Fréttablaðið - 16.05.2004, Blaðsíða 15

Fréttablaðið - 16.05.2004, Blaðsíða 15
15SUNNUDAGUR 16. maí 2004 E r ástæða til þess að hafaáhyggjur af þróun í íslensku viðskiptalífi? Er samþjöppun í viðskiptalífinu að verða vanda- mál? Þarf að setja sérstök lög um eignarhald fyrirtækja á Íslandi til þess að koma í veg fyrir hringa- myndun? Þessar spurningar voru meðal þeirra sem framsögumenn á fundi Félags viðskipta- og hag- fræðinga veltu fyrir sér. Áhyggjur af auðnum Hræringar í íslensku við- skiptalífi síðasta árið hafa verið áberandi. Gríðarlegar eignir hafa skipt um hendur á einu ári. Auk uppskiptingar Kolkrabbans og sölu sjávarútvegsfyrirtækja Brims, hafa fjölmörg smærri fyr- irtæki skipt um eigendur með skuldsettri yfirtöku. Eignabreyt- inganna sér stað í hagtölum. Þannig hafa erlendar skuldir fyr- irtækja og einstaklinga vaxið verulega og eru nú 150 prósent af landsframleiðslu. Vissulega eru fjölbreyttar eignir á móti skuld- unum en margir hafa áhyggjur af því hvað myndi gerast ef eigna- verð tæki að lækka. Aðrir hafa miklar áhyggjur af því að hér sé að verða samþjöppun þar sem ör- fáir auðmenn stjórni íslensku at- vinnulífi. Á vegum viðskiptaráð- herra er nefnd að störfum sem kanna á stöðu mála. Frummæl- endur á fundi Félags viðskipta- og hagfræðinga voru á einu máli um að ekki þyrfti að setja sérstök lög sem settu hömlur á eignarhald. Samkeppnislög dygðu ágætlega. Frummælendurnir voru Yngvi Örn Kristinsson forstöðumaður verðbréfasviðs Landsbankans, Jón G. Hauksson ritstjóri Frjálsr- ar Verslunar og Þór Sigfússon framkvæmdastjóri Verslunarráðs Íslands. Tengdó verður Krati „Ég er orðinn svo mikill krati að ég get ekki sætt mig við að fimm auðhringir eigi allt Ísland,“ hafði Jón G. Hauksson eftir tengdaföður sínum, góðum og gegnum sjálfstæðismanni. Hann hafði líka áhyggjur af skuldasöfn- un auðmanna á sama tíma og Dav- íð Oddsson væri að borga sínar. Þessi sjónarmið eru kunnugleg og oftar en ekki hafa fylgt fullyrð- ingar um að bankar og auðmenn búti í sundur fyriræki sér til hagnaðar. Tengdapabbinn vildi koma böndum á þetta. Jón var ekki sammála og sagði auðmenn vera fagnaðarefni. „Auðmenn sitja ekki auðum hönd- um,“ bætti hann við. „Þeir eru at- hafnasamir og þeir keyra þjóðfé- lagið áfram.“ Jón G. Hauksson hefur skrifað um viðskipti í á þriðja áratug. Hann rifjaði upp þann stöðuga heim þegar tvær blokkir réðu mestu í íslensku við- skiptalífi. Sambandið og Kol- krabbinn. „Á þessum tíma var tal- að um Sambandið sem eilífðarvél sem gæti ekki farið á höfuðið, en hún fór hratt á höfuðið.“ Veldi byggjast hratt upp og margir þeirra sem nú eru mest áberandi í viðskiptalífinu voru ekki mjög stöndugir fyrir rúmum áratug. „Veldi hrynja líka hratt,“ sagði Jón og benti á að eigendur misstu stundum einbeitinguna, arðsemin yrði lítil og þeir gætu neyðst til að selja. Elífðarvélin er ekki til var niðurstaða hans. Fátt bendir til samþjöppunar Jón greindi íslenskt viðskipta- líf í átta fjársterkar blokkir. Ingvi Örn Kristinsson taldi upp fimm- tán, misfjársterkar. Ingvi sagði fátt benda til þess að um mikla samþjöppun væri að ræða í við- skiptalífinu. Menn ynnu saman á einum stað og bitust á öðrum. Valdamiklir auðmenn eru því fleiri en nokkru sinni hér á landi. Jón velti því fyrir sér hvort það skipti máli hverjir þeir væru. „Hugsanlega gagnvart stjórnvöld- um en ekki gagnvart neytendum.“ Hann leitaði aftur í tímann, til þess tíma þegar viðskiptablokk- irnar tengdust pólitískum öflum sterkum böndum. „Fyrirtæki eru ekki lengur trúfélög.“ Menn fara ekki lengur bensínlausir í bæinn fremur en að kaupa bensín hjá óvininum eins og var á árum áður. „Neytendur hugsa um lágt verð og góða þjónustu.“ Með því að keppa á þeim grunni hafa bestu fyrirtækin eflst og eigendur þeirra orðið ríkir. Ingvi tók í sama streng og sagði meginmarkmið þessara hópa vera rekstrarárang- ur en ekki völd og pólitísk sjónar- mið. „Hnignun SÍS og Eimskipa- samstæðunnar má rekja til of lít- illar áherslu á rekstrarárangur.“ Viðskiptalífið sýni ábyrgð Þór Sigfússon gerði að umtals- efni þann ótta sem hræringar við- skiptalífsins hefðu haft í för með sér. „Verslunarráð Íslands skoðar með reglubundnum hætti hvernig umræða í samfélaginu varðandi viðskiptalífið er.“ Hann sagði nið- urstöðu samanburðar áranna 2002 og 2003 að orðið „græðgi“ kæmi tvöfalt oftar fyrir í fjöl- miðlum og nánast það sama gilti um orðið „hringamyndun“. Auk þess hefði sprottið fram umræða um ofurlaun stjórnenda og verð- samráð. „Umræðan er í raun far- in að snúast um neikvæða þætti markaðarins, en ekki þau tæki- færi sem frjáls markaður býður upp á.“ Hann sagði mikilvægt fyrir viðskiptalífið að sýna ábyrgð og í því skyni hefði verið ráðist í að vinna leiðbeiningar um góða stjórnarhætti fyrirtækja. Viðskiptalífið þyrfti að sýna ábyrgð. „Viðbrögð viðskiptalífs- ins við þeirri gagnrýni sem fram hefur komið eiga að sýna að við erum að taka okkur á, setja okkur skráðar og óskráðar starfsreglur, auka upplýsingar og hækka við- miðin.“ Styrkur forsenda landvinninga Ísland er lítill markaður. Fá- keppni ríkir frekar á minni mörk- uðum en þeim stærri. Frummæl- endurnir bentu á að í auði hópa ís- lensks viðskiptalífs leyndist mik- ill sköpunarmáttur. Styrkur væri forsenda frekari landvinninga í viðskiptum. Jón G. Hauksson benti á að margir hefðu tekið það óstinnt upp þegar Björgólfur Thor Björgólfsson lýsti því yfir að lítið væri um spennandi tækifæri á Íslandi. Ingvi sagði sterka fyrir- tækja- og fjárfestahópa skapa skilyrði til sóknar í innlendu at- vinnulífi og til erlendrar útrásar. „Þannig má treysta grundvöll lífs- kjara og áhugaverðrar atvinnu- sköpunar á Íslandi.“ Hættan við að setja atvinnulíf- inu óþarfa skorður var að mati þeirra Jóns, Yngva Arnar og Þórs sú að með því yrði sköpunarkraft- ur atvinnulífsins drepinn í dróma sem bitnaði á lífskjörum almenn- ings í landinu og takmarkaði framþróun og útrás. „Hættan er sú við slíka lagasetningu að lækn- ingin verði verri en sjúkdómur- inn,“ sagði Jón G. Hauksson. haflidi@frettabladid.is Viðskiptablokkir fleiri en nokkru sinni Eignabreytingar liðins árs hafa framkallað skjálfta í samfélaginu. Upphrópanir um samþjöppun, samráð og græðgi hafa heyrst oftar en áður. Frummælendur á fundi Félags viðskipta- og hagfræðinga töldu fjölbreytni ríkja í atvinnulífinu og ekki vera þörf á frekari lagasetningu. FJÁRSTERKAR VIÐSKIPTA- BLOKKIR SAMKVÆMT SKIPT- INGU YNGVA ARNAR KRISTINS- SONAR: Afl – Atorka – Líf Baugur Group (Hagar, Húsasmiðjan, Stoðir) Engeyingar – Íslandsbanki – Sjóvá Eyrir Fengur – Skeljungur Hof Kaldbakur – Samherji – Síldarvinnslan Milestone Meiður – KB banki – Bakkavör Norvik – Byko – Kaupás – Flugleiðir Samson – Landsbanki – Burðarás – Pharmaco Saxhóll S-hópur – Ker – Samskip – SÍF – VÍS – KB banki Straumur – HBen-fjölskyldan Vogun – Grandi – Nýherji – Hampiðjan VIÐSKIPTABLOKKIR SAM- KVÆMT SKIPTINGU JÓNS G. HAUKSSONAR: Samson – Landsbankinn (Bjöggarnir) Baugsveldið (Með Pálma í Feng) S-hópurinn (Ólafur Ólafsson og Finnur Ingólfsson) Samherji og Kaldbakur (Þorsteinn Már Baldvinsson) BYKO-veldið (Jón Helgi Guðmundsson og Hannes Smárason) KB banki (Sigurður Einarsson, Bakkavör, S-hópur og BYKO-veldið) Íslandsbanki (Einar Sveinsson, Helgi Magnússon, Orri Vigfússon og Werners-systkini) EIGNIR HJÁ NÝJUM HERRUM Stórar eignir í íslensku atvinnulífi hafa skipt um eigendur á skömmum tíma. Ekki er langt síðan tvö veldi réðu flestu í íslensku atvinnulífi. Nú má greina átta til fimmtán sterk fjármálaveldi í íslensku atvinnulífi. AUÐMENN SITJA EKKI AUÐUM HÖNDUM Jón G. Hauksson, ritstjóri Frjálsrar verslun- ar, taldi auðmenn til góðs fyrir samfélagið. Atorka þeirra keyri samfélagið áfram og skapi landsmönnum betri lífskjör.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.