Fréttablaðið - 11.02.2003, Blaðsíða 14
FUNDIR
12.15 Á vegum lagadeildar Háskóla Ís-
lands og Orators, félags laga-
nema, verður haldin málstofa
um dóm Hæstaréttar í máli
ákæruvaldsins gegn Árna John-
sen o.fl. í stofu L-101 í Lögbergi,
húsi lagadeildar. Málshefjendur
verða Jónatan Þórmundsson og
Róbert R. Spanó.
15.30 Fyrsti ársfundur Viðskipta- og
hagfræðideildar Háskóla Íslands
verður haldinn í hátíðarsal Há-
skóla Íslands. Meðal annars flytur
Agnes Bragadóttir blaðamaður er-
indi sem nefnist Fer viðskiptasið-
ferði hrakandi?
20.00 Fræðslunefnd Náttúrulækninga-
félags Íslands heldur málþing að
Hótel Loftleiðum. Málþingið ber
yfirskriftina „Lífsgleði“ . Frum-
mælendur eru Anna Valdimars-
dóttir sálfræðingur, Helga Soffía
Konráðsdóttir prestur, Karl Ágúst
Úlfsson leikari, Bridget Ýr McEvoy,
verkefnisstjóri í hjúkrun HNLFÍ, og
Vilborg Traustadóttir, formaður
MS-félags Íslands.
20.00 Myndlistarmennirnir Birgir Snæ-
björn Birgisson, Hlynur Hallsson
og Ragna Sigurðardóttir flytja er-
indi á málþingi um stöðu mynd-
listar á nýrri öld á Kjarvalsstöðum.
TÓNLEIKAR
12.15 Hulda Björk Garðarsdóttir sópr-
an, Sesselja Kristjánsdóttir
mezzósópran og Iwona Ösp
Jagla píanóleikari flytja dúetta fyr-
ir sópran og mezzósópran í Há-
degistónleikaröð Íslensku óper-
unnar.
LEIKLESTUR
20.00 Leikrit Sigurðar Pálssonar, Undir
Suðvesturhimni, verður leiklesið í
húsnæði leiklistardeildar Listahá-
skóla Íslands að Sölvhólsgötu
13. Flytjendur eru nemendur leik-
listardeildar ásamt atvinnuleikur-
um. Aðgangur er ókeypis og öll-
um heimill.
SÝNINGAR
Landssamband hugvitsmanna sýnir í
Hönnunarsafni Íslands við Garðatorg í
Garðabæ ýmislegt af því sem Íslending-
ar hafa fundið upp og komið á markað
hérlendis og erlendis.
Haukur Helgason, áhugaljósmyndari í
50 ár, opnar ljósmyndasýningu á
nokkrum mynda sinna frá síldveiðum
áranna 1953-57 á veitingahúsinu Kæn-
unni við Hafnarfjarðarhöfn.
Sýning á frönskum og belgískum
teiknimyndum frá upphafi til samtím-
ans stendur yfir í listasafni Kópavogs,
Gerðarsafni.
Í Ásmundarsal við Freyjugötu stendur
nú yfir alþjóðlega samsýningin then
...hluti 5. Þar sýna þeir eru Birgir Snæ-
björn Birgisson, Miles Henderson Smith,
Andrew Child, Gísli Bergmann, Tom
Merry og Stefan Bottenberg en sami
hópur er einnig með sýningu á Kjarvals-
stöðum um þessar mundir. Sýningin er
opin til 16. febrúar, alla daga nema
mánudaga, milli 13 og 17.
Elísabet Ýr Sigurðardóttir sýnir olíu-
málverk á striga í Blómaverkstæði Betu,
Reykjavíkurvegi 60, Hafnarfirði, frá 6.
febrúar til 6. mars 2003
Tilfinningar heitir myndlistarsýning
Freygerðar Dönu Kristjánsdóttur á Te
og Kaffi, Laugavegi 27, Reykjavík.
Sýningin stendur út febrúarmánuð.
Á mörkum málverksins er sameiginleg
yfirskrift þriggja sýninga í Listasafni Ís-
lands. Ragna Róbertsdóttir sýnir verk úr
11. febrúar 2003 ÞRIÐJUDAGUR
- veisluhöld allt árið
ÞRIÐJUDAGUR
11. FEBRÚAR
hvað?
hvar?
hvenær?
Hljóðlátir ungir
myndlistarmenn
Hópur ungra myndlistarmanna, bæði íslenskra og erlendra, sýnir
verk sín þessa dagana bæði á Kjarvalsstöðum og í Ásmundarsal.
Þeir segjast ekki finna þörf hjá sér til að hrópa og kasta sprengjum.
MYNDLIST „Sýningin í ASÍ er eig-
inlega bara hvískur. Maður þarf
að gefa sér góðan tíma þar,“ seg-
ir Birgir Snæbjörn Birgisson
myndlistarmaður. „Ég hef aldrei
sett upp sýningu sem er jafn
lágstemmd í samræðu.“
Hann er þarna að tala um
samsýningu breskra og ís-
lenskra myndlistarmanna, sem
hafa haldið samtals fimm sýn-
ingar saman á síðustu tveimur
eða þremur árum undir heitinu
„then“, eða „þá“. Fyrstu þrjár
sýningarnar voru erlendis, en
tvær standa nú yfir hér á landi,
önnur á Kjarvalsstöðum en hin í
Listasafni ASÍ í Ásmundarsal
við Freyjugötu.
„Einhverjum kann að finnast
þetta hroki, en okkur fannst
mjög skemmtilegt að fá þetta
tækifæri til að geta verið með
tvær sýningar og haft þær svo-
lítið ólíkar. Sýningin á Kjarvals-
stöðum er meira stíluð upp á það
að sýna það sem við höfum gert
til þessa. Þar erum við með
klassíska samsýningu, líf og
skemmtilegheit þar sem öllu
ægir saman. Svo sýnum við nýj-
ustu verkin okkar í ASÍ, þar sem
við horfum frekar inn á við og
höfum lækkað mjög styrkinn í
sýningunni.“
Ásamt Birgi eru Miles Hend-
erson Smith, Andrew Child,
Gísli Bergmann, Tom Merry og
Stefan Bottenberg í þessum
hópi ungra myndlistarmanna
sem fara svolítið ótroðnar
slóðir.
„Hljóðlát og tilfinningarík“
eru orðin sem Birgir notar um
sýninguna í Listasafni ASÍ.
„Það er eins og nú sé ríkjandi
tilhneiging til þess í myndlist
að þurfa ekki að hrópa og
öskra og kasta sprengjum. Nóg
sé að tala blíðlega. Þannig geti
maður kannski náð jafn góðu
sambandi við áhorfandann.“
Hann segir markmiðið með
sýningunni einmitt vera að
hefja samtal við áhorfandann.
„Þegar maður hittir einhvern í
fyrsta sinn byrjar maður
gjarnan á rólegu nótunum.“
Birgir er enn fremur einn
þriggja frummælenda á mál-
þingi um stöðu myndlistarinn-
ar sem haldið verður á Kjar-
valsstöðum í kvöld. Tveir aðrir
myndlistarmenn, Hlynur
Hallsson og Ragna Sigurðar-
dóttir, taka einnig til máls.
Birgir segist einkum ætla
að ræða um sýningarnar tvær
á Kjarvalsstöðum og í Ás-
mundarsal. „Þetta málþing er
skipulagt af Listasafni
Reykjavíkur. Það er ábyggi-
lega ekki alveg tilviljun að það
lendir á sama tíma og þessar
tvær sýningar okkar,“ segir
Birgir.
„Þarna verður meðal annars
spurt hvort nú sé ákveðin til-
hneiging í myndlistinni að nota
hefðbundna miðla og eitthvað
sem hægt er að handfjatla.
Þetta fellur mjög vel að sýn-
ingunum okkar.“
gudsteinn@frettabladid.is
BIRGIR SNÆBJÖRN BIRGISSON
„Ég hef líka alltaf sagt um verkin mín að ég sé að hvísla í þeim.“
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
IL
H
EL
M