Tíminn - 22.12.1972, Blaðsíða 17

Tíminn - 22.12.1972, Blaðsíða 17
Föstudagur 22. desember 1972 TÍMINN 17 Umsjón Alfreð Þorsteinsson Voru með aðra löpp ina á Wembley — leik Norwich og Chelsea frestað, þegar 3 mín. voru til leiksloka Það voru ekki ánægðir leikmenn Norwich, sem yfirgáfu heimavöll sinn á miðvikudagskvöldið, enda ekki nema von, þá vantaði aðeins þrjár mínúturtil að komast til Wembley, þar sem úrslita leikur deildar- bikarins fer fram. Norwich og Chelsea léku siðari leik sinn i undanúr- slitum deildarbikarsins á miðvikudagskvöldið, en fyrsti leikur liðanna, sem var leikinn á Stomford Bridge i Lundúnum, lauk með sigri Norwich 2:0. Liðið hafði yfir 3:2 á miðvikudagskvöldið og voru þá aðeins þrjár min. til leiksloka. Þá flautaði dómarinn leikinn af og honum var hætt vegna þoku. Tottenham og Úlfarnir léku einnig i undanúrslitunum á miðvikudagskvöldið, það var fyrri leikur þeirra ogfórhann fram i Wolverhampton á Molineux. Lauk leiknum með sigri Tottenham, sem skoraði tvö mörk gegn einu. Mörk Spurs skoruðu Peters og Pratt. Tíminn er peningar | Auglýsitf | iTlmanum „IIOLA i HÖGGI”! . . . hér á myndinni sjást golfspilararnir, sem fengu verðlaun fyrir að liafa slcgið holu i höggi, ásamt Sveini Björns- syni og Páli Asgeiri Tryggvasyni, formanni Golfsambands islands. Talið frá vinstri: Páll Asgeir Tryggvason, Eirikur Smith (GH), Gisli sigurðsson (GlU Högni Gunnlaugsson (GS), Sveinn Björnsson, Bogi Þorsteinsson (GS), Eirikur Ilelgason (GR) og Óðinn Geirdal (GL, Akranesi). A myndina vantar Martein Guðjónsson (GV, Vestmannaeyjum). (Timamynd Gunnar). VORU VERÐLAUNAÐIR FYRIR„DRAUMAHÖGGIÐ"! — Sveinn Björnsson, stórkaupmaður verðlaunaði sjö kyifinga, fyrir að hafa slegið holu í höggi Það eru ekki allir, sem geta slegið holu í höggi — það þarf snillinga í golfi til að ná þeim árangri. Á mið- vikudaginn voru komnir sex snillingar saman á heimili Sveins Björnssonar, stórkaupmanns, til að taka á móti veglegum verðlaun- um fyrir árangur sinn. Fengu þeir gullúr frá Omega og fagra styttu með golfkúlu á — um leið voru þeir orðnir meðlimir í einu af minnstu félagssamtök- um á iandinu, þau nefnast EINHERJI. Golfklúbbur- inn Einherji hefur aðeins á aðskipa þeim mönnum (25- 30), sem hafa slegið holu í höggi. I hófinu heima hjá Sveini af- henti hann eftirtöldum mönnum hin veglegu verðlaun: Högna Gunnlaugssyni, Eiriki Helgasyni, Boga Þorsteinssyni, Óðni Geir- dal, Eiriki Smith og Gisla Sig- urðssyni. Marteinn Guðjónsson, sem átti að fá verðlaun, komst ekki frá Vestmannaeyjum. Eftir verðlaunaafhendinguna hélt Páll Ásgeir Tryggvason, formaður Golfsambands tslands, stutt ávarp og þakkaði Sveini þann mikla höfðingsskap, sem hann hefur sýnt golfiþróttinni. Þá af- henti Sigurjón Hallbjörnsson Sveini skemmtilega vatnslita- mynd eftir Eirik Smith, sem sýndi golfspilara slá holu i höggi og um hvaö hann hugsaði, þegar kúlan lenti i holunni, en það var að sjálfsögðu um Svein Björnsson og verðlaunin, sem hann veitir fyrir afrekið. Til gamans má geta þess, að meðan á verðlaunaaf- hendingunni stóð, þá slökknuðu ljósin, svo að það þurfti að af- henda verðlaunin við kertaljós. Golfmennirnir létu það ekkert á sig fá, heldur héldu áfram af full- um krafti. Aðspurður sagði Sveinn Björnsson, — ,,að hann hefði gefið fyrstu verðlaunin fyrir fimm ár- um og að það væru milli 25-30 golfspilarar, sem hafa fengið þau og um leið orðið meðlimir Einherja. Fyrsti tslendingurinn, sem fór holu i höggi, var Ásgeir Ólafsson,og vann hann afrekið á gamla golfvellinum á öskjuhlið 1942”. Þegar við spjölluðum við Boga Þorsteinsson, fyrrverandi for- mann Körfuknattleikssambands tslands, yfir veitingum sagði verðlaunaafhendinguna, sagði hann okkur, að hann hefði einu sinni áður slegið holu i höggi, það var úti á Spáni 1968 — höggið var ekki tekið gilt, þvi að það var slegið erlendis. Bogi er mikill áhugamaður um golf og hefur hann leikið golf viðs vegar um heiminn. Að lokum má geta þess, að stjórn Einherja er að undirbúa nýjarreglur um holu i höggi. Þar sem það færist i aukana, að menn slái holu i höggi.og þátttakendur i golfi eru orðnir svo margir á landinu, er fyrirhugað, að aðeins þeir, sem slá holu i höggi i opinberri keppni, fái verðlaun fyrir árangur sinn. —SOS r Félagsbúningar íslenzku og ensku félaganna FISCHER SKÍÐI SPORT&4L cHEEMMTORGl Gönguskíði og allur annar skíðaútbúnaður LANDSINS MESTA ÚRVAL Félagsmerki, veifur og fánar Myndir af öllum þekktustu brezku knattspyrnumönnunum og félögunum Pósfsendum Sportval 1 Hlemmtorgi — Simi 14390

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.