Tíminn - 06.06.1972, Blaðsíða 1

Tíminn - 06.06.1972, Blaðsíða 1
/• IGNIS KÆLISKAPAR RAFTORG SÍMI: 26660 RAFIÐJAN SIMI: 19294 ☆☆☆ V Brúðkaup að eld- fornum sið við sólarupprós í Gróbrókarhrauni S.H., Bifröst. t gærmorgun fór hér fram svo óvenjuleg athöfn, að vart hefur önnur slfk verið framkvæmd f Borgarfiröi, nema verið hafi á löngu liðinni tið á þeirri öld, er Skallagrimur steig fyrst á land með föru- neyti og grjóti var hlaðiö að kistu Kveldúlfs: Um sólarupprás vigði séra Houston Smith, prófessor I samanburðartrúfræði, ungfrú Joan Halifax, mannfræðing frá Miami, og dr. Stanisiav Grof, geölækni frá Baltimore, saman í hjónaband eftir eldfornum siðareglum. Þetta gerðist i skjólrikum hvammi I Grábrókarhrauni við morgun- söng nývaknaðra skógarþrasta, sem áður höfðu bundizt hjúskapar- heiti I kyrrþey og stofnað til búskapar I kjarrinu. Frá sjónarmiði leikmanns var þessi athöfn hámark al- þjóölegrar ráðstefnu um sál- fræði og sálræna liffræði, er haldin var i Bifröst 31. mai til 5. júni. Að þeirri ráðstefnu stóðu Rannsóknarstofnun vitundarinnar I Reykjavik og Transpersonal Association i Kaliforniu. En forstöðumaöur Rannsóknarstofnunar vitundarinnar er Geir Vil- hjálmsson, sálfræðingur I Reykjavik, er jafnframt var framkvæmdastjóri ráðstefn- unnar i Bifröst. Andrúmsloftið islenzka varð lóðið á metaskálarnar. Þau ungfrú Halifax og dr. Grof höfðu ekki afráðið, hvar eða hvenær brúökaup þeirra ætti að standa, en þau höfðu bæöi aflað sér nauðsynlegra skilrikja til hjónavigslu, án þess þó að bera sig saman um það.Hingað til lands komu þau örfáum dögum áður en ráö- stefnan i Bifröst átti aö hefj- ast, ferðuðust um Snæfellsnes og dvöldust i sumarhúsi á Húsafelli. Hið islenzka um- hverfi og andrúmsloft örvaöi löngun þeirra til þess að efna sem fyrst til hjúskaparins, og sólvermt hraunið viö Grábrók varö fyrir valinu. Óvenjuleg ráðstefna Um sjálfa ráðstefnuna er það að segja, að hún var harla nýstárleg. Hana sótti um sex- tiu manns frá Islandi, Banda- rlkjunum, Kanada og ýmsum Noröurálfulöndum. Viðfangs- efni hennar voru breytingar á vitundinni — sérstaklega þær, sem fara út fyrir ramma per- sónuleikans i jákvæðum skiln- ingi, sem og huglækningar og aðrar andlega lækningar. Loks var fjallaö um liffræði- legar hliöar á starfsemi sálar- innar. Meðal þess, sem til umræöu kom, var goðafræði og helgi- siðir, og hvernig þátttaka i helgisiöum getur leitt til breytts vitundarástands. Bifröst, tengiliður himins og jarðar Bifröst þýðir sem kunnugt er regnbogi, goðabrú, tengilið- ur himins og jaröar. Heiti staðarins og viðfangsefni ráð- stefnunnar leiddu eins og af sjálfu sér til þess, að til brúö- kaupsathafnarinnar yrði efnt með fornlegum hætti. Var leit- að til Einars Pálssonar eftir vitneskju um fornar, uppruna- legar brúökaupsvenjur nor- rænna manna, svo aö þetta gæti oröiö goösöguleg hjóna- vfgsla, jafnframt þvi, sem dr. Josepth Campbell, frægasti goöfræöingur Bandarfkjanna, lagði einnig á ráð um sjálfa helgisiöina, er viðhafðir skyldu. Kona dr. Campbells, Jean Erdman Campbell, dansa- höfundur af Broadway, ann- aðist uppsetningu hópsins, og frú Unnur Eyfells valdi og Framhald frásagnar og fleiri myndir á bls. 5 Bifröst er brú goðanna, og úr hvamminum IGrábrók liggur leiðin austur á Þórsmörk, þar sem einnig er heiiög jörð. Tveir piltar eru tepptir í Hælavíkurbjargi GS-tsafirði. Mjög vont veður gerði hér á föstudag, laugar- dag og sunnudag. Sig- menn i Hælavikurbjargi urðu að hætta störfum, en tveir þeirra hafa ver- ið i tjaldi niðri i bjarginu alla dagana. Reistu þeir tjald sitt á sillu þar inn- undir smáskúta og haf- ast þar við. Þessir piltar heita Sigurður Magnús- son og Brynjólfur Óskarsson. Þeir segja allt vera i lagi hjá sér, og um leið og hægir verður farið á bát undir bjargið og eggin tekin niður i loftbraut, en slikt hefur tiðkazt undanfar- ið, i stað þess að taka þau upp eins og áður var gert. Er þetta bæði fljót- legra og fyrirhafnar- minna. Annars erum viö hér á isafiröi ekki hrædd um strákana, Sig- uröur er að nokkru leyti alinn upp hjá vitaveröinum á Hornbjargi og er sennilega einn skæðasti bjarg- maður hér á landi. Strákarnir eru með talstöð, þannig aö hægt er aö halda stöö- ugu sambandi við þá. 1 gær, mánudag, var komiö gott veður og voru þeir þá að týna egg sam- an I bjarginu, sem verða slðan send niður um leið og lægir nægi- lega mikið, þannig að þeir eru ekki i nokkurri hættu — og kannski má segja, að þeir séu bara að sóla sig úr þessu. Bátur- inn biöur þeirra úti Hornvik, þannig að þetta er allt i himna- lagi. Lesendum Tlmans er ráðlagt að láta ekki staðar numiðvið goð- orðsbrúðkaupíð i Grá- brókarhrauni, heldur fletta lika upp á blað- siðu 6 og 7, þar sem segir af afreki islenzks skipstjóra: Mikilli og vandasamri læknisaðgerð á hafi úti i stormi og hauga- sjó. Ferðamenn fá mat - þrátt fyrir verkfall matsveina Oó-Reykjavik. Verkfall matsveina i veitinga- húsum hófst á sunnudagskvöld, þar sem samningar tókust ekki fyrir boðaðan verkfallstima. Fá þvi hótelgestir ekki heitan mat i veitingasölum hótelanna, og verða þeir að láta sér nægja brauð og kaffi, en hins vegar er framreiddur matur f flestum veitingahúsum borgarinnar, sem ekki eru rekin i sambandi viö hótel. Sáttafundur stóð yfir frá kl. 4 á sunnudag til 8 á mánudags- morgun, en deilan var ekki út- kljáð, og annar fundur hefur ekki veriö boðaöur. I gær var hins veg- ar samið um kjör ófaglærös starfsfólks veitingahúsanna. Veitingamenn samþykktu þá samninga i gær, en fundur er i íélagi starfsfólksins i dag. 011 hótel i Reykjavik eru nú full. Ferðamannastraumurinn er byrjaöur og listahátiö hafin. Er þvi einkar bagalegt fyrir veit- ingamenn að geta ekki selt gest- um sinum mat yfir háannatim- ann. Er gestum bent á að borða á þeim stöðum, þar sem eigendur eru matsveinar og mega starfa að matseld. Einnig eru nokkrir veit- ingastaöir, sem lærðir mat- sveinar hafa ekki unniö á, og er eldaö þar eins og vant er. Ferðaskrifstofumenn hafa þingaö hér siðustu dagana, og lauk ráöstefnunni i gærkvöldi. Til stóð að halda lokasamsæti á Hótel Sögu, en af þvi gat ekki orðið, og þvi varð það að ráði aö bjóöa gestunum aö borða kvöldverö á Akranesi. Þangaö fór 200 manna hópur með Akraborginni og kom aftur upp úr miönætti. 011 matsöluhús i miöborginni voru opin og matur seldur eins og hver vildi hafa. A Hressingar- skálanum var aöeins hægt aö fá hamborgara og sllkan mat. 1 caféteriunni I Loftleiöahótelinu var seldur allur matur fram eftir degi, en matsveinar stöðvuðu alla kokkamennsku þar kl. 6 i gær, og eftir það mátti aðeins selja sam- lokur og bacon.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.