Tíminn - 08.06.1974, Blaðsíða 1

Tíminn - 08.06.1974, Blaðsíða 1
Auglýsingadeild TÍMANS Aðalstræti 7 91. tölublað— 'Laugardagur 8. júni—58. árgangur. kostar kemst MINNA LENGRA Tékkneska bifreiða- umboðið á íslandi Auðbrekku 44-46 Kópavogi Sími 42606 Misnotkun Sjdlfsstæðisflokksins d umferðarmerkjum: ÓHÆFA AÐ GERA UMFERÐAR- MERKI AÐ ARÓÐURSSPJÖLDUM Slíkt er misnotkun, segir forstöðumaður Bifreiðaeftirlitsins — menn sammdla um að stöðva þetta, segir umferðarfulltrúi — 1 38. grein reglugerðar um umferðarmerki og notkun þeirra segir meðal annars: „Óheimilt er að setja auglýsingar á umferðar- merki né nokkuð annað, merkja- gjöfinni óviðkomandi”. Af þessu virðist mér augijóst, að það er alls ekki ætlunin að gera um- ferðarmerkin að áróðurs- eða auglýsingaspjöldum i þágu eins eða neins. Þannig svaraði Guðni Karls- son, forstöðumaður Bifreiðaeftir- lits rikisins, er Timinn sneri til hans i gær og leitaði álits hans á þvi, að einn stjórnmálaflokkanna, Sjálfstæðisflokkurinn, brá á það ráð i borgarstjórnarkosningunum að lima eftirmynd umferðar- merkis, sem notað er á gatnamót- um, þar sem er stöðvunar- eða biðskylda, á bila i áróðursskyni. Eru á þessu umferðarmerki orð- in: „Varizt vinstri slysin”, og sést það enn á mörgum bilum, þótt alllangt sé liðið frá kosningum og mönnum ekki grunlaust um, að sami aðili hugsi sér að nota þetta áróðursbragð enn frekar i al- þingiskosningunum 30. júni. — Það gildir einu hvaða flokkur það er, sem þannig tekur um- ferðarmerki i sina þágu, sagði Guðni enn fremur — slikt er mis- notkun og á alls ekki að eiga sér stað. Umferðarmerki á ekki að nota til neins annars en leiðbein- ingar fyrir vegfarendur, boða eða banna i umferðinni. Spyrji einhver, hvort þessir umræddu miðar á bilunum séu umferðarmerki, svara ég þvi hik- laust játandi. Þeir eru með sama lit og lögun og umferðarmerkin, Framhald á bls. 19 Konungskoman: Sjd frdsögn og myndir d bls. 6—7 Deildarfundur heimspekideildar: AUKUM VOLD STUDENTA AÐMUN — allsherjar endurskoðun d stjórn, kennslu og skipulagi í heimspekideild HP-Reykjavik. — Undan- farinn mánuð hefur staðið yfir allsherjar endurskoðun á stjórn kennslu og skipuiagi i heimspekideild Háskólans. 1 deildinni eru kenndar u.þ.b. 20 námsgreinar og til ein- földunar á öllu skipuiagi og daglegum rekstri gerði háskólaráð, að tillögu deildar- fundar ýmsar gagngerar breytingar. Komið var á fót sérstöku deildarráði, kosnu af deildarfundi, en hann sitja aliir kennarar við deildina (25- 6) og 2 stúdentar. t deildarráði eiga sæti um 10 manns, þar af 2 stúdentar. i svokallaðar „skorir” var siðan raðað skyldum námsgreinum og stjórn þeirra höfðu á höndum kennarar þeirra námsgreina og 2 stúdentar. Þar er at- kvæðahlutfallið nokkuð gott, en eins og sjá má, eru mögu- leikar stúdenta til áhrifa á æðri stöðum heidur litlir. Deildarfundur haldinn 5. april sl. samþykkti með 13 atkvæð- um gegn 1, tillögu stúdenta þess efnis, að þeir fengju 1/3 hluta atkvæða á deildarfundi, sem og i deildarráði og i skor- um. Tillaga þessi var send há- skólaráði, sem eftir að hafa fjallað um hana, sendi hana áfram til ráðuneytisins og þar við situr. Að sögn Sigurjóns Björns- sonar, deildarforseta, eru skoðanir kennara við há- skólann verulega skiptar um þetta mál. Margir llta svo á, að stúdentar séu aðeins I há skólanum til þess að læra og þá það, sem fyrir þá er lagt, án þess að þeir hafi nokkuð um það mál að segja. Ræður þar venjuleg barna- og gagn- fræðaskólahugsun. Enn aðrir álíta, að allar deildir -há- skólans skuli fylgjast að I umbótaátt, en eins og Sigurjón benti á, kemur nauðsyn þess- ara breytinga fyrst fram i mannmörgum og fjölbreytt- um deildum. Auk þess er augljóst, að einhver verður að byrja. Stúdentar koma að visu fram með ákveðnar kröfur, en þær kröfur fela einnig i sér vissar tilslakanir af þeirra hálfu, þar eð atkvæðahlut- fallið i sjálfum skorunum get- ur breytzt nái þessi tillaga fram að ganga. Til þess að athuga hvernig tillögunni liði, var haft sam- band við ráðuneytið. Hrafn- hildur Stefánsdóttir sagði að ef þessi tillaga hefði komið, ætti hún að hafa hafnað á sinu borði. Það hefði hún ekki gert og þar við situr. Rætt við Ólaf Þórðarson skólastjóra, 3. mann á framboðslista $ OPNU Framsóknatflokksins f Vesturlandskjördæmi • • „Ondvegissúlum" varpað í sjóinn -hs-Rvik. Þjóðhá tiða rn ef nd Reykjavíkur hefur látið varpa I sjóinn 120 súlum við suður- ströndina, og voru fengnir til þess skipverjar á rannsóknarskipinu Bjarna Sæmundssyni. Var súlun- um 120 varpað i sjóinn á svæðinu frá Stokksnesi að Garðsskaga, og cru þær svipaðrar gerðar og ætla má, að öndvegissúiur fornmanna hafi verið. Þessar súlur eru tveggja metra langar og viðlika gildar og girðingastaurar. Þær eru málaðar i rauðum og hvitum lit- um. Tilgangurinn er að sjálfsögðu sá, að sjá hvar þær ber að landi, en eins og hvert islenzkt manns- barn veit, varpaði Tngólfur Arnarson öndvegissúlum sinum fyrir borð, og nam þar land, er þær rak að landi, — i Reykjavik.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.