Fréttablaðið - 28.11.2004, Síða 46
KÖRFUBOLTI Keflavík og ÍS mættust í
úrslitum Hópbílabikarsins í
körfuknattleik í gær. Jafnræði
var með liðunum í fyrri hálfleik
en Keflavík tókst að stöðva lykil-
leikmenn í ÍS-liðinu í seinni hálf-
leik og vann öruggan sigur, 76-65.
Keflavík byrjaði leikinn betur
og komst í 18-10. Þær pressuðu
allan völlinn og töluvert óðagot
einkenndi leik ÍS í fyrsta leik-
hluta. Þær gáfu sér ekki tíma til
að stilla upp og tóku ótímabær og
oft á tíðum illa staðsett skot.
ÍS kom betra skipulagi á leik
sinn og komst yfir í öðrum fjórð-
ungi. Það var helst fyrir tilstillan
Öldu Leif Jónsdóttur sem skoraði
grimmt og réðu leikmenn Kefla-
víkur lítið sem ekkert við hana.
Keflavíkurstúlkur mættu
grimmar í upphafi seinni hálf-
leiks og skoruðu 13 stig gegn
tveimur stigum ÍS. Í stað þess að
hægja á leiknum, eins og ÍS hafði
gert í fyrri hálfleik með ágætis
árangri, keyrði liðið hraðann upp
sem kann ekki góðu lukku að
stýra gegn Keflvíkingum.
Keflavíkurstúlkur komust
mest í 13 stiga mun og spiluðu oft
á tíðum mjög skemmtilegan
körfubolta. Þær voru vel sam-
stilltar, lásu leikinn vel og oft
mátti sjá vel útfært spil. ÍS átti
ekkert svar við öflugum leik Kefl-
víkinga og fyrsti titill vetrarins í
höfn.
„Leikurinn var mjög hægur í
fyrri hálfleik sem hentaði þeim
mjög vel,“ sagði Sverrir Þór
Sverrisson, þjálfari Keflavíkur.
„Vörnin hjá okkur var ekki góð og
þær voru að fá galopin skot. Í leik-
hléi töluðum við um að halda þeim
fyrir framan okkur og bæta vörn-
ina. Það gekk eftir og í raun var
allt annað lið á vellinum í seinni
hálfleik. Við lögðum að auki ríka
áherslu á stoppa Öldu Leif, sem
hafði reynst okkur erfið í fyrri
hálfleik. Bára Bragadóttir hélt
henni stigalausri í seinni hálfleik,
spilaði frábæra vörn,“ sagði
Sverrir Þór. smari@frettabladid.is
GANGUR LEIKSINS
1. leikhluti Keflavík 21–19
2. leikhluti jafnt 18–18 (39–37)
3. leikhluti Keflavík 17–6 (56–43)
4. leikhluti ÍS 20–22 (76–65)
BEST Á VELLINUM
Anna María Sveinsdóttir Keflavík
TÖLFRÆÐIN
Fráköst (í sókn) 41–27 (14–7)
Tapaðir boltar 25–22
Stoðsendingar 23–17
Víti fengin (%) 22 (68%)–10 (70%)
Villur 14–19
3ja stiga körfur (%) 5 (22%)–4 (29%)
Hraðaupphlaupsstig 15–11
Stig eftir sóknafráköst 7–5
KEFLAVÍK ÍS STIG-FRÁKÖST–STOÐSENDINGAR
KEFLAVÍK
Anna María Sveinsdóttir 15–10–5
María Ben Erlingsdóttir 15–3–0
Birna Valgarðsdóttir 14–6–4
Bryndís Guðmundsdóttir 11–8–2
Rannveig Randversdóttir 11–3–1
Reshea Bristol 8–8–11
Svava Ósk Stefánsdóttir 2–1–0
ÍS
Signý Hermannsdóttir 17–13–6
Alda Leif Jónsdóttir 14–1–1
Stella Rún Kristjánsdóttir 12–3–1
Þórunn Bjarnadóttir 8–6–6
Guðrún Baldursdóttir 8–2–2
Jófríður Halldórsdóttir 6–1–1
FÓTBOLTI Chelsea náði fimm stiga
forystu á toppi ensku úrvalsdeild-
arinnar í fótbolta í gær þegar lið-
ið bar sigurorð af Charlton, 4-0, á
The Valley.
Varnarmaðurinn sterki John
Terry skoraði tvívegis og Eiður
Smári Guðjohnsen bætti við sínu
sjötta marki í deildinni, rétt áður
en honum var skipt út af fyrir Di-
dier Drogba. Chelsea-liðið lék sér-
lega vel, einkum í síðari hálfleik
og hefði sigurinn getað orðið enn
stærri. Þetta var þriðji útileikur
Chelsea í röð þar sem liðið skorar
fjögur mörk en það hefur nú fimm
stiga forystu á Arsenal, sem á
reyndar leik gegn Liverpool á An-
field Road til góða í dag.
Paul Scholes er vaknaður til
lífsins á ný og það eru góðar frétt-
ir fyrir stuðningsmenn Manchest-
er United.
Scholes opnaði markareikning
sinn á þessu tímabili gegn
Charlton um síðustu helgi og skor-
aði síðan tvö mörk gegn West
Brom í gær þar sem Manchester
United fór með sigur af hólmi, 3-0.
Alex Ferguson, knattspyrnu-
stjóri United, var að vonum sáttur
eftir leikinn og segir sjálfstraust
sinna manna vera að eflast með
hverjum leiknum. „Ég trúði því
ekki hversu lengi Paul Scholes gat
spilað án þess að skora en ég er
glaður fyrir hans hönd að hann
hafi náð að brjóta ísinn,“ sagði
Ferguson. ■
26 28. nóvember 2004 SUNNUDAGUR
LEIKIR GÆRDAGSINS
KÁTAR KEFLAVÍKURSTÚLKUR Sjást hér fagna sigrinum í Hópbílabikarnum í körfubolta en þær báru sigurorð af ÍS með ellefu stiga
mun, 76–65, í úrslitaleik í DHL-höllinni í gær. Fréttablaðið/Vilhelm
Þriðji sigurinn í röð
hjá Keflavíkurstúlkum
Unnu ÍS, 76–65, í úrslitum Hópbílabikars kvenna í körfubolta í gær og
virðast vera með langbesta liðið á landinu í dag.
Derby d’Italia
... Inter Milan og Juventus mæt-
ast í ítölsku A-deildinni í kvöld
Það er virðulegt enskuskotna heitið
sem Ítalir hafa valið leikjum Inter og
Juventus; Derby d’Italia. Á rætur sínar að
rekja fjóra áratugi aftur í tímann er þessi
lið slógust ár eftir ár um titilinn og leikir
voru réttnefndir stórslagir. Það hefur ekki
verið raunin hin síðari ár, Inter ekki verið
alvöru kandidat til meistaratitils nema
einu sinni síðustu 15 árin og einhvern
veginn hist þannig á að þegar Inter hefur
rekist á gott ár hefur Juve átt fremur slakt
tímabil miðað við standardinn á þeim
bænum. Liðin mætast á San Siro í kvöld
og verður leikurinn sýndur beint á Sýn.
Leikir þessara
liða hafa oft
verið meiri
markaleikir en
aðrir stórslagir í
ítalska boltan-
um, í fyrra vann
Inter 3-2 í
heimaleik sín-
um. Nú segir
tölfræðin hins
vegar að líkurnar á mörgum mörkum séu
ekki miklar, Juve-menn orðnir sérfræðing-
ar í að klára leiki 1-0 og Inter hefur gert
10 jafntefli í 12 leikjum í deildinni! Hvorki
tapað leik heima né í Meistaradeildinni
og er eina taplausa liðið í Evrópu í haust.
Víst er að Roberto Mancini vill ekki tapa
fyrsta leiknum gegn Fabio Capello sem
hefur verið einn höfuðandstæðingur hans
í gegnum árin.
Það er gaman að bera saman þjálfar-
ana tvo, Capello og Mancini. Báðir voru
þeir afburðaleikmenn, með bestu leik-
mönnum sinna kynslóða. Léku báðir
stöðu afturliggjandi framherja og þóttu
klókir leikmenn. Mancini þó mun meiri
náttúrutalent og meiri glans yfir honum
en hinum þrautseiga Capello. Einhvern
veginn hafa stjörnuleikmenn sjaldan orð-
ið toppþjálfarar í boltanum, Beckenbauer
og Cruyff einu virkilegu stjörnurnar sem
hafa náð glæstum árangri í þjálfun.
Alltaf meistari
Capello hóf þjálfaraferilinn tiltölulega
seint, gegndi ýmsum störfum hjá AC Milan
og þjálfaði unglingalið. Aðallega sinnti
hann þó markaðsmálum og vakti athygli
eigandans Silvio Berlusconi fyrir árangur á
því sviði. Capello stýrði aðalliðinu í nokkr-
um leikjum 1987 en það var ekki fyrr en
1991 að hann tók
við starfi aðalþjálf-
ara. Þótti ráðning-
in glæfraleg hjá
Berlusconi, Ca-
pello hafði sára-
litla reynslu og
þurfti að fylla
skarð Arrigo
Sacchi sem var
álitinn einn besti
þjálfari allra tíma
í ítalska boltan-
um. Áframhaldandi gott gengi Milan var
ekki talið Capello að þakka, menn sögðu
að liðið væri svo vel mannað og kerfið sem
Sacchi hefði sniðið í kringum Hollending-
ana þrjá gengi á hálfgerðri sjálfstýringu. En
Capello sannaði að þetta var rangt, hann
náði að byggja upp nýtt Milan-lið og halda
áfram að landa titlum. Hann þóttist samt
ekki njóta nægilegrar virðingar og fór til
Real Madrid sem varð meistari undir hans
stjórn. Honum líkaði þó ekki vistin á Spáni
og hætti eftir eina leiktíð og tók sér frí frá
þjálfun. Á meðan hrundi AC Milan og
Berlusconi bað hann um að koma og
bjarga því sem bjargað yrði. Ekki gekk sá
björgunarleiðangur og Capello sagði því
upp störfum en tók við Roma ári síðar og
gerði liðið að meisturum. Hann hefur því
unnið meistaratitil með öllum liðum sem
hann hefur þjálfað og miðað við byrjun
Juventus er líklegt að hann endurtaki leik-
inn þar.
Mancini efnilegur
Leið Mancini í þjálfarastólinn var styttri.
Löngu áður en hann hætti að spila voru
þjálfarar hans, t.d. Sven-Göran Eriksson,
farnir að sjá í honum mikið þjálfaraefni.
Enda var hann tekinn við Lazio ári eftir að
hann hætti að spila
með liðinu og náði
firnagóðum árangri.
Tók við Inter í haust
og var spáð mjög
góðu gengi en jafn-
teflahrinan hefur
reynt á þolrifin og
miðað við óþolin-
mæði eigandans
Moratti er óvíst að
Mancini eigi langa
vist fram undan ef svo held-
ur áfram. En víst er að mörg lið munu taka
honum opnum örmum því enginn efast
um hæfileikana.
EINAR LOGI
VIGNISSON
Enska úrvalsdeildin
FULHAM–BLACKBURN 0–2
0–1 Gallagher (10.), 0–2 Dickov, víti (77.).
BIRMINGHAM–NORWICH 1–1
1–0 Morrison (9.), 1–1 Huckerby (64.).
BOLTON–PORTSMOUTH 0–1
0–1 De Zeeuw (45.).
CHARLTON–CHELSEA 0–4
0–1 Duff (4.), 0–2 Terry (47.), 0–3 Terry (50.),
0–4 Eiður Smári (59.).
SOUTHAMPTON–C. PALACE 2–2
0–1 Johnson (48.), 1–1 Phillips (50.), 1–2
Routledge (54.), 2–2 Jakobsson (76.).
WEST BROM–MAN. UTD 0–3
0–1 Scholes (53.), 0–2 van Nistelrooy (72.), 0–3
Scholes (82.).
MAN. CITY–ASTON VILLA 2–0
1–0 Macken (29.). 2–0 Wright-Phillips (38.).
STAÐAN
CHELSEA 15 11 3 1 27–6 36
ARSENAL 14 9 4 1 38–18 31
EVERTON 14 9 2 3 16–11 29
MAN. UTD. 15 7 6 2 19–10 27
MIDDLESBR.14 7 4 3 24–16 25
A. VILLA 15 6 6 3 20–16 24
BOLTON 15 6 5 4 22–19 23
LIVERPOOL 13 6 2 5 21–15 20
MAN. CITY 15 5 5 5 19–14 20
NEWCASTLE 14 5 4 5 26–26 19
PORTSM. 14 5 3 6 18–20 18
CHARLTON 15 5 4 7 17–27 18
BIRMINGH. 15 2 8 5 12–15 14
FULHAM 15 4 2 9 17–27 14
TOTTENHAM14 3 4 7 12–17 13
C. PALACE 15 3 4 8 17–23 13
BLACKB. 15 2 7 6 16–29 13
SOUTHAMT. 14 2 6 7 15–21 12
NORWICH 15 1 9 5 14–25 12
WBA 15 1 7 7 13–28 10
Enska 1. deildin
QPR–CARDIFF 1–0
BURNLEY–MILLWALL 1–0
COVENTRY–CREWE 0–1
Bjarni Guðjónsson var ekki í leikmannahópi
Coventry.
GILLINGHAM–NOTT. FOREST 2–1
IPSWICH–BRIGHTON 1–0
LEICESTER –PLYMOUTH 2–1
Jóhannes Karl Guðjónsson lék með Leicester þar
sem hann tók út eins leiks bann.
PRESTON–DERBY 3–0
READING–WIGAN 1–1
Ívar Ingimarsson spilaði allan leikinn hjá Reading.
SHEFF. UTD–WOLVES 3–3
STOKE–SUNDERLAND 0–1
WEST HAM–WATFORD 3–2
Brynjar Björn Gunnarsson skoraði fyrra mark
Watford og fór af velli á 41. mínútu. Heiðar
Helguson spilaði allan leikinn fyrir Watford.
Bikarkeppni KKÍ
HÖTTUR–ÍA 81–70
KR B–VALUR B 85–86
KR–HAMAR/SELFOSS 83–86
REYNIR S.–TINDASTÓLL 71–118
ÞÓR Þ.–FJÖLNIR 70–106
DRANGUR–HAUKAR 60–110
1. deild karla - handbolti
HK–KA 29–30
ÞÓR AK.–FRAM 28–28
STAÐAN
HAUKAR 8 6 0 2 251–225 12
KA 9 6 0 3 273–264 12
HK 9 5 1 3 287–263 11
FRAM 9 4 2 3 264–243 10
ÞÓR. AK 10 4 2 4 273–277 10
FH 9 1 3 5 241–268 5
AFTURELD. 8 1 0 7 209–257 2
Eiður Smári Guðjohnsen var á skotskónum fyrir Chelsea sem burstaði Charlton:
Fimm stiga forysta á Arsenal
MARKI FAGNAÐ Leikmenn Chelsea sjást hér fagna marki Johns Terry í leiknum gegn
Charlton í gær. Fréttablaðið/AP
76-65