Tíminn - 28.03.1973, Blaðsíða 1

Tíminn - 28.03.1973, Blaðsíða 1
wotel mimifí „Hdtel Loftlelðir býður gestum slnum að velja á mllll 217 herbergja með 434 rúmun — en gestum standa llka Ibúðlr til boða. Allur búnaður mlðast við strangar kröfur vandlátra. LOFTLEIÐAGESTUM LIÐUR VEL. v Björn Pálsson llallgrimur Magnússon. Knútur óskarsson. Ilaukur Claessen. rtlafur Júliusson. Flugvélin hrapaði norðan Langjökuls, aílir látnir TF-VOR fannst snemma í gærmorgun skammt noröur af Langjökli. Fimm menn voru i flugvélinni og voru þeir allir látnir. Þeir voru Björn Pálsson, flugmaður, 65 ára, hann lætur eftir sig konu og fjögur uppkomin börn. Knútur óskarsson, flugmaður, 33 ára. Hann lætur eftir sig konu og þrjú ung börn. Haukur Claessen, settur flugmálastjóri. Hann varð 55 ára daginn sem hann lézt. Hann lætur eftir sig konu og þrjú börn. ólaf- ur Júlíusson, bygginga- fræðingur 49 ára. Hann læt- ureftirsig eiginkonu. Hall- grímur Magnússon, tré- smiður, starfsmaður flug- málastjórnarinnar, 53 ára. Hann lætur eftir sig konu og þrjú uppkomin börn. Klukkan 6.00 i gærmorgun lögðu 12 flugvélar af stað frá Reykjavik til leitar og tvær þyrl- ur frá Keflavikurflugvelli. Leitarflokkar á snjóbilum og sleðum lögðu einnig af stað fyrir birtingu. Þegar lýsti af degi voru leitarflugvélarnar komnar á svæðið. Klukkan 8.40 tilkynnti önundur Jóhannsson, flugmaður á TF-EGG, að hann hefði komið auga á flak týndu flugvélarinnar. Var það i afliðandi halla i Búr- fjöllum, skammt norðaustur af Hundavötnum, sem eru norður af Langjökli. Þyrlunum var beint að staðnum og lenti hin fyrri þeirra hjá flakinu kl. 8.55. Skömmu siðar tilkynnti áhöfn þyrlunnar að eng- inn um borð i TF-Vor hefði komizt lifs af. Hin þyrlan lenti einnig hjá flak- inu og nokkru siðar kom snjóbill björgunarsveitarinnar Blöndu á Blönduósi á staðinn. Lik mann- anna voru flutt i þyrlunum til Reykjavikur. Flugvélin er i heilu lagi en mik- ið brotin. Rannsókn á flugslysinu stendur yfir og hafa flugmála- yfirvöld ekkert látið uppi um or- sakir þess, en að þvi er kunnáttu- menn telja, hefur snögg og mikil ising valdið þvi, að vélin missti flugið og hrapaði. Engin för eru umhverfis vélina og hefur hún fallið flöt til jarðar. Siðast heyrðist i taístöð flug- vélarinnar er hún var suður af Löngumýri og var hún þá i 11 þús- und feta hæð á eðlilegri flugleið. Nokkru áður hafði flugvél frá Flugfélagi fslands tilkynnt um is- ingu vestan þessa svæðis. Flug- umferðarstjórn lét flugmennina á TF-Vor vita um isingarhættuna, en þá var allt i lagi um borð i flug- vélinni. Um þetta leyti voru veðramót að ganga yfir og var TF-VOR einmitt i veðraskilunum þegar hún hrapaði, um kl. 13.00. Þá var þarna suðvestanátt og slydduhrið. Þegar vélin missti hæð vegna isingarinnar lenti hún i niðurstreymi af jöklinum og hef- ur það gert ástandið enn verra. Þegar er flugvélarinnar var saknað á mánudag hófu flugvélar ieit og björgunarsveitir voru undirbúnar. Leit úr lofti var erfið. Veðurskilin gengu austur yfir og smám saman var hægt aö leita lengra inn til landsins en timinn var takmarkaður vegna þess hve birtu naut skammt. Þó var hægt að fljúga allt inn að Langjökli og norður af honum, en ekki sást til jarðar, þar sem flugvélin siðar fannst. En að minnsta kosti ein leitarflugvél komst mjög nærri þvi svæði, eða allt austur að Hundavötnum, en þar austur af sá ekki til jarðar. Þegar leitin hófst i gærmorgun var lágskýjað og gekk á með élj- Frh. á bls. 15 Nefnd sú, er rannsakar flugslysið, leggur af staö meö þyrlu á slysstaö- inn. Timamynd GE. Þessi mynd var tekin kl. 10.30 f gærmorgun af slysstaðnum. Neöst til vinstri er flak TF-VOR. Er vélin brotin aftan viö vængina. Engin för eru umhverfis flugvélina og hefur hún skollið beint niður. Við flakið er snjóbill björgunarsveitarinnar Blöndu. Þyrlurnar eru fjær. Timamynd Róbert.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.