Tíminn - 02.06.1972, Blaðsíða 20
Fleiri hryðjuverk eru í
undirbúningi
NTB-Tel Aviv
Sá eini eftirlifandi af
japönsku sjálfsmorðs-
sveitinni, er drýgði ó-
dæðisverkið á flugv i
Tel Aviv, hefui skýrt
lögreglunni frá þvi, að
leiðtogi hópsins hafi
orðið eftir i Evrópu til að
skipuleggja fleiri
hryðju- og skemmdar-
verk, sem ætlunin væri
Kissinger og
magadansmærin
NTB-Varsjá.
Kissinger, ráðgjafi
Nixons, er kunnur fyrir
að vera dálitið kvenholi-
ur. Að minnsta kosti
virtist hann það i
Teheran á þriðjudags-
kvöldið, er hann var
staddur á næturklúbbi
og horfði á magadans-
mær sýna listir sínar.
Dansmærin hætti sem sé
aðdansa og fékk sér sæti
á lærum Kissingers. Þau
ræddu þannig saman
drykklanga stund.
Þegar Kissinger var
svo kominn til Varsjár i fyrradag,
fengu blaöamenn loks aö vita,
hvernig á þessu stóð:
-Stúlkan hefur ákaflega mikinn
áhuga á utanrikismálum, sagði
Kissinger. -Hún vildi fá aö vita
alla skapaða hluti um eldflaugar
og kafbáta, og það tók dálitla
stund að skýra allt' fyrir henni.
Blaöamennirnir virtust ekki
trúa þessu nema hálft i hvoru og
spurðu, hvort þetta væri sann-
leikurinn. -Auðvitað, svaraði
Kissinger. -Um hvað annað hefð-
um við átt að tala?
að framkvæma, ekki
endilega þó i ísrael.
Japaninn, Daisuke
Namba að nafni, sagði þetta i
gær, að þvi er blað i Tel Aviv
segir. Fyrirliði sjálfsmorðs-
sveitarinnar og einn félaginn
hættu á siðustu stundu við að fara
um borð i Air-France-flugvélina á
Rómarflugvelli, á leið til Israel.
Lögreglan hefur af þessu ályktað,
að félagarnir séu morðþyrstir
öfgamenn.
Aðspuröur um tilgang fjölda-
morðanna, svaraði Namba, aö
hann hefði enginn veriö. -Ég var
sannfærður um, að þetta væri
réttlát aðgerð, svaraði hann. -Það
skiptir mig engu máli. Nú er
hlutverki minu lokið, og ég vil að
þið leyfið mér að deyja. Héðan i
frá er ég pislarvottur.
Namba hefur áður sagt, að
samtök þau, er hann tilheyrir,
Rauði herinn, hafi um mánaöabil
unnið með Alþýðufylkingunni til
frelsunar Palestinu, og hafi
sjálfsmorðssveitin fengið kennslu
i vopnaburði i Beirut. Namba veit
ekki nokkurn skapaðan hlut um
ísrael, en tók að sér þetta verk-
efni eftir að hann hafði verið
sannfærður um, að það væri
nauðsynlegt fyrir alheimsbyR-
inguna.
[
Föstudagur 2. júni 1972.
J
Umhverfisráðstefnan í Stokkhólmi:
Powwow-menn segja
niðurstöður ákveðnar
NTB-Stokkhólmi
-Við erum alls ekki á móti um-
h verfisráðstefnu Sameinuðu
þjóðanna, sem hefst f næstu viku,
cn viðerum sannfærðir um, að SÞ
geti ekki komið neinu sérstöku til
leiöar mcð henni. Þetta eru orð
forvigismanna svonefndra
„Powwow” -samtaka, sem ætla
að halda hliðstæöa ráðstefnu i
Stokkhólmi.
Samtökin, sem stofnuð voru
fyrir ári, eru alþjóðleg, og i þeim
eru bæði einstaklingar, fyrirtæki
og félög. Powwow er orð úr máli
Indiána og þýðir samráð. Leið-
togar Powwow-ráðstefnunnar
segja ennfremur, að engar raun-
hæfar niðurstöður muni nást af
SÞ-ráðstefnunni, þar sem allar
niðurstöður séu ákveðnar fyrir-
fram, m.a. verði alls ekki minnzt
á eiturefnahernað Bandarikjanna
i Vietnam, þvi að SÞ þori ekkert
að gera, sem móðgað geti Banda-
rikin.
Sænska lögreglan reiknar með,
að um 30 þúsund manns muni
sækja Powwow-ráðstefnuna, en
forráðamenn hennar segjast ekki
hafa minnstu hugmynd um fjöld-
ann.
Fær Noregur
prins
i jolagjof?
NTB-Oslo
Tilkynnt hefur verið í Oslo, aö
Sonja krónprinsessa eigi von á
öðru barni sínu um jólaleytiö.
• Martha Louise prinsessa verður
þá 15 mánaða. Eins og gefur að
skilja, vonast Norðmenn eftir
prinsi i jólagjöf, þvi aö sam-
kvæmt norskum lögum getur
kona ekki orðið þjóðhöfðingi,
nema stjónarskrárbreyting komi
til.
EMBÆTTI
í BOÐI
Mörg embætti eru laus um
þessar mundir. Eins og áður
hefur verið sagt frá, hefur verið
auglýst eftir aðstoðarskólastjóra
i þrjá menntaskóla — Akureyrar-
skólann og tvo Reykjavfkur-
skólanna.
Þar að auki eru nú laus embætti
orkumálastjóra og landlæknis og
forstjórastarf I Norræna húsinu.
nytsflm framleiflsla neytendum I hag
HEKLU-ULPUR HEKLU-BUKUR ~^>
á drengi og stúlkur, - sterkar, léttar, hlýjar,- alltaf sem nýjar. á drengi og stúlkur - útsniðnar, sterkar og þægilegar. ^
FATAVERKSMIÐJAN HEKLA AKUREYRI
PEVSUR
á drengi og stúlkur
m