Tíminn - 02.06.1972, Blaðsíða 16

Tíminn - 02.06.1972, Blaðsíða 16
16 TÍMINN Föstudagur 2. júni 1972. KR-ingar tóku forystuna í 1. deild Umsjón: Alfreð Þorsteinsson Faröu til fjandans...er eins og Atli Héðinsson segi . begar hann sendir knöttinn með þrumuskoti i mark Breiðabliks. Og markvörðurinn, Ólafur Hákonarson, veit ekki fyrr en knötturinn syngur I netinu. (Tímamyndir Róbert.) Atli, hinn sókndjarfi miðherji lið sins. KR-liðið, með Atla Björn Pétursson, Baldvin og Sigmund, sem beztu menn, kom vel frá Minningarsjóður Rúnars Vilhjálmssonar Stofnaður hefur verið minningarsjóður um Rúnar Vilhjálmssson knattspyrnu- mann, sem lézt af slysförum i landsliðsför 1970. Minningarspjöld eru til sölu i Lúllabúð, Bólstrun Harðar Péturssonar, verzluninni Straumnes og sportvöruverzlun Ingólfs Óskarssonar. Hörður er byrjaður að æfa með Akranes- liðinu Hörður Helgason, varamarkmaður Fram þrjú s.l. sumur, er byrjaöur að æfa með Akranesliöinu. Kins og hefur komiö fram hér á síðunni, hefur llörður gengið yfir i Akranesliðið, og mun hann íeika meö liðinu i sumar. Hörður er fluttur upp á Akranes, þar sem hann mun hef ja störf sem kennari. Til gamans má geta þess, að það var Hörður, sem varði hina frægu vitaspyrnu frá Ellert B. Schram, á siðustu minútunni i leik KR og Fram i bikarkeppninni 1970— það varð til þess, að Fram vann leikinn og stuttu siðar urðu þeir Bikarmeistarar. Ekki er að efa, að Hörður mun styðja Akranesliðið i 1. deildar- baráttunni i sumar, þar sem Akranesliðið hefur illilega vantað góðan markvörð undan- farin ár. SOS. leiknum. Liðið i heild lofar góðu, en greinilegt er, að það má laga ýmislegt i leik liðsins. T.d. má liðið leika meira upp kantana, i staðinn fyrir að reyna alltaf að brjótast upp miðjuna, með stunguboltum á Atla. Breiðabliksliðið olli von- brigðum i leiknum,- er það kannski vegna þess, að búizt var við miklu af þeim? ,-sérstaklega eftir sigurinn i Eyjum. Ég bjóst við þeim sterkari, sagði einn leik- manna KR eftir leikinn og getur undirritaður tekið undir þau orð. Beztu menn Breiðabliks, voru Ólafur Hákonarson, Helgi Helgason og Haraldur Erlendsson. Dómari leiksins var Einar Hjartarsson og dæmdi hann vel. - SOS. IffJBHW I D iil Hollenska liðið Ajax sigraði i Evrópukeppni meistaraliða, þegar liðið sigraði italska liðið Inter Milan s.l. miðvikudags- kvöld 2:0 I úrslitaleik, sem fór fram i Rotterdam. Ajax var betra liðið i leiknum og sigurinn kærkominn. Knatt- spyrnusnillingurinn Gruyff, sem var kosinn knattspyrnumaður ársins 1971 i Evrópu skoraði bæði mörk liðsins i siðari hálfleik. Ajax var einnig meistari i þessari keppni i fyrra, en þá sig- raði liðið griska liðið Panathina- ikos,sem ungverski knattspyrnu- konungurinn Puskas þjálfaði,i úr- slitaleik á Wembley 2:0. Skozka landsliðið i knatt- spyrnu, undir stjórn Docharty, heldur til Brasiliu á næstunni, þar sem liðið mun taka þátt i Litlu heimsmeistarakeppninni, sem haldin er i tilefni 100 ára sjálf- stæðis landsins. Islandsmótið utanhúss i hand- knattleik karla hefst eftir 17. júni og mun standa til 2. júli. Ekki er enn ákveðið, hvar það fer fram, en tvö félög hafa sótzt eftir að fá að halda það — þau eru Grótta á Seltjarnarnesi og Haukar i Hafnarfirði. Helgi borvaldsson, knatt- spyrnumaður úr Þrótti, lék sinn 100 meistaraflokksleik með knattspyrnuliði félagsins i gær- kvöldi, þegar Þróttur lék gegn FH i Hafnarfirði. Leikurinn var fyrsti leikur 2. deildar i knattspyrnu i ár. (nánar um leikinn á morgun). Óvist er, að Magnús Guðmunds- son, markvörður 1. deildar liðs KR i knattspyrnu geti leikið með liðinu.þegar það mætir Akranes- liðinu á sunnudaginn. Hann meiddist illa á fæti i leik Breiða- bliks — KR. I dag hefst Pierre Robert- keppnin i golfi og verður hún haldin á velli Nesklúbbsins á Sel- tjarnarnesi. Mótið er eitt fjöl- mennasta mót sumarsins. Íslandsmetí kúluvarpi! Lára Sveinsdóttir, A setti nýtt Islandsmet i hástökki stökk 1,58 m. Hún felldi 1,60 af slysni, en var vel yfir hæðinni. Bjarni Stefáns- son, KR hljóp 400 m á 49,2 sek., sem var gott i kuldanum og gjól- unni á Melavellinum i gærkv. Erlendur Valdimarsson, tR var ekki i essinu sinu i kringlukast- inu, hann kastaði 55,06 m, en átti ógild kast um 57,50 m. Nánar verður skýrt frá úrslitum i blað- inu á morgun. OE-Reykjavik. Baráttan i kúluvarpi á EOP- mótinu i gærkvöldi var óvænþ hörð og skemmtileg. I fyrstu um- ferð varpaði Hreinn Halldórsson, HSS 17,27. Það var ekki fyrr en i 5. umferð, að Guðmundur Her- mannsson, KR tryggði sér sigur með 17,56 metra kasti. t 2. umferð varpaði Hreinn 17,39, sem er 84 sm. lengra en hans bezti árangur frá IR-mótinu fyrir viku. Þess má geta, að OL-lágmarkið er 18,20 m. Við náðum sambandi við örn Steinsen, þjálfara KR, eftir lcik liðs hans viö Breiðablik og spurðum liann, hvort hann væri ekki ánægður með liðið: -Það cr ekki annaö hægt að segja, en að cg sé mjög ánægður með liðið. Vörnin, scm ég tel veikasta hlekk liðsins, stóð sig mjög vcl f lcikn- um og það viröist, sem hún styrkist, með hverjum leik. —Það var gert m jög lftið úr KR- liöinu fyrir mótiö og þvi spáð falli. Þá var sagt um þaö, að það væru ungir óreyndir strákar, scm skipuðu liöið, þeir sömu og i fyrra, og væru það ekki miklir knattspyrnumenn. -Nei ég kviði ekki framtfðinni það er miklu meiri*bolti i strákun- um, en þeir hafa sýnt i tveimur fyrstu leikjunum. Það er óska- draumur hvers liðs, að fá gott start i hyrjun - það hefur KR-liðið fengið og er mjög niikill styrkur fyrir það, þvi að leikmcnn liðsins eru ungir og þurfa að fá meira sjálfstraust, sem þeir hafa nú fengið og eru þeir ekki búnir að segja sitt siðasta orð i sumar. Ekki er að efa, að margir áhorfendur,sem hafa séð hið unga og liflega KR-lið, taki undir þessi orð Arnar. T.d. sagði einn harður Valsari, að hann væri farinn að halda með KR-liðinu, þvi að ungu ljónin i KR, væru svo léttleikandi og skemmtileg á að horfa. En snúum okkur þá að leik Breiðabliks og KR, sem fór fram á Melavellinum s.l. miðvikudags- kvöld. Það var greinilegt, að leikmenn liðanna voru taugaóstyrkir i byrjun leiksins. Liðin skiptust á aö sækja en þeim tókst ekki oft að skapa sér virkilega hættu við markið og varð þvi mest um miðjuþóf. Bezta færið i fyrri hálf- leik, áttu Breiðabliksmenn, á 44. min. fékk ólafur Friðriksson, gullið tækifæri til aö færa liði sinu forystu i leiknum. Hann fékk knöttinn, einn og óvaldaður inn i markteig KR, sannkallað draumafæri - honum brást boga- listin og skaut fram hjá. KR-ingar mættu tviefldir til leiks i siðari hálfleik og voru greinilega ákveðnir að gera út um leikinn strax. Gunnar Guðmunds- son, komst einn inn fyrir vörn Breiðabliks á 13 min. - á siðustu stundu bjargaði markvörður Breiðabliks, ólafur Hákonarson, með úthlaupi á réttu augnabliki. ólafur var ekki eins vel á verði, þrem min. siðar þegar hörkuskot frá Atla Héðinssyni, söng i neta- möskunum fyrir aftan hann - stórglæsilegt skot frá Atla. Eftir markið, var eins og Breiða- bliksliðiö, sem skóp sér nafn fyrir að sigra Vestmannaeyjar um s.l. helgi, félli saman. KR-ingar tóku smátt og smátt, öll völd i leiknum og Breiöabliks- menn, sem voru i hlutverki temjarans, misstu öll tök á ungu I jónunum i KR. KR-liðiö innsiglaði sigurinn, með tveim mörkum undirlok leiksins. Annað mark liðsins, skoraði Hörður Markan með skalla og það þriðja, Ég býð þér upp I dans.......Haraldur Erlendsson og Guðjón Guömundsson taka sporiö i lcik Breiðabliks og KR. „ÞAÐ ER OSKADRAUMUR HVERS LIÐS AÐ FÁ G0TT ,START’ í l.DEILDAR BARÁTTUNNI” •• - sagði Orn Steinsen, þjáifari KR, eftir að skólastrákarnir hans sigruðu Breiðablik, 3:0

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.