Fréttablaðið - 09.05.2003, Blaðsíða 31

Fréttablaðið - 09.05.2003, Blaðsíða 31
■ ■ SAMKOMUR  15.00 Guðbjörg Kristjánsdóttir, for- stöðumaður Gerðarsafns í Kópavogi, veitir leiðsögn um yfirlitssýningu á verk- um Gerðar Helgadóttur, sem nú stend- ur yfir í safninu. Einnig verður gengið að Kópavogskirkju þar sem skoðaðir verða steindir gluggar eftir Gerði.  17.30 Hilmar J. Malmquist, líf- fræðingur og forstöðumaður Náttúru- fræðistofu Kópavogs, flytur þar erindi um fiskstofna og lífríki Elliðavatns.  18.00 Afmælishátíð Búdda, Wesak, verður haldin í dag og næstu tvo daga í húsakynnum Hómópataskólans að Ár- múla 44, efstu hæð. ■ ■ OPNUN 19.30 Davíð Art Sigurðsson opnar sýningu á 40 olíumálverkum í Eden, Hveragerði. Sýningin ber yfirskriftina „Land og litir“. ■ ■ KVIKMYNDIR  10.00 Félagasamtökin Bíó Reykjavík efna nú til tveggja daga kvikmyndaveislu þar sem í boði er fjölbreitt úrval af „Sci-fi“ myndum fyrri ára. Í dag verða meðal annars sýndir myndirnar King Kong frá 1933, Plan 9 from Outer Space frá 1959, Bar- barella frá 1968 og Flash Gordon frá 1980. ■ ■ TÓNLIST  19.30 Sinfóníuhljómsveit Ís- lands flytur War Requiem eftir Benja- min Britten í Háskólabíói ásamt Kór Íslensku óperunnar. Hljómsveitar- stjóri er Vladimir Ashkenazy. Ein- söngvarar eru Markus Brück baritón, Peter Auty tenór og Marina Shaguch sópran. ■ ■ LEIKLIST  20.00 Söngleikurinn Með fullri reisn eftir Terrence McNally og Davit Yazbek á Stóra sviði Þjóðleikhússins.  20.00 Söngleikurinn Sól og Máni eftir Sálina hans Jóns míns og Karl Ágúst Úlfsson á Stóra sviði Borgarleikhúss- ins.  20.00 Maðurinn sem hélt að kon- an hans væri hattur eftir Peter Brook og Marie-Hélène Estienne Nýja sviði Borgarleikhússins.  20.00 Rómeó og Júlía eftir William Shakespeare er sýnd á Litla sviði Borg- arleikhússins í uppfærslu Vesturports. ■ ■ SKEMMTANIR  Hljómsveitin Jet Black Joe spilar á Players í Kópavogi.  Í svörtum fötum verður á Gauknum í Reykjavík.  Dúettinn Acoustic skemmtir á Ara í Ögri.  Rokkbandið Fígúra skemmtir gest- um og gangandi langt fram á morgun á Café Amsterdam.  Andri þeytir skífunum til hægri og vinstri á Laugavegi 11.  Rally-Cross verður á miðhæðinni á Laugavegi 22.  Hljómsveitin Plast, með Gunnar Óla úr Skítamóral í broddi fylkingar, leikur á Champions Café.  Hljómsveitin Cadillac leikur á Kringlukránni ásamt söngkonunni Ruth Reginalds.  Áslákur, alvöru sveitakrá í Mosfells- bæ, verður með kosningavöku. Hljóm- sveitin 66 leikur fyrir dansi. ■ ■ SÝNINGAR  Fyrsta einkasýning Markúsar Þórs Andréssonar hófst um helgina í Engla- borg, Flókagötu 17. Húsið byggði list- málarinn Jón Engilberts sem vinnustofu og íbúð handa sér og fjölskyldu sinni skömmu eftir stríð. Í húsinu er stór salur sem nú er í fyrsta sinn lagður í hendur utanaðkomandi listamanns.  Guðrún Hrönn Ragnarsdóttir og Pét- ur Magnússon eru með sýningu í Gallerí Skugga þar sem gefur að líta 100% nælon og lakk. Einnig vinyl veggfóður með blómamótífum, ljósmyndum af þeim ásamt öðrum ljósmyndum og stáli.  Myndlistarkonan Margrét Brynjólfs- dóttir er með sýningu sem hún nefnir Grjót á Kaffi Sólon. Þar sýnir hún stór olíuverk, en þetta er fimmta einkasýning Margrétar.  16.00 Steingrímur Eyfjörð myndlist- armaður opnaði um síðustu helgi sýn- inguna “of nam hjá fiðurfé og van“ í Gallerí Hlemmi. Sýningin er innsetning- arverk sem byggir á 50 ára gamalli frá- sögn af íslenskri stúlku sem ólst upp að einhverju leyti innan um hænur og hélt að hún væri fugl. Titill sýningarinnar er kominn frá Megasi.  Þrjár sýningar standa yfir Nýlista- safninu við Vatnsstíg. Á annarri hæð safnsins er Sólveig Aðalsteinsdóttir með sýninguna Úr möttulholinu en á þeirri þriðju eru Hanne Nielsen og Birgit Johnsen með Stað-hæfingar eða Territorial Statements í suðursal. Í norð- ursal á sömu hæð er landi þeirra Kaj Nyborg með sýninguna Nágranni eða Next door neighbour.  Sigrid Valtingojer og Kunito Naga- oka sýna verk sín í Listasafni ASÍ við Freyjugötu. 32 9. maí 2003 FÖSTUDAGUR hvað?hvar?hvenær? 6 7 8 9 10 11 12 MAÍ Föstudagur ✓ ✓ ✓ Þegar gengið er inn á sýninguSteingríms Eyfjörð í Gallerí Hlemmi blasir við á miðju gólfi torkennileg skepna, sem virðist vera að breytast úr manni í fugl. Eða öfugt. Þessi skepna starir á skjá þar sem sjá má litla unga vappa um í kringum egglaga hlut, sem þó er ekki egg heldur eitt- hvað allt annað. Steingrímur byggir sýningu sína á fimmtíu ára gamalli frá- sögn af íslenskri stúlku sem ólst að hluta til upp hjá hænum og hélt að hún væri fugl. Sögur af börn- um sem hafa alist upp meðal dýra eru þekktar í mörgum löndum og má þar nefna Kaspar Hauser í Þýskalandi og villidrenginn Vict- or í Frakklandi. „Þessi stúlka er ekkert eins- dæmi hér á landi,“ segir Stein- grímur. Eftir að hann opnaði þessa sýningu um síðustu helgi fóru honum að berast til eyrna fleiri slíkar sögur af íslenskum börnum. Sýninguna nefnir Steingrímur „of nam hjá fiðurfé og van“ og fékk hann þessa yfirskrift frá Megasi. Í galleríinu hangir meðal annars uppi á vegg samnefnt ljóð eftir Megas, sem ort var sérstaklega fyrir þessa sýningu. Steingrímur segir að talið ber- ist gjarnan að þjóðfélagsmálum þegar fólk skoðar sýninguna. Sjálfur hefur hann sterkar skoð- anir á íslensku samfélagi og gefur í skyn að í neyslusamfélagi nútím- ans sé fólk kannski ekki í ósvip- aðri stöðu og stúlkan sem ólst upp hjá hænum: „Við látum stjórnast allt of mikið af einhverjum óskráðum reglum, eða staðhæfing- um sem slegið er fram án þess að fólk viti neitt í raun hvað þær eiga að þýða.“ S t ú l k a n sem hélt hún væri fugl er samt að mati Steingríms skýr áminning um að mannskepnan er í raun og veru óskrifað blað, að minnsta kosti í samanburði við dýrin sem lifa sínu lífi eftir til- tölulega skýrt afmörku kerfi. „Möguleikarnir eru svo óteljandi margir hjá okkur. Meira að segja kynið er ekki alveg á hreinu, hvað þá ann- að.“ gudsteinn@frettabladid.is Lífsspeki fiðurfugla SÓLVEIG ANNA Ég ætla absolútt að fara ogheyra War Requiem eftir Benjamin Britten hjá Sinfóní- unni,“ segir Sólveig Anna Bóas- dóttir guðfræðingur. „Það er svo sjaldgæft að þetta sé flutt að ég er ekki einu sinni viss um að það hafi verið gert hérna áður, en ég hef hlustað á verkið og það er al- veg stórkostlegt. Ég er Kópavogs- búi og held að það sé kominn tími til að skoða verk Gerðar Helga- dóttur í Gerðarsafni. Söngleikur- inn Sól og Máni er líka á óskalist- anum. Sýningum fer fækkandi og dóttir mín er búin að biðja mig um að fara með sér. Svo sé ég að Inger Helene Bóasson, frænka mín, er að sýna svart-hvítar myndir sem hún kallar Landslag líkamans á Vínbarnum. Það er eitthvað sem ég verð að sjá.“  Val Sólveigar Önnu Þetta lístmér á! Þetta er enda-laust frábær sýning,“ segir Örn Úlfar Sæv- arsson auglýs- ingahöfundur um Rómeó og Júlíu í Borgarleikhúsinu. „Rómeó og Júl- ía er hugmyndarík, fyndin og hættuleg leikhússprengja þar sem harmsagan er sögð þannig að maður fær ekki bara tár í augun heldur líka krampa í magann og öndina í hálsinn.“ Mittmat w w w .d es ig n. is © 20 03 - IT M 90 50 Furuinnréttingar Vortilbo› í maí Allar innréttingar til afgrei›slu af lager sérsni›nar fyrir sumarhúsi› flitt. V. Fellsmúla • S. 588 7332 Opi›: Mán. - föst. 9-18, Laugardaga 10-14 STEINGRÍMUR EYFJÖRÐ ÁSAMT TORKENNILEGRI SKEPNU „Of nam hjá fiðurfé og van“ nefnist sýning Steingríms Eyfjörð í Gallerí Hlemmi. Galleríið er opið fimmtudaga til sunnudaga. Hænsleg skil nam ég boðs og banns og beisk ólíkindi ofs og vans og leyndardóm fiðraðs afs og ás upp þá reis múrinn tegundalás en möguleikar maka sig við þinn markaða bás Úr kvæði Megasar, „of nam hjá fiðurfé og van“ ■ MYNDLIST Sissa tískuhús Hverfisgötu 52, sími 562 5110 Full búð af glæsilegum vörum Pils og toppar frá DNA og MOMENTUM Tilboð dragtir frá 6990 gallabuxur frá 4990 gallajakkar frá 3990 sumarpeysur frá 2590 ✓

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.