Fréttablaðið - 02.05.2003, Blaðsíða 6
6 2. maí 2003 FÖSTUDAGURVeistusvarið?
1Íslensk heimildar- og stuttmyndahátíðstendur nú yfir. Hver er yfirskrift há-
tíðarinnar?
2Dönsku risafyrirtæki hefur verið boð-ið að taka þátt í uppbyggingu í Írak
að stríðinu loknu. Hvað heitir fyrirtækið?
3Hvað heitir söngvari hljómsveitarinn-ar Prodigy sem nýverið stofnaði nýja
hljómsveit undir eigin nafni?
Svörin eru á bls. 44
Uppgangstími á enda:
Metfjöldi
gjaldþrota
NOREGUR, AP Útlit er fyrir að ára-
langur uppgangstími í Noregi sé
senn á enda. Á fyrsta fjórðungi
þessa árs voru 1.269 norsk fyrir-
tæki lýst gjaldþrota, sem er 41
fyrirtæki meira en á sama tíma-
bili á síðasta ári.
Í yfir 60 prósentum tilfella var
um að ræða lítil og meðalstór fyr-
irtæki á borð við bókaverslanir og
bifvélaverkstæði. Talið er að
gjaldþrotin megi einkum rekja til
takmarkaðs stofnfjár auk þess
sem lánastofnanir séu teknar að
halda að sér höndum.
Norskur hagfræðingur segir
gjaldþrotin staðfestingu á því að
tíma lágrar verðbólgu og upp-
gangs í efnahag þjóðarinnar sé
senn að ljúka. ■
KVIKMYNDIR Hrafn Gunnlaugsson,
leikstjóri og framleiðandi mynd-
arinnar Opinberun Hannesar, seg-
ir að upphaflega hafi staðið til að
Davíð Oddsson kæmi að gerð
handritsins en það hafi ekki
reynst mögulegt.
„Davíð leyfði mér á sínum
tíma að nota söguna til að byggja
á henni aðra hugmynd sem ég
hafði sjálfur og þá fórum við yfir
textann hjá persónunum í
sögunni. Hann hefur ekki þegið
neinar greiðslur fyrir að leyfa
mér þetta, og hefur síðan þá ekk-
ert fylgst með framvindu verks-
ins og veit trúlega ekki lengur
einu sinni um hvað myndin fjall-
ar. Auðvitað hefði verið gaman að
geta skrifað með honum aftur
eins og í Matthildi í gamla daga
og ég reyndi ítrekað að fá hann
til að koma að handritinu, en
hann gerði það ekki, og ég leitaði
að ráðgjöf við handritið hjá
öðrum eins og kemur fram í
kredittexta myndarinnar,“ segir
Hrafn, sem stefnir að því að
frumsýna myndina 17. júní næst-
komandi. ■
Ferðamálastjóri:
Bíður álits
ráðherra
STJÓRNSÝSLA Magnús Oddsson
ferðamálastjóri tjáir sig ekki um
gagnrýni á útdeilingu Ferðamála-
ráðs á fé til landkynningar. Pétur
Óskarsson hjá Katla Travel segir út-
deilinguna siðlausa og ólöglega.
Icelandair fékk langstærsta hluta
fjárins. Pétur hefur skrifað sam-
gönguráðherra vegna málsins.
„Bréfritari hefur valið að setja
þetta í annan farveg. Málinu verður
ekki svarað í skeytastíl í fjölmiðli.
Þetta krefst ítarlegra og lengra
svars, sérstaklega þegar menn eru
sakaðir um að hafa brotið lög,“ seg-
ir Magnús Oddsson. ■
VEITA VÖRN GEGN SMITI
Búningarnir eru fyrir þrjá, tveir ætlaðir
sjúkraflutingamönnum og einn fyrir
sjúklinginn.
HABL:
Hlífðarfatn-
aður í sjúkra-
bílum
LUNGNABÓLGA Slökkvilið höfuð-
borgarsvæðisins og landlæknir
hafa gefið út leiðbeiningar til
sjúkraflutningamanna um hvernig
skuli standa að flutningi fólks sem
grunur leikur á að hafi sýkst af
bráðalungnabólgu (HABL).
Slökkviliðið hefur nú yfir að ráða
hlífðarfatnaði fyrir þrjá, tveimur
fyrir sjúkraflutningamenn og
einum fyrir sjúklinginn. Að sögn
Guðmundar Jónssonar, sviðs-
stjóra sjúkraflutninga hjá Slökkvi-
liði höfuðborgarsvæðisins, veitir
hann meiri vörn en fatnaðurinn
sem geymdur er á slysadeild. ■
KVIKMYNDIR Í frumumsókn Hrafns
Gunnlaugssonar kvikmyndaleik-
stjóra um styrk til gerðar kvik-
myndarinnar Opinberun Hannesar
er tilgreint að myndin sé byggð á
smásögu Davíðs Oddssonar, Glæp-
ur skekur húsnæðisstofnun. Þá er
því einnig lýst að
Davíð sé höfund-
ur handrits
ásamt Hrafni. Í
kostnaðaráætlun
vegna gerðar
myndarinnar er
t i l g r e i n d u r
kostnaður við
gerð handritsins
og enn tekið
fram að höfund-
ar handrits séu Davíð og Hrafn. Ef
marka má umsóknina voru einnig
þrír ráðgjafar við handritsgerðina
en þeir eru Ari Kristinsson, Bo
Jonsson og Þráinn Bertelsson. Árið
2001 fékk kvikmyndin nýsköpun-
arstyrk upp á eina milljón króna
en þá var einnig kynnt að handrits-
höfundar væru Davíð Oddsson og
Hrafn Gunnlaugsson. Í umsókn
var tilgreint að kostnaður við
handritsgerð sé áætlaður 2,4 millj-
ónir króna, þar af 600 þúsund
krónur vegna ráðgjafar.
Stjórn Kvikmyndasjóðs hafn-
aði því í fyrra að styrkja mynd-
ina. Heimildir Fréttablaðsins
herma að meðal ástæðna hafi ver-
ið að handritið þótti ekki nógu vel
unnið. Meðal þeirra stjórnar-
manna sem tóku málið fyrir var
Ari Kristinsson, einn ráðgjafanna
þriggja við handritið.
Þvert á það sem lýst er í um-
sókninni um styrk frá Kvik-
myndasjóði segir Davíð Oddsson
að hann hafi hvergi komið að
myndinni að öðru leyti en að
skrifa smásöguna. Þetta kom
fram í viðtali við Davíð á Stöð 2 í
samhengi við að Björgólfsfeðgar
lögðu Hrafni til 10 milljónir króna
til myndarinnar. Telma Tómasson
fréttamaður spurði: „Mig langar
til örstutt að spyrja þig Davíð, af
því að við erum að tala um Lands-
bankann og þá Björgólfsfeðga, nú
kom það fram í fréttum í vikunni
að þeir hefðu lagt 10 milljónir til
kvikmyndar Hrafns Gunnlaugs-
sonar sem þú gerir handrit eða
skrifar handrit að?“.
Davíð Oddsson svaraði: „Nei,
þetta var öfugt reyndar. Ég gaf út
smásögu fyrir mörgum árum og
Hrafn fékk leyfi til að taka eina
smásöguna og byggja mynd á
henni. Það hefði ég út af fyrir sig
leyft öllum kvikmyndagerðar-
mönnum að gera.“
rt@frettabladid.is
FRÉTTAFLUTNINGUR Fréttastofa Út-
varps hefur beðið Össur Skarp-
héðinsson, formann Samfylkingar,
afsökunar á fréttaflutningi sínum
þess efnis að Össur hefði lýst yfir
vilja til að mynda stjórn með
Vinstri grænum og Frjálslynda
flokknum. Fréttin var byggð á
kosningaþætti Útvarpsins en
reyndist mistúlkun á orðum Öss-
urar.
Karl Th. Birgisson, fram-
kvæmdastjóri Samfylkingar, segir
að fréttin hafi komið Samfylking-
arfólki mjög á óvart. Við yfirlest-
ur á útskrift þess sem fram kom í
þættinum kom í ljós að fréttin átti
ekki við rök að styðjast. Þegar
óskað var eftir skýringum á henni
sendi fréttamaðurinn sem vann
fréttina Össuri afsökunarbeiðni
þar sem fram kom að fréttinni
hefði verið breytt eftir að hún var
unnin. „Mér sýnist að þetta hafi
verið slys,“ segir Karl og segir
slæmt að svona komi upp á tíu
dögum fyrir kosningar. Hann er
þó ánægður með hvernig frétta-
stofan brást við. „Þessi afsökunar-
beiðni var til fyrirmyndar.“ ■
Stjórnunarstöður:
Konum
fjölgar
STJÓRNVÖLD Konum í stjórnunar-
stöðum á vegum ríkisins hefur
fjölgað um tíu frá ársbyrjun 2001.
Á sama tíma hefur körlum í
stjórnunarstöðum fækkað um 20,
að því er fram kemur í vefriti
fjármálaráðuneytisins. Á þessum
tíma hafa 47 forstöðumenn verið
ráðnir hjá ríkinu, 27 karlar og 20
konur.
Þau ráðuneyti sem hafa ráðið
flesta forstöðumenn eru mennta-
málaráðuneytið, sem hefur ráðið
níu karla og fjórar konur, og heil-
brigðisráðuneytið, sem hefur ráð-
ið sex konur og fjóra karlmenn. ■
ÖSSUR SKARPHÉÐINSSON
Orð Össurar voru rangtúlkuð
í fréttum Útvarps.
Fréttastofa Útvarps mistúlkaði
orð formanns Samfylkingar:
Bað Össur afsökunar
HRAFN GUNNLAUGSSON
Davíð fékk ekkert borgað.
Hrafn Gunnlaugsson um handritshöfunda:
Davíð kom hvergi nærri
DAVÍÐ ODDSSON
Segist hvergi hafa komið nærri gerð handritsins.
Davíð var sagður
höfundur handrits
Kvikmyndahandrit að Opinberun Hannesar fékk nýsköpunarstyrk upp
á milljón. Davíð Oddsson þá sagður handritshöfundur en sór það af sér.
„Hrafn fékk
leyfi til að
taka eina
smásöguna
og byggja
mynd á
henni. HANDRITIÐ
Á forsíðu fyrsta handrits að Opinberun Hannesar er Davíð Oddsson sagður vera bæði
höfundur sögu og handrits.
SUNDLAUG Á LAUGAR Mennta-
málaráðherra hefur undirritað
samning við Þingeyjarsveit um
byggingu 25 metra sundlaugar
við Framhaldsskólann á Laugum.
Sundlaugin kostar 110 milljónir.
Ríkið greiðir 60%, sveitarfélagið
40%.
RÍKISSTYRKUR KÆRÐUR Iceland
Express hefur kært ferðamála-
stjóra og samgönguráðherra til
ESA fyrir að úthluta Icelandair
159 milljóna króna ríkisstyrk.
Fyrirtækið vill að hætt verði við
greiðslu styrksins.
■ Stjórnvöld
SAFNI BREYTT Í VERSLUNARMIÐ-
STÖÐ Á næsta ári verður stærsta
verslunarmiðstöð Evrópu opnuð í
gríðarstórri byggingu sem ætlað
var að hýsa þjóðminjasafn í stjórn-
artíð rúmenska kommúnistaleið-
togans Ceausescu. Grunnflötur
hússins er yfir 16.000 fermetrar en
auk verslana verður þar hótel,
heilsuræktarstöð og íbúðir.
OFBELDISFULLAR UNGLINGS-
STÚLKUR Fjöldi unglingsstúlkna
sem dæmdar eru fyrir líkams-
árásir í Danmörku tvöfaldaðist
frá árinu 2001 til 2002. Dómum
fyrir hótanir og ofbeldi í garð op-
inberra aðila fjölgaði einnig
verulega. Að sögn þeirra sem til
þekkja er þetta í samræmi við þá
þróun sem verið hefur á síðustu
árum.
■ Evrópa
GENGI GJALDMIÐLA
Bandaríkjadalur 75.17 -0,86%
Sterlingspund 119.97 -0,57
Dönsk króna 11.27 0,63%
Evra 83.69 0,64%
Gengisvístala krónu 119,76 0,34%
KAUPHÖLL ÍSLANDS
Fjöldi viðskipta 310
Velta 2.861 milljónir
ICEX-15 1.417 0,22%
Mestu viðskipti
Íslandsbanki hf. 596.271.830
Kaupþing banki hf. 533.625.000
Landsbanki Íslands hf. 283.586.014
Mesta hækkun
Skýrr hf. 3,45%
Pharmaco hf. 2,41%
Ísl. aðalverktakar hf. 1,47%
Mesta lækkun
SÍF hf. -6,67%
Síldarvinnslan hf. -6,52%
Framtak Fjárfestingarbanki hf. -4,35%
ERLENDAR VÍSITÖLUR
DJ*: 8.398,6 -1,0%
Nasdaq*: 1460,7 -0,3%
FTSE: 3.880,1 -1,2%
DAX: 2942,0 0,4%
NIKKEI: 7863,3 0,4%
S&P*: 908,8 -0,9%
*Bandarískar vísitölur kl. 17.00