Tíminn - 24.03.1974, Blaðsíða 3

Tíminn - 24.03.1974, Blaðsíða 3
Sunnudagur 24. marz 1974. TÍMINN 3 \ Veturliöi á sýningu sinni að Kjarvalsstöðum. Timamyndir Gunnar. NÚ JÁ, HVAÐ VILJIÐ ÞIÐ FÁ AÐ VITA Ef gengið er suður Laufásveg og hugað að bakhúsum, má sjá, að eitt þeirra er umkringt sérkenni- lega sjósorfnum steinum og hval- beinum. Þar býr Veturliði Gunnarsson listmálari. Veturliði heldur þessa dagana myndlistarsýningu að Kjarvals- stöðum. Það er nokkurs konar yfirlitssýning, æði margbreytileg eins og sýningar eiga að vera. En þótt sýningin að Kjarvalsstöðum beri skapara sinum fagurt vitni, er ekki ætlunin að skrifa um hana. Nú skal rætt við lista- manninn sjálfan. — Nú já, hvað viljið þið fá að vita? — Já, fyrst þú ert að sýna, væri ekki úr vegi að spyrja þig um álit þitt á listsmekk fólks Veturliði hallar sér i stólnum, lætur lappirnar upp á borð. Eftir nokkra bið hefur hann komið sér vel fyrir. Og þá stendur ekki á svarinu. — Vinur okkar Steinn Steinarr var einu sinni spurður: yrkir þú fyrir fólkið? Fólk, hvað er nú það, sagði Steinn, er það kannski vinur minn Dósóþeus Timóteusson? Já, ég hef að minnsta kosti álit á listsmekk þess fólks, sem kaup- ir myndir af mér, og oft hefur glatt mig að sjá aðra gamla meistara vikja plássi fyrir min- um myndum á heimilum. Annars er smekkur ekki hæstíréttur i mati á list, heldur þekking og skilningur. — En finnst þér ekki oft eins og það fólk, sem kaupir myndlistar- verk, sé að kaupa nöfn lista- manna frekar en verk þeirra? — Sérstaklega verður maður þess var á uppboðum. Þar er snobb og heimska, vanþekking og sálarkreppa allsráðandi. Alls konar rusl eldri manna, og sér- staklega dauðra, seljast dýrt, en góð verk yngri manna seljast á smánarverði. Auðvitað vill fólk ekki kaupa myndir af ungum mönnum, sem kannski eiga eftir að fara i hundana. Það er mann- legt að skjátlast. — Ert þú einn þeirra manna, sem gengið hafa með myndlistina i maganum frá ómunatið? — Nú hlær Veturliði og fær sér kaffi. Sumir segja, að kaffi sé andleg driffjöður. — Þegar ég var 17 ára, sá eg fyrst málverk. Svo gekk ég með myndir i magnaum, þangað til maginn var tekinn úr mér, og siðan annað lungað úr berklum. Það var eftir alla þá holskurði, sem Kjarval hvatti mig til að kaupa utanborðsmótor. Siðan hef ég gengið með myndir i höfðinu, og eins og annað lif heimtar það að fæðast. Þess vegna verða myndir til, og þar af leiðandi mál- verkasýningar. Og nú skal dregin játning upp úr meistaranum. — Hvað og hverjir hafa haft mest áhrif á listsköpun þina? — Fyrst og fremst barna- teikningar, sem tjá heiminn óspilltum augum, og þar næst ljóð þeirra höfunda, sem skrifa með blóði, blóði hjartans. Jóhann Sigurjónsson og Jóhann Jónsson eru minir menn, ásamt austur- lenzkum höfundum, Li Po, Kahil Gibran, Hiroshige, Sotatsu og Sharaku. Ýmsir eiga erfitt með að skilja, hvi islenzkir myndlistarmenn sækja viðfangsefni sin svo mjög út i náttúruna? — Mitt er að yrkja — ykkar að Frá sýningu Veturliða skilja, og þeir sem ekki skilja, ættu annað hvort að biðja guð að hjálpa sér eða pissa á sig. Þeir sem ekki hafa lifað sólarupprás i Hvallátrum, Flateyjarsund um lágnættið og Sviðnur, eiga bágt. Það er einfaldlega ekki hægt annað en trúa á Guð á slikum stundum. — Hvað finnst þér markverðast i islenzkri samtiðarmyndlist? — Þvi er auðsvarað, það er sýningin sem nú stendur yfir á Miklatúni. Og jafnframt sá veggur, sem.ég vann ásamt Þóri Bergsteinssyni i Arbæjarskóla. Enginn, sem ekki hefur séð þann vegg úr islenzkum eðaisteinum, veit hvað bezt er i nútimalist. Ala Flóki. — Tekurðu mark á kritikerum? — Æi nei. Þetta eru yfirleitt ungir menn, yfirfullir af formúlum. Mynd á að vera svona, en ekki svona, segja þeir. Þeir vilja hafa steytta hnefa og byssu- stingi á öllum myndum. Það heitir vist að frelsa heiminn, eða eitthvað i þá áttina. Það er þessi popplist. Æpandi litir og maður að drepa annan mann. Ég held að þeir, sem þannig mála, noti lit- skuggamyndir fremur en frjótt hugmyndaflug. Og svo auðvitað hvers konar timarit. Stundum mætti ætla, að þeir klipptu úr þeim myndir. Þessar myndir veita aðeins augnabliks áhrif, og þær má sjá i kílómetravis á söfnum um allan heim. Allt um strið og annað ofbeldi. Picasso málaði strið i Guernica. Lengra verður ekki komizt á þeirri braut og þvi timi til kominn, að menn snúi sér að einhverju öðru. Nú er Veturliði i essinu sinu. Meira kaffi og enn meira kaffi. — Listamenn,segir hann, verða að vera harðir gagnvart sjálfum sér, þeir verða að aga sig. Að öðrum kosti verða þeir i mesta lagi snoppufriðir. Þegar ég var að læra i Kaupmannah., voru þar þrir Jótar.Þeim hafði verið sagt i sinni heimabyggð, að einhvers mætti frá þeim vænta. Svo þeir drifu sig til Hafnar. Þarna á skólanum var einn prófessor, sem þótti sérdeilist harður i horn að taka. En hann vildi nemendum sinum vel og sagði þessum Jótum þvi að fara heim til sin að setja niður rófur. Þeir drápu sig allir út af þessu. Einn kastaði sér niður úr Sivaiaturni, af þvi að hann var rómantiker, annar henti sér I siki, en sá þriðji notaði brennivin og pillur. Þetta mættu ýmsir islenzkir „meistarar” taka sér til fyrirmyndar. — Nú jæja. vonandi ekki, en menn geta þó haft þessi lokaorð bak við eyrað. PJETUR HAFSTEIN LARUSSON Viljið þér gefa skíðabakteríu í fermingargjöf ? Sá, sem fær skíðabakteríuna er þaðan af veikur — fyrir heilbrigSu útilífi og líkamsrækt. AS öðru leyti styrkist hann. GefiS fermingarbarninu skíSanámskeiS í Kerlingarfjöllum f sumar. ÞaSan kemur þaS ekki án skíSabakteríu, slíkur urmull sem af þeim er f fjallaloftinu uppi viS Hofsjökul. skíðanámskeiðin í sumar: Nr. Frá Rvík Dagafj. Tegund námskeiöa Verö Án kennslu 1 19. Júní 6 dagar Unglingar 12—16 ára 10.800,00 2 24. Júní 6 dagar Unglingar 12—16 ára 10.800,00 3 29. Júnl 6 dagar Unglingar 12—16 ára 10.800,00 4 4. Júlí 7 dagar Almennt námskeiö 15.800,00 ‘) 14.500,00 5 10. Júli 6 dagar FjölskyldunámskeiÖ 13.800,00 J) 12.800,00 6 15. Júlí 7 dagar Almennt námskeiÖ 15.800,00 14.500,00 7 21. Júlí 7 dagar Almennt námskeiÖ 15.800,00 14.500,00 8 27. iúlf 7 dagar Almennt námskeið 15.800,00 14.500,00 9 2. ágúst 4 dagar Alm. námsk. (skíðamót) 9.000,00 3) 10 6. Ágúst 6 dagar Almennt námskeið 13.800,00 12.800,00 11 11. Ágúst 6 dagar Unglingar 14—18 ára 10.800,00 12 16. Ágúst 6 dagar Unglinqar 14—18 ára 10.800,00 13 21. Ágúst 6 dagar Námsk. f. keppnisfólk 12.500,00 14 26. Ágúst 6 dagar Almennt nárnskeið 12.500,00 Bókanir og miðasala: ZOEGA Útih'f G/æsibæ FERÐASKRIFSTOFA HAFNARSTRÆTI 5 Aíh.biðjiðum upplýsingabælding. Skíðaskólinn í Kerlingarfjöllum

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.