Tíminn - 01.06.1975, Page 27
Sunnudagur 1. júni 1975
TÍMINN
27
Listdanssýning
Þjóðleikhússins endurtekin
Listdanssýning Listdansskóia
Þjóðieikhússins og tslenzka
dansflokksins verður endurtek-
in á sunnudaginn kiukkan 15.
Fyrri sýning flokksins að
þessu sinni var siðastliðinn
laugardag og vakti ánægju
þeirra er viðstaddir voru.
Listdans — eða ballett — er
ung atvinnugrein og ung list-
grein hér á landi og fyrstu dans-
sporin á þeirri leið, að skapa
danshefð á tslandi eru stigin
þessa dagana. Er þess að
vænta, að almenningur geri sér
það ljóst, að ekki er einasta
nauðsynlegt að æfa dansara til
þessa framtiðarhlutverks held-
ur verður einnig að þjálfa upp
áhorfendahóp — almenningur
þarf lika að læra dans.
Nemendasýning
í leikskrá, að dansskrá seg-
ir m.a. á þessa leið:
Nemendasýning listdansskói-
ans er æviniega eins konar
ieiftursýn í framtlðina. Hér má
ekki búast við hinni fullmótuðu
iistsköpun — miklu fremur er
það von og eftirvænting, sem
svífur yfir sviðið. Og ekki sakar
að hér tekur tsienzki dansflokk-
urinn — sem eins og við vitum
er kominn furðu vel áleiðis —
höndum saman við þá yngstu,
sem hér stiga sin fyrstu spor.
Eins og árangur dansflokksins,
þá er það fyrst og fremst af-
rakstur af kennslu Alans Cart-
ers, sem hér gefur að lita. En
hann hefur líka haft gott að-
stoðarfólk — og eftir að hann fór
af landi brott, hefur Ingibjörg
Björnsdóttir borið hita og þunga
dagsins við undirbúning þessar-
ar sýningar, ásamt sjálfum
dansflokknum.
Efnisskrá.
A efnisskrá eru m.a. þessir
dansar. Veöurútlit: Bjart með
skúrum á milli Tónlist eftir
Schumann, dans eftir Ingi-
björgu Björnsdóttur. Þetta er
hópdans, þar sem fjölefli þessa
flokks kemur fram.
Þá kemur Breytileg átt: Þrir
stuttir dansar Þá fyrst Taran-
tella við tónlist Tchaikovskis,
dansinn saminn og dansaður af
Auði Bjarnadóttur og Nönnu
ólafsdóttur.
Þá Spænskur dans, saminn og
dansaður af Guðrúnu Pálsdótt-
ur og Ingibjörgu Pálsdóttur og
aö lokum er nútimadans,
dansaður og saminn af Guð-
mundu Jóhannesdóttur, Helgu
Bernhard, Helgu Eldon og Erni
Guðmundssyni.
Siöast er Vor um veröid alla:
En þar dansar Islenzki dans-
flokkurinn verk eftir flokkinn,
en það er samið meö aðstoð
Ingibjargar Björnsdóttur.
Sem áður var sagt, var fyrri
sýning Þjóðleikhússins siðast-
liðinn laugardag. Vakti hún
mikla athygli og ánægju við-
staddra og vonandi verður fjöl-
mennt á siðari sýningu flokksins
á sunnudaginn (1. júni).
JG
„Veöurútlit: Bjart með skúrum á milli” eftir Ingibjörgu Björnsdóttur.
Nemendur úr Iistdansskóla Þjóðleikhússins og tslenzki dansflokkur-
inn flytja.
Úr atriði i Bailettinum „Vor um veröld alla” Nanna ólafsdóttir,
örn Guðmundsson og Auður Bjarnadóttir i hlutverkum sinum.
Færeyjaferö er
oðruvisi
Blómasendingar
gébé Reykjavik — Eins og flestir
munu vita, eyðilögðust langflest-
ar blðmaplöntur f Vestmannaeyj-
um igosinu. Þar voru um fjörutiu
garðplöntur fyrir gos, en aðeins
fjórar eftir að gosi lauk. Mikill
áhugi rikir hjá Eyjabúum að
rækta upp garða sfna á ný, og
vinna garðeigendur þar nú að þvi
fullum fetum að fá eíns mikið af
blómum til Eyja og hægt er.
Garðar eru farnir að grænka og
nýlega var stofnað Garðyrkju-
félag í Eyjum sem beitir sér fyrir
þvi að fá plöntur í garðana.
Garðyrkjufélagið hefur beðið
alla þá garðeigendur á megin-
landi, sem hafa of margar plöntur
i görðum sinum og vilja losna við
þær, ekki að fleygja þeim, heldur
setja þær i kassa og senda til
Eyja. Þetta er fólki að kostnaðar-
lausu þvi Flugfélag Islands flytur
plöntu-pakkana ókeypis.
Fyrsti pakkinn er þegar kom-
inn til Eyja og er almennt búizt
við að undirtektir fólks verði góð-
ar. Sigurgeir Kristjánsson frétta-
ritari blaðsins i Eyjum sagði:
„Ég hef aldrei verið neitt sér-
staklega hrifinn af blómum, en ég
hef ekki gert mér grein fyrir þvi
fyrr en nú hvað allir eru háðir
gróðrinum og aldrei haft eins
gaman af blómum I görðum eins
og nú”.
Meðai verka á sýningu Gunnars I. Guðjónssonar eru nokkrar tréristu-
myndir. Hér birtum við mynd af einni þeirra.
Gunnar I. Guðjónsson,
sýnir d Kjarvalsstöðum
Gunnar Ingibergur Guðjónsson
opnar málverkasýningu að Kjar-
valsstööum, laugardaginn 31.
maf, kl. 16.00. Gunnar er fæddur i
Reykjavik, 5. september 1941,
stundaði nám og vann að mynd-
list hér heima og erlendis á árun-
um 1973 og 74, siðast á Spáni við
Escuela Massana I Barcelona.
Á sýningunni eru 64 olíumál-
verk, 5 aquarellur (vatnslita-
myndir), 4 oliukritarmyndir,
tvær málaðar með acryllitum, og
ein mósaikmynd, allt I allt eru 84
númer á sýningunni, að tréristum
meötöldum.
Sýning Gunnars Ingibergs
Guðjónssonar verður opin frá
laugardeginum 31. mai til 8,júni.
Opnunartimi hússins er frá kl.
16.00-22.00, (á mánudögum lokað
skv. húsreglum), en á sunnudög-
um er opið frá kl. 14.00-22.00.
Fjöldi víðförulla íslendinga, sem heimsótt
hafa Færeyjar, ferðast um eyjarnar og
kynnst fólkinu, eru á einu máli um að ferð
til Færeyja sé öðruvisi en aðrar utanlands-
ferðir. Þeir eru líka á einu máli um
að Færeyjaferð sé ógleymanlegt ævintýri.
Það sem gerir Færeyjaferð að ævintýri,
er hin mikla náttúrufegurð, ásamt
margbreytilegum möguleikum á skemmti-
og skoðunarferðum um eyjarnar, og siðast
en ekki síst hið vingjarnlega viðmót fólks-
ins. Ef þú ert einhvers staðar velkominn
erlendis, þá er það í Færeyjum.
Færeyjaferð er skemmtileg fjölskylduferð,
og hún er likaogekki siður tilvalin ferð fyrir
starfshópa og félagasamtök. Og nú er
i fyrsta sinn hægt að fljúga til útlanda frá
öðrum stað en suðvesturhorni landsins.
Við fljúgum til Færeyja bæði frá Reykjavik
og Egilsstöðum.
Færeyjaferð er ódýrasta utanlandsferð
sem völ er á.
Félög með beint flug frá Reykjavík og Egilsstöðum
FLVCFÉLAC LOFTLEIBIR
ISLA/VDS