Tíminn - 01.11.1974, Blaðsíða 1

Tíminn - 01.11.1974, Blaðsíða 1
fóðurvörur ÞEKKTAR UM LAND 4 LLT Stjórnventlar Olíudælur Olíudrif %' ti Landvélar hf í DAG Böðull lífsins — Sjá bls. 8 Konur sækja fram — Sjá Erlent yfirlit á bls. 9 Áfengis- sjúklingar eru fleiri en krabba- meins- sjúklingar — Sjá viðtal á bls. 10 og 11 Olía og bensín fyrir sex milljarða OÓ—Reykjavik — Geröir hafa veriö I Moskvu samningar um kaup á oliu til tsiands fyrir áriö 1975. Samningarnir eru ekki óhag- stæöari en gert haföi veriö ráö fyrir, en sem kunnugt er hefur oröiö mikil hækkun á oliu áþessu ári. Verð á öllum oliutegund- um er miðað við skráningar á heimsmarkaðnum, án yfir- greiðslu, og fellur þvi niður 1/2% yfirgreiðslna á gasoliu og bensini, sem nú er I gildi. Samið var um kaup á olium fyrir um 50 milljón dollara, eða tæpa sex milljarða islenzkra króna. Samningurinn var undir- ritaður 25. okt. s.l. af fulltrú- um viðskiptaráðuneytisins og Sojuznefeexport, og var samið um kaup á um 300 þúsund tonnum af gasoliu, 100 þúsund tonnum af fuel- oliu og 80 þúsund tonnum af benslni. t samningaviðræðunum tóku þátt af Islands hálfu Þórhallur Asgeirsson ráðuneytisstjóri, Hannes Jónsson sendiherra og fulltrúar oliufélaganna þeir Indriði Pálsson, Vilhjálmur Jónsson, önundur Asgeirs- son og Arni Þorsteinsson. Fjárlög hækka um 52% OÓ—Reykjavik — Frumvarp til fjárlaga fyrir áriö 1975 var lagt fram á alþingi i gær. Niöurstööu- tölur frumvarpsins eru rúmir 45 milljaröar króna og er þaö um 52% hækkun miöaö viö siöustu fjárlög, en þau hijóöuöu upp á tæpa 30 milljaröa króna. t athugasemdum með frum- varpinu segir, að við gerð þess var lögð höfuðáherzla á þrjú meginmarkmið. 1 fyrsta lagi að sporna við þenslu rikisbúskapar- ins miðað við önnur svið efna- hagsstarfseminnar i landinu. 1 öðru lagi að stilla opinberum framkvæmdum svo i hóf, að ekki leiði til óeðlilegrar samkeppni um vinnuafl, án þess þó að atvinnu- öryggi sé stefnt i hættu eða að það komi niður á þjóðhagslega mikil- vægustu framkvæmdunum. í þriðja lagi að styrkja fjárhag rikissjóðs og stuðla jafnframt að efnahagslegu jafnvægi i viðari skilningi, en það verður eitt meginviðfangsefnið á næsta ári. Helztu útgjaldaliðir frum- varpsins eru: Til heilbrigðis- og tryggingamála tæpir 15 milljaröar króna. Þar af til tryggingamála tæpir 14 milljarðar króna. Til mennta- mála fara tæpir 7,5 milljarðar króna. Til samgöngumála er áætlað að verja rúmum 5 milljörðum króna, þar af til vega- mála rúmum þremur mill- jörðum. Niðurgreiðslur eru áætl- aðar tæpir 4 milljaðar króna. Aörir liðir eru talsvert lægri. Til tryggingamála. verður varið 30,7% af útgjöldum rikisins, til fræðslumála 15% til vegamála 7,2% og til niðurgreiðslna 8,1%. Framlög til byggðasjóðs eru aukin og nema samtals 877 millj, kr. I stað 153 millj. kr áður. Er þar um að ræða 2% af útgjöldum fjárlagafrumvarpsins. Helztu tekjustofnar eru tekju- skattur, tæpir 7 milljarðar kr., gjöld af innflutningi þ.e. tollar, rúmar 12 milljarðar kr., sölu- skattur tæpir 16 milljarðar króna, og tekjur af ATVR 3,5 milljarðar króna. Hlutfall skattheimtu er þannig, að 18,7% rikistekna eru teknar með beinum sköttum og 80,4% I óbeinum sköttum. Það sem á vantar I 100% eru arð- greiðslur frá fyrirtækjum og sjóðum rikisins. 1 athugasemdum við fjárlaga- frumvarpið segir, að verklegar framkvæmdir rikisins hækki um tæpa tvo milljarða króna eða 33,8% frá fjárlögum 1974. Þar sem almenn verðhækkun hefur á sama timabili verið 50-55% er i raunum 10-15% magnminnkun að ræða. Þá kemur fram, að yfir- dráttarskuld rikissjóðs við Seðla- bankann verður um 1 milljarður kr. um næstu áramót, og er gert ráð fyrir, að fjórðungur þeirrar skuldar verði greiddur á næsta ári. 1 frumvarpinu er gert ráð fyrir.að skattvisitala hækki um 45%, eða i samræmi við hækkun meðaltekna til skatts. Auk þess eru áætlaðar tekjur rikissjóðs af tekjuskatti einstaklinga lækkaður um 500 millj. kr, og er með þvi greitt fyrir samræmingu al- gengustu bóta almannatrygginga og tekjuskattsins. Bein skatt- byrði, reiknuð sem álagðir beinir skattar i hlutfalli. við tekjur fyrra árs, lækka þvi úr 16.6 i 16,3%. I athugasemdum með frum- varpinu segir, að meginforsendur þess séu eftirfarandi: „Launaliður frumvarpsins er miðaður við kauplag, eins og það er i lok september 1974, og gjald- liðir almennt að öðru leyti við verðlag á þeim tima. Þannig eigi áhrif kjarasamninganna á sl. vori að vera komin inn i útgjalda- áætlanirnar, og hið sama á við áhrif gengislækkunarinnar i september, sökuskattshækkunar- innar 1. október og annarra gjald- hækkana, sem orðið hafa á árinu. Heildarhækkun launakostnaðar er 35%, ef miðað er við fjárlaga- tölur 1974. en vegna þess að þar voru áætlaaðar 400 m.kr. upp i væntanlega kjarasamninga, er hækkunin frá þeim töxtum, sem giltu við samþykkt fjárlaga, þeim mun meiri, eða 43,8%. Af þessari hækkun eru 29,3 prósentustig af- leiðing kjarasamninganna. 1,0 stig stafar af láglaunabótum i september og 6,2 stig eru verð- Framhald á 6. siðu. Oryrkjaíbúðir í Kópavogi? HJ—Reykjavik — Bæjarstjórn Kópavogs hefur sent öryrkja- bandalaginu bréf, þar sem þvi hefur verið boöin aöstaöa til aö koma upp húsi fyrir öryrkja og aldraða i miöbæ Kópavogs. Nokkrir fundir hafa veriö haldnir meö þessum aöiium um máliö, enda mun aöstaða öll I Kópa- vogsmiöbæ veröa mjög góö fyrir slika starfsemi, þar sem hann hefur veriö hannaöur meö þaö fyrir augum sérstaklega, aö fólk I hjólastólum komist þar allra sinna feröa. Að sögn Odds Ólafssonar, for- manns hússjóðs öryrkjabanda- lagsins, er málið enn á frumstigi, en allar likur benda þó til, að Oryrkjabandalagið láti reisa þar húsnæði með svipuðu sniði og niu hæöa blokk Oryrkjabandalagsins við Hátún i Reykjavlk. Ásgeir Bjarnason forseti sameinaðs ■OÓ-Reykjavik — A þingfundum I gær voru kjörnir forsetar þings- ins og skrifarar. Asgeir Bjarna- son var kjörinn forseti sanreinaös þings. Þorvaidur Garöar Kristjánsson var kjörinn forseti efri deildar og Ragnheiður Helga- dóttir forseti neöri deildar. A fundi sameinaðs þings var Asgeir Bjarnason kjörinn forseti með 43 atkvæðum. Auðir seðlar voru 13. Gils Guðmundsson var kjörinn fyrri varaforseti með 43 atkvæðum, auðir seðlar voru 12. Annar varaforseti var kjörinn Friðjón Þórðarson með 43 at- kvæðum. 13 seðlar voru auðir. Skrifarar voru kjörnir Jón Helga- son og Lárus Jónsson. Við forsetakjör i efri deild hlaut Þorvaldur Garðar Kristjánsson 14 atkvæði, en 4 seðlar voru auðir. Fyrri varaforseti var kjörinn Eggert G. Þorsteinsson með 18 atkvæðum, einn seðill var auður. Steingrimur Hermannsson var kjörinn annar varaforseti með 13 atkvæðum, 6 seðlar voru auðir. Skrifarar voru kjörnir þeir Steinþór Gestsson og Ingi Tryggvason. Ragnhildur Helgadóttir var kjörin forseti neðri deildar m^ð 28 atkvæðum, 8 þingmenn skiluðu auðu. Fyrri varaforseti var kjör- inn Magnús Torfi Ólafsson með 30 atkvæðum, 6 seðlar voru auðir. Ingvar Gislason var kjörinn annar varaforseti með 26 at- kvæðum, 10 seðlar voru auðir. Skrifarar neðri deildar voru kjörinn þings kjörnir Guðmundur H. Garðars- son og Páll Pétursson. Taldi Oddur, að aðstaða þarna myndi verða mjög góð. I grennd- inni yrði bæði heilsugæzlustöð og verzlunarhverfi, sem öryrkjarnir hefðu aðgang að. Auk þess er I deiglunni, að reist verði tómstundamiðstöð fyrir öryrkja og aldraða, en enn er ekki útséð um, hvort Félagsmálaráð Kópa- vogsbæjar eða öryrkjabanda- lagið hefðu umsjón með byggingu hennar. 1 tómstundamiðstöðinni er gert ráð fyrir bæði aðstöðu til tómstundaiðju og vinnuiðkana fyrir öryrkjana. Kvaðst Oddur gera ráð fyrir, að þarna væri um að ræða 30-40nýjar ibúðir, sem Oryrkjabandalagið léti reisa, en leigði siðan út til öryrkja og aldraðra. Mikil þörf er á auknu húsnæði til þessara nota, þvi að öryrkjabandalagið þurfti að leigja rikisspitölunum hluta af húsnæðinu i Hátúni, þar sem rik- isspitalarnir voru i mjög brýnni þörf fyrir það. Oddur gat þess sérstaklega, að máliö væri enn á undirbúnings- stigi, og hefðu ekki verið teknar endanlegar ákvarðanir I þvi. A hinn bóginn væri ljóst, að aðstaða yrði þarna öll til fyrirmyndar, þar sem sérstaklega heföi veriö hugað að öryrkjum við hönnun bæjarins. Asgeir Bjarnason tekur við embætti forseta sameinaös þings. A bak viö hann gengur Guölaugur Gisla- son aldursforseti þingsins úr forsetastóii. Sitt tii hvorrar handar forseta eru skrifararnir Ellert Schram og Jón Helgason. Timamynd Gunnar.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.