Tíminn - 11.01.1972, Blaðsíða 3
ÞRIÐJUDAGUR 11. janúar 1972
3
Vörukynn-
ing í Nor-
ræna húsinu
SJ—Reykjavík, imánudag.
Dagana 16. — 23. janúar efna
Kvenfélagasamband íslands og
Norræna húsið til kynningar á
störfum vörukynningarnefnda á
Norðurlöndum og sýningar á vöru
Jymningarmiðum og vörumerkjum
svo og kennslugögnum, sem
nefndirnar hafa útbúið til að
kynna starfsemi sína. Hingað kem
ur einnig Jytte Kruse efnaverk
fræðinigur, sem starfar hjá dönsku
nefndinni. Flytur hún tvo fyrir-
lestra á sýningunni, sem kölluð
hefur verið Vörulýsing—Vörumat.
Verða þeir á mánudags- og þriðju
dagskvöld kl. 20.30 og miðast sá
fyrri við neytendur, en sá síðari
við kaupmenn og framleiðendur.
Sýningin verður í Norræna hús
inu, opin frá kl. 14 til 19 daglega.
377 á Grund
í árslok
EB—Reykjavík, þriðjudag.
í árslok 1971 voru 377 vistmenn
á elli- og hjúkrunarheimilinu
Grund, sem er tveimur færri en
var í ársbyrjun 1971. 285 konur
voru nú í árslok á heimilinu og
92 karlar. 125 vistmenn komu á
árinu, 46 vistmenn fóru og 81 vist-
maður dó á árinu.
Á elli- og dvalarheimilinu Ási
í Hvéragerði voru nú í árslok 131
ivstmaður, 72 þeirra eru konur og
karlar eru 59. í ársbyrjun 1971
voru vistmenn 106. 72 vistmenn
komu á árinu, 45 fóru og 2 dóu.
Alls eru því á þessum heimil-
um nú 508 vistmeim.
Starfsmenn
toQstjóra
undrandi
Þrjátíu og átta starfsmenn á
Tollstjóraskrifsto.' i.nni í Reykja-
vík hafa sent fiármálaráðherra eft-
Irfarandi:
„Starfsmenn á skrifstofu toll-
stóórans í Reykjavík lýsa hér með
yfir undrun sinni vegna þess þekk
ingarskorts og/eða skilningsleysis
fjármálaráðherra á kjarasamningi
ríkisstarfsmanna, sem felast í h'ii-
um furðulegu ummælum ráðherr-
ans á blaðamannafundi 5. þ.m.,
að ríkisstarfsmenn „hafi tekið for-
skot á sæluna“ Ennfremur lýs-
um við yfir vanþóknun okkar á
þeim fráleitu vinnubrögðum, að
ráSherra neiti að taka upp viðræð-
ur við BSRB þrátt fyrir 14% kjara-
bætur á almennum iaunamarkaði.
Við styðjum einliuga kröfur
BSRB um endurskoðun kjarasamn
ingsins, þar sem verulegar, al-
mennar kjarabætur verða á samn-
ingstímabili okkar, og við hvetj-
um stjórn BSRB, bandalagsfélöög-
in og alla ríkisstarfsmenn til að
standa vörð um réttindi og kjör
rfkisstarfsmanna, og svara stríðs-
yflrlýsingu og gjörræði fjármála-
ráðherra me® öllum tiltækum ráð-
um.
Skrifstofa tollstjóra,
6. janúar 1972.“
TÍMINN
Á blaðamannafundi hjá þjóðleikhússtjóra í gær. Frá vinstri: John Fernald, leikstjóri, Guðlaugur Rósin-
krans og Jón Laxdal.
Jón Laxdal leikur hér
eftir 16 ára útivist
EB—Reykjavík, mánudag.
Æfingar eru nú hafnar af full
um krafti á Shakcspcare-verkinu
Othello og samkvæmt upplýsing
um Guðlaugs Rósinkrans, þjóð-
leikhússtjóra, frumsýnir Þjóðleik
húsið verkið 11. febrúar n. k. Hinn
þekkti leikari Jón Laxdal, ffer með
aðalhlutverkið, en John Fernald,
einn þekktasti leikstjóri Breta,
stjórnar æfingunum, en hann hef
ur sérhæft sig í því, að setja verk
Shakespears á svið. Alls leika 26
manns í Olhello, þar af eru 23
karllilutverk.
Jón Laxdal Halldórsson er fædd
ur 1933 og fékk snemma áhuga á
leiklist. Hann útskrifaðist úr Ijoik
skóla Þjóðleikhússins 1954. 1956
STALU TVEIM
/■
OÓ—Reykjavik, mánudag.
Tveir ungir menn í Hafnarfirði
stálu bíl s. 1. nótt, báðir drukknir
og réttindalausir. í Reykjavíkinni
tilaði bíllinn og skildu þeir hann
eftir og gerðu sér lítið fyrir og
stálu öðrum bíl og áttu ekki í
neinum vandræðum með að kom
ast inn í hann eða ræsa vélina.
Þegar til Hafnarfjarðar kom
greip lögreglan piltana. Voru þeir
báðir dauðadrukknir. annar pilt-
anna hefur oft leikið þennan leik
áður að stela bílum og virðist það
einhver árátta hjá honum.
Happdrætti
Framsóknar-
flokksins
Dregið var í Happdrætti Fram
sóknarflokksins 23. desember s.l.
en vegna þess, að enn eiga nokkr
ir aðilar eftir að gera skil, eru vinn
ingsnúmerin innsigluð á ski'ifstofu
borgarfógeta, þar til síðar í þess
um mánuði.
Þeim, sem ekki hafa gert skil,
eru beðnir um að gera skil, ekki
síðar en 15. janúar. Tekið eor á
móti greiðslum á skrifstofu Fram
sóknarflokksins að Hringbraut 30
og skrifstofu Tímans, Bankastræti
7.
fór Jón utan til framhaldsnáms
læa'ði hann í Vínarborg og lauk
þar námi 1959. Eftir að hann lauk
námi, lék hann fyrst í Austur-
Þýzkalandi og síðan víða í Þýzka
landi. Síðustu fjögur árin hefur
Jón starfað við leikhús í Ziirich.
Auk þess að leika í leikhúsum,
hefur Jón Laxdal leikið í kvik
myndum og sjónvarpsmyndum.
Á fundi með fréttamönnum í
dag, kvaðst Jón Laxdal vera mjög
ánægður a" fá tækifæri til að
koma heiim og leika þar, en 16
ár eru nú liðin síðan hann lék
hér síðast.
MS—Reyðarfirði, mánudag.
í gær, sunnudag, var lialdinn
hér á Reyðarfiðri mjög fjölimenn
ur stjónmálafundur að tilhlutan
Kj ördæmisaimbainds fraimsóknar-
manna á Austurlandi. Framsögu-
menn á fundinuim voru Einai'
Ágústsson utanríkisráðherra, Ey-
steinn Jónsson forseti saméinaðs
þings og Vilhjálmur Hjálmarsson
alþingismaður.
Á fundinum munu hafa verið
á þriðja hundrað manns, og voru
margir fundarmanna langt að
komnir, eða af svæðinu frá Lóns
heiði í suðri og til Hellisheiðar
í norðri. Fundurinn var í Félags
PE—Hvolsvelli.
Á aðalfundi sýslunefndar Rang
árvallasýslu s. 1. sumar, var sam
þykkt að allsherjar kláðaböðun
skyldi fara fram í héraðinu nú
í vetur. Um mánaðamótin okt.
— nóv. hélt sýslumaður svo fund
í Félagsheimilinu Hvoli, þar sem
mættir voru allir odvitar úr
sýslunni, svo og baðstjórar. Á
fundinum mættu einnig dýralækn
arnir Sigurður Sigurðsson á Keld
um, dr. Karl Kortsson á Hellu, Jón
Guðbrandsson á Selfossi og Þor
steinn Líndal, en hann er nýlega
kominn í héraðið og hefur aðset
ur í Skógum. Ilans umdæmi er frá
John Fernald, er sem fyrr sagði
einn þekktasti leikstjóri Breta.
Hann hefur stjórnað leikskóla
þeiim í London, þar sem margir
af leikurum okkar hafa lært. Enn
fremur hefur Fernald mikið ritað
um leikhúsmál.
Strax og æfingum er lokið á
Othello, heldur John Fernald til
Ameríku til þess að vinna þar. Á
blaðamannafundinum í dag, sagði
Fernald, að hann hefði komið
hingað til lands á stríðsárunum
og þá þegar orðið hrifinn af land
inu.
lundi á Reyðarfirði, og var fram
söguræðum feikna vel tekið, og
í umræðum á eftir kom fram mik
ill einhugur meðal fundarmanna
við stefnu ríkisstjórnarinnar í
landhelgismálinu. Formaður kjör
dæmissambandsins, Kristján Ing-
ólfsson á Hallormsstað setti fund-
inn en fundarstjórar voru hrepp-
stjórarnir Magnús Guðmundsson
á Reyðarfirði og Björn Kristjáns
son á Stöðvarfirði.
Það er mjög sjaldgæft að haida
stjórnmálafund fyrir svona stórt
svæði á þessum tíma árs, en færð
in gerir það að verkum að menn
geta komið langt að.
Markarfljótsbrú að Lómagnúp.
Sýslumaður reifaði málið á fund
inum, og hvatti baðstjóra til að
fara eftir settum reglum um notk
un baðefna, svo að böðun mætti í
alla staði fara vel fram, og yrði
framkvæmd af vandvirkni og sam
viskusemi, en tvíbaða þarf með
tíu til tólf daga millibili. Þetta
undirstrikuðu dýralæknarnir svo
og oddvitarnir og baðstjórarnir.
Fundurinn samþykkti að baðanir
skuli fara fram nú í janúar mán
uði 1972. Böðunin er framkvæmd
í varúðarskyni, þar sem fjárkláða
hefur orðið vart á nokkrum bæjum
í austanverðri sýslunni.
Rangæingar tví-
baða sauðfé sitt
Bátasjómenn
Það er stefna ríkisstjórnar-
innar að bæta kjör sjómanna.
Það er höfuðnauðsyn fyrir
þjóðarbúíð, og þar með alla
þjóðarlieildina, að jafnan sé
nægilegt framboð góðra manna
á skip og báta landsmanna,
sem sækja afla á mið og björg
í bú. Það hafa nú líka orðið
mikil umskipti á kjörum báta-
sjómanna frá því í sumar. Fisk
verð hefur verið hækkað um
30% og kemur sú hækkun sjó-
mönnum og útgerðinni til
góða. Fastakaup bátasjómanna
er komið yfir 30 þúsund krón-
ur á mánuði með vísitöluálagi
og orlofi. Afkoma bátasjó-
manna er þar með miklu örugg
ari en áður.
Yfirmenn á bátunum fá einn
ig tilsvarandi hækkanir á sinni
kauptryggingu. Stýrimaður og
1. vélstjóri sem höfðu hálfan
annan aflahlut fá nú 42 þús-
und krónur á mánuði í fasta-
kaup. Hér er um breytingar á
kiörum sjómanna að ræða, sem
á að stuðla að betri mannskap
og meiri afla á vetrarvertíð, og
þar með bættum hag þjóðarbús
ins og allra þegna landsins.
Með hinum nýju kjarasamn
ingum við bátasjómenn var líf-
og örorkutrygging þeirra
hækkuð nokkuð.
Hækkun fiskverðs
Hin mikla hækkun fiskverðs,
sem orðið hefur síðan stjórnar-
skiptin urðu í sumar eða um
30% mun einnig stuðla að
verulegum kjarabótum sjó-
manna. Núverandi ríklsstjórn
vill líka að sjómannastarfið
verði eftirsóknarvert. Kjör
sjómanna hafa verið bætt meir
en annarra starfsstétta og er
það rétt stcfna, sem hlýtur að
mæta skilningi meðal allra
landsmanna, þar sem hún er
forsenda þess að unnt verði
að tryggja nægilegt framboð
' hæfra og duglegra sjómanna
og þar með meiri verðmæti í
þjóðarbúið. Það er beinlínis
forsenda þess að kjör allra
annarra geti batnað.
Þá verður að hafa í huga í
þessu sambandi, að ákveðin er
nú mikil aukning á fiskiskipa-
flota landsmanna. Sú fjárfest-
ing þjóðarinnar kemur ekki að
notum nema verulega vaxi
framboð vinnuafls til starfa á
fiskiskipaflotanum.
Sjómenn áttu litlum skiln-
ingi að mæta hjá fyrrverandi
ríkisstjórn og skerti hún til
dæmis samningsbundinn hlut
þeirra um 17% árið 1968 og
það var eitt af fyrstu gerðum
núverandi rikisstjórnar að
skila ránsprósentunum aftur.
— TK.
Magnús E. Baldvlnsson
______laugavcgl 12 - Slml 22804
VERÐLAUNAPENINCAR
VERÐLAUNACRIPIR
FÉLACSMERKI