Fréttablaðið - 22.04.2003, Blaðsíða 2

Fréttablaðið - 22.04.2003, Blaðsíða 2
2 22. apríl 2003 ÞRIÐJUDAGUR “Þau er bara fín en ég losna við þau bráðum. Venjulega er ég með linsur en var skikkaður til að vera með gleraugu í mánuð út af bólgum.“ Logi Bergmann Eiðsson hefur lesið sjónvarpsfrétt- ir að undanförnu með gleraugu. Spurningdagsins Logi, hvernig eru gleraugun? ■ Skðanakönnun Stjórnmál Framsóknarflokkurinn – kjölfestan í íslenskum stjórnmálum – ekki slagsmál ATHUGUN „Það er nokkuð síðan við fengum þetta mál,“ sagði Sigurður Þórðarson ríkisendurskoðandi, en hann hefur að ósk menntamála- ráðuneytisins skoðað embættis- færslur Þorfinns Ómarssonar, fyrrverandi forstöðumanns Kvik- myndasjóðs, síðustu daga hans í embætti. Sigurður segir ekki langt að bíða þess að embættið sendi ráðuneytinu niðurstöður vinnu sinnar. Meðal þess sem verið er að at- huga er styrkveiting sem Þorfinn- ur veitti Hrafni Gunnlaugssyni til gerðar myndarinnar Opinberun Hannesar, sem er byggð á smá- sögu eftir Davíð Oddsson forsætis- ráðherra. Áður hafði því verið hafnað að styrkja myndina en Þor- finnur veitti henni tuttugu og tveg- gja milljóna króna styrk skömmu áður en hann lét af embætti. Ekki náðist í Þorfinn þegar fréttin var í vinnslu. ■ „Við höfum fundið gott andrúms- loft síðustu vikurnar,“ segir Hall- dór Ásgrímsson, formaður Fram- sóknarflokksins. „Okkur finnst skoðanakannanir Fréttablaðsins ekki hafa verið í samræmi við það sem við höfum fundið. Við höfum trú á að við eigum eftir að sækja mikið á á næstunni, hversu góð vísbending þetta er skal ég ekki fullyrða um.“ „Þessar tölur gefa til kynna að þeir sem vilja hnekkja veldi Sjálfstæðisflokksins verða að spýta í lófana,“ segir Össur Skarphéðinsson, formaður Sam- fylkingarinnar. „Það eru þrjár vikur til kosninga. Tíminn er nægur til að safna liði til að vinna duglegan sigur og það ætla ég Samfylkingunni að gera og ekk- ert minna.“ „Þetta fer fram úr okkar björt- ustu vonum,“ segir Guðjón Arnar Kristjánsson, formaður Frjáls- lynda flokksins. „Við erum ánægð að við vinnum á. Það gef- ur okkur von um að fólk trúi á okkar málflutning. Ég tel að okk- ar unga og efnilega fólk stefni í að vinna glæsilega sigra.“ „Þetta er frekar í áttina, og ég hef ágæta tilfinningu fyrir stöð- unni,“ segir Steingrímur Sigfús- son, formaður VG. „Ég er bjart- sýnn og held við séum að upp- skera að hafa verið sjálfum okk- ur samkvæm í þessari baráttu og hvorki farið á loforðafyllerí né misstigið okkur að öðru leyti í málefnunum.“ „Ég á mjög erfitt með að átta mig á þessum könnunum. Ef þær eru réttar þá skiptir fólk um skoðun á nokkurra sólarhringa fresti,“ segir Guðlaugur Þór Þórðarson borgarfulltrúi. „Ég hef fundið mjög jákvæðan anda og við höf- um verið í góðri sókn.“ SKOÐANAKÖNNUN Samkvæmt sam- anteknum niðurstöðum síðustu tveggja skoðanakannana Frétta- blaðsins, sem gerðar voru dagana 12. og 19. apríl, fær Frjálslyndi flokkurinn sjö þingmenn kjörna, Framsóknarflokkur sex, Vinstri grænir fimm, Samfylkingin tutt- ugu og Sjálfstæðisflokkur tuttugu og fimm. Samanlagt er úrtakið 2.400 manns í þessum tveimur könnunum. Frjálslyndir bæta við sig sam- kvæmt könnununum tveimur og mælast með 11,4% fylgi af þeim sem taka afstöðu. Framsóknar- flokkur mælist með 10,1% fylgi, Vinstri grænir 8,4%, Samfylking- in 30,3% og Sjálfstæðisflokkur 37,5%. Fylgi Nýs afls mælist óverulegt, eða 1,1%. Frjálslyndir sterkir í Reykjavík Frjálslyndir hafa samkvæmt þessum niðurstöðum tæplega þre- faldað fylgi sitt á landsvísu á und- anförnum vikum. Athygli vekur að nokkur aukning virðist vera á fylgi þeirra á höfuðborgarsvæð- inu. Flokkurinn mælist með 11,8% fylgi í Reykjavík norður og fær samkvæmt því tvo þingmenn, þar af einn uppbótarþingmann. Í Reykjavík suður mælist hann með 11% fylgi og einn þingmann. Í Suðvesturkjördæmi er flokkurinn með 10,3%, sem skilar einum manni á þing. Sterkastur er flokk- urinn nú sem fyrr í Norðvestur- kjördæmi, og mælist þar með 23,3% fylgi og tvo þingmenn. Í Suðurkjördæmi fær hann 8,6% og einn þingmann, en í Norðuraust- urkjördæmi er enginn þingmaður Frjálslyndra inni og fylgið mælist 6,6%. Framsókn með engan á suð- vesturhorninu Framsóknarflokkurinn geldur afhroð á öllu Suðvesturhorninu samkvæmt þessum niðurstöðum. Hann mælist með engan þing- mann í Reykjavík og engan í Suð- vesturkjördæmi. Fylgið mælist jafnmikið í báðum Reykjavíkur- kjördæmunum, eða 6,5%, og 6,8% í Suðvesturkjördæmi. Stærstur virðist flokkurinn vera í Norð- austurkjördæmi, þar sem hann mælist með 21,6% og þrjá þing- menn, þar af einn uppbótarþing- mann. Hann er með 15,7% í Norð- vesturkjördæmi og tvo þingmenn, þar af einn uppbótarþingmann, og 11,5% í Suðurkjördæmi og einn þingmann. Ingibjörg Sólrún úti Samfylkingin mælist með 30,7% fylgi í Reykjavík norður og þrjá þingmenn inni. Samkvæmt því á Ingibjörg Sólrún Gísladóttir nokkuð langt í land með að ná þingsæti, en hún skipar fimmta sætið á listanum. Í Reykjavík suð- ur mælist Samfylkingin með 33% fylgi og fjóra þingmenn, og í Suð- vesturkjördæmi mælist fylgið 31,7%, sem skilar fjórum þing- mönnum, þar af einum uppbótar- þingmanni. Í Norðausturkjör- dæmi mælist fylgið 26,8% og þingmennirnir þrír, eins og í Norðvesturkjördæmi og Suður- kjördæmi, þar sem fylgið mælist annars vegar 25,2% í Norðvestur og 30,5% í Suður. Sjálfstæðisflokkurinn stærst- ur Sjálfstæðisflokkurinn mælist með 7,5% forskot á Samfylking- una og er með 37,5% fylgi á lands- vísu. Hann mælist sterkastur á höfuðborgarsvæðinu, er með 40,7% í Reykjavík norður og fimm þingmenn, þar af einn upp- bótarmann, og 41,2% og fimm þingmenn í Reykjavík suður, þar af einn uppbótarmann. Fylgi flokksins virðist mest í Suðvest- urkjördæmi þar sem 42,3% segj- ast munu greiða flokknum at- kvæði sitt. Það skilar fimm kjör- dæmakjörnum þingmönnum. Sjálfstæðisflokkurinn er einnig með fimm menn inni í Suðurkjör- dæmi, þar af einn uppbótarþing- mann og mælist þar með 34,6% fylgi. Í Norðausturkjördæmi stendur fylgið í 31,5%, sem færir flokknum þrjá þingmenn og í Norðvesturkjördæmi mælist fylg- ið 24,8%. Þar fengi flokkurinn tvo þingmenn samkvæmt þessu. Vinstri grænir í kjörfylgi Vinstrihreyfingin – grænt framboð mælist með fylgi nálægt kjörfylgi sínu á landsvísu, eða 8,4%. Hreyfingin er stærst í Norðausturkjördæmi þar sem 12,7% af þeim sem tóku afstöðu í könnunum tveimur segjast munu greiða henni atkvæði. Það þýðir einn þingmann. Í Norðvesturkjör- dæmi fá Vinstri grænir 10,5% og einn þingmann, en í Suðurkjör- dæmi mælast þeir með 6,2% fylgi og engan þingmann. Fylgið mælist 8,3% í Reykjavík norður, 6,9% í Reykjavík suður og 7,9% í Suðvesturkjördæmi. Þetta skilar Vinstri grænum einum þingmanni í hverju þessara kjördæma, þar af tveimur uppbótarþingmönnum í Suðvestur og Reykjavík suður. gs@frettabladid.is FARALDUR „Konan sem hefur verið í sóttkví á Landspítalanum fer heim í dag,“ segir Haraldur Briem sótt- varnalæknir. Konan hafði verið á ferðalagi í Suðaustur-Asíu, reynd- ar ekki á þeim svæðum sem lungnabólgan hefur verið í út- breiðslu. Hún sýndi einkenni sem svipar til lungnabólgunnar og af öryggisástæðum var hún sett í einangrun. „Við bregðumst við eins og um lungnabólgutilfelli sé að ræða, því allur er varinn góður. Við höfðum uppi á því fólki sem hún hafði haft samskipti við eftir heimkomuna og fylgdumst með því,“ segir Haraldur. Haraldur Briem segir farald- inn enn vera í fullum gangi á út- breiðslusvæðum og ekki sé ástæða til annars enn að sýna fyllstu varúð. „Spjöld hafa verið sett upp í Leifsstöð þar sem ferða- menn frá Kína og Kanada eru beðnir um að fylgjast með ein- kennum fyrstu tíu dagana eftir brottför þaðan. Það eina sem við getum gert er að treysta því að fólk láti athuga sig ef það kemur frá þessum svæðum og verður einkenna vart,“ segir Haraldur Haraldur segist ráða fólki ein- dregið frá því að ferðast til þeirra staða þar sem lungnabólgan hefur breiðst út. Hann segir skemmti- ferð til Kína ekki góða hugmynd og ætti fólk ekki að ferðast til þessara svæða nema brýna nauð- syn beri til. „Í Kína hafa verið gerðar takmarkanir á ferðum inn- anlands. Til dæmis átti að vera mikil hátíð sem kostar mikinn flutning fólks á milli staða en hef- ur verið blásin af út af öryggis- ráðstöfunum,“ segir Haraldur. ■ LANDSPÍTALINN Ráðstafanir hafa verið gerðar á Land- spítalanum til að einangra þá sem hugsanlega gætu hafa smitast af lungnabólgufaraldrinum. Ástæða til að sýna fyllstu varúð: Ferðalög til Kína óheppileg ÞORFINNUR ÓMARSSON Ríkisendurskoðun kannar embættisfærslur hans. Ríkisendurskoðun með Kvikmyndasjóð: Niðurstöður væntanlegar Ingibjörg Sólrún úti Samanteknar niðurstöður síðustu tveggja kannana Fréttablaðsins sýna Sjálfstæðisflokkinn stærstan og Samfylkinguna einungis með þrjá þingmenn inni í Reykjavík norður. Framsókn fær ekki þingmann á höfuðborgarsvæðinu. SIV FRIÐLEIFSDÓTTIR Fari kosningarnar eins og nýjustu skoðanakannanir missir hún sæti sitt á Alþingi. INGIBJÖRG SÓLRÚN Sem stendur virðist sem hún nái ekki kjöri á Alþingi. Reyndar er styttra í næsta mann Sjálfstæðisflokks í kjördæminu en hana.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.