Fréttablaðið - 07.10.2004, Blaðsíða 42
30 7. október 2004 FIMMTUDAGUR
KÖRFUBOLTI Snæfellingar hafa í
fyrsta sinn í sögu félagsins titil
að verja þegar þeir mæta til leiks
í Intersportdeildinni í körfubolta
sem hefst í kvöld. Snæfellingar,
sem urðu deildarmeistarar í
fyrra, spila sinn fyrsta leik í
Grindavík á morgun en þessi tvö
lið enduðu einmitt í efstu tveim-
ur sætum deildarinnar í fyrra.
Snæfellingar hafa fengið til
sín tvo gríðarsterka leikmenn,
Blikann Pálma Frey Sigurgeirs-
son og KR-inginn Magna Haf-
steinsson, sem bætast við hóp
sterkra leikmanna þar sem fyrir-
liðinn og víkingurinn Hlynur
Bæringsson fer fyrir sínum
mönnum. Það vakti þó nokkra at-
hygli að í spá fyrirliða, forráða-
manna og þjálfara var Hólmur-
um „aðeins“ spáð fjórða sætinu
þrátt fyrir góðan liðsstyrk og
mikla velgengni í fyrra. Formað-
urinn Gissur Tryggvason var
samt ánægður með spána þegar
Fréttablaðið hitti hann á fundin-
um. „Þetta er ágætt enda er þetta
bara spá. Við ætlum okkur stærri
hluti en að enda í fjórða sætinu
en þetta verður allt að koma í ljós
inni á vellinum,“ segir Gissur,
sem játar því þó að Snæfell sé
með sterkara lið en í fyrra.
Með betra lið en í fyrra
„Ég held að liðið sé betra og
þetta er mjög skemmtilegt lið
sem við erum með í vetur. Það
eru fjögur lið áberandi best og
við erum í þeim hópi. Það fylgir
því bara meiri pressa að enda
ofar í spánni þannig að ég er
mjög sáttur við þetta.“ Það voru
ekki bara leikmenn Snæfells sem
slógu í gegn því hvergi var meiri
og betri stemning meðal áhorf-
enda en í stúkunni í Íþróttahús-
inu í Stykkishólmi.
„Við stefnum á að byrja þar
sem frá var horfið í vor, bæði
inni á vellinum og uppi í pöllun-
um. Síðasti vetur var alveg ein-
stakur fyrir okkur og það hefur
aldrei gengið jafn vel hjá félag-
inu. Við erum með góðan kjarna
stuðningsmanna sem kemur
alltaf og ég á ekki von á öðru en
það verði fullt hús frá fyrsta
heimaleik. Við fengu tvo A-lands-
leiki til okkar í sumar, þar var
mikil stemning og stuð og báðir
leikirnir unnust heima. Það er
talað um það að það sé orðið
erfitt fyrir heimalið að tapa í
þessu húsi,“ segir Gissur sposkur
á svip. Snæfell hefur deildar-
keppnina í ár með tíu sigurleiki í
röð í Hólminum og liðið vann síð-
an þar fjóra af fimm leikjum sín-
um í úrslitakeppninni. Gissur er
ánægður með nýju útlendingana í
liðinu.
Öðruvísi leikmenn
„Þeir koma mjög vel inn í liðið
þótt þeir séu öðruvísi leikmenn
en þeir sem voru hjá okkur í
fyrra. Þeir spila meira fyrir liðs-
heildina. Varnarleikurinn er
samt áfram í aðalhlutverki hjá
okkur. Magni og Pálmi eru síðan
báðir mjög góð viðbót fyrir okk-
ur og við lítum svo á að þeir séu
báðir að koma heim, Pálmi spil-
aði með okkur fyrir nokkrum
árum og Magni er fæddur og
uppalinn í Ólafsvík,“ segir Giss-
ur, sem vill fá alla Snæfellinga á
bak við liðið í vetur.
„Við lítum ekki á Snæfellslið-
ið sem bara lið Hólmara heldur
lið alls Snæfellsness. Við viljum
vinna að því að fá allt Nesið með
okkur í vetur. Körfuboltinn er
ríkjandi heima í Hólminum en
svo er aftur á móti fótboltinn í
aðalhlutverki í Ólafsvík og þeir
voru þar að vinna sig upp í 1.
deildina í sumar. Það er gott að
þetta skuli vera skipt eftir
byggðunum og vonandi flykkj-
ast allir Snæfellingar á bak við
liðið í vetur,“ segir Gissur að
lokum.
ooj@frettabladid.is
HÓLMURINN HEILLAR Það var mikið fjör á pöllunum á heimaleikjum Snæfells úr Stykkishólmi í fyrra. Fréttablaðið/Hari
Ætla að byrja þar sem frá var horfið
Snæfell var spútniklið síðasta tímabils í körfunni og formaðurinn Gissur Tryggvason telur að Snæfellsliðið sé sterkara í ár
en það var í fyrravetur. Liðinu er spáð fjórða sætinu þrátt fyrir góðan liðsstyrk að sunnan.
ALLTAF LÉTTUR Leifur Garðarsson hafði
alltaf gaman af hlutunum í sínu starfi sem
dómari. Fréttablaðið/Pjetur
Besti dómarinn hættur:
Enginn Leif-
ur í kvöld
KÖRFUBOLTI Intersportdeild karla í
körfubolta hefst í kvöld en þar
vantar þó einn mann sem hefur
dæmt í nánast hverri umferð síð-
ustu árin. Leifur Garðarsson
körfuknattleiksdómari tilkynnti í
fyrradag að hann hefði ákveðið að
leggja flautuna á hilluna eftir 17
ára farsælan feril í dómgæslu en
Leifur tók dómarapróf árið 1987
og varð FIBA-dómari árið 1993.
Leifur tók FIBA-prófið á Rim-
ini á Ítalíu árið 1993 og til dagsins
í dag hefur hann dæmt 37 leiki í
Evrópukeppni félagsliða og farið
á níu mót á vegum FIBA auk ann-
arra ferða með íslenskum liðum.
Leifur hefur dæmt 389 leiki í úr-
valsdeild og það er bara Kristinn
Albertsson sem hefur dæmt
meira en Kristinn á að baki 432
dæmda úrvalsdeildarleiki. Leifur
hefur auk þess dæmt um 80 leiki í
úrslitakeppni karla, sex bikar-
úrslitaleiki karla og þrjá bikar-
úrslitaleiki kvenna.
Leifur hefur dæmt tæplega 800
leiki í öllum mótum á vegum KKÍ
og með æfingamótum er þessi
tala örugglega komin yfir 1.000
leiki. Það er óhætt að segja að
Leifur hafi verið í sérflokki í dóm-
arastéttinni undanfarin ár en
hann hefur síðustu sex árin verið
kosinn besti dómari ársins af leik-
mönnum og þjálfurum úrvals-
deildarinnar.
Leifur gerir grein fyrir
ákvörðun sinni á heimasíðu
Körfuknattleiksdómarafélagsins
en vegna starfs síns sem skóla-
stjóri Áslandsskóla í Hafnarfirði
hefur verið erfitt fyrir hann að
ferðast víða um Evrópu til dóm-
gæslu á vegum FIBA en þar hefur
helsta hvatning hans sem dómara
legið. Leifur hefur unnið frábært
starf í dómaramálum hér á landi
því auk dómgæslunnar sat hann
lengi í dómaranefnd KKÍ. Hans
verður því sárt saknað úr íslenska
körfuboltanum. ■
Ísland niður í 88. sæti á Styrkleikalista FIFA fyrir október sem kynntur var í gær:
Aldrei verið lægri á FIFA-listanum
FÓTBOLTI Íslenska knattspyrnu-
landsliðið er í 88. sæti á nýjum
styrkleikalista FIFA, Alþjóða
knattspyrnusambandsins, en
októberlistinn var kynntur hjá
sambandinu í gær. Íslenska lands-
liðið fellur um átta sæti frá því í
september og þjóðir eins og
Angóla, Kenía, Gvæjana og Sýr-
land komust upp fyrir okkur að
þessu sinni því íslenska liðið tap-
aði fyrstu tveimur leikjum sínum
í undankeppni HM.
Íslenska landsliðið hefur
aldrei verið neðar á þessum lista
sem hefur verið gefinn út frá því
í ársbyrjun 1993. Íslenska liðið
var einnig í 88. sæti í ágúst 1997
en hæst komst liðið í 42. sæti í
ársbyrjun 2000. Íslenska liðið var
í 58. sæti í ársbyrjun á umrædd-
um lista en hefur fallið um heil 30
sæti á þessum tíu mánuðum, þar
af niður um 32 sæti frá því í maí
því íslenska liðið var í 56. sæti á
maílistanum. Íslenska landsliðið
hefur nú farið niður um sæti á
listanum fimm mánuði í röð en
það gerðist einnig fyrri hluta árs-
ins 2000 þegar liðið fór úr 42. sæti
í febrúar niður í það 56. á júlílist-
anum. Engin önnur þjóð hefur
fallið hraðar niður listann á þessu
ári en næst okkur kemur landslið
Bosníu-Hersegóvínu sem hefur
dottið niður um 22 sæti frá því að
vera í 59. sæti í ársbyrjun niður í
81. sæti sem liðið er nú í á þessum
nýja lista.
Íslenska landsliðið hefur að-
eins unnið einn af sjö landsleikj-
um sínum á árinu og töpin eru
orðin fimm, þar af fjögur þeirra í
fimm landsleikjum frá því í lok
maí. Af gengi hinna liðanna í riðli
Íslands er það að frétta að Ung-
verjar hækka sig um átta sæti
upp í það 68. og Króatar hækka
sig um tvö sæti upp í það 23. en
Svíar og Búlgarar sitja í stað,
Svíar í 22. sætinu en Búlgarar í
sæti 41. Að lokum falla næstu
mótherjar Íslands, Möltumenn,
niður um þrjú sæti niður í 133.
sæti listans. ■
HÆSTA FALL Á FIFA-LISTANUM
Á ÁRINU:
-30 sæti Ísland
-22 sæti Bosnía Hersegóvína
-20 sæti Kongó
-20 sæti Úkraína
-19 sæti Belgía
-18 sæti Austurríki
-18 sæti Madagaskar
-15 sæti Kosta Ríka
FALL ÍSLENSKA LIÐSINS Á SÍÐ-
USTU MÁNUÐUM:
Maí 2004: 56. sæti
Júní 2004: 65 sæti (-9 sæti)
Júlí 2004: 75. sæti (-10 sæti)
Ágúst 2004: 79. sæti (- 4 sæti)
September 2004: 80. sæti (- 1 sæti)
Október 2004: 88. sæti (-8 sæti)
Á HRAÐRI NIÐURLEIÐ A-landslið karla
hefur aldrei verið neðar á styrkleikalista
FIFA og hefur liðið fallið niður um 32 sæti
frá því í maí.
ÞRENNA Í SÍÐASTA LEIK Í EGILSHÖLLINNI Margrét Lára Viðarsdóttir skoraði þrennu í
eina landsleik Íslands í Egilshöllinni til þessa en þar leikur íslenska kvennalandsliðið
heimaleik sinn við Norðmenn í umspili um sæti á EM og fer leikurinn fram 10. nóvember.
Styrkleikalisti FIFA:
Brassarnir
áfram efstir
FÓTBOLTI Heimsmeistarar Brasilíu
eru áfram efstir á styrkleikalista
Alþjóðaknattspyrnusambandsins.
Frakkar fylgja þeim áfram í öðru
sæti en Argentína hoppar upp í
þriðja og hefur sætaskipti við
Spánverja sem falla um eitt sæti.
Holland og Mexíkó falla bæði um
tvö sæti á topp tíu listanum en
bestu innkomuna eiga Portúgalir.
Þeir hafa hækkað sig úr ellefta
sæti í það áttunda. Englendingar
og Ítalir standa í stað milli
mánaða. ■
Ísland mætir Noregi í umspili um sæti í lokakeppni EM:
Báðir leikirnir spilaðir inni
FÓTBOLTI Ljóst er að Ísland mun
leika gegn Noregi í umspili um
sæti í lokakeppni EM kvenna-
landsliða, sem fram fer í Englandi
á næsta ári, og mun fyrri leikur-
inn fara fram hér á landi.
Ísland og Finnland náðu best-
um árangri þeirra liða sem urðu í
þriðja sæti í sínum riðli í undan-
keppninni og leika því gegn þeim
tveimur liðum sem náðu bestum
árangri í öðru sæti, en það voru
Noregur og Rússland.
Þar sem Ísland og Rússland
voru saman í riðli í undankeppn-
inni geta þau ekki mæst í um-
spili og þar með er ljóst að Ís-
land mætir Noregi og Rússland
mætir Finnlandi. Íslensku stelp-
urnar voru í góðum málum í
baráttunni um 2. sætið í riðlin-
um en töpuðu tveimur síðustu
leikjum sínum sem voru báðir á
heimavelli gegn Frakklandi og
Rússlandi.
Rússneska liðið spilaði geysi-
vel á lokakaflanum, vann þrjá síð-
ustu leiki sína í riðlinum með
markatölunni 11-2 og haut að lok-
um fjórum stigum meira en ís-
lenska liðið.
Leikdagar fyrir leikina gegn
Noregi hafa verið ákveðnir og má
sjá þá hér að neðan. Athyglisvert
er að báðir leikirnir fara fram í
knattspyrnuhöllum en fyrri leik-
urinn fer fram í Egilshöllinni í
Reykjavík í nóvember. Íslenska
liðið hefur spilað þar einu sinni
áður – vann lið Skota 5–1. ■