Fréttablaðið - 09.05.2003, Blaðsíða 11
■ Sjávarútvegur
11FÖSTUDAGUR 9. maí 2003
FLÓRGOÐI
Hefur fækkað mikið.
Ástjörn:
Dagur
flórgoðans
FUGLAVERND Árlegur flórgoðadag-
ur Fuglaverndarfélagsins og Um-
hverfisnefndar Hafnarfjarðar
verður við Ástjörn við Hafnar-
fjörð á sunnudaginn klukkan þrjú.
Haldið hefur verið upp á dag
flórgoðans við Ástjörn síðan 1993.
Reyndir fuglaskoðarar verða á
staðnum og upplýsa gesti um
leyndardóma flórgoðans. Flórgoð-
inn hefur undanfarið verið í gjör-
gæslu vegna mikillar fækkunar
síðustu áratugi. Átak stendur nú
yfir sem stefnir að því að snúa
þessari þróun við. ■
Hryðjuverkamenn:
Skemmta sér
í brúðkaupi
ÞÝSKALAND, AP Söguleg myndbands-
upptaka af brúðkaupi í mosku í
Hamborg var sýnd í fyrsta sinn í
bandarísku sjónvarpi í vikunni. Á
meðal gesta í brúðkaupinu voru
tveir af flugmönnunum sem tóku
þátt í hryðjuverkaárásunum á
Bandaríkin 11. september auk
meintra samsærismanna. Brúð-
kaupið fór fram árið 1999, um það
leyti sem undirbúningur að árásun-
um hófst.
Bandarísk yfirvöld komust yfir
myndbandsupptökuna skömmu eft-
ir árásirnar. Með hliðsjón af upptök-
unni hafa rannsóknaraðilar borið
kennsl á ýmsa meinta meðlimi
hryðjuverkasamtakanna al Kaída í
Þýskalandi. Margir þeirra ganga þó
enn lausir og óvíst hvort þeir verða
dregnir fyrir rétt. ■
LAGT Á RÁÐIN
Á myndbandinu sjást meintir þátttakendur
í hryðjuverkaárásunum 11. september ræð-
ast við og skemmta sér í góðra vina hópi.
17 tilvik skráð hingað til:
Kólerufar-
aldur í Írak
ÍRAK, AP Kólera hefur stungið sér
niður í a.m.k. tveim spítölum í
Basra í Írak. Starfsmenn heil-
brigðisstofnana hafa miklar
áhyggjur af því að þetta sé bara
rétt að byrja. „Það er skrýtið að
sjá 17 skráð tilfelli. Við getum átt
von á tíföldum þeim fjölda,“ sagði
Denis Coulombier, farsóttafræð-
ingur hjá Alþjóðaheilbrigðis-
stofnuninni.
Kólera er ein skæðasta sótt
sem til er og getur dregið fólk til
dauða á nokkrum klukkustundum.
Kólerufaraldur sem geisaði í
Zaire 1994 varð 50 þúsund manns
að fjörtjóni. ■
Opnunar-
tilboð
990kr.
Mæðradagsrósir, 10 stk.
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
B
LO
2
10
88
05
/2
00
3
Opnar
gar›plöntusalan
Ný sending
799kr.
Sýpris
80-100 sm
499kr.
Margarita
ÁRNI SKIPAR NEFND Árni
Mathiesen sjávarútvegsráðherra
hefur skipað nefnd sem á að gera
tillögur um tíma hrygningar-
stopps og möskvastærð neta. Ár-
mann Kr. Ólafsson stýrir nefnd-
inni en auk hans eru í henni Jó-
hann Sigurjónsson, Kristján Þór-
arinsson, Sævar Gunnarsson og
Viðar Sæmundsson.
53.500 TONN Á LAND Íslensk skip
eru búin að landa um 35.000 tonn-
um af kolmunna á þessu fisk-
veiðiári, en þessu til viðbótar
hafa erlend skip landað 18.500
tonnum hérlendis. Mest hefur
komið á land hjá Síldarvinnsl-
unni, 17.000 tonn. Næst kemur
Loðnuvinnslan Fáskrúðsfirði með
tæp 12.000 tonn.
LJÓ
SM
. JÓ
H
AN
N
Ó
LI H
ILM
AR
SSO
N