Tíminn - 02.06.1972, Blaðsíða 7

Tíminn - 02.06.1972, Blaðsíða 7
Föstudagur 2. júni 1972. TÍMINN 7 ,,Shakespeare — látið þá fá hann" Máladeildarmenn i gamla menntaskólanum höfðu gert innrás i kennslustofu hjá stærð- fræðideildarmönnum og hlauzt af bardagi. Tilefni þessarar inn- rásar var deila um mynd af Shakespeare, er báðir aðilar þóttust eiga tilkall til, en var þó i umsjá stærðfræðideildar- manna. Nú kom Ólafur Danielsson til kennslu, skakkaði leikinn og rak hina óboðnu gesti ut. Siðan fór hann að grennslast eftir þvi, hver hefði verið orsök rysking- anna. Var honum þá bent á myndina og sagt, að mála- deildarmenn hefðu ætlað að ræna henni. „Shakespeare!” sagði Ólafur. „Fyrir alla muni — látið þá fá hann. Hann hefði aldrei orðið frægur, ef ekki hefði allt verið morandi af vinnukonum i Eng- landi.” * Liz féll í öngvit Þegar Richard Burton var nýlega i Ungverjalandi og lék þar i kvikmynd með 24 ára gamalli stúlku, Doka Zamabirona, krafðist hin fræga kona hans þess að fá að vera viðstödd upptöku myndarinnar. Liz Taylor lét töluvert á sér bera, sérstaklega þegar verið var að kvikmynda innilegustu atriði myndarinnar. Hún rak t.d. tunguna framani Doka og hrópaði: -En hvað hárið á þér fer hræðilega illa! Richard Burton lét sig engu skipta, hvernig kona hans hagaði sér, en þegar kom svo að þvi, að þau Doka og Richard áttu að leggj- ast saman upp i rúm, og kyssast innilega, varð það einum of mikið fyrir Liz. Það leið yfir hana. Kvikmyndatökunni var þegarhætt, og Richard fór heim með hina náfölu eiginkonu sina! Þegar þau hjónin voru farin hlógu tæknimenn og aðrir við- staddir, þvi enginn hafði trúað þvi eitt augnablik, að i raun og veru hefði liðið yfir Liz. Hér sjáið þið svo mynd af hinni fallegu Doku, sem varð orsökin að yfirliðinu. o Raquel Welch frjáls á ný Milljónir karlmanna um allan heim stundu þungan, þegar draumastúlkan þeirra Raquel Welch giftist Patrick Curtis. Sömu menn hljóta að hafa andað léttara, þegar fréttist, að þau hefðu skilið. Sagan segir, að eiginmaðurinn hafi ekki getað afborðið að kona hans sýndi fegurð sina almenningi á hvita tjaldinu en Raquelsjálf segir^að ástæðan fyrir skilnaðinum hafi verið önnur. Curtis var siður en svo ánægður þegar kona hans kom fram svo fáklædd i kvik- myndinni Hannie Clauder, að fæðingablettur á lend hennar sást greinilega. Eftir að skilnaður Raquel og Patrick var orðinn löglegur, og hún kom frá Sanata Monica þar sem yfir heyrzlur höfðu farið fram, mátti greinilega sjá, að henni var brugðið. Blaðamaður i Holly- wood spurði, hvort hún væri ekki ánægð yfir að vera skilin. Raquel kvað nei við, þótt ekki hefði verið um annað að ræða. f upphafi hefðu þau Patrick verið svo hamingjusöm, en siðan hefðu þau byrjað að rifast, og ekki getað komið sér saman um nokkurn einasta hlut. — Ég er sannfærð um, að Patrick var rétti maðurinn fyrir mig. Þvi til staðfestingar get ég nefnt, að ég fór þess á leit við hann að hann ættleiddi tvö börn min frá fyrra hjónabandi. Það hefði engin gert nema sú sem var fullviss um ást sina á manninum. Raquel er nu 28 ára gömul. Hún segist ætla að setjast að i Evrópu en alls ekki i Englandi. Sennilega setjist hún að á ítaliu, þvi i Róm eigi hún marga vini. * Nýtt grænmeti i Síberíu. Moskvu. — Siberia er almennt ekki talin i hópi hinna ákjósan- legustu ræktunarlanda. En sé ekki unnt að rækta grænmeti eða ávexti undir berum himni, verður að gripa til annarra ráða. Nú eru lika byggðar stórar gróðurhúsasamstæður til ylræktar i næsta nágrenni iðnaðarstöðvanna miklu, sem eru að risa upp á þessum slóðum. Þannig eru nú i notkun við Sajan-iðjuverin i Irkutsk- héraði i Siberiu fimm risastór gróðurhús, þar sem ræktunar- flöturinn er alls rúmlega 35.000 fermetrar. t febrúar og marz s.l. nam uppskeran þar 15 lestum af snemmasprottnum lauk og gúrkuuppskeran var jafn mikil. ¥ Trjáviðurinn hertur Rannsóknarstofnun timbur- iðnaðarins i sovétlýðveldinu Lettlandi hefur hafið samstarf við Stofnun tæknirannsókna i Tékkóslóvakiu um að finna nýja aðferð til notkunar við herzlu hinna mýkri viðartegunda svo að þær þoli mikinn þrýsting. Hert timbur þykir sérlega hentugt i súlur i námugöngum og sem efni i gólfklæðningu, sem mikið mæðir á, og bera verður mikil þyngsli — þrýsting all t að einni smálest á fersenti- metra. Danir óvinsælir meðal Vestur-Þjóðverja Ef dæma má eftir skoðana- könnun, sem fram hefur farið á vegum Wickert-stofnunarinnar i Vestur-Þýzkalandi, eru Þjóð- verjar ekki sérlega hrifnir af Dönum. 1 skoðanakönnuninni var spurt: — Við hverja af ná- grönnum ykkar fellur ykkur bezt? Niðurstaðan varð þessi: 26% likaði bezt við Frakka, 23% nefndu Austurrikismenn, 16% Svisslendinga, 14% Hollendinga og aðeins 10% Dani. Danir máttu þó vera hressir, þvi þeir voru að minnsta kosti fyrir ofan Belga, sem aðeins fengu 5% og Luxemborgarmenn, sem fengu ekki nema 2% til þess að nefna sig i fyrsta sæti.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.