Tíminn - 21.12.1972, Blaðsíða 1
KÆLISKÁPAR
RAFTORG
SÍMI: 26660
RAFIÐJAN
SIMI: 19294
* * *
____________________________<
/■
V
IERA
kæii-
skápar
JO/kí A/
RAFT/EKJADEILD
Hafnarstræti 23
Simar 18395 & 86500
✓
Þrumur og eldingar um Suðurland
Elding rauf rafstraum frá Búr-
fellsvirkjun tvívegis í gær, og
sums staðar rofnaði símasamband
í gær geröi ofsaveður við suður-
ströndina og var hvassviðri um
allt sunnan og vcstan vert landið.
Fylgdu þessu veðri þrumur og
eidingar á Suðuriandi, og laust
eldingu tvivegis niður i raflinuna
frá Búrfellsvirkjun — f fyrra
skipti rétt upp úr hádeginu og i
siðara skiptið að áliðnum degi.
Hétt um hádegið snerist vindur
i suður og útsuður og fylgdu þeim
veðrabrigðum miklar þrumur. t
Reykjavik heyrðist þó ekki ein
þruma, sem að kvað, en hún var
svo öflug, að allt ætlaði um koll að
keyra og var þvi likast sem ógur-
leg sprenging hefði orðið rétt við
húsveggina.Litlu siðar var það,
að eldingunni laust niður i raflin-
una, að austan, og varð raf-
magnslaust á öllu orkuveitu-
svæðinu nema á litlum bletti i
Reykjavik, er fékk rafmagn frá
Elljðaárstöðinni. Var viða á
svæðinu rafmagnslaust i klukku-
stund, en þó mun skemur i
Reykjavik. Siðari hluta dagsins
laust enn niður ejdinguna í linuna,
eins og áður er sagt, en þá svo
austarlega að rafmagn frá orku-
verunum við Sogið barst ótruflað
vestur yfir. Var enn rafmagns-
laust austan fjalls á sumum stöð-
um i gærkvöldi.
Sums staðar á Suðurlandi rofn-
aði simasamband einnig i þessum
látum, og viða mjög erfitt að ná
simasambandi, þótt ekki væri
sambandið með öllu rofið.
Þetta ólátaveður fylgdi i kjölfar
lægðar, er var að fara hjá i gær.
Bæjarbruni í
Rangárþingi
í þrumuveðrinu, sem dundi yfir
Suöurland i gær, er út i gekk um
hádegisbilið, virðist eldingu hafa
lostið niður i bæjarhúsin að Sand-
hólaferju við Þjórsá, og brunnu
þau til kaldra kola á skammri
stundu. Sandhólaferja er eign
þýzks manns, Ulrichs Marths,
sem rekur fyrirtæki i Reykjavik,
Baader-þjónustuna, en notar
jörðina til hagagöngu fyrir hross,
Lokuðu
búðum i
myrkrínu
Sumir kaupmenn i Reykja-
vik gripu til þess ráðs, er raf-
magnslaust varð i gær i miðri
jólaösinni, að loka hreinlega
búðum sinum, svo að þeir ættu
ekki á hættu, að þjófar gerðu
sig þar heimakomna.
Nokkuð mun hafa borið á
gripdeildum áður, þegar likt
stóð á, svo að menn vita orðið,
hvaða viðbrögð eru skynsam-
legust.
og var enginnmaður á bænum er
hann brann.
Upp úr hádeginu i gær gengu
yfir hörð él i Rangárvallasýslu
með miklum þrumum og elding-
um. Um eittleytið urðu skruðn-
ingar miklir með Ijósagangi i As-
múla, næsta bæ við Sandhóla-
ferju, og heyrði fólk þar, að eitt-
hvað féll niður. Þegar að var
gætt, sást að lok hafði hrotið af
öryggiskassa, sem er i sambandi
við simalögn, og var allt sviðið
þar bak við og kviknað i glugga-
tjöldum.
Ekki urðu óhöpp meiri á þeim
bæ, en litlu siðar sást frá Asmúla,
að tekið var að rjúka i Sandhóla-
ferju. Með þvi að simasaynband
hafði rofnað i þessum gaura-
gangi, var fljótt við brugðið og
ekið að Meiritungu til þess að
kalla á slökkvilið frá Hellu og
Hvolsvelli.
Mjög samtimis og þetta gerðist
hafði fólk á bæjum i Villingaholts-
hreppi séð, að kviknað myndi i á
Sandhólaferju, og var simað það-
an til Selfoss. Frá Selfossi var svo
aftur simað austur i kauptúnin
rangæsku til þess að segja tiðind-
in, örskömmu áður en sendimað-
ur frá Ásmúla kom að Meiri-
tungu.
Slökkvisveitir fóru niður aö
Sandhólaferju, bæði frá Hvols-
velli og Hellu, en fengu ekki að
Framhald á bls. 23
Allt gengur úr skorðum, ef rafmagnið bregzt. Hér sjásl afgreiðslumenn i bcnsinstöðvum handdæla á
hfla. —Timamynd: Kóbert.
Dögum / órinu fjölg-
að i fjögur hundruð
um reist hér gluggalaust stál-
grindahús, þar sem gera á til-
raunir, sem miða að þvi að fjölga
varpdögum hænsna, sagði Þórar-
í nýju tilrauna-hænsnahúsi í Laugardælum
Réttlæti mannskepnunnar er
talsvcrt dyntótt. Ilún er sifcllt að
stytta vinnutima sjálfrar sin og
fækka vinnudögunum. En svo
gctur annað verið upp á teningn-
um, þegar við þá er að eiga, er
cngin hafa hagsmunasamtökin.
Það cr til dæmis með hænsnin:
Nú er það helzt i bigerð að fjölga
dögunum i árinu hjá þcim i þvi
skyni að fá fleiri varpdaga.
Það mun vera japönsk upp-
götvun, að slikt sé gerlegt, og að-
ferðin sú að taka stjórnina af
himintunglunum og láta þau ekki
lengur ráða mörkum dags og næt-
ur. Gerviefnin hrúgast upp i kring
um okkur, og nú á aö taka upp
gervidaga og gervinætur i heimi
blessaðra varpfuglanna.
Völdin tekin af
himintunglunum
— Það er alveg rétt — við höf-
inn Sigurjónsson, bústjóri i
Laugardælum. Húsið er haft
gluggalaust. svo að við höfum
Framhald á bls. 23
Það cr sizt að furða, þótt hænsnunum þyki tiðindum sæta, að nú skuli
eiga að stytta sólarhringinn og fjölga dögunum.
Fæst íhaldsmeirihlutinn til að
draga úr skattheimtu íReykjavík?
TK—Reykjavik.
Meðal tiliagna, sem minni-
hlutaflokkarnir i borgarstjórn
Reykjavikur leggja fram við
afgreiðslu fjárhagsáætlunar
Reykjavikurborgar fyrir árið
1973, er tillaga um, að við
álagningu fasteignaskatta og
útsvara á Reykvikinga á
næsta ári skuli hvorki leggja
50% álag ofan á löghoðna fast-
eignaskatta né 10% álag ofan
á löghoðin útsvör, eins og
meirihluti Sjáifstæðisflokks-
ins ákvaö á þessu ári.
Eins og kunnugt er jók
ihaldsmeirihlutinn i borgar-
stjórn framlög til verklegra
framkvæmda um 100% á
þessu ári til að geta rökstutt
það, að notaðar væru allar
heimildir til aukaálags á út-
svör og fasteignaskatta á
Reykvikinga. Siðan var
rikisstjórninni eignuð aðför að
Reykvikingum og óhófleg
skattpining um leið og þvi var
haldið fram, að helzta mein-
semd efnahagslifsins væri of-
þensla i framkvæmdum!
Á borgarstjórnarfundi i
kvöld kemur i ljós hverjir það
eru, sem vilja draga úr skatt-
heimtu á hendur Reykviking-
um, og hverjir þ?ð enj. sem
vilja draga ur olþenslu með
þvi að stilla framkvæmdum
opinberra aðila i h"f cji
nánar á Viöavangi bis. 3.