Fréttablaðið - 18.07.2003, Blaðsíða 11

Fréttablaðið - 18.07.2003, Blaðsíða 11
Það er engin tilviljun að þeimþjóðum í heiminum sem njóta hvað bestu lífskjara er stjórnað í samræmi við ráðleggingar virtra hagfræðinga, enda er hagfræðin sú fræðigrein sem fjallar um virkni hagkerfa og þar með lífskjör. Meðal lýðræðis- þjóða er það al- menningur sem velur stjórnendur landa sinna. Aukin þekking almenn- ings og bætt við- horf til hagfræði ættu því að hafa áhrif á það hvernig menn veljast við stjórn- völinn og þar með lífskjör. Þannig ættu menn og flokkar sem gæfu lítið fyrir ráðleggingar hagfræð- inga erfiðar uppdráttar. Þetta vita nokkrir virtustu hagfræðingar heims og hafa lagt áherslu á að skrifa um hagfræði fyrir almenn- ing. Nóbelsverðlaunahafarnir Gary Becker, Milton Friedman og Josheph Stiglitz hafa skrifað reglulega í blöð eins og Business Week, Newsweek og New York Times. Þar hafa þeir fjallað um málefni sem voru efst á baugi út frá sjónarhóli hagfræðinnar og sett fram rök og dæmi sem al- menningur skilur. Hagfræði fyrir almenning Þrátt fyrir að Íslendingar búi yfir mörgum hæfum og vel menntuðum hagfræðingum er að- eins einn þeirra, Þorvaldur Gylfa- son, áberandi í umræðunni um málefni sem efst eru á baugi. Um- ræðunni er annars haldið uppi af stjórnmálamönnum og fulltrúum sérhagsmunahópa og er oftast ekki mjög fræðandi. Hluti ástæðunnar er eflaust að hluta til sú að stjórnmálamenn hafa ekki beinlínis hvatt hagfræð- inga fram á ritvöllinn. Hefur for- sætisráðherra meðal annars lýst vantrú sinni á stéttinni og kallað þá „hagtækna“, og fyrrum forsæt- isráðherra taldi veru sína á Al- þingi á við tvær doktorsgráður í hagfræði er hann rökstuddi val sitt sem seðlabankastjóra. Áhuga- leysi fjölmiðla er eflaust einnig hluti af skýringunni. Ísland undir í alþjóðlegri samkeppni Það má ekki vera fyrir neðan virðingu hagfræðinga að skrifa einfalt efni sem almenningur skilur. Það er hálf öld síðan Benja- mín J. Eiríksson barðist fyrir einkavæðingu ríkisfyrirtækja og það er fyrst núna sem einka- væðingin nýtur nægjanlegs fylgis meðal almennings til að geta orðið að veruleika. Ef nauðsynlegar umbætur dagsins í dag taka jafn langan tíma mun Ísland einfaldlega verða undir í vaxandi alþjóð- legri samkeppni. ■ Frá árinu 1981 hafa Íslending-ar ættleitt 425 börn erlendis frá. Þau koma frá 23 löndum. Um þessar mundir eru 60-70 fjöl- skyldur á biðlista Íslenskrar ætt- leiðingar eftir börnum og hefur þorri þeirra tekið stefnuna á Kína. Ísland gerðist aðili að Haag- samningnum um vernd barna og samvinnu varð- andi ættleiðingar árið 1999 en hann byggir á samningi Sameinuðu þjóð- anna um réttindi barnsins. Með að- ild að Haag-samningnum er tryg- gð samvinna aðildarríkjanna um ættleiðingar barna og lög og reglur þar að lútandi settar í fastar skorður. Þá samþykkti Al- þingi ný lög um ættleiðingar í desember 1999 en í þeim er m.a. kveðið á um að einhleypingar geti ættleitt börn „ef sérstaklega stendur á og ættleiðing er ótví- rætt talin barninu til hagsbóta“, eins og þar segir. Óhætt er að fullyrða að mikil réttarbót fylgdi setningu nýrra laga um ættleið- ingar og aðild Íslands að Haag- samningnum, þótt enn hafi ekki verið stigið það sjálfsagða skref hér á landi að leyfa ættleiðingar af hálfu samkynhneigðra. Ættleiðing er kostnaðarsöm Ættleiðing barns frá útlöndum er langt og strangt ferli, sem eitt og sér getur valdið væntanlegum foreldrum álagi og hugarangri. Þegar fjárútlátin sem óhjá- kvæmilega fylgja ættleiðingu út- lends barns eru tekin með í reikn- inginn verður ljóst að það er ekki á hvers manns færi að standa undir þeim kostnaði. Útlagður kostnaður hjóna vegna ættleið- ingar eins barns frá útlöndum er áætlaður um 1,2 milljónir króna. Upphæðin greiðist að vísu ekki á einu bretti en getur samt sem áður reynst þungur baggi á venjulegum heimilum. Guðrún Ögmundsdóttir þing- kona Samfylkingarinnar spurði dómsmálaráðherra nýverið um ferðastyrki til foreldra sem ætt- leiða börn erlendis frá. Í svari ráðherra kom fram að íslenska ríkið greiðir ekki slíka styrki til foreldra sem eru að ættleiða. Enn fremur kom fram í svarinu að í nágrannlöndum okkar, Dan- mörku, Finnlandi, Noregi og Sví- þjóð greiðir ríkið foreldrum styr- ki vegna ættleiðinga. Styrkirnir eru misháir eftir löndum en eru almennt á bilinu 200 - 450 þúsund ísl. kr. með hverju barni. Jafnræði í samfélaginu Ég býst við að hverju manns- barni hér á landi þyki sjálfsagt að greiða kostnað við meðgöngu, fæðingu og ungbarnaeftirlit úr ríkissjóði. Einnig eru glasafrjóvg- anir niðurgreiddar úr ríkissjóði. Því verður að spyrja hvers vegna ekki séu greiddir ferðastyrkir til foreldra sem eignast barn með ættleiðingu erlendis frá? Þetta er ekki spurning um krónur og aura úr ríkissjóði, heldur réttlæti og jafnræði í samfélaginu. Lítið hefur borið á almennri umræðu um þessi mál. Ánægju- leg undantekning frá því er álykt- un Verkalýðsfélags Húsavíkur frá 2. maí sl. þar sem löggjafinn er hvattur til þess að bæta að- stöðu þeirra sem ættleiða börn frá útlöndum. Óhætt er að taka undir það álit félagsins að þátttaka ríkisins í kostnaði foreldra vegna ættleið- inga sé sjálfsagður hluti sam- tryggingar og velferðar hér á landi. ■ ■ Það má ekki vera fyrir neð- an virðingu hagfræðinga að skrifa einfalt efni sem al- menningur skil- ur. ■ Ég býst við að hverju manns- barni hér á landi þyki sjálf- sagt að greiða kostnað við meðgöngu, fæðingu og ungbarnaeftirlit úr ríkissjóði. ... Því verður að spyrja hvers vegna ekki séu greiddir ferða- styrkir til for- eldra sem eign- ast barn með ættleiðingu er- lendis frá? Svæðið opnar kl. 11.00 Tímatökur kl. 13.00 Keppni hefst kl. 14.00 KVARTMÍLUBRAUTIN við Kapelluhraun Miðaverð kr. 900- Frítt fyrir félagsmenn og 12 ára og yngri KVARTMÍLAN ÖNNUR KEPPNI SUMARSINS - LAUGARDAGINN 19. JÚLÍ I I I Í Þjóðmál ÞÓRUNN SVEINBJARN- ARDÓTTIR ■ þingkona Samfylk- ingarinnar skrifar um kostnað vegna ætt- leiðinga. Kostnaður vegna ættleiðinga Þögulir hagfræðingar Þjóðmál GUÐMUNDUR ÖRN JÓNSSON ■ verkfræðingur MBA skrifar um vanmat stjórnmálamanna á hagfræðingum. 11FÖSTUDAGUR 18. júlí 2003

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.