Tíminn - 29.03.1973, Blaðsíða 1
WOTEL mLEMHR
„Hótel Loftlelðlr býður gestum
slnum að velja á mllll 217 herbergja
með 434 rúmun — en gestum
standa lika Ibúðir til boða.
Allur búnaður miðast við strangar
kröfur vandlátra.
LOFTLEIÐAGESTUM LIÐUR VEL.
V
/
Meirihluti aflans
hjá tveim brezkum
togurum smáfiskur
„Dæmi um veiðar eins og þær eiga ekki að vera"
sagði Ingvar Hallgrímsson fiskifræðingur
ÞÖ, Reykjavík. — Miklar
deilur urðu í Grimsby í
gær, þegar togararnir
Ross Revenge GY 718 og
Prince Philip GY 138 voru
'búnir að landa afla sin-
um. Ross Revenge land-
aði 390 lestum af þorski og
þar af voru 280 lestir
ókynþroska smáþorskur.
Af afla Prince Philip
reyndust 160 lestir vera
ókynþroska smáfiskur.
Þegar þetta varð ljóst, lét Jón
Olgeirsson umboðsmaður is-
lenzkra togara i Bretlandi, hafa
það eftir sér, að það væri meðal
annars af þessari ástæðu, sem
Islendingar hefðu fært út land-
helgina i 50 sjómilur.
Jack Evans, formaður
brezkra togaraskipstjóra,
sagði, að ummæli Jóns væru al-
gjör þvættingur. A sumum mið-
um fengist ekki annar fiskur, og
að auki yrði þorskurinn ekki öllu
eldri á sumum miöunum viö Is-
land.
Vegna þessa leitaði Timinn til
Landhelgisgæzlunnar og fékk
upplýst hvar togararnir hefðu
aðallega haldið sig að veiðum i
siðustu veiðiferð. Kom i ljós, að
Ross Revenge hafði verið norð-
ur af Rauðanúpi dagana 9.-11.
marz, en þar fékk hann litinn
frið fyrir varðskipunum. Á
timabilinu frá 14.-20. marz var
vitað um báða togarana á veið-
um á Hornál og á Kögurgrunni,
og voru þar þá engin islenzk
skip.
Þá leituöum við til Ingvars
Haiigrimssonar fiskifræðings
og báöum hann að segja álit
sitt á þessu máli. Hann sagði,
að sem kunnugt væri, þá væru
mikil smáfisksvæði úti af Mel-
rakkasléttu og islenzkir fiski-
fræðingar hefðu oftar cn einu
sinni reynt að fá þetta svæði
friðiýst fyrir botnvörpu, en án
árangurs.
Ingvar sagði ennfremur, að
siðla vetrar og snemma á vor-
in gengi smár og ókynþroska
Hér sjáum viö togarann Ross Revenge GY 718. Þessi stdri
togari hét áður Freyr RE 1. Þessi togari var seldur til
Bretlands ekki löngu eftir aö hann kom til landsins. Syst-
urskip Ross Revenge er togarinn Siguröur og sá togari
hefur verið einn sá aflasælasti
þorskur oft á miðin við norð-
anverða Vestfirði. Þessi fiskur
cr yfirleitt ekki eldri en
þriggja til sjö ára, og er þvi
ekki orðinn kynþroska. —
„Þetta er dæmi um veiðar
eins og þær eiga ekki að
■ vera”, sagði Ingvar.
Ilann sagði ennfremur, aö
það væri löngu kunnugt, að
Bretar veiddu óhemju smá-
eigu tslendinga.
fisks á islandsmiöum. Árið
1966 hefðu Brctar veitt 30% af
þvi bolfiskmagni, sem veiðzt
hefði við tsland. En ekki væri
öll sagan sögð. Bretar hefðu
veitt meira en helming þeirra
fiska að tólu til sem fengjust
hér við land og á þessu sæist
hvilik rányrkja þaö væri, sem
brezkir sjómenn stunduðu á
tslandsmiðum.
STÖÐUGT er unnið viö brúarsmiðina á Skeiðarársandi, og er þarna um mikil mannvirki aö ræða. Eins og sjá má á myndinni er hér um að ræða
stálbitabrýr á steyptum undirstöðum. Bráðabirgðabrú var gerð á Núpsvötn, meðan á brúarsmiöinni stendur, en þegar brýrnar verða
fullgerðar, verður Núpsvötnum og Súlu veitt saman undir brúna á myndinni (Tlmamynd EV)
Takmarkinu er náð
Loðnuaflinn 400 þúsund lestir — Guðmundur með 15 þús.
ÞÓ, Reykjavík. — „Nú er
takmarkinu nóö. Við vor-
umbúnir að segja, að við
myndum ekki yfirgefa
bækistöðvar okkar fyrr en
hei Idarloðnua f linn væri
kominn í fjögur hundruð
þúsund smólestir, og nú
getum við slegið því föstu,
að heildaraflinn sé kominn
nokkurtonn umfram það",
sagði einn mannanna i
Loðnulöndunarnefnd, er
við ræddum við hann í gær
Hann sagði ennfremur, að þeir i
nefndinni hefðu reyndar verið
hálfhræddir við þetta verkefni,
sem þeim var falið i fyrstu. — En
við höfum reynt, að sigla milli
skers og báru, og reynt aö gera
okkar bezta, sagði hann. Það geta
vist allir verið sammála þessum
nefndarmanni, þvi að öllum ber
saman um, að Loðnulöndunar-
lefndhefur fyllilega staðið i stykk-
inu, og sú ákvörðun nefndarinnar,
að grei&a háa flutningsstyrki til
fjarlægra hafna, hefur ugglaust
orðið til þess, að mun meira
loðnumagn barst á land, en heföi
orðið, ef sama verð hefði verið til
allra staða á landinu, hvort sem
siglingin hefði tekið einn tima eða
einn sólarhring.
I fyrstu voru greiddar 1.96
krónur fyrir hvert kiló loönu upp
úr sjó, en siöan lækkaði það nokk-
uð. Fyrir hvert loðnukiló, sem fór
til frystingar voru greiddar sjö
krónur, og ofan á hvert kiló var
greitt mismunandi mikið i
flutningsgjald. Er þvi óhætt að
áætla, að verömæti loðnunnar
nemi að þessu sinni 800 milljónum
króna. Gert er ráð fyrir, aö þegar
búið er að vinna loðnuna, þá verði
hún helmingi verðmeiri, og ætti
þvi útflutningsverðmæti loðnuaf-
urða ekki að vera undir 1700-1800
milljónum að þessu sinni.
Sæmileg loðnuveiði var við
Reykjanes og öndverðanes f gær.
Vitaö var um Gisla Arna á leið til
lands með 320 tonn, Pétur Jóns-
son með 340 tonn, Óskar Magnús-
son var kominn með 400 tonn er
siðast var vitaö og Eldborg var
langt komin með að fylla sig.
Aflahæsti loðnubáturinn Guð-
mundur RE 29 landaði 630 tonn-
um á Siglufirði i gær, þegar bát-
urinn var búinn að landa þvi
magni, vantaöi hann aðeins tvö
tonn i 15.000 tonnin að sögn Páls
annars eiganda bátsins.
Dælur
og 2 km,
afpípum
á leið
til Eyja
KJ-Reykjavik Hægt og sigandi
veltur hrauniö I Vestmannaeyj-
um fram, en jafnframt er á leiö-
inni til Eyja mikill dælubúnaður,
sem fenginn var frá Bandarfkjun-
um. Fjórðungur búnaðarins er
þegar kominn til Eyja, og fariö að
nota hann, en afgangurinn kemur
með skipi frá Keflavik I dag, svo
það verður varla fyrr en undir
eöa um helgina sem fullur kraftur
veröur kominn á dælinguna.
Fiskvinnsluhús Isfélagsins og
Fiskiðjunnar eru nú í mikilli
hættu, og var unnið að þvf i gær,
að flytja allt lauslegt sem eftir
var úr húsunum.
Þegar sýnt þótti, að hraunið
myndi þá og þegar ná að Vél-
skólanum, var farið i það að
bjarga vélum og áhöldum úr
skólanum. Fyrir harðfylgi tókst
að bjarga gamalli og merkilegri
vél úr skólanum, áður en hann
brann. Eldur komst f húsiö
Borgarhól siðari hluta dags i gær,
og þannig brenna þau eitt af öðru
húsin, sem eru suður af fisk-
vinnslustöðvunum upp af Naust-
hamarsbryggju.
Flutningaskipið Suðri tók
dælurnar og pipurnar, sem komu
flugleiðis, og var búizt við skipinu
til Eyja i morgun. Alls hafa komið
32dælur frá Bandarikjunum, og i
fyrri nótt komu 2 kilómetrar af
leiðslum til að nota við dælurnar.