Fréttablaðið - 15.05.2004, Blaðsíða 30

Fréttablaðið - 15.05.2004, Blaðsíða 30
30 15. maí 2004 LAUGARDAGUR Ys og þys hefur ríkt í Hafnar-húsinu síðustu daga þar sem út- skriftarnemar úr myndlistardeild og hönnunar- og arkitektúrdeild Listaháskóla Íslands hafa sett upp verk sín. Næstum sextíu nemar eru að ljúka námi á þessum brautum skólans og hafa þeir unnið myrkr- anna á milli við að klára útskriftar- verk sín og koma þeim upp á sýn- inguna. Slíkt gerist hvorki þegj- andi né hjóðalaust, hróp og köll óma um húsið, borvélum er beitt á veggi og loft og hamarshöggin glymja í eyrum. Þannig hefur það verið alla vikuna en nú hefur færst meiri kyrrð yfir sýningarsalina enda verða þeir opnaðir klukkan tvö í dag. Útskriftarsýning LHÍ hefur löngum þótt með ferskari og skemmtilegri myndlistar- og hönn- unarsýningum ársins enda lista- fólk framtíðarinnar á ferðinni og að mestu laust við klisjur og for- dóma. Ævintýri Lengi vel var útskriftarsýning- in haldin í húsi Listaháskólans við Laugarnesveg og var ævintýri lík- ast að ganga þar um sali. Nemend- um var gefinn laus taumurinn við uppsetningu verka enda húsið þess eðlis að óhætt var að gera næstum hvað sem var. Í fyrra var sýningin færð í fyrsta sinn í Hafn- arhúsið en þar gildir lögmál lista- safna með tilheyrandi reglum og umgengnissiðum. Fyrir vikið þurfa nemendur að laga sig að hinu viðtekna og öðlast við það hæfni og reynslu við uppsetningu verka í viðurkenndu sýningar- rými. Sýningin nú er engu minna ævintýri, hugmyndaauðgi lista- mannanna nýútskrifuðu er engin takmörk sett. Forvitni, skilningur, áræðni... er yfirskrift sýningarinnar en segja má að flest rúmist innan þessara hugtaka og fólki því gefinn laus taumurinn. Gufubað og lífrænn gettó- blaster Athygli vekur hversu fáir nem- endur í myndlistardeild spreyta sig á hefðbundnu málverki. Aðeins þrjú slík má finna á sýningunni. Hins vegar er óvenju mikið af vídeóverkum auk þess sem mörg- um skúlptúrum og konseptverkum bregður fyrir. Þá er nokkuð um ljósmyndaverk á sýningunni. Lýsingar verkanna eru á borð við: Jeppi í fullri stærð, með heimatilbúnum spojlerum og skrauti, endurgerður bíll úr pappakössum, í fullri stærð, gufu- bað, sölubás og vídeóverk með grænlenskri hefð. Hönnunarnemar stinga víða niður fæti og má segja að þeir not- ist við allt sem nöfnum tjáir að nefna í verkum sínum. Meðal verklýsinga má nefna dósapressu, tengslatré/ættartré, spil fyrir óþægar stelpur, kúst sem er líka gítar og gerir heimilisstörfin skemmtilegri, handbók í mótmæl- um og lífrænan gettóblaster. Garðarshólmi Böðvar Gunnarsson hafði ætl- að sér að hefja myndlistarnám frá því að hann var unglingur en lét ekki verða af því fyrr en fyrir þremur árum, þá 28 ára að aldri. Fyrst fór hann og skoðaði heiminn og hóf raunar fornám í Lundún- um. „Það var svo einhver heimþrá sem rak mig heim,“ segir hann, „og hún hafði líka áhrif á útskrift- arverkið mitt“. Verkið heitir Garðarshólmi og samanstendur af nokkrum tugum ljósmynda sem teknar eru vítt og breitt um land- ið. „Ég ferðaðist um landið í vetur en það hafði ég í raun aldrei gert áður. Ég var því að kynnast land- inu í fyrsta sinn, hafði bara séð Akranes, höfuðborgarsvæðið og Reykjanesskagann áður.“ Þótt Böðvar beiti myndavélinni í útskriftarverkinu er ekki þar með sagt að hún verði hans vopn í listinni í framtíðinni. „Það skiptir eiginlega ekki máli hvaða tæki maður notar. Ég gríp bara til þess sem hugmyndin biður um,“ segir hann. Þegar Böðvar er beðinn um að segja frá einni ljósmynd velur hann mynd sem sýnir bókakili. „Þetta er mynd sem var tekin í gömlu húsi á Flateyri. Þar hefur ekki verið búið í 30 ár en allt stend- ur óhreyft.“ Í húsinu var bæði búð og íbúð. „Þarna var nýlenduvöru- verslun sem hét Bræðurnir Eyj- ólfsson,“ segir Böðvar. Verslunin var á neðri hæðinni en uppi var íbúð. „Það var skrítið að koma inn á heimili sem er í raun ekki heimili. Öllu hefur hins vegar verið vel við haldið og mér skilst að það standi til að opna þarna safn.“ Böðvar veit ekki hvar og hvenær hann mun vinna sigra á listasviðinu í framtíðinni en næst á dagskrá er að opna nýtt gallerí á Hverfisgötunni, Gallerí 101, í sam- vinnu við Ingibjörgu Pálmadóttur athafnakonu. Á mínum forsendum „Ég er með vídeó- og tónlistar- verk og er að fjalla um draum- kennt ástand,“ segir Þórunn Maggý Kristjánsdóttir, sem dags daglega er kölluð Dodda Maggý. Hún gerir allt sjálf, semur og spil- ar tónlistina, tekur upp myndband- ið og klippir það, auk þess að leika í því sjálf. Hún vill sem minnst segja um vídeóverkið: „Það má ekki segja neitt um þetta annað en að ég er að vinna með sjónræna upplifun á frásagnarkenndan hátt án þess að segja of mikið. Ég gef ýmislegt í skyn en svo er það bara áhorfandans að taka ákvörðun, ákveða hvert ég er að fara með þetta.“ Sjálf hefur hún auðvitað sínar hugmyndir um þetta allt saman en henni finnst mikilvægt að gefa áhorfandanum frelsi til að upplifa verkið. „Ég lærði á flautu en hætti því og fór að semja mína eigin tónlist á píanó,“ svarar hún aðspurð um tónlistina. „Ég sem tónlistina al- gjörlega á mínum forsendum því ég hef ekkert lært í þeim efnum. Ég leyfi þessu bara að njóta sín á sinn hátt og vinn þetta bara af fingrum fram.“ Doddu Maggý dreymir um að komast í kvikmyndanám og bíður svara frá erlendum skólum. „Það er kominn tími til að vinna að viða- meiri verkum og þá með fólki,“ segir hún en fram að þessu hefur hún unnið ein að verkum sínum. Og hún lætur vel af árunum þremur í LHÍ. „Þetta er rosalega góður skóli. Námið er þroskandi og maður finnur eftir þriðja árið hvað maður vissi í raun lítið þegar mað- ur byrjaði.“ Sjónum beint að myndmáli „Sleppur oft en naumlega“ er yfirskrift verks Gerðar Guð- mundsdóttur og það birtist á nokkrum veggspjöldum, forsíðum dagblaða og tímarita og á umbúð- um. „Ég er að skoða hvaða áhrif út- lit og myndmál hafa á skilning okk- ar og meðtöku á skilaboðum,“ segir Gerður. „Ég vann fyrst með Morg- unblaðið, DV og Fréttablaðið og skoðaði mismunandi leturgerðir blaðanna og velti fyrir mér hvaða merkingu blöðin vildu ná fram. Síð- an tók ég tímarit og loks þekktar auglýsingar og umbúðir.“ Inn á alla þessa fleti hefur hún skeytt orðun- um „sleppur oft en naumlega“ og það er áhorfandans að skoða, spegúlera og móta afstöðu. „Ég sá þessi orð í frétt í Frétta- blaðinu. Þetta var fyrirsögn fréttar um Osama bin Laden en ég var bara að leita að fyrirsögn sem væri almenn og gæti átt við margt.“ Með því að nota alltaf sömu setninguna í mismunandi sam- hengi vill Gerður færa fólk frá orð- unum sjálfum og beina sjónum áhorfenda að myndmálinu. „Hug- myndin er að fólk velti fyrir sér hvernig við meðtökum mismun- andi útlit.“ Sjálf er hún fámál þegar hún er spurð hvort henni finnist margt af þessu sleppa naumlega en segir þó: „Ég er líka að velta fyrir mér klisj- um í grafískri hönnun og í mynd- máli almennt. Af hverju er alltaf svipað útlit þegar verið er að aug- lýsa sömu eða svipaða hluti? Kannski þetta þjóni bara allt sínum tilgangi, kannski undirmeðvitundin spili þarna inn í, við búum kannski yfir lærðri þekkingu á útlit.“ Gerður segir námið hafa verið lærdómsríkt og skemmtilegt en framtíð hennar er óráðin. „Ætli ég vinni ekki smá og læri svo meira. Það er alltaf hægt að læra meira. Ég held ég verði aldrei búin að því.“ Útskriftarsýning LHÍ opnar í dag klukkan 14.00 og stendur til 31. maí. Opið er daglega frá 10-17 og aðgangur er ókeypis. bjorn@frettabladid.s Forvitni, skilningur, áræðni... Ferskleiki og fjölbreytni er í fyrirrúmi í Listasafni Reykjavíkur, Hafnarhúsi þar sem útskriftarnemar úr myndlistardeild og hönnunar- og arkitektúrdeild Listaháskóla Íslands sýna verk sín. Allt er leyfilegt og greinilegt að listafólk framtíðarinnar er í meira lagi hugmyndaríkt. ÁN TITILS Hluti af verki Halldóru Óla, áhorfandi sest í stól, hlýðir á hljóð og horfir á skyggnimyndir. GARÐARSHÓLMI Böðvar Gunnarsson við ljósmyndirnar sem hann tók á ferðalagi sínu um landið. Á IÐI Margs gætir í verki Doddu Maggýar sem bæði vinnur með hljóð og mynd. SLEPPUR OFT EN NAUMLEGA Gerður Guðmundsdóttir spyr hvaða áhrif útlit hefur á merkingu skilaboða. FRÉTTAB LAÐ IÐ /STEFÁN Ég var því að kynn- ast landinu í fyrsta sinn, hafði bara séð Akra- nes, höfuðborgarsvæðið og Reykjanesskagann áður. ,, 30/43 (30-31) LHÍ 14.5.2004 15:20 Page 2
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.