagnaði góðum árangri í kosn-
ingunum. Hann boðar byltingu múslima í Pakistan.
AP
/M
.S
A
JJ
AD
STEINGRÍMUR ARI ARASON
Hvikar hvergi í gagnrýni sinni og segir skýrslu Ríkisendurskoðunar ekki segja nema hluta
sögunnar.
Með skýrum
reglum í
stjórnsýslu
tryggjum við
fagleg vinnu-
brögð og
drögum úr
pólitísku valdi.
KJÖRKASSINN
Farðu inn á frett.is og segðu
þína skoðun
frétt.is
36%
Hvernig fer leikur Íslands
og Skotlands?
Spurning dagsins í dag:
Eiga Íslendingar að sækja um aðild að
Evrópusambandinu?
Niðurstöður gærdagsins
á www.frett.is
Jafntefli
18,6%
45,3%Ísland vinnur
ÍSLAND VINNUR
LEIKINN
Flestir eru þeirrar
skoðunar að Íslend-
ingar fari með sigur
af hólmi í lands-
leiknum í dag.
Skotland vinnur
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/B
IL
LI