Tíminn - 07.03.1973, Blaðsíða 1
[uotellof™/?]
FUNDARSALIR
,,Hótel Loflleiðir" miðast við þarfir
alþióðaráðstefna og þinga, þar sem
þýða þarf ræður manna jafnharðan
á ýmis tungumál.
LITIÐ Á SALARKYNNI HOTELS
LOFTLEIOA — EINHVER ÞEIRRA
MUN FULLNÆGJA ÞÖRFUM
YÐAR.
V.
Skorið aftan úr átta
sama sólarhringinn
Statesman hvarf
af miðunum
Vestmannaeyjasöfninin:
ÁTTA MILLJÓNIR
FRÁ SOVÉZKA RK
ÞÓ, Reykjavík — Það er ekki
hægt að segja annað, en tiðinda-
samt hafi verið á miðunum
norður af Rauðanúpi á Sléttu
siðasta sólarhring, þvi þar hafa
isienzku varðskipin klippt átta
sinnum á vira brezkra togara,
auk þess sem Ægir hlcypti af
púðurskotum I eitt skipti. Bretar
eru að vonum illir yfir þessum
aðgerðum varðskipanna, og
reyndu margir brezkir togarar
að sigla Ægi niður I fyrrinótt.
Viraklippingarnar byrjuðu á
tiunda timanum I fyrramorgun
eftir sex vikna hlé. Eftir það
hefur alltaf eitthvað verið að
gerast á miðunum. Um klukkan
18 I fyrrakvöld voru varðskipin
búin að klippa á vira fjögurra
brezkra togara, og að sögn Haf-
steins Hafsteinssonar, blaðafull-
trúar Landhelgisgæzlunnar, skar
svo varðskipið óðinn á báða vira
brezka togarans Real Madrid GY
674, um klukkan 22.35 i fyrra-
kvöld, þar sem togarinn var að
veiðum 30 sjómflur norður af
Melrakkasléttu.
Um klukkan tvö i fyrrinótt
gerðu margir brezkir togarar
samtimis tilraun til að sigla á
varðskipið Ægi, en án árangurs.
Það vakti furðu varðskips-
manna i fyrrinótt, að dráttar-
báturinn Statesman, sem á að
vera brezkum togurum til
verndar, hvarf af miðunum um
miðnætti
Svo var það um klukkan 9.25 i
gærmorgun, að Ægir skaut
tveimur púðurskotum að
Brucella H 291, eftir að togarinn
hafði margsinnis reynt að sigla á
varðskipið. En þess er skemmst
að minnast, að þann 28. desember
siðastliðinn sigldi þessi sami tog-
ari á á skut varðskipsins Óðins,
og við það skemmdist varðskipið
talsvert.
Ægir var ekki fyrr búinn að losa
sig við Brucella, en hann skar á
annan togvir St. Cap H 20, þar
sem togarinn var að veiðum 28
sjómilur norður af Rauðanúp-. Og
skipsmenn Ægis létu ekki þar við
sitja, þvi að klukkan 10.30 skar
Ægir á togvira Ross Kelvin GY
Framhald á bls. 13
Þessi loftmynd var tekin af Vestmannaeyjum I heiðskiru veðri I fyrra
dag, og sést glöggt á henni, hvernig hraunið gengur I sjó fram —
svart næst gosstöðvunum og hinni fyrri strönd Heimaeyjar, en
sveipað gufumekki, er lengra kemur fram. Landaukinn nemur 1,6
ferkilómetrum. Ljósmyndir: Landmælingar islands.
SENDIHERRA Sovétrikjanna
Svergei T. Astavin, kom I
morgun á fund Ólafs Jóhannes-
sonar forsætisráðherra og skýrði
honum frá þvi, að Rauði kross
Sovétrikjanna hafi ákveðið að
gefa Rauða krossi islands 60
þúsundrúblur (um 8 milljónir) til
hjálparstarfs vegna náttúruham-
faranna i Vestmannaeyjum.
Forsætisráðherra barst einnig
bréf frá atvinnurekendasam-
tökum Noröurlanda, ásamt
ávisun að upphæð 400.000
danskar krónur (um 6,2 milljónir
króna) sem framlag i viðlagasjóð
vegná hjálparstarfsins i Vest-
mannaeyjum.
Ennfremur hefur forsætisráð-
herra borizt, um hendur Hall-
grims F. Hallgrimssonar, aðal-
ræðismanns, 25.000 dollara (um
2.4milljónir króna) framlag i við-
lagasjóð frá landshlutastjórn
British Columbia I Kanada.
Þá hefur forsætisráðherra
einnig borizt bréf frá fram-
kvæmdastjórn firmans Jóhns-
Manville Corporation, þar sem
skýrt er frá þvi, að firmað hafi
ákveðið að leggja fram lOþúsund
Bandarikjadollara (um 960
þúsund krónur) i söfnun Ameri-
can Scandinavian Foundation til
viðlagasjóðs
Forsætisráðherra hafa borizt
mörg fleiri, smærri og stærri,
framlög til viðlagasjóðs vegna
hjálparstarfsins i Vestmanna-
eyjum. Hefur hann þakkaö þessar
gjafir og þá vinsemd og þann
skilning, sem gjafirnar bera vott
um.
Hér séstströndin eins og var áður
en gosið I Heimaey hófst og
hraunið rann I sjó fram.
Verðlauna-
keppni
sölubarna
Tímans
HJA TIMANUM er alltaf
eitthvað nýtt á prjónunum.
Um næstu helgi hefst sölu-
keppni barna, sem selja
blaðið I lausasölu, og mun
keppnin standa I þrjá
mánuði. Þau börn tvö, er
atorkusömust reynast við
söluna, fá i verðlaun ferð til
Kaupmannahafnar, þar sem
meðal annars verður komið i
Tívoli og dýragarðinn. En
auk þess verða smærri verð-
laun, er seinna verður tekin
ákvörðun um.
Þessi keppni er miðuð við
sölu á laugardags- og sunnu-
dagsblöðum Timans, og mun
hefjast þegar næsta laugar-
dag, og stendur fram i júni-
byrjun. Börn, sem eiga
heima i úthverfum Reykja-
víkur, geta fengið blöð flutt
heim til sin — laugardags-
blaðið snemma laugardags-
morguns og sunnudagsblaðið
að kvöldi laugardags. Um
allt, sem lýtur að þessari
keppni, má snúa sér til
afgreiðslu Tfmans I Banka-
stræti eða hringja i sima
12504 eða 12323.
Eins og áður er tekið fram,
verður tveim börnum, sem
drýgst reynast, boðið til
Kaupmannahafnar, og
verður maður frá Timanum
þeim til samfylgdar. Farið
verður héðan á föstudegi og
komið aftur á mánudegi.
Eltir eins
og þægur
hundur
KJ, Reykjavik — Hann fylgir
okkur eins og þægur hundur,
sagði Kristján Arnasonskipstjóri
á björgunarskipinu Goðanum i
viðtali við Timann i gær, en
Goðinn var þá með vélbátinn
Framnes i togi undir Jökli, og
var ferðinni heitið suður i Njarð-
vikur, þar sem Framnes veröur
tekið i slipp.
Veörið er nú heldur leiðinlegt,
sagði Kristján ennfremur, þvi
hann er beint á móti. Kristján
sagði, aö vel hefði gengið aö ná
bátnum á flot á flóðinu i
gærmorgun. Voru þeir búnir að
ná bátnum út um klukkan hálf
sjö, og höfðu þá togað i hann i
hálfiima. Búið var að gera rás
aftan við bátinn, og auðveldaði
það björgunina. Taugin, sem
notuð var við að ná Framnesi út,
var 900 metra löng.
Þegar báturinn var dreginn á
flot, skemmdist stýrið, og fyrir
varvélinbiluð, svoaðGoðinn dró
Framnes bæði vélarvana og
stýrislaust til Njarðvikur.
Þegar báturinn var dreginn á
flot, voru fjórir menn um borð,
skipstjórinn, stýrimaður og vél-
stjóri auk fulltrúa frá trygginga-
félagi skipsins.
Páll Andrésson kaupfélags-
stjóri á Þingeyri sagði i viötali
við blaðið, að vonazt væri til, að
Framnesið gæti hafið róðra á ný i
næstu viku, en eftir væri að taka
skipið i slipp og skoða það vel
eftir strandiö.