Tíminn - 05.05.1973, Blaðsíða 4

Tíminn - 05.05.1973, Blaðsíða 4
4 TÍMINN Laugardagur 5. mai 1973. Lada nýi rússneski bíllinn er fremst á myndinni, en fjær eru aðrir rússneskir bílar, sem Bif- reiðar og Landbúnaðarvélar sýna. NYR RUSSI A MARKAÐINN ÞAÐ var á árinu 1954, sem fyrsti rússneski bfllinn kom til landsins, — aö sjálfsögðu var þaö Moskvits, og hafði GIsli Johnsen umboð fyr- ir rússnesku bilana. Áriö 1955 var fyrirtækiö Bifreiðar og Landbún- aðarvélar stofnað, og slðan hefur það flutt inn rússneska bila I rik- um mæli. Fyrstu árin var mest flutt inn af Moskvits, Bobeda og Gas 69 jeppum. Undanfarin ár hefur ekkert veriö flutt inn af Bobeda, en Moskvits og Volga hafa selzt mikið, og á slðast-liðnu ári var Moskvits þriðji mest seldi blllinn á landinu. Rússnesku bilarnir þóttu framan af ekki sérlega vandaðir hvaö frágang snerti, en aftur á móti þóttu þeir endingargóðir. Þetta hefur breytzt siðustu árin og nú eru þeir orðnir mjög þokka- legir i öllu útliti. Bifreiðar og Landbúnaðarvélar sýna að þessu sinni sex bila af gerðinni Moskvits, Volga og Lada. Lada er bill, sem veriö hef- ur i tvö ár á markaðnum i Rúss- landi, en bilarnir tvéir, sem eru á sýningunni eru fyrstu bilarnir sem hingað koma. Lada er eins og gamall Fiat i útliti, enda voru það Fiat-verksmiðjurnar sem byggðu Lada verksmiðjurnar fyrir Rússa. Þorleifur Þorkelsson sölu- maður hjá B&L sagði, að Lada væri sérstaklega styrktur,. Það munar 1.5 hvað hærra er undir Lada en venjuleganFiat, og er mikill kostur á okkar vegum. Hann sagöi, aö miklar vonir væru bundnar við sölu á Lada hérlendis, enda væri billinn gerö- ur fyrir kalt loftslag og væri ein- staklega vel ryðvarinn. 1 bilnum er 65 hestafla vél. Aætlað er, að Lada kosti 345 þús. kr., en station gerðin 365 þús. kr. Bifreiðasalan hjá B&L hefur gengiö mjög vel það sem af er ár- inu, sérstaklega hefur salan auk- izt i Volga bilunum, sem orðnir eru mjög vinsælir sterkir og mjög ódýrir. Þess má geta að ódýrasti bill- inn, sem er á sýningunni er Mosk- vits sendibill og kostar hann 249 þús kr. Jaguar Rover Triumph Austin Morris 8 strokka bensínvél, 156 hö við 5000 sn./mín., drif á öll- um hjólum. 4ra gira alsamhæfður gírkassi, tvö hraðastig millikassa. Gormafjöðrun á öllum hjólum, hleðslujafnari. Aflhemlar með diskum á öllum hjólum og tvöföldu vökvakerfi. Ferskloftsmiðstöð, 12 volta rafkerfi, ryðstraumsrafall (altenator), rafhituð afturrúða með rúðuþvegli. Litað gler í öllum rúðum, þynnugler í framrúðu. öryggisás, bakkijós. Range Rover hefur rúðuþvegil á afturrúðu. . . ZTEFAINISSOIM HF. Hverfisgata 103, sími 2-69-11, Reykjavík LEVLANO

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.