Tíminn - 11.01.1975, Blaðsíða 6
TÍMINN
Laugardagur 11. janúar 1975.
vor”, sem sérstaka eftirtekt
vekur á sýningunni, Hallfriöur,
dóttir þeirra hjóna, hefur einnig
gefið oliumynd og vatnslitamynd,
„Hveitibrauðsskipið”, sem
margir velta fyrir sér. Klara
Guðmundsdóttir hefur gefið
safninu oliumynd af föður
hennar, Guðmundi Daviðssyni
auk fjögurra teikninga, en I
nóvember sl. voru liðin 100 ár frá
fæðingu hans. Helga Bjarnadóttir
hefur gefið ljósmynd og bréf I
minningu meistarans. Sigurgeir
Þorvaldsson hefur gefið safninu
ljóð, skrautritað og innrammað,
og loks hefur Óskar Gislason
gefið safninu kvikmynd um
Kjarval og ljósmyndir.
Alfreö Þorsteinsson borgarfulltrúi og Geir Hallgrimsson forsætisráðherra við myndina „Yndislegt er úti vor”. Tfmamynd: Gunnar.
75 KJARVALSMYNDIR Á SÝNINGU
AÐ KJARVALSSTÖÐUM
BH-Reykjavik. — 1 gær var
opnuö aö Kjarvalsstööum sýning
á verkum Jóhannesar Sveins-
sonar Kjarval. Eru aö þessu sinni
sýnd 75 verk meistarans i eigu
Reykjavíkurborgar, en nokkur
þeirra voru formlega afhent við
opnun sýningarinnar. Enn önnur
hafa borginni borizt aö gjöf á
árinu, og þó nokkur verk sáust
þarna i fyrsta sinni á sýningu.
Borgarstjóri, Birgir ísleifur
Gunnarsson, bauð sýningargesti
velkomna, minntist meistarans
nokkrum orðum og helztu gjafa,
er borginni hafa borizt i lista-
verkasafn, sitt. Þvi næst tók til
máls Gunnar Gunnarsson
kaupmaður, sonarsonur Astu
Hallsdóttur tannsmiðs, en
erfingjar hennar færðu safninu
undirfagurt listaverk eftir
Kjarval til minningar um hana.
Ber það nafnið Hugarkvöl og er
málað 1945. Færði meistarinn
vinkonu sinni verkið að gjöf á
fimmtugs afmæli hennar.
Á árinu hefur safninu borizt
margt veglegra gjafa, og skal hér
getiö þess helzta: Matthildur
Kjartansdóttir, ekkja Guðbrands
Magnússonar, gaf safninu tvö
ollumálverk stuttu áður en hún
lézt, en þau hjón dóu bæði á sl.
ári. Annað verkið er málverk af
þeim hjónum, „Yndislegt er úti
Það er margt, sem vekur
athygli gestins og laðar augað á
þessari sýningu. Ef til vill hrifst
maður hvað sterkast af orku-
myndunum tveim á göflum
salarins, þeim, er áður hengu i
írafossstöðinni, en eru nú komnar
i eigu borgarinnar. Fögur og
eftirtekatarverð er Viðeyjar-
myndin frá 1930, sem hefur
sögulegt heimildargildi meö
byggingararnar á austurtang-
anum. Skemmtilegt ihugunarefni
eru mannamyndirnar I öllum
sinum fjölbreytileik, sumar
nánast einfaldar að gerð i stærð
sinni ,— og svo ollumálverk af
Sigfúsi Johnsen með lilju I kjölt-
unni.
Heimur Kjarvals er stórfeng-
legur heimur, sem maður er ætið
þakklátur fyrir að mega
skyggnast inn i.
Aðgangur að Kjarvalssýning-
unni er ókeypis.
Reynir Þorgrimsson og Ásgeir Gunnarsson meö veröiaunin.
Junior
Chamber hlaut
verðlaun
NÝLEGA er lokið heimsþingi
Junior Chamber-hreyfingarinn-
ar, sem að þessu sinni var haldiö i
borginni Auckiand á Nýja-Sjá-
landi. Fulltrúi islenzku hreyfing-
arinnar var Reynir Þorgrimsson,
landsforseti 1974.
A þessu þingi hlaut islenzka
hreyfingin i fyrsta sinn alþjóðleg
verðlaun, svokölluð „Springbok”
verðlaun, en þau eru einstöku
sinnum veitt, þegar fram koma
frábær kynningargögn um sjálfa
hreyfinguna. Er það þvi mjög
eftirsóttur heiður að hljóta þau.
Verðlaunaverkefnin var aðal-
lega unnið af þeim Reyni Þor-
grimssyni og Asgeiri Gunnars-
syni með aðstoð þriggja annarra
Junior Chamber-félaga, þeirra
Ragnars Þ. Guðmundssonar,
Ólafs Stephensen og Helga K.
Hjálmssonar. Verkefnið saman-
stendur af sögulegri kynningu á
hreyfingunni með 38 slides-mynd-
um, kynningargrein sem heitir
„Hvað er J.C.?”, sem er nafn
bókarinnar, og að lokum
námskeið i stjórnun og skipulagi
Junior Chamber félags i tveimur
hlutum og tiu köflum. Fylgja þvi
16 glærur fyrir myndvarpa.
Þetta verk þykir það fremsta,
sem til er innan alþjóðahreyfing-
arinnar. Auk þess fékk islenzka
hreyfingin sérstaka
viðurkenningu fyrir mikla aukn-
ingu félagsmanna, sem varð 80%
á starfsárinu.
Að lokum munaði litlu, að
önnur veigamikil verðlaun fengj-
ust á þessu þingi, en i úthlutunar-
nefndinni munaði aðeins einu
atkvæði að Island fengi verðlaun
fyrir útgáfustarfsemi. Samtals
voru gefin út á starfsárinu sjö
námskeiða- og leiðbeiningar-
bæklingar.
Breytingar d Brauð
bæ við Óðinstorg
gébé-Reykjavik.— A föstudaginn
voru liöin tiu ár frá þvi aö
veitingahúsiö Brauöbær var
opnað og af því tilefni boðaöi
eigandi fyrirtækisins, Bjarni I.
Arnason, blaöamenn á sinn fund
og sýndi þeim hinar miklu og
gagngeru breytingar, sem nýlega
hafa verið gerðar á veitinga-
húsinu viö Óöinstorg.
Veitingahúsið er mjög glæsi-
lega innréttað, jg sá teikrustofan
ARKO um hönnun innréttinga. Þó
munu flestar hugmyndirnar um
breytinguna komnar frá eigand-
anum.
Nýjar flisar voru settar á gólf
veitingahússins, og kostaöi sú
breyting hálfa milljón króna. Þá
var gólfrými aukiö, og nú komast
fleiri I sæti en áður, en alls geta
snætt þarna um fimmtlu manns I
einu. Þá var og öllum innrétting-
um breytt, en sjón er sögu rikari,
en þeir eru áreiðanlega margir,
sem eiga eftir að leggja leið sina I
þetta glæsilega veitingahús.
Hjá Brauðbæ starfa um fjörutiu
manns, en fyrirtækið rekur einnig
veitingahús við Hlemmtorg.
Hinar frægu samlokur
Brauðbæjar, sem fást I flestiim
matvöruverzlunum, eru vel
þekktar i höfuðborginni, en einnig
útbýr Brauðbær kalt borð og
snittur fyrir viðskiptavini sina og
sendir heim.
Bjarni I. Arnason sagði, aö á
þessum tiu árum, sem fyrirtækiö
hefur starfað, hafi verið hafðar að
ieiðárljósi þær reglur að hafa gott
nraeini til matargerðar og
frábært starfsfólk með góöan
starfsanda, sem vonandi heföi
leitt til góðrar þjónustu við
viðskiptavinina.
A matseðli veitingahússins
gefur að lita marga girnilega
rétti, og þar eru m.a. réttir
sérstaklega ætlaðir fólki, sem vill
halda likamsþyngdinni I skefjum,
— réttir með fáum hitaeiningum.
Þá er séstakur barnamatseðilll,
og heitu réttirnir t.d.! Andrésar
andareggjakaka, Mikka músar-
hamborgari og fleira. Þau börn,
sem ljúka af diskum sinum, fá
svo Aladdin-is i verðlaun.
l- 1 ■ V. P"| * í 1 ; '4/*
IWi' ill (KmX' * pL * i*
ÍS&**Mt | j ’ ' Æ
,J. ' iWSsjÍl i
Eigandi Brauðbæjar, Bjarni Ingvar Árnason, ásamt konu sinni, Sigrúnu Oddsdóttur, og starfsstúlkum I
hinum glæsiiegu húsakynnum veitingahússins, v/óöinstorg. Timamynd: Gunnar.