Fréttablaðið - 31.07.2004, Blaðsíða 29

Fréttablaðið - 31.07.2004, Blaðsíða 29
LAUGARDAGUR 31. júlí 2004 21 Í Listasafni Reykjavíkur Hafnarhúsi stendur yfir einkasýning Þorvaldar Þorsteinssonar „Ég gerði þetta ekki“. Auk eigin verka hefur Þor- valdur safnað saman verkum héðan og þaðan í viðleitni sinni til að varpa upp mynd af Íslandi: „Sýningin ein- kennist af þeirri tröllatrú sem ég hef á öðrum en sjálfum mér til að búa til skemmtilega hluti. Mitt hlutverk hefur oft verið að leiða fólk saman til að draga það besta út úr öðrum og sýningin ber þess merki að vera unn- in í samvinnu við aðila sem unnu verkin fyrir mig,“ segir Þorvaldur Þorsteinsson, myndlistarmaður og rithöfundur. Einn salur sýningarinnar er til- einkaður ljósmyndum úr auglýsinga- herferðum Icelandair sem koma fyr- fyrir sjónir almennings erlendis. „Samstarfið við Icelandair er tilkom- ið vegna þess að mig langaði að gera eitt heildstætt verk á sýningunni sem væri dálítið ögrandi. Ég vildi skoða þá landkynningarmynd sem Icelandair heldur fram erlendis í samstarfi við fyrirtækið og setja þessa mynd í samhengi við þá sjálfs- mynd sem Íslendingar hafa haft af sjálfum sér í gegnum tíðina,“ segir myndlistarmaðurinn. Auk ljósmyndanna er í salnum myndin Fjallamjólk eftir Kjarval sem gæti staðið fyrir sjálfsmynd Ís- lendinga á fyrri hluta aldarinnar sem leið. Hún er mjög frábrugðin myndunum í kring og kemur með nýja og skerandi mynd inn í rýmið sem lætur áhorfandann velta því fyrir sér hvað hún sé að gera þarna innan um nýlegar ljósmyndir úr náttúru Íslands. Frá opnun sýningarinnar hefur ís- lenskum gestum sýningarinnar verið boðið upp á að segja skoðanir sínar á því hver myndanna gefi raunhæfasta mynd af þeirra sjálfsmynd og hver þá óraunhæfustu. Tölur yfir skoðanir gestanna á myndum sýningarinnar hafa nú verið teknar saman og gefa skemmtilegan þverskurð af því hvernig Íslendingar sjá sjálfa sig. „Ein sönn mynd af Íslandi er auð- vitað ekki til. Það er kannski niður- staðan af þessari skoðanakönnun Þorvaldar. Sannasta myndin sýnir nútímafólk á hestum úti í náttúrunni, sú ósannasta höfrung að stökkva,“ segir Guðjón Arngrímson, upplýsingarfulltrúi hjá Icelandair, sem segir verk Þorvaldar vel útfært. „Kannski minnir þetta verk okkur fyrst og fremst á að enn er sjálfs- mynd okkar mjög lítið mótuð og þess virði að halda umræðunni um hana áfram,“ segir Þorvaldur að lokum. Hægt er að hafa áhrif á lokaniður- stöðu könnunarinnar þar til sunnu- daginn 9. ágúst þegar sýningunni lýkur. ingi@frettabladid.is Sjálfsmynd Íslendinga STROKKUR Geysir og Strokkur eru hluti af þeirri ímynd sem við höfum selt erlendis. Einnig hefur hún haft áhrif hér heima og telst gefa sanna mynd af landinu. Þorvaldur Þorsteinsson veltir fyrir sér myndunum í textabrotunum sem fylgja þeim. HESTAFERÐ Þessi útivistarmynd úr náttúru landsins er sú mynd sem gestir gefa hæstu einkun sem raunhæfa mynd af Íslandi. „Hrifning fólks af þessari mynd er líklega tvíbent. Annars vegar raunveruleiki margra sem eru í hestamennsku og hins vegar óskhyggja þeirra sem vildu að þeir væru meiri Íslendingar.“ HVALUR Þetta er sú mynd sem gestir sýningarinnar segja síst gefa sanna mynd af Íslandi. „Öðrum þræði er þessi mynd afskaplega dæmigerð fyrir Ísland, hún er í takt við það sem við erum að selja sem eru hvalskoðunarferðir og einnig er hún táknræn fyrir umræðuna um íslenskan veruleika. Eigum við að skoða náttúruna eða skemma hana. Eigum við að skoða hvali eða drepa þá? Eigum við að drekkja hálendinu eða njóta náttúrufegurðarinnar? Hins vegar er hún dálítið floridaleg, eins og hún hafi verið tekin upp í skemmtigarði á Florida eða sé tekin úr Disney-mynd. Samt er myndin ekki stílfærð. Kannski er náttúran miklu fallegri en við þorum að gangast við. Að afneita þessari mynd kemur upp um okkur.“ SKEMMTUN Ein sú mynda sem ekki telst gefa sanna mynd af íslensku lífi er einföld mynd af skemmtanalífinu. Þrátt fyrir það er Reykjavík, sem djammborg norðursins, ítrekað notað í markaðsherferðum ferðaskrifstofa erlendis til að selja ferðir til Íslands. Íslendingar eru einnig kunnir fyrir að vera stolltir af þessum skemmtanastimpli sem Reykjavík hefur.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.