Fréttablaðið - 04.12.2004, Blaðsíða 92

Fréttablaðið - 04.12.2004, Blaðsíða 92
64 4. desember 2004 LAUGARDAGUR EKKI MISSA AF… Leiðsögn Hlyns Hallssonar um þriðja hluta sýningarinnar ALDREI - NIE - NEVER í Galleri+ í Brekkugötu 35 á Akureyri, klukk- an 16.00. Sýningnni lýkur á morgun... Jólastund KASA hóps- ins á Tíbrár- tónleikum í Salnum, Kópavogi á morgun, sunnudag, klukkan 16.00: Unglingakór Digranes- kirkju undir stjórn Heiðrúnar Hákonardóttur, Xibei Zhang sig- urvegari EPTA keppninnar 2003 og Strengjasveit Listaháskóla Íslands undir stjórn Gunnars Kvaran. Á efnisskrá er Branden- burgarkonsertinn og jólalög í ýmsum útsetningum. Listasafn Íslands efnir til umræðufundar í dag frá 11.00 til 13.00, í tilefni sýningarinn- ar Ný íslensk myndlist, um veruleikann, manninn og ímyndina. Rætt verður um íslenska myndlist síðustu 10 ára út frá yfirstandandi sýningu Lista- safns Íslands. Spurt verður hvort greina megi nýja merkingu eða boðskap í sam- tímalistinni? Hvaða áherslur má greina í verkum þeirra listamanna sem kynntir eru á sýningunni í alþjóðlegu samhengi? Hvernig kristallast þessar spurningar í myndlistarumræðu samtímans? Þátttakendur í pallborðsumræðu: Jón B.K. Ransu, myndlistarmaður og listgagnrýn- andi, Ragna Sigurðardóttir listgagnrýnandi, Úlfhildur Dagsdóttir bókmenntafræðingur, Þóra Þórisdóttir myndlistarmaður. Fundarstjóri er dr. Ólafur Kvaran, forstöðu- maður Listasafns Íslands. Aðgangur er ókeypis og öllum opinn. Kl. 17.00 sunnudag: Orgeljól í Hallgrímskirkju. Glæsileg aðventu- og jólatónlist fyrir orgel. Organisti er Stephen Tarp frá Bandaríkjunum. Tilvalið að skoða sýningu Jóns Reykdal í leiðinni – en hún verður opnuð í kirkjunni í dag. menning@frettabladid.is Merking eða boðskapur? Samtíminn er lyginni líkastur Bankarán er framið um hábjartan dag í útibúi Þjóðbankans í Vesturbæ. Skömmu síðar finnst einn af yfir- mönnum bankans myrtur á hryllileg- an hátt á heimili sínu. Yfirlögreglu- þjónninn Víkingur Gunnarsson er öllu vanur en nú sýnist honum hrotta- skapur undirheima Reykjavíkur hafa tekið á sig nýja mynd. Þannig mætti lýsa nýrri spennusögu Þráins Bertels- sonar í fljótu bragði en svo einfalt er það nú ekki. Dauðans óvissi tími er mun meira en venjuleg glæpasaga. Þetta er háðsádeila á samtímann þar sem raunverulegir atburðir og þjóð- þekktir einstaklingar fléttast saman við frumsaminn söguþráð. Uppbygging spennu í Dauðans óvissi tími er með besta móti. Les- endur velkjast að vísu aldrei í vafa um sjálfa sökudólga voðaverkanna en tilefni morðsins kemur ekki í ljós fyrr en á síðustu blaðsíðum bókar- innar. Spennan felst því ekki í hverjir gerðu það, heldur hvers vegna og hvort þeir náist. Þetta tekst vel hjá Þráni og á örlagaríkum augnablikum gefur hann sér tíma og pláss til að lýsa aðstæðum sem nákvæmast og skyggnast inn í huga flestra viðkom- andi með þeim afleiðingum að tím- inn stöðvast. Flott stílbragð. Sögumaður Þrá- ins er alvitur, írónískur og skemmtilega hlut- drægur. Samræður eru jafnframt ágæt- ar; eðlilegar og lausar við tilgerð. En rúsínan í pylsu- endanum er án efa kostulegt per- sónugalleríið. Fjöl- margar persónur eru kynntar til sög- unnar án þess að rugla lesendur í ríminu því að baki þeirra liggja mann- lýsingar og kómísk- ar sögur sem gefa hverri og einni sérstöðu. Stærri hlut- verkin fá þó meira svigrúm og marg- brotnar manngerðir líta dagsins ljós. Það besta er að allra ótrúverðugustu manngerðirnar eiga sér fyrirmyndir úr samtímanum en sannfærandi glæpamenn, eins og fóstbræðurnir Þorgeir og Þormóður, eru teknir nánast beint upp úr fornsögunum. Þótt atburðarásin skipti höfuðmáli í spennusögum þá gleymir Þráinn ekki hversdagslegu hlutunum. Sam- starfsmenn Víkings kvarta yfir kaffi- vél á vinnustað og þunglyndur yfir- lögregluþjónninn brýtur heilann jafnt um starfið, pilluát og afborgan- ir. Þunglyndi Víkings jaðrar reyndar við klisju en í landi sem á næstum heimsmet í notkun þunglyndislyfja þá verður týpan einungis trúverðug. En Þráinn hefði betur farið alla leið með að skapa hliðstætt Ísland – hliðstæðan heim. Kaffibrennslan, KB banki og Khodorkovskí koma eins og skrattinn úr sauðaleggnum eftir þrælfínar endurskírnir á borð við Gufuskipafélagið, Farskip, Bænda- flokk og Lýðræðisflokk. Á heildina litið er Dauðans óvissi tími ágætis spennusaga með skondnum undirtóni. Fléttan er vel ofin saman við íslenskan samtíma og lausnin prýðileg. Sá sem ekki get- ur haft gaman af þessari bráðsmellnu háðsádeilu er annað hvort flokksbundinn frá blautu barnsbeini eða hreinlega húmors- heftur. Óperukórinn flytur Sálu- messuna í Langholtskirkju klukkan eitt í nótt, á dauða- stund tónskáldsins Fyrir réttum 213 árum lést tón- skáldið Wolfgang Amadeus Moz- art, aðfaranótt 5. desember, nánar tiltekið klukkan eitt um nóttina. Hann var þá langt kom- inn með að semja sitt seinasta verk, Requiem, eða Sálumessu. Til þess að heiðra minningu hins mikla tónskálds efnir Ó- perukórinn til tónleika í kvöld, eða réttara sagt, í nótt, klukkan 01.00 í Langholtskirkju, á ná- kvæmlega þeim tíma sem Moz- art lést, undir stjórn Garðars Cortes. Og að sjálfsögðu verður Sálumessan flutt á tónleikunum. Ég er nú búinn að lesa mikið um Mozart, margar ævisögur, meðal annars þá nýjustu. Þar var ein setning sem sló mig og ég ákvað að gera þetta,“ segir Garðar. „Setningin var: Hann dó eftir miðnótt, klukkan eitt, milli 4. og 5. desember. Þótt þetta hafi alltaf verið vitað, kveikti setn- ingin í mér og ég fór að velta því fyrir mér hvað gæti verið gam- an að syngja á tónleikum á þess- um tíma. Ég var svo sem ekkert viss um að kórinn myndi sam- þykkja hugmyndina, en þegar ég bar þetta undir hann, var þetta samþykkt á stundinni. Síð- an var ég alveg viss um að hljómsveitin myndi aldrei ansa þessu – en viti menn, meðlimum hennar fannst þetta bara spenn- andi.“ Garðar er bjartsýnn á að að- dáendur Mozarts og unnendur hinnar fögru sönglistar munu ekki láta tímasetninguna aftra sér frá því að hlýða á þessa ein- stöku sálumessu. „Ég spurði kórinn hvort þau héldu að tíma- setningin mundi vefjast fyrir fólki,“ segir hann, „en þau sögðu að hún mundi ekki hefta nokkurn mann sem annars ætti heimangengt.“ Á tónleikunum verður aðeins fluttur sá hluti Sálumessunnar sem Mozart samdi sjálfur. Garðar segir hann í rauninni hafa dáið frá lacrimosa-kaflan- um og hafi þá verið búinn með átta takta. Með því að flytja að- eins þennan hluta, en ekki þann sem bætt var við eftir dauða hans, erum við að leggja áherslu á að tónleikarnir eru til þess að heiðra hann.“ Garðar segir sálumessu vera latneskan kirkjutexta sem sung- inn er við andlát og yfirleitt flutt í kringum páska. „Annars eru sálumessur nú til dags flutt- ar hvenær sem er, hvort sem það eru sálumessur eftir Moz- art, Verdi eða aðra,“ segir hann. Það er óhætt að segja að Sálu- messa Mozarts sé ólýsanlega fögur og víst er að enginn verð- ur svikinn af því að sækja tón- leikana í Langholtskirkju, þar sem hún verður flutt af fimmtíu manna kór, fjórum einsöngvur- um, þeim Huldu Björk Garðars- dóttur, Sesselju Kristjánsdóttur, Snorra Wium og Davíð Ólafs- syni, auk 24 manna hljómsveitar sem skipuð er félögum úr Sin- fóníuhljómsveit Íslands. Þegar Garðar er spurður hvort hann viti um fordæmi þess að tónleikar séu fluttir eft- ir miðnætti, segir hann: „Ég veit ekki til þess að þetta hafi verið gert út í heimi, svo þetta er dá- lítið einstakt. En það gengur hér, vegna þess að við erum líklega dálítið galin. Og ég veit að það gengur, vegna þess að þegar við keyptum Söngskólann á sínum tíma, þá fylltum við Háskóla- bíó tíu eða tólf sinnum eftir miðnætti – svo það eru fordæmi fyrir þessu hér hjá okkur.“ sussa@frettabladid.is Tónleikar til heiðurs Mozart BÓKMENNTIR HLYNUR PÁLL PÁLSSON Dauðans óvissi tími Höf: Þráinn Bertelsson Útg: JPV útgáfa ! Hjá Bókaút-g á f u n n i SÖLKU er kom- in út bókin Í hlýjum skugga í þýðingu Maríu Sigurðardóttur. Eins og oft áður er raunveruleik- inn lyginni lík- astur en þessi saga er ein- mitt byggð á sjálfsævilegum atburðum þar sem höfundurinn, Lotta Thell, segir á einlægan og hreinskilinn hátt frá glímunni við heróínið. Þetta er saga um fíkn, ást, vináttu, sorg og einmanaleika. Bókin hefur vakið gríðarlega athygli og eftir henni hefur verið gerð kvikmynd. Metsölubókin Konur sem hugsaum of er komin út hjá Bókaút- gáfunni SÖLKU. Hún er eftir Susan Nolen-Hoeksema , sem er margvið- urkenndur pró- fessor í sálarfræði, og er í þýðingu Sigurðar Hróars- sonar. Konum hættir til að taka hlutina of nærri sér og eyða óþarfa orku í að velta fyrir sér v a n d a m á l u m fram og til baka. Þetta kallar höf- undur ofhugsun sem hún telur hreint og beint skaðlega andlegri og líkamlegri heilsu kvenna. Í bókinni bendir hún á áhrifaríkar leiðir til að losna undan oki ofhugsunar NÝJAR BÆKUR ÓPERUKÓRINN Samþykkti tímasetninguna á stundinni.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.