Fréttablaðið - 21.09.2004, Blaðsíða 28

Fréttablaðið - 21.09.2004, Blaðsíða 28
21. september 1937 Tónskáldið Atli Heimir Sveins- son er 66 ára í dag en lætur tíma- mótin ekki á sig fá og sinnir tón- smíðum eins og ekkert hafi í skorist. „Þetta er bara venju- legur vinnudagur,“ segir Atli Heimir sem tekur afmælis- dagana ekkert of hátíðlega þótt hann kannist vissulega við að hafa lyft sér upp á þessum dögum. „Það var sennilega eitt- hvað um það þegar ég var yngri en maður er orðinn of gamall fyrir slíkt. Ég hélt að vísu upp á fimmtugs- og sextugsafmælin og þá var eitthvað um veitingar, annars hef ég helst viljað fagna afmælum með því að bjóða til tónleika með minni músík. Þá losnar maður líka við öll ræðu- höld. Leikur framúrstefnumúsík og enginn kemst að með ræður. Ég þarf líka ekki á hóli að halda en þykir vænt um það þegar fólk vill hlusta á verkin mín en Þeyya hefur mælst vel fyrir. Það tón- listarfólk sem ég hef starfað með hefur alltaf verið mjög elskulegt og tilbúið til að taka þátt í þessu og mér þykir vænt um það. Tónskáld gerir auðvitað ekki mikið nema það hafi sæmi- legt samband við tónlistarfólk, söngvara og prímadonnur, að ég tali nú ekki um þær.“ Atli Heimir segist alltaf vera með næg verkefni í gangi en hann er að ganga endanlega frá þriðju sinfóníunni. „Ég er líka byrjaður á þeirri fjórðu þannig að það er allt farið af stað. Ég er aðallega í yfirlestri og rútínu- vinnu þessa dagana og svo er ég að senda nýtt verk til Japans í október. Mér var boðið þangað en kemst ekki. Hef einfaldlega ekki tíma og svona ferðalög trufla mig of mikið. Ég verð bara í góðu tölvusambandi við Japan fyrst ég get ekki verið úti um allar trissur.“ Þar fyrir utan segist Atli vera orðinn eigingjarn á tíma sinn á efri árum. „Það er auðvitað farið að styttast í þessu hjá manni en maður hafði svo mikinn tíma þegar maður var ungur.“ Atli Heimir segir árin sextíu og sex þó síður en svo gera sér lífið leitt. „Ég er stálhraustur og með mikið vinnuþrek. Ég reyni líka að lifa heilbrigðu lífi án þess að gera neitt sérstakt annað en að borða heilbrigðan mat og ganga. Ég hef alltaf verið svolítill göngu- maður. Það er rmín líkamsæfing þótt ég hafi líka prófað pyntinga- tækin. Þau eru ágæt til þess að koma manni í form,“ segir tón- skáldið sem gerir engan greina- mun á afmælisdeginum og öðrum dögum í dagatalinu. ■ 20 21. september 2004 ÞRIÐJUDAGUR STEPHEN KING Þessi margfaldi metsöluhöfundur og meistari hrollvekjunnar er 57 ára í dag. Kæfir ræðuhöld með tónlist ATLI HEIMIR SVEINSSON: SINNIR LIST SINNI Á 66 ÁRA AFMÆLINU SÍNU „Skáldskapurinn er sannleikurinn í lyginni.“ - Stephen King veit manna best að það er oft meira vit í skáldskapn- um en raunveruleikanum. timamot@frettabladid.is ATLI HEIMIR SVEINSSON Lætur 66 ára afmælið ekki trufla sig, sinnir tónlistinni og fer væntanlega í góðan göngutúr um Vesturbæinn. „Reykjavík er full af gönguleiðum og mér finnst sérstaklega gott að ganga í Vesturbænum í hálfa til eina klukkustund.“ Faðir okkar, tengdafaðir og afi, Ragnar Björnsson trésmiður, Brú á Eskifirði, Börn, tengdabörn og afabörn. sem lést aðfararnótt þriðjudags 14. september, verður jarðsunginn frá Eskifjarðarkirkju miðvikudaginn 22. september klukkan 14. Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir, dóttir, tengdadóttir og amma, Halldóra Ingibjörg Ingólfsdóttir (Inga) Lyngbrekku 1, Kópavogi, sem lést 13. september sl., verður jarðsungin frá Digraneskirkju fimmtudaginn 23. september nk. kl. 10.30. Jarðsett verður í Torfastaðakirkjugarði, Biskupstungum. Fyrir hönd aðstandenda, Sigurður Kr. Ragnarsson, Ásta Salný Sigurðardóttir, Viðar Snær Sigurðsson, Sonja Erna Sigurðardóttir, Tómas Guðmundsson, Jónína Salný Stefánsdóttir, Ásta Sigurðardóttir, Garðar Ásbjörnsson, Ragnar Runólfsson, Gertrud Jóhansen og barnabörn. Ástkær faðir okkar, tengdafaðir og afi Gestur Guðmundur Þorkelsson Suðurgötu 72, Hafnarfirði sem andaðist sunnudaginn 12. september á Líknardeild Land- spítalans í Kópavogi, verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju í dag þriðjudaginn 21. september kl. 13:30. Þeim sem vildu minnast hans er bent á Krabbameinsfélagið Kristinn Gestsson, Sigríður Gröndal, Ásta Gestsdóttir, Garðar Þorsteins- son, Gunnlaugur Gestsson, Hulda Haraldsdóttir, Helena Rut Gestsdóttir, Kristín Halla, Atli, Garðar Þór, Tanja Bryndis, Alma, Ísak og Sara. Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, Ágústa Guðrún Halldórsdóttir Hátúni 4, Reykjavík, verður jarðsungin frá Fríkirkjunni í Reykjavík í dag 21. september kl. 15.00. Halldór Ómar Sigurðsson, Laufey Guðrún Sigurðardóttir, Atli Sigurðsson, Berglind Sigurðardóttir, Hafrún Sigurðardóttir, Einar Björn Þórisson, barnabörn og barnabarnabörn. Faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, Einar Gíslason Lindargötu 57, Reykjavík, lést á líknardeild Landspítalans í Kópavogi þann 10. september. Bálförin hefur farið fram í kyrrþey. Róbert Lauridsen, Sigríður Magnúsdóttir, Birgir Einarsson, Hrafnhildur Kristjánsdóttir, Gísli Einarsson, Sigríður Benía Bermann, Einar Emil Einarsson, Sigurbjörg Ragnarsdóttir, Emelía Hildur Einarsdóttir, Stefán Autrey, barnabörn og barnabarnabörn. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /P JE TU R SI G U RÐ SS O N Á þessum degi árið 1937 kom bókin The Hobbit, eftir J.R.R. Tolkien, út í fyrsta sinn en þar bankaði Gandálfur upp á hjá hobbit- anum værukæra Bilbó Bagga og dró hann á vit ævintýranna ásamt vaskri sveit dverga. Bilbó komst oft í hann krappan á flakki sínu, barðist við risaköngulær og dreka. Eignaðist forláta brynju, sverð sem hægt var að treysta á og síðast en ekki síst hafði hann Hringinn eina af slímuga kvikindinu Gollum. Þessi vinsæla saga um Bilbó gat svo af sér stórvirkið Hringadróttinssögu þar sem Tolkien gerði nánari grein fyrir Hringnum og þeim ógnarkrafti sem hann bjó yfir. Bilbó var, eins og hvert mannsbarn veit, aukapersóna í þeim bálki sem fylgdi hring- beranum Fróða í gegnum miklar svaðilfarir. Peter Jackson k v i k m y n d a ð i Hringadróttins- sögu með frábær- um árangri fyrir skemmstu og sag- an segir að hann hafi fullan hug á að koma Hobbitan- um á filmu í fram- tíðinni þannig að það sér ekki enn fyrir endann á ævintýrinu sem hófst með heimsókn Gandálfs árið 1937. ■ ÞETTA GERÐIST HOBBITINN KEMUR ÚT MERKISATBURÐIR 1784 Fyrsta dagblaðið í Banda- ríkjunum, The Pennsyl- vania Packet and Daily Advertiser, kom út í fyrsta sinn í Fíladelfíu. 1893 Frank Duryea reynsluók fyrsta bensínbílnum en þessi „hestlausi vagn“ var hannaður af Frank og bróð- ur hans Charles Duryea. 1938 Fellibylur gekk yfir hluta New York og nágrennis með þeim afleiðingum að rúmlega 600 manns týndu lífi. 1964 Malta fékk sjálfstæði frá Bretlandi. 1989 Fellibylurinn Hugo fór yfir Charleston og olli eigna- tjóni upp á 8 milljarða dollara. 1998 Myndbandsupptaka af vitnisburði Bills Clinton um samband sitt við Monicu Lewinsky var gerð opnber. Gat af sér Hringadróttinssögu GOLLUM Þessi fláráða skepna var kynnt til sög- unnar fyrir 67 árum. Tilkynningar um andlát og jarðarfarir eru velkomnar á síður Fréttablaðsins. Sími: 550 5000

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.