Tíminn - 27.07.1971, Blaðsíða 1

Tíminn - 27.07.1971, Blaðsíða 1
*************** T66. tbl- — Þriðjudagur 27. júlí 1971. — 55. árg. Barnard ekki hættur: Fékk nýtt hjarta og lungu líka NTB—Höfðaborg, mánudag. Adrian Herbert, tannlæknir í Höfðaborg, er nú sagður á bata- vegi, eftir að í hann voru grædd bæði lungu og lijarta í gær. Það var prófessor Christian Barnard sem framkvæmdi aðgerðina, þá fyrstu sinnar tegundar í Suður- Afríku. Líffærin voru tckin úr 28 ára gömlum manni, sem lézt í gær af höfuðáverka. Kona hans hefur lýst því yfir, að hún hafi ckkert vitað um þetta, enda hafi hún ekki gefið samþykki sitt. Þrisvar sinnum hefur verið gerð slík aðgerð í Bandaríkjunum, en sjúklingarnir hafa allir látist. Adrian Herbert er blökkumað- ur og 49 ára gamall. Hann hefur Pramhald á 11. síðu. Skotar blésu í pípurnar EB—Reykjavík, mánudag. Reykvíkingar fengu góða heim- sókn í gær. Var um að ræða hóp ungra og eldri skozkra sekkjapípu- leikara. Hópurinn lék um fjögur leytið í gær, á hljóðfæri sín, fyrir utan Gimli við Lækjargötu og naut fjöldi borgarhúa hljóðfæraflutnr ingsins því að þrátt fyrir skúra- leiðingar í borginni í dag, skein sólin og hlýtt var í veðri, þegar hópurinn skemmti. Áður en skotarnir hófu hljóð- færaflutning, færðu þeir borgar- stjóranum í Reykjavjk góðar gjaf ir að gömlurn og góðum sið. Munu margir Reykvíkingar bera hlýjan hug til þessarar heimsóknar Skot- anna. (Tímamynd Gunnar) !■■■■■■■■■■■! Sjávarútvegsráðherra á Snæfellsnesi og Húsavík: Útvegsmenn harma og lýsa undrun sinni á ályktun LÍÚ um hækkun fiskverðs tii sjómanna Reyndi LÍÚ að koma í veg fyrir að ályktanir yrðu samþykktar á fundum útvegsmanna? Fá aUt að 150 silunga í lögn í Mývatni ÞÓ—Reykjavík, mánudag. Undanfarið hefur Lúðvík Jósefs- son sjávarútvegsráðherra haldið fundi með útgerðarmönnum víðs vegar á landinu, og kynnt stefnu sína í sjávarútvegsmálum, eins hefur ‘hann gert grein fyrir bráðabirgðalögum ríkisstjórnarinn ar um hækkun fiskverðs og bætt kjör sjómanna. Á fundunum, sem haldnir voru nú fyrir helgina á Húsavík og Snæfellsnesi voru ályktanir samþykktar, og í þeim er stjórn LÍÚ gagnrýnd fyrir að hafa samþykkt álýktun varðandi bráðahirgðalögin án þess að liafa samband við útvegsmannafélögin. Fréttir vestan af Snæfellsnesi herma að stjórnarmeðlimir LÍÚ hafi verið að hringja vestur fyrir- ir fundinn, sem haldinn var í Grundarfirði og menn beðnir að „passa“ að engin ályktun yrði samþykkt á fundinum, en svo fór ekki, því útvegsmenn á Snæfells- nesi sendu frá sér ályktun þar sem þeir gagnrýna stjórn LÍÚ. Einnig kom til tals á fundinum að lesa upp ályktun LÍÚ og at- huga hvort hún ætti einhverju fylgi að fagna. Ekkert varð úr því að það yrði gert, þar sem hún fékk engan hljómgrunn. Ályktanir sem samþykktar voru á Grundarfirði og Húsavík fylgja hér neðanundir. Útgerðarmenn og sjómenn á Húsavík héldu fund á Húsavík á laugardaginn. Lúðvík Þ. Jósefs- son, sjávarútvegsráðherra kom á fundinn og gerði grein fyrir bráðabirgðalögum ríkisstjórnarinn ar um hækkun fiskverðs og ræddi um kjör sjómanna. Fundurinn sendi frá sér eftirfarandi sam- þykkt: „Fundur lialdinn í Samvinnu- félagi útgerðarmanna og sjó- manna á Ilúsavík, þann 24. júlí s.I. fagnar þeirri ákvörðun ríkis- stjórnarinnar að hækka fiskverð og aflalilut sjómanna. Fundurinn telur brýna þörf á því að bæta kjör sjómanna, svo að sjómanns- starfið verði cftirsóknarvcrðara en það hefur verið. Það er álit fundarins, að mjög varhugavert _ sé, að halda niðri fiskverði með há _ um greiðslum af fiskverði í verð- jöfnunarsjóð, á sama tíma og af- “ koraa útgerðarmanna og sjómanna ■ er ekki betri, en raun er á. Fund- ■ urinn Iýsir undrun sinni yfir g því, að stjórn LÍÚ skuli hafa mót- _ mælt þeirri fiskverðshækkun, sem ákveðin hefur verið og telur þá samþykkt ekki í neinu samræmi ■ við almenna skoðun útvegsmanna ■ og sjómanna." ■ Fyrir helgina hélt Lúðvík Jósefs ” son sjávarútvggsráðherra fund ■ með útvegsmönnum á Snæfells- ■ nesi. Á fundinum gerði sjávarút- ■ vegsráðherra grein fyrir bráða- _ birgðalögum ríkisstjórnarinnar um hækkun fiskverðs og betri kjör B sjómanna. Eftirfarandi ályktun ■ var samþykkt á fundimim: ■ „Fundur í Útvegsmannafélagi ■ Snæfellsness harmar að stjórn _ LÍÚ skuli hafa gert ályktun um bráðabirgðalög ríkisstjórnarinnar, " dags. 21. júlí s.l., án þcss að hafa ■ samráð við útvegsmannafélögin.“ ■ KJ—Reykjavík, mánudag. Silungsveiðin í Mývatni virð- ist mikið vera að glæðast um þessar mundir, því sumir bænd- ur hafa fengið allt að 150 sil- unga í vitjun. Hjá þeim sem stunda netá- veiðar í vatninu, hefur afli að undanförnu verið ailgóður, en menn eru með misjafnlega mörg net í vatninu. Mun algengur afli hjá sumum hafa verið 80 — 100 silungar í vitjun, og komist upp í 150 silunga á einu búi í Mý- vatnssveit. ÞÓ—Reykjavík, mánudag. Banaslys varð þcgar jeppabif- reið valt út af afleggjaranum upp að Gilá í Vatnsdal, á laug- ardaginn. Fernt var í bílnum, tvær stúlkur, smábarn og einn karlmaður og var það hann sem lézt. Þetta er þriðja dauða- slysið úti á vegum landsins í sumar. Fyrir stuttu fórust kona og barn í bifrciðarslysi í Vatnsskarðinu Ilúnavatnsýslu- mcgin. Slysið varð mcð þeim hætti, að jeppinn var á leiðinni upp afleggjarann upp að Gilá, en af leggjarinn er brattur með háum köntum, einnig eru nokkrar Urriðaveiði er dálítil í vatn- inu, Oj í sumar hefur veiðzt urriði þar sem hann hefur ekki fengizt á undanförnum árum. Ómögulegt er að gera sér grein fyrir því hvað þessu veldur, en urriðaveiði hefor áður gengið í hylgjum. Jón Dlugason útibússtjóri f KÞ ReykjahHð, sagði Tímanum að ferðamenn í Mývatnssveit væru nú fleiri en nokkru sinni áður, og gilti það jafnt nm inn- lenda sem erlenda ferðamenn. beygjur á honum. Stúlkan, sem keyrði mun einhvernveginn hafa misst stjórn á bílnum og valt jeppinn fram af afleggjar- anum, með þeim afleiðingum, * að karlmaðurinn sem var í jeppa.ium lézt. Þegar við höfð- um samband við lögregluna á Blönduósi í dag, var okkur tjáð að það hefði verið um kl. 17.30 á laugardaginn, sem jeppinn fór útaf veginum. Fóru lögregla og læknir strax á slysstað, en þegar að var komið var karlmað urinn látinn. Stúlkurnar sem voru í jeppanum, slösuðust eitt- hvað og eins var með barnið. Fraimhald á U . síðu. Iþróttir um helgina. Bls. 8,9 og 10 Þriðja dauðaslysið á vegum í Húnavatns- sýslum á þessu sumri

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.