Fréttablaðið - 31.12.2003, Blaðsíða 14

Fréttablaðið - 31.12.2003, Blaðsíða 14
RÁÐHERRASKIPTI „Ég kem til með að sakna margs en ég sé líka fram á mjög áhugaverða tíma í utanrík- isþjónustunni,“ sagði Tómas Ingi Olrich menntamálaráðherra á síð- asta starfsdegi sínum í ráðuneyt- inu í gær en hann lætur af emb- ætti menntamálaráðherra um ára- mótin. Þá afsal- ar hann sér jafn- framt þing- mennsku og tek- ur Arnbjörg S v e i n s d ó t t i r sæti hans á Al- þingi. Tómas Ingi tekur við starfi sendiherra í París í byrjun október á næsta ári. Hann segist meðal annars ætla að nota tím- ann frá áramót- um til að kveðja vini og sam- starfsmenn í Norðausturkjördæmi. Einnig kveðst hann ætla að búa sig undir nýjan starfsvettvang. „Ég ætla að bæta mig svolítið í ítölsku og kannski spænsku ef ég get,“ sagði Tómas Ingi og bætti við að trúlega þyrfti hann að dusta rykið af frönskukunnáttunni. Tengsl Tómasar Inga við Frakkland eru sterk en hann stundaði meðal annars nám í frön- sku og frönskum bókmenntum, ensku og atvinnulandafræði við Montpellier-háskólann í Frakk- landi. Tómas Ingi Olrich hefur setið á Alþingi í rúm 12 ár. Hann tók við embætti menntamálaráðherra 2. mars 2002 og hefur því gegnt embættinu í 21 mánuð. Hann seg- ir vísindamálin, rannsóknar- og þróunarmál almennt, mikilsverð- ustu málin sem hann hefur komið að í ráðuenytinu. „Þar hafa verið að gerast stórir hlutir og það er mín sannfæring að mestu framfarirnar sem við höfum orðið vitni að á síðustu árum eru mjög nátengdar fjár- festingum í þekkingu og vísind- um. Og þessi þróun á aðeins eftir að aukast,“ sagði Tómas Ingi. Hann nefnir ennfremur lausn húsnæðismála framhaldsskólans í Reykjavík og framlög til bygging- ar rannsóknahúss við Háskólann á Akureyri. „En ég á mörgu ólokið og hefði mjög gjarnan viljað fylgja áfram styttingu náms til stúdentsprófs og sama á við um breytingu á rekstrarformi Ríkisútvarpsins. Þar hefði ég viljað fylgja hluta- félagavæðingu úr hlaði. Þessi mál bíða arftaka míns,“ sagði Tómas Ingi Olrich, fráfarandi mennta- málaráðherra. the@frettabladid.is 14 31. desember 2003 MIÐVIKUDAGUR ■ Lögreglufréttir SVEINKI Á LEIK Sveinki var mættur á leik Buffalo Bills gegn Miami Dolphins í bandarísku NFL- deildinni í ruðningi um helgina og lét mikið í sér heyra. Formaður Vélstjórafélags Íslands: Sendir Sturlu enn tóninn VÉLSTJÓRAR „Of mikill tími og þrek, á þessu starfsári, hefur farið í deilur við samgönguráðherra um mál sem ekki ætti að þurfa að deila um,“ seg- ir Helgi Laxdal, formaður Vél- stjórafélags Íslands, í lokaorðum ársskýrslu sem lögð var fram á aðalfundi félagsins. Helgi segir að Sturla Böðvarsson samgönguráðherra virðist líta á það sem heilaga skyldu sína að þjóna út- gerðarmönnum á alla lund, einkum og sér í lagi einstökum útgerðar- mönnum í sinni eigin heimabyggð. „Hann virðist lofa þeim ákveðn- um hlutum sem hann virðist ekki í upphafi hafa gert sér grein fyrir að mætti andstöðu. Þar má nefna reglugerð um skráningu á afli aðal- véla en þar var ráðherrann greini- lega að efna loforð til einhvers vina sinna,“ segir Helgi Laxdal í árs- skýrslu Vélastjórafélagsins. ■ „Það er mín sannfæring að mestu framfarirnar sem við höf- um orðið vitni að á síðustu árum eru mjög ná- tengdar fjár- festingum í þekkingu og vísindum. Davíð maður ársins: Fær Sverri að launum STJÓRNMÁL Ung frjálslynd, ung- liðahreyfing Frjálslynda flokks- ins, hefur útnefnt Davíð Oddsson forsætisráðherra mann ársins. Viðurkenninguna fær Davíð fyrir að hafa við væntanleg starfslok sín tekist að tryggja sér einstak- lega góð starfslokakjör og gefið þannig tóninn fyrir komandi kjarasamninga almenns launa- fólks, eins og segir í rökstuðningi fyrir valinu. Að launum hlýtur Davíð ævi- sögu Sverris Hermannssonar, fyrrum formanns Frjálslynda flokksins og fyrrum þingmanns og ráðherra Sjálfstæðisflokksins, sem hefur átt margar rimmur við Davíð. ■ Háskólanemar: Ný kærunefnd MENNTAMÁL Menntamálaráðherra hefur skipað áfrýjunarnefnd í kærumálum háskólanema og er hún skipuð til tveggja ára. Aðal- menn í nefndinni eru: Ólafur K. Ólafsson sýslumaður, formaður, Hjördís Hákonardóttir héraðs- dómari og Guðríður M. Krist- jándóttir lögfræðingur, Hlutverk áfrýjunarnefndar- innar er að úrskurða í málum þar sem námsmenn í ríkisháskólum eða háskólum, sem hlotið hafa staðfestingu menntamálaráð- herra, telja brotið á rétti sínum varðandi námsmat, mat á náms- framvindu og afgreiðslu umsókna um skólavist. ■ RÁÐHERRANN HYGLIR SÍNUM Helgi Laxdal, formaður Vélstjórafélags Íslands, hefur lengi eldað grátt silfur við Sturlu Böðvarsson samgönguráðherra. Helgi sendir Sturlu tóninn í nýjustu ársskýrslu Vélstjóra- félagsins. M YN D /R Ó B ER T SKEMMDARVARGAR Í SKÓLA Lögreglan á Akureyri rannsakar nú innbrot Óseyrarskóla. Að sögn lögreglu voru miklar skemmdir unnar á eigum skólans. VATNSLEKI Í SKÓLA Slökkvilið var kallað á vettvang í Engidals- skóla í Reykjavík. Ofnlögn hafði rofnað með þeim afleiðingum að mikið vatn flæddi um skólann. Slökkvilið vann við uppdælingu í um þrjár klukkustundir og voru skemmdir miklar. ROLANDAS PAKSAS Hæstiréttur í Litháen úrskurðaði að Paksas hafi gerst brotlegur við stjórnarskrána. Hæstaréttarúrskurður: Paksas fund- inn sekur LITHÁEN Hæstiréttur í Litháen hef- ur úrskurðað að Rolandas Paksas hafi gerst brotlegur við stjórnar- skrá landsins þegar hann veitti rússneskum kaupsýslumanni rík- isborgararétt. Talið er að úrskurð- urinn auki líkurnar á því að for- setinn verði kærður fyrir embættisbrot. Ásakanir um embættisbrot for- setans komu fyrst fram í haust eftir að leyniskýrsla um tengsl hans við skipulögð glæpasamtök og rússnesku leyniþjónustuna var opinberuð. Áður hafi hann veitt rússneska kaupsýslumanninum Yuri Borisov ríkisborgararétt, en talið er að umræddur Borisov hafi verið helsti styrktaraðili Paksas í árangursríka kosningabaráttu hans, fyrir forsetakosningarnar í janúar. ■ Icelandair breytir matseðlinum: Léttari réttir MILLILANDAFLUG Boðið verður upp á léttari rétti í miðdegisflugi hjá Icelandair eftir áramót. Þá hefur verið ákveðið að gosdrykkir verði ekki veittir endurgjaldslaust með matnum en vatn, kaffi og te verð- ur áfram ókeypis um borð í flug- vélum félagsins. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Icelandair. Sigurður Skagfjörð Sigurðs- son, forstöðumaður farþegaþjón- ustu Icelandair, segir að frá og með 1. febrúar verði sú breyting að allur matur í vélum Icelandair verður framleiddur í eldhúsi félagsins í Keflavík. Hann segir þetta vera gert til að bæta gæði og stöðugleika í matreiðslunni. ■ EINKAVÆÐING Ríkið hefur greitt Samson eignarhaldsfélagi 700 milljónir í afslátt vegna kaupa á Landsbanka Íslands. Þegar samn- ingar um kaup Samsonar á kjöl- festuhlut ríkisins í bankanum voru gerðir var ákveðið að vegna ólíks mats á gæðum lána bankans myndi sérstök nefnd meta tiltekn- ar eignir Landsbankans. Á grund- velli þess mats yrði síðan ákveðið hvort eða hve mikill afsláttur yrði veittur af kaupverði eignarhluta ríkisins. Samkvæmt samkomulag- inu gat afslátturinn hæst orðið 700 milljónir. Meðal eigna sem ágreiningur var um voru lán og eignir bankans í fjarskipta- og tæknifyrir- tækjum, auk lána til útgáfufélags DV. Samhliða þessu hefur Samson greitt lokagreiðslu og á ríkið nú hvorki í Landsbankanum né KB banka. Greiðslur Samsonar eru í dollurum og veiking dollarans á árinu hefur lækkað greiðsluna í íslenskum krónum. Lokagreiðslan var fyrir 12,5% hlut í Landsbank- anum. ■ BÚIÐ AÐ BORGA Ríkið fékk minna í krónum fyrir lokahlut sinn í Landsbankanum vegna gengisþróunar. Samson fékk hámarksafslátt eða 700 milljónir vegna eigna bankans sem ágreiningur var um mat á. Kaupin á Landsbankanum: Lokagreiðsla með afslætti SÍÐASTI STARFSDAGURINN Í RÁÐUNEYTINU Tómas Ingi Olrich lætur af embætti menntamálaráðherra í dag. Hann afsalar sér jafnframt þingmennsku og tekur við embætti sendiherra Íslands í París í október næstkomandi. Fer úr pólitík til Parísar Tómas Ingi Olrich lætur af embætti mennta- málaráðherra í dag eftir tæplega tveggja ára starf og hættir störfum á Alþingi. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /G VA

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.