Fréttablaðið - 09.05.2003, Blaðsíða 6

Fréttablaðið - 09.05.2003, Blaðsíða 6
6 9. maí 2003 FÖSTUDAGUR GENGI GJALDMIÐLA Bandaríkjadalur 74.08 0,80% Sterlingspund 118.37 0,019% Dönsk króna 11.33 0,44% Evra 84.13 0,49% Gengisvísitala krónu 119,40 0,63% KAUPHÖLL ÍSLANDS Fjöldi viðskipta 278 Velta 2.103 m ICEX-15 1.414 -0,02% Mestu viðskipti Össur hf. 74.171.335 Íslandsbanki hf. 66.373.938 Flugleiðir hf. 52.453.769 Mesta hækkun Íslenskir aðalverktakar hf. 5,63% Íslandssími hf. 2,94% Síldarvinnslan hf. 2,22% Mesta lækkun Vinnslustöðin hf. -4,76% Nýherji hf. -2,60% Sölumiðstöð Hraðfrystih. hf. -1,98% ERLENDAR VÍSITÖLUR DJ*: 8496,5 -0,8% Nasdaq*: 1492,7 -0,9% FTSE: 3928,9 -1,6% DAX: 2886,1 -4,0% NIKKEI: 8031,6 -1,0% S&P*: 920,3 -1,0% *Bandarískar vísitölur kl. 17.00 Veistusvarið? 1Íslenskur sjómaður var handtekinn áflugvelli við Persaflóa. Hvar situr maðurinn í fangelsi? 2Hvað heitir embættismaðurinn sembandarísk yfirvöld hafa útnefnt til að hafa yfirumsjón með uppbyggingarstarfi í Írak? 3Íslenski dansflokkurinn býður nú uppá veglega afmælissýningu í Borgarleik- húsinu. Hvað er flokkurinn gamall? Svörin eru á bls. 46 FÉLAGSMÁL Hópur leikara og annarra listamanna mætti framan við Ráðhús Reykja- víkur í gær til að lýsa óá- nægju sinni með framlag Reykjavíkurborgar til reksturs Leikfélags Reykja- víkur í Borgarleikhúsinu. Gunnar Hansson, for- maður 2. deildar Félags ís- lenskra leikara, sagði að menningarslys í höfuðborg- inni væri staðreynd. Á rúmu ári hefði 52 starfsmönnum Borgarleikhússins verið sagt upp. „Við mótmælum því að borg- aryfirvöld aðhafist ekkert á með- an fjölda fólks er sagt upp, þar á meðal elstu, reyndustu og virt- ustu listamönnum borgarinnar,“ sagði Gunnar. Að sögn Gunnars hefur verið stigið skref aftur á bak, eftir ára- tuga stéttabaráttu lista- manna. „Vandamálin blasa við án þess að nokkuð sé að- hafst,“ sagði hann. „Það er rangt að segja að það sé ekkert gert því við- ræður eru í gangi. Það eru margir með rekstrarbundna samninga og framkvæmda- samninga við borgina. Við viljum ekki stefna því öllu í uppnám. Samningurinn er í gildi og ég vil vinna á grundvelli hans,“ sagði Þórólfur Árnason borgarstjóri. ■ Vísindi: Fiskar finna sársauka SKOTLAND. CNN Vísindamenn við háskóla í Edinborg telja sig hafa sannað að silungar finna sárs- auka eins og önnur dýr. Þetta kemur sem köld gusa framan í stangveiðimenn sem gegnum tíðina hafa haft litlar áhyggjur af sársaukaþoli þeirra fiska sem taka öngulinn. Dýraverndunarmenn fagna niðurstöðunum en finnst hafa tekið langan tíma að uppgötva hlut sem hefur legið í augum uppi í langan tíma. ■ STJÓRNMÁL „Dagurinn byrjar með frambjóðendafundi sem er alltaf snemma á morgn- ana hjá okkur, þar sem farið er yfir verkefni dagsins,“ segir Geir H. Haarde, varafor- maður Sjálfstæðis- flokksins, um loka- sprettinn í kosningabaráttunni. Hann segir að hann verði meira og minna á þönum allan daginn í dag. Í hádeginu verður hann á vinnustaðafundi hjá Landsvirkjun og í Kringlunni seinni partinn. „Ég þarf líka að taka smá tíma í að tala við erlenda fréttamenn. Við munum einnig kíkja til okkar fólks sem er að vinna fyrir flokkinn og hvetja það til dáða, þeirra starf er mikils metið og nú reynir á,“ segir Geir. Hann segir stemninguna í búð- um Sjálfstæðismanna vera mjög góða, þar sé mikið af sjálfboðalið- um sem hjálpa til þegar frambjóð- endur eru á þönum. Á kosninga- daginn sjálfan segir hann að ekki sé hægt að bæta miklu við nema þá að vera til taks. Geir segir kosningabaráttuna hafa verið mjög skrítna í upphafi en haldi að hún hafi gengið ágæt- lega af þeirra hálfu. Hann segir mikið auglýst af hálfu ákveðinna flokka, þá sérstaklega Framsókn- arflokks og Samfylkingar, meira en hefðbundið er. „Okkar auglýsingar eru bæði hófstilltar og vandaðar. Enn þarf þó einhvern herslumun til að við getum verið fyllilega ánægð, mið- að við þessar síðustu kannanir. Ég hef fulla trú á að það komi á endasprettinum. Annars blasir ekki við gæfuleg mynd því ef við fáum slaka útkomu þá er vinstri stjórn í spilunum.“ Kosningavaka sjálfstæðis- manna verður á Nordica hótel og ætlar Geir að vera viðstaddur á einhverjum tímapunktum þó hann gæti þurft að mæta í viðtöl inni á milli. Hann segir það munu verða spennandi þegar fyrstu tölurnar birtast um tíuleytið annað kvöld. „Fylgið verður að vera meira en það hefur mælst til að tryggt sé að við verðum áfram leiðandi afl í ríkisstjórn. Þetta eru sjöttu þing- kosningarnar sem ég fer í gegn- um, maður verður að halda ró sinni og stillingu, það þýðir ekki að fara á taugum síðasta dag þó margt sé til að angra fólk.“ hrs@frettabladid.is FÉLAGSMÁL „Þrjóskan í okkur hefur nú loks borið árangur og menntamálaráðuneytið viðurkennt skyldu sína til að sjá iðnnemum, sem er beint til Reykjavíkur í nám, fyrir húsnæði,“ segir stjórn Fé- lagsíbúða iðnnema (FÍN) í bréfi til lánardrottna félags- ins þar sem tilkynnt er um að félagið muni óska gjald- þrotaskipta. Stjórnin vísar til orða Guðmundar Árnasonar, ráðuneytisstjóra í mennta- málaráðuneytinu, í Frétta- blaðinu í gær, um að ráðu- neytið vilji taka þátt í kostn- aði við úrræði í húsnæðis- málum iðnnema í Reykjavík. „Það er sömuleiðis fagn- aðarefni að menntamála- ráðuneytið ætlar að leggja fé í slíkt húsnæði í samvinnu við Iðn- skólann enda langeðlilegast að menntamálayfirvöld sjái fram- haldsskólanemum fyrir húsnæði en beini þeim ekki inn á frjálsan leigumarkað,“ bætir stjórnin við. Þórunn Daðadóttir, fram- kvæmdastjóri FÍN, segir rangt með farið hjá ráðuneytisstjóran- um að FÍN hafi fyrst leitað til menntamálaráðuneytisins í fyrra. Það hafi FÍN gert í upphafi ársins 2000 í kjölfar skuldbreytingar á öllum lánum sem þá hafi verið í skilum. „Nemum sem hyggjast sækja um húsnæði fyrir næsta vetur verður beint til ráðuneytisins og iðnskólans,“ segir Þórunn Daða- dóttir. ■ ÓMETANLEG VERÐMÆTI Meðal munanna sem hafa skilað sér til bandarískra yfirvalda er leirker frá því um 5.000 fyrir Krist og hornsteinn með áletr- unum úr höll Nebuchadnezzar konungs í Babylóníu sem var uppi á 7. öld fyrir Krist. Stolnir fornmunir: Ómetanleg verðmæti enn ófundin WASHINGTON, AP Bandarísk yfirvöld hafa endurheimt hátt í 40.000 handrit og 700 fornmuni sem stolið var af Þjóðminjasafninu í Bagdad þegar borgin féll í hendur innrás- arhersins. Nokkuð hefur verið um það að íraskir borgarar hafi skilað stolnum munum auk þess sem tollayfirvöld um allan heim hafa fundið fjölda muna. Komið hefur í ljós að ýmsum verðmætum, sem óttast var um, hafði í raun verið komið fyrir í neðanjarðarbyrgjum áður en stríð- ið hófst. Engu að síður segja yfir- völd að minnsta kosti 38 ómetan- lega muni enn vera ófundna. Sér- fræðingar telja að þúsundir muna séu horfnir af safninu og óttast að þeir hafi þegar verið fluttir úr landi. ■ Leikarar óánægðir með framlag Reykjavíkur til Borgarleikhússins: Menningarslys í höfuðborginni ÞÓRÓLFUR ÁRNASON OG GUNNAR HANSSON Borgarstjóri hlýddi á mótmæli leikara við Ráðhúsið í gær og bauð forsvarsmönnum þeirra síðan í hús til viðræðna. Fyrstu tölur verða spennandi Fylgið verður að vera meira en það hefur mælst til að tryggt sé að Sjálfstæðisflokkurinn verði áfram leiðandi afl segir Geir H. Haarde. ■ „Enn þarf ein- hvern herslu- mun til að við getum verið fyllilega ánægð.“ GEIR H. HAARDE Þetta eru sjöttu þingkosningar Geirs og hann segir að ekki þýði annað en halda ró sinni og stillingu. Félagsíbúðir iðnnema gefast upp á íbúðarekstri: Húsnæðislausum vísað á ráðherra BJARNABORG Framkvæmdastjóri Félagsíbúða iðnnema segir að húsnæðislausum iðnnemum í Reykjavík verði framvegis beint til ráðu- neytisins og iðnskólans.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.