Tíminn - 01.12.1974, Blaðsíða 11
Sunnudagur 1. desember 1974.
TÍMINN
11
KIRKJUHÁTÍÐ
í VESTURDAL
í GOÐDÖLUM
Hinn 17. nóv. sl. var þess
minnzt með hátiðarguðsþjónustu
i Goðdalakirkju, að liðin eru 70 ár
frá vigslu kirkjunnar, en hún var
reist sumarið 1904. Torfkirkja
hafði veriðá staðnum um sinn, en
svo léleg orðin á niunda tug
nitjándu aldarinnar, að efnt var
til nýrrar kirkjugerðar 1886. Var
það timburkirkja, sem Árni
Jónsson snikkari smiðaði, en
hann hafði það álit, að hann væri
beztur smiða hér um slóðir i
þann tíð. Þó fór svo, að þetta
vandaða hús fauk i ofviðri af
suðaustan 28. des. 1903 og
brotnaði I smá mola. Mæðgurnar
i Bjarnastaðahlið voru staddar I
Goðdölum, 1876-86. Yfirsmiður
var Þorsteinn Sigurðsson á
Sauöárkróki, er margar kirkjur
byggði i héraðinu.
Fyrir 15 árum hlaut kirkjan
gagngerar endurbætur og
margar dýrmætar gjafir.
Fyrsti organisti i Goðdölum var
Magnús Jónsson i Gilhaga. Siöan
tók viö Guðmundur Ólafsson i
Litluhlið, og stýrði hann kirkju-
söngnum i áratugi. Gisli sonur
hans var svo organisti um árabil,
en mörg hin siðustu árin Björn
Ólafsson á Krithóli.
Guðmundur Sveinsson I
Bjarnastaðahlið var lengi
meðhjálpari, einnig Björn Egils-
Goðdalakirkja
Goðdölum, og tókst þeim að
bjarga ýmsum munum
kirkjunnar, s.s. altarisklæði frá
1763 og töflu frá 1837. Orgel var þá
komið I kirkjuna, en mun hafa
verið i bænum.
Um voriö eftir fór Sira Sveinn
Guðmundsson, siðar i Árnesi,
burt af staðnum hefur ekki setiö
þar prestur siðan, en brauðið
sameinað Mælifelli 1907. Þótt
presturinn færi við svo búið,
misstu sóknarmenn ekki kjark-
inn, en reistu veglega kirkju um
sumarið. Góður styrktarmaður
safnaðarins var sira Zóphanias
Halldórsson, prófastur i Viðvik,
en hann var áður prestur i
son á Sveinsstöðum, en undanfar-
in misseri Siguröur Bróðir hans.
1904 fengu hjónin Jón
Halldórsson og Friðrika
Sigtryggsdóttir ábúð á Goðdölum.
Hann lézt 1920, en hún hélt áfram
búi til 1935. Þá hófu búskap á
jörðinni Simon Jóhannsson og
kona hans Monika Sveinsdóttir.
Eignuöust þau Goðdali. Monika
er enn á staðnum i hárri elli með
sonum sinum, Grétari og
Borgari, en þeir tóku við búi fyrir
aldarfjórðungi. Þriðji bróðirinn,
Trausti, byggði nýbýli úr
Goðdölum um sömu mundir og
heitir þar á Hverhólum. — Hafa
---------——-
Kveikjuhlutir
í flestar tegundir
bíla og vinnuvéla
frá Evrópu og Japan.
Y HLOSSI?-----------------
Skipholti 35 ■ Simar:
8-13-50 verzlun ■ 8-13-51 verkstæði • 8-13-52 skrifstofa
-<
é
Permobel
Blöndum
bílalökk
^3LOSS£
Skipholti 35 ■ Símar:
8-13-50 verzlun • 8-13-51 verkstæði • 8-13-52 skrifstofa
V
AUGLÝSIÐ í TÍMANUM
JOHNS-MANVILLE
Hvað er málað?
Hjá Axel Eyjólfssyni er nú hægt aö fá ódýrari klæðaskápa
(óspónlagða), sem gefur þann möguleika að mála eða bæsa
eftir eigin höfði.
Með hverjum klæðaskáp fylgir bæklingur, sem hefur að geyma
allar upplýsingar um meðferð lita frá MÁLNING H.F.
Sérstaklega er mælt með KÓPAL-HITT, sem fáanlegt er i
þúsundum litabrigða, eða KJÓRBÆS sem gefur skápnum
léttan og fallegan blæ. Nánari upplýsingan
Húsgagnaverslun
AXELS EYJÓLFSSONAR Smiójuveg 9 Kópavogi. simi 43577
MÁLNING H.F Kársnesbraut 32 Kópavogi. simi 40460
þvi aðeins tvær fjölskyldur búið i
Goðdölum sl. 70 ár.
Slik festa var áður um prestana.
Tveir þeirra þjónuðu brauðinu
samfleytt i 104 ár, sira Þorkell
Olafsson, sem kom á staðinn 1558,
og svo sira Sigurður Jónsson, er
hélttildauðadags 1662. Lengst sat
I Goðdölum sira Skúli Magnússon
I 66 ár. Hann lézt undir jól 1711,
sama árið og sonarsonarsonur
hans og alnafni, Skúli fógeti,
fæddist. Þá má geta þriggja
feöga, sem héldu staðinn i 80 ár
frá 1713. Sira Páll Sveinsson, er
kom 63 ára i Goðdali, sira Sveinn
son hans og sira Jón Sveinsson.
Bróðurson hans var Sveinn
Pálsson náttúrufræðingur og
læknir. A 19. öldinni er enginn
prestur fastur i sessi á þessum
stað. Agerðust prestaskipti æ
meir, er leið á öldina, og það svo,
að þau 18 ár, sem kirkjan frá 1886
stóð, þjónuðu henni 3 staðar-
prestar og 2 nágrannar á Mæli-
felli.
Þegar núverandi kirkja var
vlgð, þjónaði henni slra Sigfús
Jónsson á Mælifelli, siðar
kaupfélagsstjóri og alþingis-
maður. 1918 tók sira Tryggvi
Kvaran við og var Goödala-
prestur til 1938, er hann fék
veitingu fyrir Glaumbæ. Þá
þjónaði sira Lárus Arnórsson á
Miklabæ Goðdölum og Árbæ i 3
ár, unz sira Halldór Kolbeins kom
að Mælifelli. Við burtför hans
þjónaði sira Gunnar Gislason i
Glaumbæ eitt ár, en siðan sira
Bjartmar Kristjánsson á Mæli-
felli 22 ár.Ennvarð prestlaust, og
þá 14 ár, og hélt þá sira Sigfús Jón
Arnason á Miklabæ allt Mælifells-
kall. Frá 1972 hefur aftur setið
prestur á Mælifelli, og er hann
hinn áttundi i röö Goðdalapresta
þessi 70 ár, sem nú var minnzt.
Hátiðardaginn var fjölmenni
við Goðdalakirkju I björtu og
fögru vetrarveðri. Sira Gisli H.
Kolbeins á Melstað predikaði,
sóknarpresturinn flutti erindi um
sögu staðar og kirkju, og Björn
Ólafsson stýrði miklum kór, en
sungnir voru hátiöasöngvar sira
Bjarna Þorsteinssonar. Siðan var
gengið til bæjar, og settust
kirkjugestir að veizluborði hjón-
anna i Goðdölum, Rósu
Guðmundsdóttur og Borgars
Simonarsonar.
Agúst Sigurðsson
EYJOLFSSONAR
Smiójuvegi 9 Kópavogi sími 43577
40%
ódýr
§Wáliö
glerullar-
9 einangrun
er nú sem fyrr vinsaelasta og öruggasta glerull-
areinangrun á markaðnum i dag. Auk þess fáið
þér trían álpappir með. Hagkvæmasta
einangrunarefnið i flutningi. Jafnvel flugfragt
borgar sig.
Munið Johns-Manville I alla einangrun.
Sendum hvert á land sem er.
Hringbrout 121 . Simi 10-600