Fréttablaðið - 03.05.2003, Blaðsíða 2

Fréttablaðið - 03.05.2003, Blaðsíða 2
2 3. maí 2003 LAUGARDAGUR „Ég er í Sparisjóði vélstjóra í Borg- artúni. Ég vann þar í húsinu í 16 ár.“ Guðjón A. Kristjánsson, formaður Frjálslynda flokksins, hefur lýst þeirri skoðun sinni að réttast væri að fá hingað til lands erlendan banka til að veita innlendum samkeppni. Spurningdagsins Guðjón, við hvaða banka skiptir þú? KVIKMYNDIR Ríkissjónvarpið borgar 10 milljónir króna fyrir frumsýn- ingarrétt á kvikmynd Hrafns Gunnlaugssonar, Opinberun Hann- esar. Þetta er sama upphæð og kost- ar að framleiða Áramótaskaup Sjónvarpsins. Rúnar Gunnarsson, dagskrár- stjóri Sjónvarpsins, staðfesti í sam- tali við Frétta- blaðið að sýning- arréttur hefði verið keyptur að myndinni. Hann segir að í samn- ingnum sem gerður var árið 2000 hafi verið skilyrt að Sjón- varpið fengi myndina til frumsýningar. Rúnar segir að ef myndin verði frumsýnd sem kvikmynd þá muni það breyta forsendum upphaflegs samnings. „Upphaflega var hafin fram- leiðsla á þessari mynd sem sjón- varpsmynd og þá að frumkvæði Svía. Við hugsum hana sem sjón- varpsmynd og gerum samning samkvæmt því. Ef myndinni verð- ur breytt í kvikmynd til almennra sýninga þá er þessi samningur þar með fallinn úr gildi og við munum kaupa hana eins og hver- ja aðra kvikmynd,“ segir Rúnar. Hann segir að Hrafn hafi ekki fengið samningsverð myndarinn- ar greitt en hann hafi fengið greitt inn á sem nemi kvikmynda- kaupsverði. Rúnar segir að venj- an sé að kaupa kvikmyndir á þrjár til fimm milljónir króna. „Það verða engar frekari greiðslur fyrr en ákveðið er hvora leiðina myndin fer,“ segir Rúnar. Opinberun Hannesar er byggð á smásögu Davíðs Oddssonar for- sætisráðherra, Glæpur skekur húsnæðisstofnun. Opinberun Hannesar hefur þegar valdið miklu uppnámi en myndinni var á sínum tíma neitað um styrk hjá Kvikmyndasjóði. Þorfinnur Ómarsson, sem setti sig upp á móti styrknum, sætti rannsókn Ríkisendurskoðunar og varð skömmu síðar að hætta þeg- ar menntamálaráðherra vísaði honum tímabundið úr starfi. Lög- fræðinganefnd komst að þeirri niðurstöðu að brottvikningin hefði verið ólögmæt og Þorfinnur fékk starfið tímabundið aftur eða þar til embætti hans var lagt nið- ur. Á seinustu dögum sínum í starfi ákvað hann að veita mynd Hrafns styrk upp á 22 milljónir króna. Sá styrkur er til fram- leiðslu kvikmyndar og háður því að myndin verði sýnd í kvik- myndahúsum. Menntamálaráð- herra brást illa við og óskaði eftir því að Ríkisendurskoðun færi yfir málið. Niðurstaðan varð sú að Þorfinni hefði verið óheimilt að styrkja myndina án leyfis menntamálaráðherra. Hrafn Gunnlaugsson stefnir að því að frumsýna myndina á 17. júní. rt@frettabladid.is Hjálpargögn til Basra: Branson tek- ið fagnandi BASRA, AP Richard Branson, for- stjóra flugfélagsins Virgin Atlant- ic, var tekið fagnandi þegar hann lenti á flugvellinum í Basra með 60 tonn af sjúkragögnum. Talið er að þetta sé í fyrsta sinn sem al- þjóðlegt flugfélag lendir í Írak síðan viðskiptabann var sett á landið fyrir um tólf árum síðan. Um borð í vélinni voru meðal annars hitakassar og ýmis lyf sem ætluð eru sjúkrahúsum í Basra og nágrenni. „Ef þörf er á meiru þá kem ég með meira“ sagði Bran- son. Forstjórinn ítrekaði nauðsyn þess að komið yrði á áætlunar- flugi til Írak og sagðist vera að íhuga að hefja flug frá London til Bagdad og Basra. Talsmenn breska hersins voru ánægðir með framtak Bransons og sögðust vona að önnur mannúð- arsamtök myndu fara að dæmi hans. ■ Heimilisofbeldi: Tvær millj- ónir frá ráð- herra STJÓRNMÁL Þolendur heimilisof- beldis sem leita til slysa- og bráðadeildar í Fossvogi fá tvær milljónir króna á tveimur árum frá dómsmálaráðuneytinu í sér- hæfða lögfræðiaðstoð. Í frétt frá dómsmálaráðuneyt- inu segir að um 140 einstaklingar komi árlega á deildina vegna heimilisofbeldis: „Reynslan hefur leitt í ljós að nauðsynlegt er að hafa aðgang að löglærðum talsmanni fyrir þessa þolendur. Kostnaður við slíka ráð- gjöf hefur í mörgum tilfellum hindrað það að þolendur, sem eru í flestum tilfellum konur, hafi leit- að sér lögfræðiráðgjafar.“ ■ GJALDHEIMTA Akureyrarbæ var óheimilt að innheimta full gatna- gerðargjöld af Byggingarfélaginu Hyrnunni sem byggði íbúðir við Melateig. Byggingarfélagið sá einnig um gatnagerð á eigin kostnað. Félagsmálaráðuneytið kemst að þeirri niðurstöðu að bærinn hefði átt að veita lóðar- hafa afslátt frá gatnagerðargjöld- um sem næst þeirri upphæð sem það sparaði sér við þetta fyrir- komulag. Samkvæmt samningi bæjarins og byggingarfélagsins er gatan eign íbúanna og þeim skylt að sjá um viðhald og umhirðu hennar. Þetta segir ráðuneytið ólöglegt. Eigendur íbúða við Melateig fóru fram á það við bæinn að fá gatna- gerðargjald endurgreitt og að bærinn yfirtæki eignarhald og viðhald á götunum. Þeir töldu að þeir væru látnir greiða fyrir þjón- ustu sem þeir fengju ekki. Því var hafnað af hálfu bæjarins. 40 íbúð- ir eru við Melateig. Kristján Þór Júlíusson bæjar- stjóri segir að ekki hafi verið ákveðið hvernig verði brugðist við. Bæjarlögmaður sé að fara yfir málið. ■ Baldur Þórhallsson: Endurspeglar lægð flokksins SKOÐANAKÖNNUN Minnkandi traust til Ingibjargar Sólrúnar Gísladótt- ur, forsætisráðherraefnis Sam- fylkingarinnar, endurspeglar þá lægð sem Samfylkingin er í að mati Baldurs Þórhallssonar, dós- ents í stjórnmálafræði við Há- skóla Íslands. Baldur segir ómögulegt að draga þá ályktun af þessu að Ingi- björg Sólrún sé ekki að standa sig í kosningabaráttunni. Hann sagð- ist alls ekki vilja taka svo djúpt í árinni. „Það er erfitt að segja hvort kemur á undan dvínandi traust Ingibjargar Sólrúnar eða minnk- andi fylgi Samfylkingarinnar,“ segir Baldur. „Í rauninni getum við ekkert sagt um það - okkur skortir forsendurnar til þess.“ ■ Ásgeir Hannes Eiríksson: Fylgir fylgi flokkanna SKOÐANAKÖNNUN Það er beint sam- band milli trausts til stjórnmála- manna og fylgis flokkanna að sögn Ásgeirs Hannesar Eiríksson- ar, fyrrum þingmanns Reykvík- inga. „Þó einhver Sjálfstæðismaður þoli ekki Davíð Oddsson, af því hann getur ekki treyst honum, myndi hann aldrei segja það í skoðanakönnun um traust,“ segir Ásgeir Hannes. Ásgeir Hannes segir að Ingi- björg Sólrún Gísladóttir hafi farið of snemma fram og það skýri minnkandi traust til hennar. Hún hafi toppað á vitlausum tíma. Eft- ir kosningarnar muni kjósendur komast í raun um það að Össur er og verði leiðtogi Samfylkingar- innar. ■ ÍRAK, AP „Bandaríkin og bandamenn okkar hafa haft betur gegn Saddam Hussein“ sagði George W. Bush, Bandaríkjaforseti, þegar hann ávarpaði sjóliða um borð í flugmóð- urskipinu USS Abraham Lincoln. Bush lýsti því yfir að Bandaríkin væru óhrædd við að bjóða hverri þjóð birginn sem styddi við bakið á hryðjuverkamönnum. „Frelsun Íraks er mikilvægur liður í baráttunni gegn hryðju- verkum“ sagði forsetinn og ítrek- aði þá sannfæringu sína að Írakar hefðu verið bandamenn hryðju- verkasamtakanna al-Kaída. Bush lagði þó áherslu á að baráttunni gegn hryðjuverkum væri langt því frá lokið. „Óvinir friðar sitja ekki auðum höndum og það mun- um við heldur ekki gera.“ Forsetinn flaug í herþotu á móts við skipið og stoppaði stutt við. Þrátt fyrir nokkuð afdráttar- lausar yfirlýsingar um árangur innrásarhersins forðaðist Bush að lýsa stríðinu loknu. Hann sagði að enn væri margt ógert, þar á með- al að koma á lögum og reglu í Írak, finna gjöreyðingarvopn, skipa lýðræðislega ríkisstjórn og koma höndum yfir bandamenn Saddams Hussein. Þar sem Bush lýsti ekki yfir allsherjarsigri þurfa Bandaríkjamenn ekki að sleppa úr haldi stríðsföngum og geta haldið ótrauðir áfram að elta uppi íraska leiðtoga. ■ LIÐTÆKUR FLUGMAÐUR Bush leyndi ekki stolti sínu yfir því að hafa sjálfur flogið hluta leiðarinnar að flugmóður- skipinu USS Abraham Lincoln. Bush segir meginorustunni í Írak lokið: Við höfðum betur en enn er margt ógert FRÁ AKUREYRI Félagsmálaráðuneytið gerir athuga- semdir við samning um gatnagerð og innheimtu gjalda. Félagsmálaráðuneyti segir Akureyrarbæ í órétti: Mátti ekki innheimta gatnagerðargjöldin FR ÉT TA B LA Ð IÐ /J AN U S Sjónvarpssamningur við Hrafn er í óvissu Sjónvarpið samdi um 10 milljónir króna fyrir Opinberun Hannesar. Dagskrárstjóri segir samninginn háðan frumsýningarrétti. 22 milljóna króna styrkur Kvikmyndasjóðs er háður sýningu í kvikmyndasölum. HRAFN GUNNLAUGSSON Ætlar að frumsýna Opinberun Hannesar á 17 júní. „Það verða engar frekari greiðslur fyrr en ákveðið er hvora leiðina myndin fer FR ÉT TA B LA Ð IÐ /R Ó B ER T VIKING FELLHÝSI Landsins bestu verð! Epic 1906 9 fet Verð kr. 798.000 Fellihýsin eru tilbúin á götuna með bremsu- búnaði. Takmarkað magn. Til afgreiðslu strax Netsalan Garðatorgi 3, 210 Garðabær Símar: 565 6241/ 544 4210 Fax: 544 4211 Netfang: netsalan@itn.is Heimasíða: www.itn.is/netsalan www.itn.is/netsalan Opið í dag, laugardag, frá kl. 11 - 17 og sunnudag frá kl. 11 - 16 *himinn fylgir ekki Eigum til á lager splunkunýja CHEROKEE JEPPA Ltd og Overland. McLOUIS HÚSBÍLAR SÖLU OG KYNNINGARSÝNING.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.